Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 8

Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 ERIN bralett Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is BREYTT OPNUN: Virka daga 12-18, laugardaga kl.11-15 Freya NÝTT FRÁ Stærðir S-XL Verð: 6.850,- Sigurður Már Jónsson blaða-maður gerir sérstaka um- ræðu um landsins gagn og nauð- synjar að umræðuefni í pistli á mbl.is. Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Norð- vesturkjördæmis, stóð fyrir um- ræðunni og segir nafni hans um- ræðuna hafa verið forvitnilega „því í henni tóku þátt fulltrúar tveggja andstæðra sjón- armiða. Annars vegar þeirra sem vilja breyta land- búnaðinum og mat- vælaframleiðslunni í landinu og sjá ekkert tækifæri betra til þess en að hleypa erlendri landbúnaðarvöru óheftri inn í landið. Líkleg afleið- ing þess er að þessi starfsemi leggst smám saman af og færist frá því að vera atvinnugrein yfir í að vera sérviskuiðnaður. Hins vegar var Sigurður Páll og aðrir þeir sem telja þrátt fyrir allt all- nokkur verðmæti í því að fram- leiða matvæli í hreinu og óspilltu umhverfi og reyna þannig að stuðla að því að land haldist í byggð og landsmenn geti nokkurn veginn framleitt eigin matvæli.“ - - - Sigurður Már bendir á að þaðsé „stundum hálf spaugilegt að hlusta á helstu talsmenn Evr- ópusambandsins berjast fyrir óheftum innflutningi matvæla hingað til lands með frelsi og samkeppni að leiðarljósi,“ og spyr hvort að farið hafi framhjá þeim að „allur landbúnaður í Evrópu er kyrfilega ríkisstyrktur?“ - - - Og hann bætir við að „þegarverið er að berjast fyrir því að íslenskur landbúnaður keppi við innflutning þá verður að taka það með í jöfnuna.“ Sigurður Már Jónsson Það sem þarf að hafa með í jöfnunni STAKSTEINAR Sigurður Páll Jónsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Rússneska sendiráðið vonar að íslenskir stjórn- málamenn og blaðamenn temji sér „meira jafn- vægi“ í umfjöllun þeirra um alþjóðleg öryggis- og varnarmál. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn sem Morgunblaðið sendi á sendiráðið vegna gagnrýni Maríu Zakharova, talsmanns rússneska utanríkis- ráðuneytisins, á Guðlaug Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra, en hún gagnrýndi í gær meintar fullyrð- ingar ráðherrans um að kjarnorkuvígbúnaður Atlantshafsbandalagsins hefði verið svar við kjarn- orkuvígbúnaði Sovétríkjanna, fyrirrennara Rúss- lands. Í svari sendiráðsins er skýrt að meint um- mæli eiga að hafa birst í greininni „Öflugar varnir eru undirstaða friðar“, en líkt og fram kom í blaðinu í gær kom Guðlaugur Þór af fjöllum þegar málið var borið undir hann. Í greininni er enda hvergi minnst á vígbúnað Sovétríkjanna, en á ein- um stað er fullyrt að Rússland hafi „þróað nýjar tegundir kjarnavopna og endurnýjað þau sem fyrir eru.“ Í svari sendiráðsins segir hins vegar að ekki þurfi að vera sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum til að lesa á milli línanna í grein ráðherra, og að „aug- ljósar“ ályktanir hafi verið dregnar af orðum hans þar, sem aftur hafi leitt til ummæla Zakharovu. Segir í svarinu að samkvæmt rökum Guðlaugs Þórs sé Atlantshafsbandalagið eini hornsteinn ör- yggis og friðar í heiminum, sem aftur þýði að bandalagið hafi útvegað sér vígbúnað sinn sem svar við vígbúnaði Sovétríkjanna. Segir sendiráðið slíka túlkun vera einhliða og að ráðherrann hafi ekki get- ið þáttar Rússlands í nær öllum afvopnunarsamn- ingum sem gerðir hafa verið, né heldur að Rússar hafi aldrei sagt sig einhliða frá neinu þeirra, ólíkt Bandaríkjamönnum. sgs@mbl.is Segja túlkun Guðlaugs einhliða - Rússar segja „augljósar“ ályktanir hafa verið dregnar af grein ráðherra Blóð og vökvi úr riðusmituðum sauð- fjárhræjum helltist niður í jarðveg á gámaþjónustusvæði á Akranesi í gær. Mikill þrýstingur hafði mynd- ast af völdum gasmyndunar í hræj- unum sem verið var að flytja til brennslu á Suðurnesjum, með þeim afleiðingum að hleri á ofanverðum gámnum gaf sig. Greint var frá þessu á vef Matvælastofnunar. Atvikið uppgötvaðist áður en komið var að Hvalfjarðargöngum en þá hafði bifreið verið stöðvuð og hugað að ástandi gáma tvisvar. At- vikið var tilkynnt til Matvælastofn- unar sem fyrirskipaði stöðvun flutn- ingsins. Á gámaþjónustusvæðinu á Akranesi var ástand gámsins kann- að að nýju og hafist handa við að færa hluta farmsins í annan gám. Við það helltist blóð og annar vökvi úr farminum niður. Þrif og sótt- hreinsun svæðisins á Akranesi þar sem umhleðsla átti sér stað er lokið. Jarðvegsskipti munu fara fram í þeim tilgangi að fjarlægja smitefnið eins og kostur er. Svæðið verður í framhaldinu girt af í varúðarskyni til að fyrirbyggja smit í sauðfé. karitas@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason Sauðfé Óhappið varð við umhleðslu sýkts farms sauðfjárhræja. Helltist blóð og vökvi við umhleðslu hræja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.