Morgunblaðið - 13.03.2021, Qupperneq 22
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Bandaríska vefritið CIO Appli-
cations, sem sérhæfir sig í markaðs-
tækni, hefur valið áhrifavaldafyrir-
tækið Ghostlamp sem eitt af tíu
bestu þjónustufyrirtækjum í mark-
aðstæknilausnum í Evrópu. Valgeir
Magnússon forstjóri Ghostlamp,
sem prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs-
ins, segir í samtali við miðilinn að
rétt eins og lampi Aladdíns í ævin-
týrinu í bókinni Þúsund og einni
nótt, þá hjálpi Ghostlamp markaðs-
fólki að skapa áhrifavaldaherferðir
drauma sinna.
Eins og lýst er í greininni hefur
Ghostlamp upplýsingar í kerfi sínu
um meira en 50 milljónir áhrifavalda
um allan heim. Kerfi fyrirtækisins
getur með sjálfvirkum hætti fundið,
samið við og greitt áhrifavöldum fyr-
ir þjónustu þeirra.
Stöðug þróun í gangi
Valgeir segir í samtali við
Morgunblaðið að stöðug þróun sé í
gangi hjá fyrirtækinu og síðar í þess-
um mánuði muni fyrirtækið í fyrsta
skipti hefja samstarf með tiktok-
áhrifavöldum. „Það er mjög spenn-
andi viðbót,“ segir Valgeir.
Eins og hann útskýrir á Ghost-
lamp leitarvél sem leitar uppi áhrifa-
valda um allan heim. „Við vitum
hvaða áhrif fólkið hefur og hvers
konar fylgjendur það er með.“
Kerfið virkar þannig að þegar við-
skiptavinur óskar eftir þjónustu
áhrifavalda í gegnum Ghostlamp vel-
ur fyrirtækið rétta samsetningu
áhrifavalda og sendir þeim tilboð um
samstarf. Eftir að samningar nást
fjalla áhrifavaldarnir um vörur við-
skiptavinarins í færslum sínum á
samfélagsmiðlum.
Spurður hvort áhrifavaldar séu
alltaf til í tuskið þegar Ghostlamp
bankar á dyrnar segir Valgeir að
auðvitað séu aldrei allir tilbúnir í
samstarf, en stór hluti sé reiðubúinn
að vinna með fyrirtækinu. „Það fer
oft eftir vörunni sem við erum að
meðhöndla. Við erum að vinna með
minni og meðalstórum
áhrifavöldum og þeir
eru oft varari um sig og
vilja vera samkvæmir
sjálfum sér í því sem
þeir kynna fyrir aðra.
Þeir eru ekki með nema
það passi inn í þeirra
lífsstíl. Stóru áhrifavald-
arnir hafa annan hátt á
því þar eru svo miklir
peningar í spilinu. Þeir
taka að sér nánast hvað
sem er.“
Allt niður í þúsund
Eins og Valgeir út-
skýrir notast Ghostlamp
við áhrifavalda sem eru
með allt niður í eitt þúsund fylgjend-
ur. Oft er þar um að ræða venjulegt
fólk sem skilgreinir sig ekki endilega
sem áhrifavalda og hafa margir til
dæmis aldrei áður fengið greitt fyrir
færslur sínar á samfélagsmiðlunum.
„Fólk áttar sig ekki alltaf á að það sé
með verðmæti í höndunum.“
Starfsemi Ghostlamp fer mest
fram í Bandaríkjunum en einnig í
Mið-Austurlöndum, Suður-Ameríku
og Evrópu, að sögn Valgeirs. „Við
erum líka aðeins farin að prófa okkur
áfram í Afríku.“
Spurður um ár-
angur af herferðun-
um segir Valgeir að
oftast gangi herferð-
irnar vel, en það
komi fyrir að þessi
tegund markaðs-
setningar henti ekki
vörunum sem um
ræðir. „Viðskipta-
vinurinn verður þó
aldrei fyrir skaða því
okkar tilboð gengur
út á að tryggja
ákveðin viðbrögð. Ef
illa gengur er það
okkar vandamál.“
Í greininni í CIO
Applications er
nefnt dæmi af bandarísku verslana-
keðjunni Whole Foods og vel heppn-
aðri herferð þeirra með Ghostlamp
en fyrirtækið óskaði eftir því að fá
áhrifavalda í nágrenni við allar
Whole Foods-verslanir til að kynna
atlantshafsbleikju. Áhrifavaldarnir
voru beðnir að elda máltíð úr bleikj-
unni og birta á Instagram.
Pipar TBWA á 98%
Spurður um eignarhald Ghost-
lamp segir Valgeir að auglýsinga-
stofan Pipar TBWA eigi nú 98% af
félaginu, en Valgeir er stjórnarfor-
maður auglýsingastofunnar og fram-
kvæmdastjóri útibús hennar í Nor-
egi. „Við höfum verið að eignast
meira og meira af félaginu og nýlega
keyptum við aðra hluthafa út með
framvirkum samningum.“
Velta Ghostlamp á síðasta ári var
lítil vegna kórónuveirunnar en Val-
geir á von á að tekjurnar á þessu ári
fari yfir 100 milljónir króna. „Þetta
er ekki risabissness eins og staðan er
í dag en vaxtartækifærið er mikið.“
Aðspurður segir Valgeir að Ghost-
lamp hafi verið frumkvöðull á sínu
sviði en í dag séu fleiri sambærileg
fyrirtæki komin á markaðinn. „Það
eru þó fá fyrirtæki sem geta sett
herferðir af stað hvar sem er í heim-
inum eins og við getum.“
Hann segir að Ghostlamp njóti
ákveðinnar sérstöðu þar sem fyrir-
tækið vinni út frá viðskiptavinunum
og finni áhrifavalda sem henta í
hvert skipti. Önnur fyrirtæki vinni
hins vegar beint með áhrifavöldum
og selji þjónustu þeirra eins og um-
boðsskrifstofa. „Ghostlamp er þróað
innan auglýsingastofu sem gerir að
verkum að hugsunarhátturinn er
öðruvísi. Við hugsum meira um
áhrifavaldana eins og fjölmiðla sem
við kaupum birtingar hjá.“
Valið meðal þeirra bestu
í markaðstæknilausnum
AFP
Markaðsmál Ítalskir tiktok-áhrifavaldar að störfum.
- Ghostlamp bætir við tiktok-áhrifavöldum - 50 millj. manna - 100 m.kr. tekjur
Áhrif
» Stofnað 2014.
» Ghostlamp er markaðstorg
á vefnum sem gerir fyrir-
tækjum og auglýsingastofum
kleift að virkja áhrifavalda á
samfélagsmiðlum hvar sem er
í heiminum.
» Af samfélagsmiðlunum er
Instagram mest notað, þá Tik-
Tok og SnapChat.
» Tilraunir með tiktok-áhrifa-
völdum byrja í Bandaríkjunum.
» Ghostlamp er í eigu auglýs-
ingastofunnar Pipars TBWA.
» Prófa sig áfram í Afríku.
Forsíðumyndin af
Valgeiri Magnússyni.
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021
ÁR
30% AFSLÁTTU
R
AF OHAUS VOGU
M
sér verkum. Úlfar verður sem fyrr
stjórnarformaður og Svafa verður
áfram varaformaður.
Stjórnarlaunin óbreytt
Á fundinum var samþykkt að
stjórnarlaun í félaginu yrðu óbreytt
frá liðnu ári. Þannig verða laun
stjórnarmanna 330 þúsund krónur á
mánuði og stjórnarformanns 660
þúsund krónur. Varaformaður fær
greiddar 495 þúsund krónur. Á
fundinum bar hluthafi fram spurn-
ingu um hvort stjórnin hefði hug-
leitt að lækka laun sín vegna þeirr-
ar stöðu sem fyrirtækið væri í.
Úlfar Steindórsson var til svars og
benti á að stjórnin hefði lækkað
laun sín á tímabili í faraldrinum.
Hins vegar bæri að líta til þess að
launin væru ekki há litið til
þeirrar miklu vinnu sem
fælist í starfi stjórnarinnar
á þessum tímum. Í fram-
sögu sinni minntist Nina
Jonsson á að stjórnin hefði
haldið allt að 50 fundi á síð-
astliðnu starfsári.
Heimild til kaupa
á eigin bréfum
Á fundinum var sam-
þykkt tillaga stjórnar um að félag-
inu yrði heimilt að kaupa allt að
10% af útgefnum hlutabréfum í
sjálfu sér á næstu 18 mánuðum.
Bogi Nils Bogason, forstjóri félags-
ins, ítrekaði í skýrslu sinni að félag-
ið væri vel í stakk búið til þess að
takast á við samkeppni á flugmark-
aði þegar markaðir opnuðust á nýj-
an leik.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stjórn Icelandair Group
mun haldast óbreytt næsta
starfsárið. Það varð niður-
staða á aðalfundi félagsins
sem haldinn var síðdegis í
gær. Tilnefningarnefnd fé-
lagsins hafði gert tillögu
um að stjórnarmennirnir
fimm fengju endurnýjað
umboð og varð það reyndin. Fjögur
önnur framboð bárust í aðdraganda
fundarins en eitt þeirra var dregið
til baka síðastliðinn miðvikudag. Í
stjórn Icelandair Group sitja því
Úlfar Steindórsson, Svafa Grön-
feldt, Guðmundur Hafsteinsson,
John F. Thomas og Nina Jonsson.
Að loknum aðalfundi hittist endur-
kjörin stjórn á fundi og skipti með
Stjórn Icelandair endurkjörin
- Aðalfundur félagsins haldinn í skugga kórónuveirunnar - Tekjur á síðasta ári
ekki svipur hjá sjón og tapið mikið - Forstjóri segir félagið í stakk búið til sóknar
Úlfar
Steindórsson
Guðmundur
Hafsteinsson
Svafa
Grönfeldt
Nina
Jonsson
John F.
Thomas
13. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.13
Sterlingspund 179.03
Kanadadalur 101.9
Dönsk króna 20.614
Norsk króna 15.193
Sænsk króna 15.137
Svissn. franki 138.59
Japanskt jen 1.1814
SDR 183.47
Evra 153.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.8005
Hrávöruverð
Gull 1736.35 ($/únsa)
Ál 2149.5 ($/tonn) LME
Hráolía 68.45 ($/fatið) Brent
« Lífeyrissjóðurinn Gildi mun gera at-
hugasemdir við og greiða atkvæði gegn
tillögu stjórnar Arion banka um starfs-
kjarastefnu sem lögð verður fram á
aðalfundi félagsins næsta þriðjudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu á heima-
síðu Gildis. Sjóðurinn er stærsti hluthafi
bankans með 9,61% hlut.
Í tilkynningunni segir einnig að í bók-
un frá Gildi sem lögð verður fram á
fundinum segi m.a: „Stjórn bankans
hefur ekki með fullnægjandi hætti rök-
stutt þörfina og tilgang þess að nýta
heimild til þess að koma á fót árangurs-
tengdu launakerfi, aukningu kauprétta
og áskriftarréttindum. Laun stjórnenda
bankans virðast að mati sjóðsins, þegar
tillit er tekið til möguleika á árangurs-
tengdum greiðslum, kaupréttum og
áskriftarréttindum, hærri en það sem
gengur og gerist hjá öðrum íslenskum
bönkum og skráðum fyrirtækjum sem
starfa á íslenskum markaði.“
Gildi leggst gegn starfs-
kjarastefnu Arion banka
STUTT