Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 44

Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Þ að er ekki breitt bilið milli ljóss og myrkurs í álfheimi Ólafs Gunnars Guðlaugs- sonar. Ein skemmd tönn í munni álfakóngs færir hann alveg að brún hins illa, nokkuð sem þau okk- ar með persónulega reynslu af tann- pínu getum alveg tengt við. Að flestu öðru leyti er furðuveröld Benedikts búálfs kunnugleg en kannski ekki mjög svipmikil, samsett úr hug- myndum héðan og þaðan um þessar ósýnilegu handanheimsverur og töfrum slungna tilvist þeirra, sem við mannfólkið greinum óljóst „í berki trjánna“ og „í straumi ánna“ samkvæmt einum af söngtextum Karls Ágústs Úlfssonar, sem yrkir þá ásamt Andreu Gylfadóttur og bjó sögu Ólafs Gunnars í leikbúning. En það er sem sagt upphaf vandans sem leysa þarf í verkinu að Sölvar súri, leiðtogi dökkálfanna og bróðir Aðalsteins álfakóngs, lætur ræna Tóta tannálfi, mitt í hans reglulegu eftirlitsferð um munna álfahirðarinnar. Fljótlega fara skemmdir að hrjá hinn ljúfa álfa- kóng og þá fer að styttast í honum þráðurinn og þar með að flökta á ljóshnettinum sem álfheimar sækja birtu sína til. Viskubrunnurinn telur að mannabarn þurfi að koma að lausn málsins, og því sækir Bene- dikt búálfur, heimagangur í heimum manna til jafns við álfa, hana Dídí, sjö ára orkubolta sem er pínu hrædd við fótbolta, til að slást í hættuför til bjargar Tóta, með smá hjálp frá Daða, klígjugjörnum dreka með umtalsvert minna sjálfstraust en efni standa til. Eins formúlukenndur og söng- leikurinn um Benedikt búálf er þá eru á honum óþarflega miklir byggingargallar. Hann hefst á að minnsta kosti tveimur upphafs- lögum, þar sem álfheimar eru kynntir fyrir áhorfendum, en síðan þarf að kynna þá aftur fyrir Dídí þegar hún kemur á svæðið. Mjög óljóst er hvert verkefni Dídíar og félaga nákvæmlega er, og á endanum má engu muna að tann- álfurinn sem ætlunin var að frelsa gleymist í dýflissunni. Eins er óheppilegt að titilpersónan skuli vera nánast alveg laus við persónu- leika, því það vefst annars ekkert fyrir Ólafi Gunnari að gefa per- sónum sínum sterkan svip. Það má síðan hafa alls kyns skoð- anir á hversu mikið þetta kemur að sök fyrir heildaráhrif sýningar- innar, sérstaklega fyrir yngri áhorf- endur, sem eru jú markhópur fjölskyldusýninga. Sennilega ekki svo ýkja mikinn. Þar munar mikið um að Leikfélag Akureyrar ræðst í verkefnið af fullum krafti án nokk- urs „barnaafsláttar“ í metnaði og úrvinnslu. Benedikt búálfur er söngleikur með öllu. Óhjákvæmilega er tónlist Þor- valdar Bjarna Þorvaldssonar samt flutt með uppteknum undirleik. Sennilega aldrei hugsuð á annan veg, sem gefur Þorvaldi færi á að nýta alla mögleika fullskipaðrar sinfóníuhljómsveitar til viðbótar við rafmagnað poppband. Tónlistin er í stöðluðum stíl íburðarmikils söng- leikjapopps, dálítið karakterlaus sem slík, en aldrei minna en áheyri- leg. Söngur er í toppklassa á öllum póstum þó eins og endranær hafi jafnvægið milli söngs og undirleiks ekki verið fullkomið og hvert orð skilist. Leikmynd Auðar Aspar Guð- mundsdóttur er svipmikil, einföld og þénug og vinnur vel með lýsingu Friðþjófs Þorsteinssonar sem ber mikla ábyrgð á að draga fram mun- inn á ólíkum heimum, myrkri og ljósi og ástandinu í glímunni þar á milli. Búningar Auðar Aspar sömuleiðis „réttir“ á öllum póstum. Dansar Lees Proud að vanda kröftugir og skýrir og eins er sviðsetningarvinna Völu Fannell hnökralaus, í rými sem er skipað á mjög hefðbundinn hátt með hliðarflekum og upphækkun baka til eins og sviðsaðstæður í Samkomuhúsinu krefjast. Vala á líka heiður skilinn fyrir kröftugan og skýran leikblæinn á sýningunni, þótt þar skipti mann- valið sennilega mestu. Hér er samankomið algert úrvalslið í leik- gleði og útgeislun. Konungshjón álf- anna eru Björgvin Franz Gíslason og Valgerður Guðnadóttir, og það er sérlega gaman að sjá Björgvin leika sér að skapsveiflum hins þjáða kóngs og samspil hinnar vitru og vænu álfadrottningar við þjáðan eiginmanninn var skemmtilegt og trúverðugt. Þórdís Björk Þorfinns- dóttir er stórskemmtileg sem kraft- mikil sjö ára Dídí, sem hefði mjög auðveldlega getað orðið ansi þreyt- andi, og Árni Beinteinn gefur alla sína umtalsverðu orku og útgeislun í sérkennilega dauft og rýrt titilhlut- verkið. Kristinn Óli Haraldsson er flottur tannálfur, og þótt hann þurfi að eyða mestu af sínum sviðstíma mæddur í búri á hann eftirminnileg- asta söngnúmerið, bæði flutnings- og tónsmíðalega. Hjalti Rúnar Jóns- son er bæði Jósafat, hinn sérkenni- lega samsetti hliðvörður álfanna, og Sölvar súri og það gustar af honum í báðum rullum. Stjarna sýningarinnar verður síð- an að teljast Birna Pétursdóttir, og ekki bara af því hvað Daði, drekinn með músarhjartað, er skemmti- legur. Birna skapar einstaklega sniðugan og frumlegan karakter úr Daða og fangar bæði hjarta og hláturtaugar áhorfenda. Þrír ungir dansarar, Elfa Rún Karlsdóttir, Helga Ólafsdóttir og Molly Carol Birna Mitchell, fylla út í myndina á frumsýningu, ýmist sem álfar eða svartir skósveinar hins súra, og fipaðist hvergi. Gamla Samkomuhúsið heldur þétt utan um sýninguna. Vafalaust væri freistandi að hafa hana á rúmbetra sviði Hofs og eiga kost á fleiri gestum í salinn (geri ég ráð fyrir). En verðmætin sem felast í að halda húsinu í fullri virkni eru ótvíræð. Salurinn í Samkomuhúsinu á Akureyri er nú sá eini sem íslenskt atvinnuleikhús hefur aðgang að með „hefðbundinni“ afstöðu milli sviðs og salar, þar sem áhorfendur horfa ekki flestir niður á sviðið. Ekki veit ég hvernig nákvæmlega þessi munur virkar fyrir leikara, leikstjóra og hönnuði, en fjölbreytni hefur gildi í sjálfu sér og stælir ólíka listræna vöðva. Hver veit hvenær reynist þörf á þeim! Ekki óraði Dídí fyrir því að framtíð heimsins ylti á því að hún vissi hvernig fótboltamarkmaður ber sig að, og væri undir það búin að sigra loksins óttann. Það er sem sagt líf og fjör á gömlu fjölunum og vel og rausnarlega gert við unga leikhúsgesti norðan heiða, þótt efniviðurinn sé ekki hafinn yfir gagnrýni okkar sem eldri erum og teljum okkur vita allt betur. Erjur í álfalandi Ljósmynd/Auðunn Níelsson Útgeislun „Hér er samankomið algert úrvalslið í leikgleði og útgeislun,“ segir í rýni um Benedikt búálf. Samkomuhúsið á Akureyri Benedikt búálfur bbbmn Höfundur: Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Leikgerð: Karl Ágúst Úlfsson og Ólafur Gunnar Guðlaugsson. Söngtextar: Andrea Gylfadóttir og Karl Ágúst Úlfs- son. Leikstjórn: Vala Fannell. Höfundur tónlistar, útsetning tónlistar og tónlist- arstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Danshöfundur: Lee Proud. Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir. Ljósahönnun: Friðþjófur Þorsteinsson. Hljóðmynd. Árni Sigurðsson. Hár og gervi: Harpa Birgisdóttir og Heiðdís Óladóttir Austfjörð. Brúðugerðar- meistari: Greta Clough. Leikarar: Árni Beinteinn Árnason, Þórdís Björk Þor- finnsdóttir, Birna Pétursdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Valgerður Guðnadóttir, Kristinn Óli Haraldsson og Hjalti Rúnar Jónsson. Dansarar: Berglind Eva Ágústsdóttir, Elfa Rún Karlsdóttir, Molly Carol Birna Mitchell og Helga Ólafs- dóttir. Leikfélag Akureyrar og Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands frumsýna í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardag- inn 6. mars 2021. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Söngkonan Marína Ósk og gítar- leikarinn Mikael Máni stýra „Syngj- um saman“ í annað sinn í Hannesar- holti á morgun, sunnudag, kl. 14. Í tilkynningu frá tónleikastað kemur fram að Marína Ósk og Mikael Máni hafi starfað saman sem djassdúett í rúm sex ár og getið sér gott orð. Fyrsta plata þeirra, Beint heim, var tilnefnd til Íslensku tónlistarverð- launanna 2018 og sólóplötur þeirra beggja árið 2020. „Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar, söng- hefðinni, og býður upp á samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslend- inga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks, eins og við höfum gert frá stofnun 2013, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Gestir eru nú velkomnir í sal, en einnig er streymt frá stundinni á fésbókarsíðu Hannesarholts,“ segir í tilkynningu frá staðnum. Miðar eru seldir á vefnum tix.is. Syngjum saman með Marínu og Mikael Dúett Marína Ósk og Mikael Máni. Stöplar nefnist sýning sem Unnar Ari Baldvinsson opnar í Hann- esarholti í dag, laugardag, milli kl. 15 og 17. Um er að ræða fimmtu einkasýningu Unnars. „Hugmyndin að stöplunum er jafnvægið á litum, formum, mynd- inni sjálfri og rammanum í kring. Litir samsettir með formum sem teygja sig yfir og út fyrir rammann. Rammarnir eru smíðaðir sérstak- lega í kringum tréplötur og litirnir flæða yfir. Stöplar eða stoð sem tengist beint í þýðinguna á orðinu ásamt því að tengja í við/tré sem er notaður í bygg- ingarefni eða tré sem standa föst í jörðinni. Hörð skil á litunum og rammanum mynda stuðning við myndina sjálfa. Verkin eru sínir eigin stöplar,“ segir í tilkynningu frá sýningarstað. Sýningin stendur til 15. apríl og er opin alla daga nema mánudaga milli kl. 11.30 og 17. Unnar Ari sýnir Stöpla í Hannesarholti Unnar Ari Baldvinsson Tónlistar- og leikkonan kunna, Lady Gaga, var í gær ásamt mótleikara sínum, Adam Driver, við undirbún- ing töku atriðis á dómkirkjutorginu í Mílanó fyrir sann- sögulega spennumynd leikstjórans Ridleys Scott. Við æfingu á senunni gengu grímuklæddir aukaleikarar í kringum stjörnurnar. Kvikmyndin mun heita House of Gucci og fjallar um „svörtu Gucci-ekkjuna“ svokölluðu, Patriziu Reggiani, sem var dæmd fyrir að skipuleggja morðið á eiginmanni sínum, Maurizio Gucci, sem stýrði Gucci-tískuhúsinu fræga. Fjöldi kunnra leikara leikur í myndinni auk Lady Gaga og Driver, þar á meðal Al Pacino, Jared Leto, Jack Huston, Reeve Carney og Jeremy Irons. Fyr- irhugað er að frumsýna myndina í nóvember. AFP Stjörnur við kvikmyndatöku í Mílanó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.