Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 40
KÖRFUBOLTINN Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Þór frá Akureyri reif sig upp úr fall- sæti í úrvalsdeild karla í körfuknatt- leik, Dominos-deildinni, með því að vinna Stjörnuna 91:86 í Garða- bænum í gærkvöldi. Var þetta jafn- framt fyrsti útisigur Þórsara á tíma- bilinu eftir fjögur töp í fyrstu fjórum leikjunum. Stjarnan er í öðru sæti deild- arinnar, fjórum stigum á eftir topp- liði Keflavíkur, og virtist leikurinn í gær ætla að vera í takti við gengi lið- anna undanfarið. Tómas Þórður Hilmarsson skoraði 16 stig strax í fyrsta leikhluta er Stjarnan náði 33:24-forystu en gestirnir frá Ak- ureyri sneru taflinu við eftir hlé. Iv- an Aurrecoechea var þar í far- arbroddi, skoraði 29 stig og tók 16 fráköst. Spánverjinn hefur átt nokkra ansi góða leiki í vetur en þessi var sennilega sá allra besti. Sömuleiðis var Ingvi Þór Guð- mundsson öflugur í leiknum, skoraði 22 stig, en hann kom til félagsins ný- lega frá Haukum. Þórsarar mæta einmitt næst Haukum og þá verða öll lið deildarinnar búin að spila 14 leiki. Mikilvægur sigur Tindastóls Þá var mikið í húfi í Njarðvík þar sem heimamenn tóku á móti Tinda- stól en bæði lið berjast um að næla í sæti í úrslitakeppninni og voru í 9. og 10. sæti deildarinnar með tíu stig hvort um sig fyrir leikinn. Það voru svo gestirnir frá Sauðárkróki sem báru sigur úr býtum í Njarðtaks- gryfjunni, 77:74. Gestirnir náðu mest fimmtán stiga forystu í fjórða leikhluta og virtust eiga sigurinn vís- an, þökk sé meðal annars afbragðs- leik Nikolas Tomsick sem skoraði 28 stig. Úr varð hins vegar hörku- spenna á lokamínútu leiksins þar sem heimamenn fengu gullið tæki- færi til að hirða stigin. Þeir voru með boltann í stöðunni 71:73, þegar um 13 sekúndur voru til leiksloka, en Antonio Hester brást bogalistin. Gestirnir tóku því stigin tvö og skelltu sér upp í áttunda sætið. Fyrsti sigur Þórs á útivelli - Tindastóll sótti stigin til Njarðvíkur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Öflugur Ivan Aurrecoechea var stigahæstur Þórsara frá Akureyri er þeir unnu sinn fyrsta útisigur í vetur í Garðabænum gegn Stjörnunni í gær. er 21 árs gömul og lék með yngri flokkum Breiðabliks en fór 15 ára í Val og þaðan ári síðar í Stjörnuna. Hún kom síðan á ný í raðir Breiðabliks árið 2018 og hefur verið í lykilhlutverki hjá Kópavogsliðinu frá þeim tíma. Hún hefur orðið tvisvar Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari með liðinu. _ Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi varð í gær þriðji í svigi á Evr- ópumótaröð IPC sem fram fór í Liech- tenstein en þetta var lokadagur mót- araðarinnar þetta tímabilið. Hilmar lauk því keppni á tímabilinu með brons og silfurverðlaun í svigi. _ Sænska knattspyrnufélagið Häcken frá Gautaborg staðfesti í gær að Diljá Ýr Zomers væri komin til félagsins frá Val og hefði verið samið við hana til tveggja ára. Diljá, sem er 19 ára, lék áður með FH og Stjörnunni en gekk til liðs við Val fyrir síðasta tímabil. Hún á 50 leiki að baki í íslensku úrvalsdeild- inni og í þeim þrjú mörk. _ Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur áhyggjur af framherj- anum Tammy Abraham sem virðist ekki geta hrist af sér ökklameiðsli sem hann varð fyrir í janúar. Englending- urinn hefur spilað fimm leiki síðan þá og lítið getað æft á milli og þarf hann að undirgangast nánari læknisskoðun. _ Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram, hefur dregið sig út úr íslenska landsliðshópnum í handknattleik sem leikur í undankeppni HM í Norður- Makedóníu um næstu helgi. Karen er leikjahæst þeirra sem voru valdar í hópinn, með 102 landsleiki, en í til- kynningu frá HSÍ segir að hún hafi dregið sig úr hópnum af persónu- legum ástæðum, í samráði við sam- bandið og þjálfara. Eitt ogannað _ Hægri skyttan Birkir Benediktsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Aft- ureldingar. Birkir sleit hásin í annað sinn á tímabilinu í vikunni og rann handknattleiksdeildinni blóðið til skyldunnar að standa þétt við bakið á honum með því að bjóða honum nýjan samning. _ Agla María Albertsdóttir landsliðs- kona í knattspyrnu hefur skrifað undir nýjan samning við Íslandsmeistara Breiðabliks til tveggja ára. Agla María Karen Knútsdóttir Agla María Albertsdóttir Allt stefnir í æsispennandi loka- umferð í úrvalsdeild kvenna í hand- knattleik, Olísdeildinni, en KA/Þór lagði HK að velli í gærkvöldi, 29:23, í frestuðum leik úr tólftu umferð- inni. Leiknum þurfti að fresta tvívegis vegna veðurs en í gær var loks hægt að ljúka tólftu umferðinni í Kórnum. Þar endurheimtu norð- ankonur í KA/Þór toppsæti deild- arinnar með nokkuð afgerandi sigri. Staðan var 15:6, gestunum í vil, í hálfleik og mestur var mun- urinn 11 mörk. Rut Jónsdóttir átti stórleik fyrir KA/Þór, skoraði níu mörk úr tíu skotum en næst var Al- dís Ásta Heimisdóttir með átta mörk fyrir gestina. Aðeins eru tvær umferðir eftir, enda aðeins leikin tvöföld umferð þetta tímabil. KA/Þór er á toppnum með 19 stig og Fram er í öðru sæti með 17. KA/Þór fær Val í heimsókn í næstu umferð á meðan Framarar heimsækja FH. Svo mætast topp- liðin tvö í Framhúsinu í Safamýri í lokaumferðinni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Toppsætið Norðankonan Hulda Bryndís Tryggvadóttir sækir að vörn HK í Kórnum í gær en KA/Þór tyllti sér á toppinn með öruggum sex marka sigri. KA/Þór á toppnum 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Dominos-deild karla Stjarnan – Þór Ak................................. 86:91 Njarðvík – Tindastóll ........................... 74:77 Staðan: Keflavík 14 12 2 1289:1119 24 Stjarnan 14 10 4 1320:1235 20 Þór Þ. 14 9 5 1380:1264 18 KR 14 9 5 1268:1276 18 ÍR 14 7 7 1240:1226 14 Grindavík 14 7 7 1263:1294 14 Valur 14 6 8 1165:1193 12 Tindastóll 14 6 8 1260:1293 12 Þór Ak. 13 5 8 1137:1220 10 Njarðvík 14 5 9 1173:1203 10 Höttur 14 4 10 1219:1306 8 Haukar 13 3 10 1089:1174 6 1. deild karla Hamar – Álftanes ............................... 104:96 Fjölnir – Breiðablik.......................... 103:109 Selfoss – Skallagrímur......................... 68:73 Staðan: Breiðablik 11 8 3 1078:960 16 Hamar 11 8 3 1083:986 16 Sindri 11 7 4 994:975 14 Álftanes 12 7 5 1106:1034 14 Skallagrímur 12 7 5 1015:983 14 Vestri 11 5 6 939:1031 10 Fjölnir 11 3 8 959:1017 6 Hrunamenn 11 3 8 918:1055 6 Selfoss 12 3 9 924:975 6 Evrópudeildin Valencia – Fenerbahce ....................... 66:52 - Martin Hermannsson spilaði 20 mínútur, skoraði 11 stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 3 fráköst. 57+36!)49, KA og HK leika til úrslita í Kjör- ísbikar kvenna í blaki á sunnudag- inn eftir að hafa unnið sigra í und- anúrslitunum í gærkvöldi. KA-konur unnu sannfærandi sig- ur gegn fyrstudeildarliði Völsungs, 3:0, þar sem hrinurnar enduðu 25:13, 25:16 og 25:7. Paula Del Olmo Gomez var stigahæst KA- liðsins með 19 stig en Mireia Orozco skoraði 18. KA varð bikarmeistari kvenna í blaki í fyrsta skipti árið 2019 en bikarhelginni var aflýst á síðasta ári vegna kórónuveirunnar. Þá vann HK 3:1-sigur á Aftureld- ingu í síðari viðureigninni þar sem tvö efstu lið Mizuno-deildarinnar mættust. Kópavogsliðið vann fyrstu hrinuna, sem var lengst af hnífjöfn, 25:20, en Mosfellingar svöruðu með því að vinna næstu, 25:18. Kópa- vogsliðið tók hins vegar næstu tvær, 25:20 og 25:16, til að tryggja sér sæti í úrslitunum. Hjördís Ei- ríksdóttir var stigahæst í liði HK með 15 stig en Thelma Dögg Grét- arsdóttir skoraði 18 stig fyrir Aft- ureldingu. KA og HK leika til úrslita Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bikarhelgi Mireia Orozco (16) skoraði 18 stig fyrir KA sem leikur til úrslita í Kjörísbikarnum í Digranesi á sunnudaginn. Þar mæta norðankonur liði HK. Lengjubikar karla A-deild, 4. riðill: Leiknir R. – Þróttur R. ............................ 5:2 _ Breiðablik 12, Fylkir 9, Leiknir R. 9, Fjölnir 3, Þróttur R. 3, ÍBV 0. Stjarnan er komin í 8-liða úrslit en Fylkir og Leiknir R. berjast um annað sætið. A-deild, 2. riðill: Fram – Kórdrengir .................................. 1:1 England Newcastle – Aston Villa........................... 1:1 Þýskaland Eintracht Frankfurt – Meppen.............. 1:1 - Alexandra Jóhannsdóttir lék fyrstu 45 mínúturnar með Eintracht Frankfurt. Katar Al-Rayyan – Al-Arabi.............................. 2:0 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið. Danmörk Lyngby – Nordsjælland .......................... 0:3 - Frederik Schram var allan tímann á varamannabekk Lyngby. Holland B-deild: Excelsior – Jong Utrecht........................ 2:0 - Elías Már Ómarsson kom inn sem vara- maður hjá Excelsior á 82. mínútu. Nijmegen – Jong PSV ............................. 2:0 - Kristófer Ingi Kristinsson lék fyrstu 67. mínúturnar fyrir Jong PSV. 4.$--3795.$ Olísdeild kvenna HK – KA/Þór ........................................ 23:29 Staðan: KA/Þór 12 8 3 1 306:264 19 Fram 12 9 0 3 351:286 18 Valur 12 6 3 3 325:268 15 ÍBV 12 6 2 4 292:271 14 Haukar 12 4 3 5 296:307 11 Stjarnan 12 5 0 7 307:316 10 HK 12 4 1 7 290:318 9 FH 12 0 0 12 230:367 0 Þýskaland B-deild: Bietigheim – Hamm ............................ 20:25 - Aron Rafn Eðvarðsson varði 16 skot í marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Konstanz – Aue.................................... 28:26 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 4 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 4 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Undankeppni EM karla 3. riðill: Tékkland – Færeyjar........................... 28:20 _ Rússland 5, Úkraína 3, Tékkland 2, Fær- eyjar 0. Undankeppni ÓL karla 1. riðill í Svartfjallalandi: Noregur – Brasilía ............................... 32:20 Síle – Suður-Kórea ............................... 35:36 2. riðill í Montpellier: Túnis – Portúgal ................................... 27:34 Frakkland – Króatía ............................ 30:26 3. riðill í Berlín: Þýskaland – Svíþjóð............................ 25:25 - Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland. Slóvenía – Alsír ..................................... 36:28 %$.62)0-#

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.