Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 45

Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 S amsýningin Skýjaborg var opnuð í Gerðarsafni um liðna síðustu helgi í sýningarstjórn Brynju Sveinsdóttur og Klöru Þórhalls- dóttur. Verk fjögurra listamanna, þeirra Berglindar Jónu Hlynsdóttur, Bjarka Bragasonar, Eirúnar Sigurðardóttur og Unnars Arnar Auðarsonar, hverfast með ólíkum hætti um mótun breyttrar samfélags- gerðar í Kópavogi við upphaf tíunda áratugarins; vonir og væntingar að- fluttra og í raun hringrás hugmynda í samfélagslegu samhengi. Sýninguna má skoða sem hringrás, ris og hnign- un hugmynda og hvernig framtíðar- sýn einnar kynslóðar getur orðið að hvata til endurskoðunar og breytinga fyrir þá næstu. Þannig bítur hug- myndaauðgin í halann á sér kynslóð fram af kynslóð með kunnuglegum hætti. (Skýjaborg) Hamraborg Á vef Sögufélags Kópavogs er rakin hringrás hugmyndarinnar um Hamraborgina til ársins 1970. Þar kemur fram hvernig hugmynda- samkeppni bæjarfélagsins gat af sér ráðagerð um íbúðasamsteypu að Hamraborg 14 til 38 sem varð að kjarna þessarar nýju byggðar. Fyrir- hugað var að reisa íbúðabyggð fyrir á þriðja hundrað íbúða ásamt fjölda fyrirtækja og verslana. Í ágætri sýn- ingarskrá Skýjaborgar er minnst á arkitektinn Benjamín Magnússon sem hannaði vesturhluta Hamra- borgar í ný-brútalískum stíl. Hafði hann háleitar hugmyndir um þennan nýja miðkjarna Kópavogs en þáver- andi skortur á hagstæðu húsnæði var hvatinn að breyttri samfélagsgerð og kallaði á nýbreytni í hönnun og hugs- un. Nú fjórum áratugum síðar er það sama uppi á teningnum. Hringrás hugmyndanna er farin af stað á ný, og nú eins og áður sýnist sitt hverjum Kópavogsíbúanum í þeim efnum. Íbúarnir Uppbygging Hamraborgar á þessum árum og aðflutningur nýrra íbúa kall- aði á samráð. Verk Berglindar Jónu Hlynsdóttur „Hamraborgarrásin“ (2021) fjallar einmitt um það, tilraun til samráðs. Í verkum sínum skoðar Berglind Jóna svæði og byggingar, sögu þeirra og það samfélag sem heyrir staðnum til. Verkið er marg- þætt, bæði í framsetningu og til áhorfs. Þungamiðja verksins eru VHS-upptökur frá Hamraborgar- rásinni sem var sjónvarpsstöð þar sem íbúar Hamraborgar og nágrenn- is komu saman til að ræða málefni sem tengdust umhverfi þeirra. Það er aðeins miðillinn, máða VHS -upp- takan, sem ljóstrar upp um aldur þessara heimilda. Viðfangsefni þeirra þá, húsfundir, breytingaráætlanir, pólitískar ívilnanir, andstaða, af- skriftir og tilhögun stjórnarstarfa, eiga ennþá fullt erindi í dag. Hringrás hugmynda er því samofin hringrás orðræðunnar í þessu samhengi. Verkið „Hamraborgarrásin“ gefur áhugaverða innsýn í það ferli sem fer af stað þegar tilraun er gerð til að lýðræðisvæða stjórnsýslu og skipulag í nafni jafnræðis. Ítarspurningar íbúa og fundargesta skerpa síðan á þeirri togstreitu sem myndast á milli hug- mynda nefndarmanna og raungerðar þeirra. Upptaka Hamraborgarrásarinnar talar vel við innsetningu Eirúnar Sig- urðardóttur í sama sal. Verkin eiga það sammerkt að hverfast um hið mannlega – minningar, hugmyndir, drauma og fyrirætlanir. Í samtali þessara tveggja innsetninga má greina skemmtilega og draumkennda kaótík. Þannig verða raddir nefndar- manna Hamraborgarrásarinnar að bergmáli fortíðarinnar sem undir- strikar einmitt með áhugaverðum hætti afturhvarfið sem gætir í lág- myndum Eirúnar „Heimahagar“ (2015) og „Hluti úr verkinu Eining- arband“ (2017-2012). Orðið minningarþræðir kom upp í hugann þar sem ég stóð innan um verk lista- konunnar og kveiktu útsaumuðu lág- myndirnar og steypugæddu garn- hnyklarnir sem héngu á nærliggjandi veggjum á þessum hugrenningum. Útsaumurinn, myndefnið og litavalið á garninu verkuðu persónulegri en steypan, byggingarplöturnar og þvingurnar þó að uppruninn, Engi- hjalli 3, væri sá sami. Þannig mynd- uðu garnhnyklarnir og lausir endar lágmyndar af þremur systrum rauð- an minningarþráð á milli verkanna. Verk Eirúnar snúast gjarnan um samskipti manns og rýmis, hvort sem að um ræðir huglæg eða efnisleg rými og eða samskipti. Innsetning Eirúnar fangar vel þá togstreitu sem myndast á milli draumkenndra minn- inga og hins fastmótandi, efnislega raunveruleika. Landið Þegar komið er inn í nærliggjandi sal þá blasir við verk Bjarka Bragasonar „Garðurinn“ (ca.1945, ca. 1950, 2018). Verkið hangir í miðju rýminu og sýn- ir loftmynd af lóð, með einlyftu húsi fyrir miðju og garði allt um kring. Þrátt fyrir fyrrum persónuleg tengsl listamannsins við húsið þá er það ekki mannlausa byggingin sem er í for- grunni, heldur beinir titill verksins athyglinni að stórum garðinum. Mannlausum mannvirkjum og gleymdum minnisvörðum fylgir sér- stök tilfinning. Þar er eins og von sé á einhverjum sem aldrei kemur. Innan verksins má finna fyrir tveimur ólíkum hringrásum, annars vegar er það stöðvuð hringrás þar sem framtíðarhorfur hússins eru ókunnar. Í því samhengi mætti segja að loftmyndin af húsinu hangi á teikniborðinu í sýningarsalnum. Hins vegar er það hringrás náttúrunnar sem tekur við í garðinum þar sem öll- um fyrirætlunum sleppir og myndar nýjan farveg. „Garðurinn“ fjallar um sambýli manns og náttúru en verkið býr einnig yfir ákveðnu tímaleysi. Loftmyndin gæti því eins verið skoð- uð sem heimild um hvernig á horfist eftir að mannskepnan hverfur á braut og hvernig náttúruleg hringrás held- ur þá áfram óáreitt. Unnar Örn Auðarson hefur löngum unnið með texta, heimildir, heimildasöfn og bókverk og notar hann þessa miðla til þess að setja fram geymdar heimildir í nútíma- samhengi. Innsetning hans „Stað- fræði gleymsku [brot]“ (2021) er stað- sett í báðum sýningarsölunum en einnig má finna eitt verk utan dyra. Titillinn, upphengdu póstkortin ásamt sýningartexta vöktu til um- hugsunar um tilgang og áhrif kort- lagningar og spegla ágætlega loft- mynd Bjarka í sama sal. Vissulega má skoða kort og kortlagningu sem heimild í sjálfu sér, en þá vaknar spurning um hvort að kortlagning geti orðið til þess að við leggjum ofur- áherslu á framtíðaráform og gleym- um því sem áður var? Malbiksbrot og varpaða ljósmyndasýningin á orðinu LAND undirstrika tilhneigingu mannsins til að koma reiðu á um- hverfið, hvort sem er með kortlagn- ingu eða lagningu malbiks. Undir- titlar verkanna, til að mynda „Hylling“ og „Mirage“, grafa síðan undan þessum tilbúna áreiðanleika kortlagningarinnar, sem og hug- myndinni um eignarhald, stefnumót- un og takmarkalaus jarðargæði. Allt er breytingum háð og vegur inntak verkanna salt á milli óvissu og ráða- hags. Skýjaborg er vel heppnuð og sýnir verk fjögurra áhugaverðra lista- manna sem taka með ólíkum hætti á sambýli mannsins innan bæjarmarka Kópavogs. Verkin standa vel ein og sér en bæta miklu við sýningar- frásögnina þegar þau eru skoðuð sem heild. Sýningarskráin er einnig skemmtileg viðbót en þar skrifar Ka- milla Einarsdóttir rithöfundur eins konar formála að sýningunni sem ber yfirskriftina „Beinagrindur sög- unnar“. Ég get aðeins tekið undir orð Kamillu þegar hún skrifar: „Ný saga er alltaf að verða til og nauðsynlegt og gott að rifja allt slíkt upp.“ Þá er aðeins spurningin hvert hringrás hugmyndanna leiðir okkur næst? Skýjaborg – Hringrás hugmynda Morgunblaðið/Árni Sæberg Garðurinn Verk eftir Bjarka Bragason. „Mannlausum mannvirkjum og gleymdum minnisvörðum fylgir sérstök tilfinning. Þar er eins og von sé á ein- hverjum sem aldrei kemur,“ skrifar rýnir en í verkinu vinnur listamaðurinn út frá húsi og garði sem afi hans og amma byggðu upp og mótuðu. Gerðarsafn Skýjaborg bbbbn Verk eftir Berglindi Jónu Hlynsdóttur, Bjarka Bragason, Eirúnu Sigurðardóttur og Unnar Örn Auðarson. Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir og Klara Þórhallsdóttir. Gerðarsafn er opið alla daga kl. 10-17. Sýningin stendur til 15. maí. KARINA HANNEY MARRERO MYNDLIST Hamraborgarrásin Berglind Jóna Hlynsdóttir vinnur með sjónvarp sem var í Hamraborg. Minningaþræðir Verk eftir Eirúnu Sigurðardóttur vísa til drauma og fyrirætlana. Hnyklar Verkin standa vel ein og sér en heildin er sterk á sýningunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.