Morgunblaðið - 13.03.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 13.03.2021, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Faglegar heildarlausnir – allt á einum stað. Samkeppnishæf verð. Háþrýsti- og gluggaþvottur, þrif á bílakjöllurum, hreingerning og viðhald gólfa. Sérverkefni Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO lýsti því yfir í gær að hún sæi enga ástæðu fyrir ríki heims til að hætta notkun bóluefnis AstraZeneca og Oxford-háskóla gegn kórónuveir- unni, en nokkur ríki hafa stöðvað tímabundið notkun þess vegna ótta við að það geti ýtt undir blóðtappa í fólki. Lyfjastofnun Evrópu, EMA, ákvað í gær að setja bráðaofnæmi á lista yfir mögulegar aukaverkanir AstraZeneca-efnisins. Stofnunin tel- ur bóluefnið öruggt. Margaret Harris, talsmaður WHO, sagði á blaðamannafundi samtakanna að bóluefnaráð WHO væri að skoða þau gögn um öryggi efnisins sem hefðu borist, en lagði áherslu á að engin tengsl hefðu fund- ist á milli efnisins og blóðtappa- myndunar í fólki. „AstraZeneca er frábært bóluefni, eins og hin efnin sem nú eru í notk- un,“ sagði Harris en bætti við að rannsaka þyrfti allar áhyggjur um öryggi efnisins. Þá ítrekaði stofnunin að engin dauðsföll hefðu verið rakin beint til bóluefnis, þrátt fyrir að milljónir manna hefðu nú verið bólusettar gegn kórónuveirunni. Ítalía og Austurríki bættust í gær í hóp þeirra ríkja sem hafa stöðvað notkun efnisins, og Taíland og Búlg- aría hafa einnig ákveðið að bíða með að hefja bólusetningu með efninu. Ástralar og Kanadamenn lýstu því hins vegar yfir að þeir sæju enga ástæðu til þess að fresta eða tefja bólusetningar með efninu. Lyfjastofnun Evrópu ákvað hins vegar í gær að bæta bráðaofnæmi á lista yfir mögulegar aukaverkanir, en sú ákvörðun var byggð á skoðun stofnunarinnar á 41 tilfelli mögulegs bráðaofnæmis af um 5 milljónum bólusetninga í Bretlandi. Sagði sérstök nefnd stofnunarinn- ar sem metur áhættu af lyfjum og bóluefnum að í sumum þeirra tilfella væri líklegt að um tengsl við bóluefn- ið væri að ræða. Ítalir loka skólum á ný Ríkisstjórn Ítalíu tilkynnti í gær að norðurhluti landsins myndi aftur þurfa að sæta hertum sóttvarnaað- gerðum eftir að nýjum tilfellum fjölgaði mjög í síðustu viku. Verður skólum, söfnum, veitinga- húsum og krám lokað frá og með næsta mánudegi, og ná takmarkan- irnar meðal annars til Langbarða- lands, sem varð einna verst úti í fyrstu bylgju faraldursins. Hét Mario Draghi, forsætisráð- herra Ítalíu, því að allt yrði gert til þess að koma í veg fyrir að atburðir síðasta vors myndu endurtaka sig. AFP Bólusetning WHO segir ekki ástæðu til að hætta notkun AstraZeneca. Engin ástæða til að hætta - WHO segir bóluefni AstraZeneca öruggt og óhætt til notkunar - EMA bætir bráðaofnæmi á lista yfir mögulegar aukaverkanir en telur bóluefnið öruggt Khin Maung Zaw, lögmaður Aung San Suu Kyi, hafnaði í gær öllum ásökunum herforingjastjórnarinnar í Búrma á hendur henni, en hún bar henni á brýn í fyrradag að hafa stung- ið undan fúlgum fjár í bæði banda- ríkjadölum og gulli. Sagði Zaw við AFP-fréttastofuna að ásakanirnar væru eins og brandari, og að hann hefði aldrei orðið vitni að jafn „ólög- mætu skítkasti“. Bresk stjórnvöld ráðlögðu í gær öllum breskum þegnum að yfirgefa Búrma, sem einnig er þekkt sem Mjanmar, þar sem pólitísk spenna og órói væru nú að færast í aukana og ógnin af ofbeldi væri orðin meiri. Ráð- lagði breska utanríkisráðuneytið því öllum Bretum að flýja land sem fyrst nema knýjandi þörf ræki þá til að dvelja áfram í landinu. Rússar lýsa yfir áhyggjum Um 70 manns hafa nú látist í mót- mælaöldunni sem skekið hefur landið eftir valdarán hersins 1. febrúar síð- astliðinn, og áætla Sameinuðu þjóð- irnar að um 2.000 manns hafi verið handteknir. Fimm blaðamenn voru ákærðir í gær fyrir að hafa fjallað um mótmæl- in, og segir í ákærum á hendur þeim að þeir hafi farið gegn lögum sem meini fólki að valda ótta eða dreifa falsfregnum. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi á miðvikudaginn beitingu ofbeldis gegn friðsömum mótmæl- endum, og sögðu Kínverjar, sem hafa stutt við bakið á hernum undanfarin ár, að kominn væri tími til að leita friðsamlegra lausna. Rússnesk stjórnvöld lýstu því yfir í gær að þau hefðu áhyggjur af auknu mannfalli meðal óbreyttra borgara og að ástandið væri mjög varhugavert. Hafnar öllum ásökunum - Breskir þegnar yfirgefi Búrma AFP Mótmæli Lögreglan í Jangon sést hér handtaka nokkra mótmælendur innan um brostið götuvígi í gær. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í fyrsta sinn frá embætt- istöku í fyrrinótt, þar sem hann minntist þeirra sem hefðu látið lífið í heimsfaraldrinum og fór yfir þann ár- angur sem hefði náðst í baráttunni gegn kórónuveirunni. Sagði hann brýnt að Bandaríkjamenn héldu áfram að huga að sóttvörnum og létu bólusetja sig. „Nú, þegar við komum undan dimmum vetri og höldum inn í vongott vor og sumar, er ekki rétti tíminn til þess að hætta að fylgja reglunum,“ sagði Biden, og bætti við að ef áfram yrði haldið á sömu braut væru góðar líkur á því að Bandaríkja- menn gætu haldið þjóðhátíðardag sinn, 4. júlí næstkomandi, líkt og áður fyrr. „Það myndi gera þennan sjálf- stæðisdag mjög sérstakan, þar sem við héldum ekki bara upp á sjálfstæði þjóðar okkar, heldur einnig sjálfstæði okkar frá veirunni,“ sagði Biden. Biden fagnaði einnig í ræðu sinni því að Bandaríkjaþing samþykkti í vikunni neyðarpakka, þar sem 1.900 milljörðum Bandaríkjadala verður veitt í efnahaginn. Sagði Biden pakk- ann skipta sköpum fyrir almenna Bandaríkjamenn. Aðgengilegt öllum fyrir 1. maí Ríkisstjórn Bidens hefur stefnt að því að 100 milljónir Bandaríkjamanna verði bólusettir fyrir lok apríl- mánaðar, og stefnir allt í að sá áfangi verði í höfn löngu fyrr, þar sem um 2 milljónir Bandaríkjamanna fái bólu- efni á degi hverjum. Hyggst Biden nú gera bóluefnið aðgengilegt öllum fullorðnum Banda- ríkjamönnum fyrir 1. maí. „Það er ljós og betri tíð í vændum,“ sagði Bi- den að lokum. AFP Bandaríkin Biden ávarpaði þjóð sína vegna faraldursins í gær. Fagni 4. júlí líkt og fyrir faraldurinn Fleiri tvíburar koma nú í heiminn en nokkru sinni áður, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í lækna- tímariti Oxford-háskóla, Human Reproduction, í gær. Í niðurstöðum hennar kemur fram að nú fæðist um 1,6 milljónir tvíbura á hverju ári, og hefur þeim fjölgað um þriðjung frá áttunda áratug 20. aldarinnar. Er það nú svo að ein af hverjum 42 fæð- ingum felur í sér fæðingu tvíbura. Christiaan Monden, prófessor við Oxford og einn af höfundum rann- sóknarinnar, sagði að bæði rauntala og hlutfall tvíburafæðinga hefði ekki verið hærra síðan mælingar hófust um miðja 20. öld, og líklega aldrei verið hærra í allri veraldarsögunni. Í rannsókninni er fjölgunin eink- um rakin til aukningar í tækni- frjóvgun, sem aftur geti leitt til fjöl- burafæðinga. Þá er einnig nefnt sem orsakaþáttur sú staðreynd að konur eignist nú oftar börn síðar á lífsleið- inni. Þá kemur fram í rannsókninni að aukningin sé nánast eingöngu drifin af fjölgun tvíeggja tvíbura, þar sem hlutfall eineggja tvíbura hafi haldist stöðugt í fjórum af hverjum 1.000 fæðingum. Aldrei fleiri tvíburafæðingar í heiminum - 1,6 milljónir tvíbura fæðast á hverju ári - Tvíeggja tvíburum fjölgar meira AFP Tvíburahátíð Tvíburafæðingum hefur fjölgað á undanförnum áratugum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.