Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 28

Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Krabbamein hafa áhrif á kynlíf karla á mismunandi hátt. Þeir sem greinast ungir segja gjarna að kyn- lífið hafi algerlega fall- ið í skuggann fyrir sjálfum sjúkdóminum jafnvel þótt kyngetan hafi enn þá verið fyrir hendi. Komi heilsan til baka verður kynlífið aftur mikilvægt. Ungir menn sem fá krabbamein í annað eistað læknast oftast af meininu. Sumir þeirra segja að kynlífið hafi aldrei verið betra en eftir þá reynslu. Það hafi styrkt til- finningatengslin við makann að ganga í gegnum þetta. Karlar geta notið kynlífs langt fram eftir aldri. Í raun eru engin efri mörk varðandi kynlíf karla, ef heilsan er í lagi. Blöðruhálskirtillinn Krabbamein verða algengari eftir því sem aldurinn færist yfir. Algeng- asta krabbamein karla á upptök sín í blöðruhálskirtlinum. Meðalaldur þeirra sem greinast er um sjötugt. Vandamál tengd kynlífi eru ein al- gengasta aukaverkun meðferðar við þessu meini. Sé meinið staðbundið við greiningu eru miklar líkur á að það sé hægt að lækna það eða lifa með því fram á háan aldur. Mikilvægi kynlífs á efri árum Þriðjungur karla milli sjötugs og áttræðs telur kynlíf mikilvægt fyrir lífsgæðin en jafn stór hópur segir kynlíf ekki skipta neinu máli. Einn af fimm segist ekki myndu velja að gangast undir meðferð gegn stað- bundnu krabbameini í blöðruhálsi ef vitað væri að það hefði líklega áhrif á kynlífið. Hins vegar segja tvöfalt fleiri að þeir myndu alltaf velja með- ferð þrátt fyrir aukaverkanir. Kynlífsathafnir Þegar valið er af handahófi segj- ast átta af tíu körlum á aldrinum 60- 69 ára fá kynferðislega fullnægingu að minnsta kosti einu sinni í mánuði og hafa af því nokkra ánægju. Kyn- lífsathafnir dragast þó saman þegar aldurinn færist yfir og eru sambærilegar tölur tæplega annar hver karl á aldrinum 70-80 ára. Aðeins þrír af tíu hafa samfarir að með- altali einu sinni í mán- uði eftir sjötugt. Stífnin Meirihluti þeirra sem láta fjarlægja blöðru- hálskirtilinn verður fyr- ir því að limurinn stífn- ar ekki sem skyldi, ef þá nokkuð. Þegar ristruflanir eru það miklar að ekki er lengur hægt að hafa samfarir án hjálpartækja hefur það mikil áhrif á lífsgæði þeirra sem í því lenda. Margvísleg bjargráð eru þó til staðar eins og lyf og pumpur, en einnig er hægt að framkvæma að- gerðir þar sem prótesur af ýmsu tagi eru settar inn í tippið. Best er að ráð- færa sig við þvagfæraskurðlækni varðandi þessi mál. Fullnægingin Hjá körlum sem hafa farið í að- gerð þar sem blöðruhálskirtillinn er fjarlægður er enginn sæðisvökvi lengur til staðar, því framleiðsla sæðisvökva er eina hlutverk blöðru- hálskirtilsins. Fullnægingin verður því þurr, en það dregur verulega úr nautninni. Þurr fullnæging hefur svipuð neikvæð áhrif á lífsgæði karla og þverrandi limstífni. Kynlíf skiptir máli fyrir vissa eldri karla, en alls ekki alla. Það er því mikilvægt að læknirinn ræði þessi mál vandlega við hvern og einn áður en meðferð er ákveðin. Krabbamein og kynlíf karla Eftir Ásgeir R. Helgason Ásgeir R Helgason » Þriðjungur karla milli sjötugs og áttræðs telur kynlíf mikilvægt fyrir lífs- gæðin, en jafn stór hópur segir kynlíf ekki skipta neinu máli. Höfundur er dósent í sálfræði við HR og sérfræðingur hjá Krabbameins- félaginu. asgeir@krabb.is Hvern hefði órað fyrir því að notkun andlitsgrímna yrði órjúfanlegur hluti hins daglega lífs, eitthvað sem varla var til í huga okkar áður. Það er um- hugsunarvert. Þórólfur og Fauci Aðspurður um grím- unotkun hefur sótt- varnalæknir gefið í skyn að þær séu komnar til að vera, um einhverja framtíð, ef hann fengi að ráða. Svo mátti á honum skilja að grímu- notkun væri undir okkur komin. Hún væri almenn og fólki liði greini- lega mjög vel með þær. Kolbrún Bergþórsdóttir brást við þessu í leiðara Fréttablaðsins með eftirfar- andi hætti: „Það á ekki að vera hægt að temja heila þjóð eins og hunda … og skikka hana til að bera grímu við hin ýmsu tækifæri og ætlast síðan til að hún taki þessu öllu saman fagn- andi.“ Hann ætti að prófa að vera með andlitsgrímu lungann úr deg- inum líkt og t.d. starfsfólk í heil- brigðisþjónustu, í verslunum og víð- ar. Fólk vill almennt standa sig og axla ábyrgð. Grímurnar veita ör- yggi, kannski falskt öryggi eins og sóttvarnalæknir benti á í upphafi faraldursins. Hvað hef- ur breyst síðan þá, eru vísindin árstíðabundin? Hvers vegna eru grím- ur hættar að veita falskt öryggi? Guðrún Bergmann fjallar ein- mitt um þetta á heima- síðu sinni; Grímur eða ekki grímur. Yfirmað- ur sóttvarna í Banda- ríkjunum, dr. Fauci, hefur verið álíka hvik- lyndur og Þórólfur Guðnason. Þar hafa menn skipt nokkrum sinnum um skoðun á gildi grímunotkunar. En hafa grímur sannað gildi sitt? CO2 eða O2 Bakteríur og veirur eru örsmáar og þá sérstaklega veirur. Borið sam- an við þykkt mannshárs, sem er 80 míkrómetrar, er einstök baktería tveir míkrómetrar, 1/40 af þykkt hárs. Veiruagnir eru hins vegar of smáar til að mælast í míkrómetrum, heldur eru þær mældar í nanómetr- um; 17-140 nanómetrar (10 milljón nanómetrar eru í einum sentimetra). Hundruð, jafnvel þúsundir veira komast fyrir í einni bakteríufrumu. Veirurnar berast frá okkur í gegn- um grímuna með úða og dropum. Möskvastærð grímnanna er allt of mikil til að hindra það. Auk þess liggja þær ekki alveg þétt að andlit- inu. Veirur geta dvalið í loftinu í mínútur og jafnvel klukkutíma. Sýk- ingarhætta eykst til muna í illa loft- ræstu rými og aldrei er nógsamlega hamrað á því hversu mikilvæg loft- skipti innanhúss eru. Andlitsgrímur geta verið gróðrarstía fyrir örverur og notandinn andar að sér hluta þess lofts sem hann andar frá sér. Grímur og aftur grímur Til er fjöldi rannsókna um kosti og galla andlitsgrímna, N95-, skurð- stofu- og baðmullargrímna. Í heim- ildarmyndinni Maskfacts frá sein- asta ári er málið krufið með vísan í fjölda rannsókna. Fyrsta rann- sóknin um gildi grímunotkunar vegna Covid-19 kom frá Danmörku þar sem smit var borið saman milli tveggja hópa utandyra, með og án grímna. Ekki kom fram marktækur munur milli hópa. Guðrún Berg- mann fjallar um þetta í grein sinni þar sem fram kemur að þrjú vísinda- tímarit, the Lancet, the New Eng- land Journal of Medicine og JAMA (tímarit the American Medical Asso- ciation), hafa öll neitað að birta nið- urstöður rannsóknarinnar. Engu að síður hafa þessi sömu tímarit fjallað mikið um aðrar rannsóknir, tengdar Covid-19. Ýmsir hafa reyndar borið þetta til baka, að þessi tímarit hafi neitað að birta rannsóknina. En and- litsgrímur eru reyndar hápólitískar því þær snúa að grunnfrelsi okkar. Hefðin Annaðhvort veita andlitsgrímur vernd eða ekki. Þær hafa verið not- aðar í heilbrigðisþjónustu til fjölda ára, en saga þeirra er lengri. Notk- un andlitsgrímna hefur verið við lýði í aldaraðir hjá menningar- samfélögum vítt og breitt um heim- inn, vegna trúar, hátíðahalda o.s.frv. Með tilkomu sýklafræðinnar í byrj- un 20. aldar hófu læknar að nota andlitsgrímur, undanfara nútíma- skurðstofugrímna, í þeim tilgangi að vernda sjúklinga fyrir mögulegri sýkingu. Í heimildarmyndinni sem vísað er til hér að framan er vitnað í rannsókn á sýkingarhættu sjúklinga í skurðaðgerðum þar sem enginn marktækur munur kom fram eftir því hvort læknar og aðrir er sinntu aðgerðum voru með skurð- stofugrímu eða ekki. Mikið er til af rannsóknum um kosti og galla andlitsgrímna. Ekki er öruggt að allar séu þær lausar við hagsmunaárekstra. Nóg er til af óháðum rannsóknum. Þær benda til þess að ástæða sé til að efast um gagnsemi grímnanna. Samkvæmt þeim er ráðlegt að forðast bómull- argrímur. Í raun og veru ætti aldrei að setja nokkuð fyrir vitin á sér sem hindrað gæti súrefnisupptöku lík- amans, nema þá til að verjast frost- köldu lofti eða mengun, því súrefn- isupptaka líkamans skerðist eftir tiltölulega stutta notkun. Þess utan vitum við ekki um sálfræðilegu áhrifin af öllum þessum „bófa“- andlitum. Hvað segja börnin okkar? Sálarheill þeirra virðist verða út undan í þessu fári því grímur eru komnar til að vera í smitlausu landi, að því er virðist. Reyndar, eftir langt hlé, hafa tvö smit greinst utan sóttkvíar, vonandi höldum við ró okkar þrátt fyrir það og látum ekki óttann ná tökum á okkur enn og aft- ur. Heimildir: https://www.frettabladid.is/skodun/ takmarkanir/ https://gudrunbergmann.is/grimur-eda- ekki-grimur/ https://themodelhealthshow.com/ maskfacts/ https://www.visir.is/g/20202040104d Að fella grímuna Eftir Ara Tryggvason » Að ala á þeim ótta sem hefur mengað samfélag okkar með andlitsgrímum er grafalvarlegt, engin vísindaleg gögn, eitt í dag og annað á morgun Ari Tryggvason Höfundur er hættur störfum, tekur þátt í Co-viðspyrnunni. arit54@gmail.com Hinn 26. febrúar síðastliðinn veitti rík- isstjórn Íslands félag- inu Afrekshug fjög- urra milljóna króna styrk til þess að láta gera afsteypu af verki Nínu Sæmunds- son Afrekshug eða Spirit of Achieve- ment, sem hefur ver- ið táknmynd Waldorf Astoria-hótelsins í New York síðan 1931. Afsteypuna vill fé- lagið láta reisa á Hvolsvelli til ævarandi minningar um frægustu listakonu héraðsins og fyrstu ís- lensku konuna sem gerði högg- myndalist að ævistarfi og naut al- þjóðlegrar frægðar fyrir verk sín. Stjórn Afrekshugar skipa: Frið- rik Erlingsson rithöfundur, Guð- jón Halldór Óskarsson, organisti og stjórnandi Karlakórs Rang- æinga, Anton Kári Halldórsson, oddviti sveitarstjórnar Rang- árþings eystra, Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og þýðandi, og Hrafn- hildur Inga Sigurðardóttir mynd- listarmaður. Spirit of Achievement / Afrekshugur Árið 1930 boðaði Waldorf Astor- ia-hótelið til samkeppni meðal myndlistarmanna í Bandaríkj- unum um höggmynd sem skyldi verða einkennistákn hótelsins. Nína, þá nýflutt til New York, sendi inn hugmynd sína að verk- inu Spirit of Achievement. Af 400 innsendum tillögum valdi dóm- nefndin verk Nínu. Styttan var sett upp fyrir ofan inngang hótels- ins árið 1931 og hefur öðlast ódauðlegan sess sem eitt af ein- kennistáknum borgarinnar og er auk þess einkennandi verk fyrir þetta tímabil í listasögunni, sem kennt er við Art Deco. Nína Sæmundsson Nína Sæmundsson var fædd Jónína Sæmundsdóttir í Nikulás- arhúsum í Fljótshlíð 22. ágúst 1892. Nína var yngst fimmtán systkina, fædd inn í bænda- samfélag 19. aldar þar sem fáar konur í alþýðustétt fengu tækifæri til að ráða lífi sínu eða láta draumana rætast. En upphafið að ferli hennar varð ævintýri líkast. Á unglingsaldri flutti hún til frænku sinnar í Kaupmannahöfn sem styrkti hana til náms. Nína nam fyrst við hina Konunglegu dönsku listaakademíu, var boðið að sýna verk sín m.a. í París og Róm en starfaði lengst af í Banda- ríkjunum. Saga hennar er öðrum þræði saga mikilla sigra, en um leið harmrænna örlaga sem höfðu mikil áhrif á líf hennar. Nína bjó frá upphafi yfir mikl- um viljastyrk og brennandi áhuga á listum og þróaði sinn klassíska stíl, þar sem hún sameinar hið stórbrotna og hið innilega. Hin uppreista manneskja varð eitt af helstu þemum hennar, ásamt and- litsmyndum, sem hún gerði að sér- grein sinni. Þekktust er Nína fyrir höggmyndir sínar, þ.á m. Sofandi dreng, Móðurást og Afrekshug. Nína lést í Reykjavík 29. janúar 1965. Um afsteypuna Þegar endurbætur á Waldorf Astoria-hótelinu hófust, 2016, var stytta Nínu tekin niður og sett í geymslu. Hótelið lét gera þrívídd- arskönnun af styttunni og þessi skönnun verður notuð við gerð af- steypunnar. Fyrirtækið Skulp- turstöberiet í Danmörku, sem hef- ur áratuga reynslu í þjónustu við myndhöggvara hvaðanæva úr heiminum, mun steypa eftirmynd styttunnar í fullri stærð, 263 sentímetra á hæð. Samningaviðræður um flutning afsteypunnar til Íslands standa yf- ir, sem og við flutningsaðila frá tollafgreiðslu og til Hvolsvallar. Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur frá upphafi verið afar já- kvæð gagnvart þessu verkefni, mun taka að sér að sjá um gerð stöpuls og undirbúning svæðisins þar sem Afrekshugur mun standa, á fyrirhuguðu miðbæjarsvæði samkvæmt aðalskipulagi, en þaðan mun hún horfa til suðurs og yfir þjóðveg númer eitt. Aðkoma að styttunni verður auðveld fyrir alla þá sem vilja virða hana fyrir sér í návígi. Afrekshugur stendur fyrir allt það sem við öll viljum geta búið yfir þegar á reynir. Síðasta ár hef- ur sýnt okkur að sem betur fer er afrekshugur víða í okkar sam- félagi. Þegar verkefnin fram und- an virðast óleysanleg, þegar ekk- ert virðist ganga eftir sem við ætluðum okkur – þá þurfum við að vekja afrekshuginn innra með okkur. Sterkari brýning til góðra verka verður varla fundin en Af- rekshugur Nínu Sæmundsson. Þitt framlag Félagið Afrekshugur var stofn- að í þeim tilgangi að safna styrkj- um til þessa verkefnis. Þann dag sem styttan verður afhjúpuð á Hvolsvelli verður félagið lagt nið- ur og ef eitthvað er inni á reikn- ingi þess verður þeim fjármunum skipt á milli björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli og góð- gerðarmála. Kostnaður við af- steypu og flutning er áætlaður á bilinu 8-10 milljónir. Stjórn Afrekshugar vill hvetja alla landsmenn, og Sunnlendinga sérstaklega, til að leggja þessu máli lið með 5.000 króna framlagi, með því að senda nafn og kenni- tölu á netfangið afrekshug- ur@gmail.com og fá beiðni senda í heimabanka. Þeir sem vilja styrkja verkefnið með hærri upp- hæð eru beðnir að tilgreina þá fjárhæð í þessum sama tölvupósti. Afrekshugur heima Eftir Friðrik Erlingsson » Sterkari brýning til góðra verka verður varla fundin en Afreks- hugur Nínu Sæmunds- son. Stjórn Afrekshuga. F.v. Anton Kári Halldórsson, Rut Ingólfsdóttir, Hrafnhildur Inga Sigurð- ardóttir og Friðrik Erlingsson. Á myndina vantar Guðjón Halldór Óskarsson. Höfundur er í stjórn Afrekshugar. afrekshugur@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.