Morgunblaðið - 13.03.2021, Page 41
NOREGUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur
Andersen Willumsson er spenntur
fyrir nýrri áskorun á sínum ferli.
Blikinn ungi, sem er tvítugur að
aldri, skrifaði undir þriggja og hálfs
árs samning við norska úrvalsdeild-
arfélagið Kristiansund í vikunni.
Hann kemur til félagsins frá upp-
eldisfélagi sínu Breiðabliki en
Brynjólfur er dýrasti leikmaður í
sögu Kristiansund.
Brynjólfur lék sinn fyrsta meist-
araflokksleik fyrir Breiðablik sum-
arið 2018 en hann á að baki 41 leik í
efstu deild þar sem hann hefur
skorað sjö mörk.
„Þetta leggst virkilega vel í mig
og ég er mjög spenntur að byrja að
æfa með norska liðinu,“ sagði
Brynjólfur í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það verður gaman að breyta um
umhverfi og prófa eitthvað alveg
nýtt. Nokkur lið í Skandinavíu
höfðu sýnt mér áhuga en Kristian-
sund var sá klúbbur sem sýndi mér
langmesta áhugann og það heillaði
mig. Ég get alveg viðurkennt það að
ég hef ekki fylgst neitt sérstaklega
vel með norsku úrvalsdeildinni í
gegnum tíðina en á sama tíma hefur
maður alltaf verið duglegur að kíkja
eftir því sem Íslendingarnir þarna
hafa verið að gera.
Það eru margir Íslendingar í
deildinni í dag og Alfons [Samspted]
félagi minn varð Noregsmeistari
með Bodö/Glimt á síðustu leiktíð.
Maður fylgdist vel með honum eins
og Davíð Kristjáni [Ólafssyni] í
Aalesund en við Davíð vorum liðs-
félagar í Breiðabliki. Þá eru Ari
Leifsson og Valdimar Þór Ingi-
mundarson, liðsfélagar mínir í U21-
árs landsliðinu, leikmenn Ströms-
godset og maður er því með ágætis-
mynd af því sem hefur verið að
gerast þarna að undanförnu.
Ég held að þessi deild eigi eftir að
henta mér vel en það verður auðvit-
að bara að koma í ljós,“ bætti
Brynjólfur við.
Erfitt að kveðja
Vegna kórónuveirufaraldursins
mun Brynjólfur æfa með Breiða-
bliki og halda til Noregs eftir fyrri
hluta lokakeppni EM sem lýkur í
lok mars en Brynjólfur var hluti af
U21-árs landsliðinu sem tryggði sér
sæti í lokakeppninni á síðasta ári.
Keppni í norsku úrvalsdeildinni
hefst í fyrsta lagi 1. maí en henni
hefur verið seinkað um mánuð
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar í
landinu.
„Auðvitað er það sérstakt að vera
búinn að skrifa undir samning við
félag í Noregi en vera samt áfram á
Íslandi og æfa með gamla liðinu
sínu. Aðstæðurnar eru hins vegar
eins og þær eru í heiminum í dag
vegna kórónuveirufaraldursins og
það er bara eitthvað sem maður
þarf að venjast. Mér líður alltaf vel í
Kópavoginum og það er mjög gott
að geta æft áfram með Blikunum.
Ég er fyrst og fremst að einbeita
mér að því að vera klár í slaginn
þegar hópurinn fyrir lokakeppni
EM verður tilkynntur. Ég æfi af
fullum krafti og geri mér vonir um
að vera í lokahópnum enda var mað-
ur hluti af hópnum sem tryggði sér
sæti í lokakeppninni.
Það verður erfitt að kveðja
Breiðablik þegar þar að kemur en
markmiðið var alltaf að fara út í at-
vinnumennsku þannig að maður
vissi innra með sér að þessi dagur
myndi renna upp.“
Háleit markmið
Þrátt fyrir ungan aldur stefnir
Brynjólfur hátt í framtíðinni en
hann á að baki 22 leiki fyrir yngri
landslið Íslands þar sem hann hefur
skorað þrjú mörk.
„Ég hef stefnt á að verða atvinnu-
maður í fótbolta síðan ég byrjaði að
sparka í bolta. Þegar ég horfi til
baka yfir tíma minn með Breiðabliki
er ég sáttur með það sem ég hef af-
rekað með félaginu og núna tekur
bara við nýr kafli á mínum ferli.
Ég vonast til þess að halda áfram
að þróa minn leik hjá Kristiansund
því þetta er lið sem vill spila fót-
bolta og ég tel að ég geti haldið
áfram að bæta mig þar. Það verður
auðvitað upplifun að þurfa að standa
á eigin fótum og vera ekki alltaf
bara í eldhúsinu hjá mömmu. Þetta
er bara hluti af því að þroskast,
bæði sem leikmaður og manneskja.
Ég er ennþá ungur og það er
nægur tími til þess að gera sig
gjaldgengan með A-landsliðinu en
það er að sjálfsögðu framtíðarmark-
mið hjá mér að spila fyrir A-
landsliðið einn daginn,“ bætti
Brynjólfur við í samtali við Morg-
unblaðið.
Vissi innra með mér að þessi
dagur myndi renna upp
- Brynjólfur æfir áfram með Breiðabliki en fer til liðs við Kristiansund í apríl
Morgunblaðið/Eggert
Bræður Willum Þór (18) og Brynjólfur Willumssynir (14) hafa verið samherjar í Breiðabliki og 21-árs landsliðinu.
Nú eru þeir báðir orðnir atvinnumenn en Willum leikur með BATE Borisov í Hvíta-Rússlandi.
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur, segir gamalt
og gott máltæki, og óhætt er að
segja að það hafi átt vel við í yfir-
standandi kórónuveirufaraldri.
Þar á ég við áhorfendur á
íþróttaviðburðum, eitt af því
sem var svo sjálfsagður og
órjúfanlegur hluti þeirra að við-
brigðin við að horfa á kappleiki
og mót án þeirra, fyrst og fremst
í gegnum sjónvarp, voru gríð-
arleg.
Hvað þá fyrir leikmenn, dóm-
ara og starfsmenn viðburða í
annars tómum íþróttamann-
virkjum þar sem hvert einasta
orð og jafnvel búkhljóð berg-
málar í salnum. Sem hefur verið
áhugavert út af fyrir sig.
Við Íslendingar erum með
þeim heppnustu á heimsvísu.
Hér hefur keppni í íþróttum verið
leyfð undanfarna tvo mánuði og
upp á síðkastið hafa áhorfendur
fengið að mæta á leiki og mót,
reyndar í takmörkuðu magni og
samkvæmt ströngum reglum.
Sumir hafa kveinkað sér und-
an því að íþróttirnar hafi þurft að
lúta þyngri skilyrðum en sumt
annað og telja fullvíst að öllu
verði lokað á ný ef einn smitaður
einstaklingur finnst á íþrótta-
viðburði. Ég efa ekki að á því yrði
tekið á sama hátt og tónleik-
unum í Hörpu. Það var ekki við
Hörpuna að sakast, sagði sótt-
varnalæknir réttilega, og leyfði
tónleikahald áfram.
Aðalmálið er að íþrótta-
hreyfingin sé samstiga, sem og
allir þeir sem nú mæta með
grímu í íþróttahúsin og sitja
tveimur metrum frá næsta
óskylda einstaklingi. Það eru
sérsamböndin, félögin og svo
áhorfendur sjálfir sem bera
ábyrgðina, það er undir þeim
komið að viðhalda þessu góða
ástandi þannig að það endist þar
til við verðum öll búin að fá
sprautu í upphandlegginn og
getum gefið veirunni langt nef.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Landsliðskonurnar Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir og Glódís Perla
Viggósdóttir mætast í átta liða úr-
slitum Meistaradeildar kvenna í
fótbolta en lið þeirra, Bayern Mün-
chen og Rosengård, drógust saman.
Leikið verður með viku millibili í
lok mars og sigurliðið mætir
Chelsea eða Wolfsburg í undan-
úrslitum. Sara Björk Gunnarsdóttir
og samherjar í Evrópumeistaraliði
Lyon mæta París SG en liðin eigast
einmitt við í stórleik í frönsku 1.
deildinni í kvöld. Sigurliðið mætir
Barcelona eða Manchester City.
Mætast í Meist-
aradeildinni
Morgunblaðið/Golli
Meistaradeild Sara Björk og
Glódís Perla eru í átta liða úrslitum.
Axel Stefánsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari kvenna í handknattleik,
hefur verið ráðinn þjálfari Stor-
hamar sem er efst í norsku úrvals-
deildinni í kvennaflokki. Hann tek-
ur við í sumar og mun þá stjórna
liðinu ásamt núverandi þjálfara,
Kenneth Gabrielsen. Axel var
landsliðsþjálfari 2016-2019 en þjálf-
aði áður um árabil í Noregi.
Storhamar er frá bænum Hamri,
rúma 100 km norður af Ósló, og
hefur unnið alla tólf leiki sína í úr-
valsdeildinni í vetur en keppni hef-
ur legið niðri síðan í janúar.
Axel tekur við
þjálfun toppliðs
Morgunblaðið/Eggert
Noregur Axel Stefánsson er kominn
aftur á kunnuglegar slóðir.
Brynjólfur Willumsson verður fyrsti Íslendingurinn sem leikur með Krist-
iansund. Liðið er nánast nýtt í fremstu röð norska fótboltans, það lék í
fyrsta sinn í úrvalsdeildinni árið 2017 og hefur frá þeim tíma ávallt endað í
fimmta til sjöunda sæti deildarinnar.
Kristiansund er frá samnefndum 25 þúsund manna bæ á vesturströnd
Noregs, skammt norðan við Molde og Álasund, en um 200 kílómetrum suð-
vestan við Þrándheim.
Tólf íslenskir knattspyrnumenn leika nú með ellefu af sextán liðum
norsku úrvalsdeildarinnar í karlaflokki og þeir eru þessir, eftir röð liðanna
á síðasta keppnistímabili:
Alfons Sampsted, Bodö/Glimt (Noregsmeistari), Björn Bergmann Sig-
urðarson, Molde (2. sæti), Viðar Örn Kjartansson, Vålerenga (3. sæti),
Hólmar Örn Eyjólfsson, Rosenborg (4. sæti), Brynjólfur Willumsson, Kristi-
ansund (5. sæti), Samúel Kári Friðjónsson, Viking (6. sæti), Viðar Ari Jóns-
son, Sandefjord (11. sæti), Emil Pálsson, Sarpsborg (12. sæti), Ari Leifsson
og Valdimar Þór Ingimundarson, Strömsgodset (13. sæti), Dagur Dan Þór-
hallsson, Mjöndalen (14. sæti) og Adam Örn Arnarson, Tromsö (meistari B-
deildar).
Þau fimm lið sem ekki eru með Íslendinga í sínum röðum eru Odd, Sta-
bæk, Haugesund, Brann og Lilleström. vs@mbl.is
Tólf Íslendingar í ellefu liðum
í norsku úrvalsdeildinni
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Ásvellir: Haukar – Þór Ak................. S19.15
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Snæfell .............. S16
1. deild karla:
Ice Lagoon-höll: Sindri – Vestri............ L16
1. deild kvenna:
Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR.............. L16
MG-höllin: Stjarnan – Njarðvík ............ L16
Hveragerði: Hamar/Þór – Vestri .......... S14
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK U – Afturelding............. S13.30
Hleðsluhöll: Selfoss – Grótta ............ S13.30
Austurberg: ÍR – Valur U................. S13.30
Víkin: Víkingur – Fram U ...................... S20
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Kórinn: HK – Víkingur Ó....................... L12
Reykjaneshöll: Keflavík – ÍA ................ L12
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Fylkir .... L13
Origo-völlur: Valur – Afturelding ......... L14
Jáverkvöllur: Selfoss – Stjarnan........... L14
Egilshöll: Fjölnir – ÍBV ......................... L15
Boginn: KA – Grindavík.................... L19.30
Vivaldi-völlur: Grótta – Vestri ............... S12
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – ÍBV ........ L14
BLAK
Kjörísbikar karla, undanúrslit:
Digranes: Hamar – Vestri ..................... L13
Digranes: HK – Afturelding.................. L20
Digranes: Úrslitaleikur kvenna............. S13
Digranes: Úrslitaleikur karla ........... S15.30
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands innanhúss fer fram í
Laugardalshöllinni. Keppt er í dag frá 11 til
15 og á morgun frá 12.10 til 16.
UM HELGINA!