Morgunblaðið - 13.03.2021, Qupperneq 48
Strokkvartettinn Siggi kemur fram á tónleikum á veg-
um Kammermúsíkklúbbsins í Norðurljósum í Hörpu á
morgun, sunnudag, kl. 16. Á efnisskránni eru Strengja-
kvartett nr.16 op 135 í F-dúr eftir Ludwig van Beet-
hoven, Strengjakvartett í Es-dúr eftir Fanny Mendels-
sohn og strengjakvartettinn Hrafnaþing frá 2013 eftir
Finn Karlsson. Kvartettinn skipa Una Sveinbjarnar-
dóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir á fiðlur, Þórunn
Ósk Marinósdóttir á víólu og Sigurður Bjarki Gunn-
arsson á selló.
Strokkvartettinn Siggi leikur
strengjakvartetta í Norðurljósum
LAUGARDAGUR 13. MARS 72. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur Willumsson er
spenntur fyrir nýrri áskorun á sínum ferli.
Blikinn ungi, sem er tvítugur að aldri, skrifaði undir
þriggja og hálfs árs samning við norska úrvalsdeildar-
félagið Kristiansund í vikunni. „Ég held að þessi deild
eigi eftir að henta mér vel,“ segir Brynjólfur í viðtali í
Morgunblaðinu í dag. »41
Held að þessi deild henti mér vel
ÍÞRÓTTIR MENNING
en frá því lögin voru sett 1997 hafa
sveitarstjórnir ekki sinnt skyldum
sínum gagnvart ofanflóðum á Seyð-
isfirði.“
Hann bendir enn fremur á að í
skýrslum Veðurstofu Íslands frá
2002 og 2015 sé varað við hættunni.
Hálfu ári eftir að sveitarfélag fái
svona skýrslur eigi að liggja fyrir
hvort verja eigi viðkomandi hús eða
kaupa þau. „Komi skriða á húsið
okkar molnar það niður,“ segir
Smári.
Foreldrar Smára voru bændur í
Stakkahlíð í Loðmundarfirði og þar
ólst hann upp, en þegar komið var að
skólagöngu flutti fjölskyldan til
Seyðisfjarðar. „Þau keyptu hús, sem
hét Berlín, og var annað hús frá okk-
ar húsi, en það fór í skriðunni,“ segir
Smári sem hefur átt heima á staðn-
um í um 53 ár. Hann starfaði hjá
Seyðisfjarðarkaupstað en hætti að
vinna fyrir um tveimur og hálfu ári
og er öryrki.
Sama dag og skriðan féll skoðuðu
vísindamenn aðstæður. Smári gagn-
rýnir að þeir hafi ekki varað við yf-
irvofandi hættu og rýming húsa hafi
verið handahófskennd. „Fólk slapp
lifandi fyrir eintóma tilviljun,“ segir
hann.
Fjölskyldan bjó hjá systur Smára
á Eiðum til áramóta og í mánuð í
sumarhúsi Rarik í Fjarðarseli en
hefur síðan verið í húsnæði sveitar-
félagsins á Lónsleiru, rétt hjá höfn-
inni. Smári segir að gert sé ráð fyrir
að byrjað verði að leigja það aftur
ferðamönnum í vor. „Tíminn frá
skriðunni hefur verið okkur mjög
erfiður andlega, yngri sonur okkar
flosnaði upp úr skóla, og það tekur á
að bíða eftir niðurstöðu í sambandi
við húsið,“ segir hann. „Margir hafa
sýnt okkur stuðning og velvilja, en
sveitarfélagið hengir sig á nýtt
hættumat, sem ég er viss um að
verður ekki frábrugðið ríkjandi mati
í meginatriðum, og við erum bundin
í báða skó. Við höfum engan áhuga á
því að leika hetjur og búa áfram
undir þessari hlíð, því það er sem
rússnesk rúlletta.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hús Stefáns Smára Magnússonar og
fjölskyldu við Hafnargötu á Seyð-
isfirði slapp á ótrúlegan hátt í aur-
flóðinu 18. desember síðastliðinn.
Fjölskyldunni var gert að flytja út í
kjölfarið og vill ekki búa þar lengur,
en þar stendur hnífurinn í kúnni, því
forsvarsmenn sveitarfélagsins vilja
ekki kaupa af þeim fasteignina.
„Húsið er á ógnvekjandi stað og við
viljum ekki búa í því eftir það sem á
undan hefur gengið, okkur líður illa í
húsinu og nágrenni þess en kom-
umst hvorki lönd né strönd,“ segir
Smári.
Samkvæmt hættumati liggur
hættulegasta línan, C-línan, yfir eitt
hornið á húsinu, sem er á Múla-
svæði, svonefndu frímerki. Eftir að
hafa fengið sér kaffisopa lagðist
Smári í svefnsófa í hornherberginu
og Sigríður Þ. Sigurðardóttir, eig-
inkona hans, kom í herbergið á eftir
honum.
Horfðist í augu við dauðann
„Hún horfði út um gluggann og
sagði að fossinn í Búðará væri far-
inn. Frá því ég flutti á Seyðisfjörð
höfðu fallið þarna þrjár skriður án
þess að valda miklu tjóni. Ég stóð
upp til að fylgjast með þessari
skriðu og við mér blasti ekki bara
spýja heldur kom öll hlíðin niður á
móti mér. Ég hélt að þetta væri mín
síðasta stund,“ rifjar Smári upp.
„Konan fór inn í eldhús en ég hugs-
aði með mér að það skipti ekki máli
hvar við værum, við færum hvort
sem er. En svo klofnaði skriðan, fór
sitthvoru megin við húsið og frí-
merkið slapp, en hún tók önnur hús,
meðal annars Tækniminjasafnið.“
Varnargarður hefur verið reistur
fyrir ofan byggðina. „Hann er
byggður úr drullu til bráðabirgða og
veitir ekki vörn ef á þarf að halda,“
segir Smári. Örugg hönnun og deili-
skipulag taki mörg ár og þau geti
ekki beðið eftir því, en bæjaryfirvöld
vilji bíða eftir nýju hættumati.
„Uppkaup hafa engin fjárhagsleg
áhrif á rekstur sveitarfélagsins, því
ofanflóðasjóður borgar, þegar mál-
um er svona háttað. Sveitarstjórn-
inni ber að tryggja öryggi íbúanna,
Föst á hættusvæði
- Sveitarfélagið vill ekki kaupa hús sem slapp naumlega
- Eins og rússnesk rúlletta að búa undir hlíðinni
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Frá Seyðisfirði Stefán Smári Magnússon ofan við hús sitt bendir upp í hlíð-
ina á skriðusárið og rofið sem myndaðist í brúnina við upptök skriðunnar.