Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 6

Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 6
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Viðamikil endurskipulagning á rekstri kirkjunnar er ein helsta skýring þessarar niðurstöðu árs- reikningsins. Sala eigna sem voru of hátt bókfærðar myndar sölutap sem einnig er meginástæða stöðunnar,“ segir í fréttatilkynn- ingu sem þjóð- kirkjan sendi frá sér vegna ársupp- gjörs 2020. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær var halli á rekstri kirkjunnar upp á 654 millj- ónir 2020. Viðhaldsþörf á Laugavegi 31 „Niðurstaða ársreikningsins helg- ast fyrst og fremst af einskiptis fjár- hagsaðgerðum í efnahagsreikningi eða um helmingur hallans,“ segir í tilkynningunni. Helmingur hallans er 327 milljónir. Í ársreikningi þjóð- kirkjunnar – Biskupsstofu 2020 kemur fram að tap af sölu eigna hafi numið tæplega 207,5 milljónum króna. Pétur G. Markan, samskipta- stjóri þjóðkirkjunnar, sagði að salan á Laugavegi 31, þar sem Biskups- stofa var til húsa, vegi þarna lang- þyngst. „Kaupandinn óskaði eftir trúnaði um söluverðið og því get ég ekki upplýst um það. Húsið var metið hærra í okkar bókum en það seldist fyrir auk þess sem komið var að gríðarlega miklu viðhaldi og það var tekið með í reikninginn þegar salan fór fram,“ sagði Pétur. Hann sagði að þjóðkirkjan hafi selt ýmsar fleiri eignir í fyrra, gömul prestsetur og fleira. En þarf að endurmeta verðmæti fleiri fasteigna þjóðkirkjunnar? „Fjárhagsleg endurskipulagning heldur áfram á þessu ári. Slíkt endurmat verður væntanlega hluti af því ferli. Við gerum ráð fyrir að rekstur þjóðkirkjunnar verði kominn í jafnvægi árið 2023,“ sagði Pétur. Fyrsti ársreikningur samstæðu Samkvæmt fjárhagsáætlun sem rædd var á kirkjuþingi í nóvember 2020 var reiknað með 54 milljóna króna tekjuhalla á því ári. Nú reynd- ist hann vera heilum 600 milljónum króna meiri. Hver er skýringin? „Endurskipulagning á fjármálum og rekstri þjóðkirkjunnar leiddi þetta í ljós. Við tókum það stóra skref að hætta að vera ríkisstofnun til þess að sjá um eigin rekstur. Í ársreikningi 2020 er rekstur þjóð- kirkjunnar, Kirkjumálasjóðs, Jöfn- unarsjóðs sókna og Kristnisjóðs í einum reikningi. Þar var ýmislegt gamalt sem þurfti að lagfæra og gera upp. Þetta er í fyrsta sinn sem gerður er einn ársreikningur fyrir alla samstæðuna,“ sagði Pétur. Skerðing á sóknargjöldum Kirkjan bendir á að frá efnahags- hruninu hafi viðvarandi skerðing á sóknargjöldum leitt til mikils rekstr- arvanda vegna viðhalds fasteigna kirkjunnar. „Í þessu uppgjöri er sá klafi afar þungur eða fjórðungur.“ Það eru yfir 160 milljónir króna. Pétur sagði að þjóðkirkjan hafi stöðugt þrýst á um leiðréttingu frá því ríkisvaldið ákvað að halda eftir hluta af sóknargjöldunum. „Við telj- um okkur eiga inni hjá ríkinu aftur í tímann. Þetta eru gríðarlega miklir peningar og mikil menningarverð- mæti í húfi. Sóknirnar geta ekki staðið undir viðhaldi kirknanna með- an ríkið heldur eftir hluta sóknar- gjaldanna,“ sagði Pétur. „Forseti kirkjuþings, framkvæmdastjóri kirkjuráðs og fleiri fulltrúar þjóð- kirkjunnar ætla að óska eftir fundi með stjórnvöldum á næstunni til að ræða þetta uppgjör.“ Endurskoða þarf samning Rúmlega fimmtung rekstrarhalla 2020, eða yfir 130 milljónir, má rekja til þess að ríkið skilaði kirkjunni ekki peningum til að standa straum af launahækkunum presta og annars starfsfólks kirkjunnar 2020, sam- kvænt fréttatilkynningunni. Kveðið var á um útreikning launaforsendna í viðaukasamningi ríkis og kirkju sem tók gildi 1. janúar 2020. Reiknuð er út vísitala sem tekur mið af með- altali kjarasamningsbundinna hækkana hjá BHM. „Umrædd vísi- tala er reiknuð út um áramót og ekk- ert í samkomulaginu sem skyldar ríkið að bæta kirkjunni hækkanir lið- ins árs.“ Samdi þjóðkirkjan af sér? „Þegar gerðir eru jafn stórir samningar og þessi er ekki óeðlilegt að þurfi að endurskoða og sníða af þeim ýmsa annmarka í ljósi reynsl- unnar,“ sagði Pétur. „Þetta uppgjör þarf að fara fram og við treystum því að ríkið muni koma til móts við okk- ur. Þetta er klárlega eitthvað sem þarf að endurskoða nú þegar komin er reynsla á samninginn.“ Í tilkynningunni segir að eigin- fjárstaða þjóðkirkjunnar sé sterk og fjárstreymi hennar tryggt. Hrein eign kirkjunnar var 4.137 milljónir við árslok 2020. „Ársuppgjör ársins 2020 mun ekki hafa áhrif á þjónustu þjóðkirkjunnar við íbúa landsins. Fyrir liggur þó að draga verður úr rekstrarkostnaði.“ Rekstur þjóðkirkju í jafnvægi 2023 - Rekstur þjóðkirkjunnar endurskipulagður - Fyrsti ársreikningur samstæðunnar 2020 - Tap á sölu Laugavegar 31 milljón króna vegna viðhalds - Skerðing sóknargjalda ógnar menningarverðmætum Morgunblaðið/Eggert Þjóðkirkjan Kirkjuhúsið við Laugaveg var selt í fyrra. Söluverðið var lægra en bókfært verð auk þess sem mikið viðhald var komið á húsið sem hafði áhrif á söluverð. Það skýrði sölutap sem er stór hluti halla á rekstrinum. Pétur Georg Markan 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl kl. 17:00 á Hilton Reykjavík Nordica. Dagskrá er samkvæmt samþykktum sjóðsins. Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á fundinum. Upplýsingar um fundinn ásamt skráningu má finna á vefnum birta.is Ársfundur 2021 Kjörfundur fulltrúa launamanna í Birtu lífeyrissjóði, vegna stjórnarkjörs í lífeyrissjóðnum verður haldinn fimmtudaginn 8. apríl kl. 17:00 á Grand Hóteli, Reykjavík. Til fulltrúaráðs launamanna Komi til hertra sóttvarnaraðgerða kann að koma til þess að fundurinn og stjórnarkjörið fari fram að hluta eða að öllu leyti með rafrænum hætti. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Verktaki og eftirlitsmenn Vegagerð- arinnar kanna nú orsakir ójafna í nýjum vegi um Reykjaheiði í Bisk- upstungum, sem lagður var síðasta sumar. Þegar frost kom í jörðu í haust sem leið mynduðust bylgjur í veginum sem þykja hafa lyftst meira en eðlilegt getur talist. „Þetta er meira en eðlilegt sig í nýjum vegi,“ sagði Illugi Þór Gunnarsson hjá Vegagerðinni á Selfossi í samtali við Morgunblaðið í gær. Hvað ástæðum viðvíkur beinast sjónir að efninu sem notað var í veg- inn, en það var tekið úr skeringum nærri vegstæði. Of mikill leir? Vegurinn á Reykjaheiði er 8,4 kílómetra langur og liggur frá Torfastöðum að Efri-Reykjum – og tengir saman Reykholtssvæðið og svonefnda Hlíðabæi, þar sem í grennd er Brúarárfoss. Þetta er fjöl- farin leið og fyrri vegur annaði ekki lengur álagi. Framkvæmdir hófust fyrir einu og hálfu ári og á að ljúka í sumar. „Efnið sem við tókum í veginn átti að vera mjög gott, en nú velta menn fyrir sér hvort of mikill leir hafi ver- ið í því,“ segir Ólafur Einarsson, framkvæmdastjóri Þjótanda hf. sem lagði veginn. „Sýni hafa verið tekin og send til greiningar á verkfræði- stofu. Við bíðum niðurstaðna svo bregðast megi við og gera ráðstaf- anir. Hjá Þjótanda höfum við mikla reynslu af vegagerð en höfum aldrei lent í neinu þessu líku og mikilvægt fyrir alla, bæði verktaka og Vega- gerðina, að vita hvað veldur.“ Frágangur er eftir Búið er að setja neðra lag kæðn- ingar á veginn nýja. Endanlegur frá- gangur er eftir svo sem að setja á efra lag klæðningar, sem verður þó ekki gert fyrr en skýringar á lyfting- unum eru fengnar. Rannsaka efni í nýlögðum vegi í Biskupstungum - Bylgjur eftir frostið - Verktaki segir þetta engu líkt Ljósmynd/JGR Biskupstungur Framkvæmdir við Reykjaveginn hafa staðið yfir síðan í fyrra, en þá var þessi mynd tekin, séð frá Biskupstungnavegi.Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.