Morgunblaðið - 20.03.2021, Page 9

Morgunblaðið - 20.03.2021, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Borgarráð hefur heimilað umhverf- is- og skipulagssviði Reykjavíkur að bjóða út malbikunarfram- kvæmdir ársins 2021. Um er að ræða bæði malbikun yfirlaga með fræsun og malbikun sem og malbikun yfir eldri slitlög. Þannig er áætlað að malbika um 23 kílómetra af götum í ár. Kostnaðar- áætlun er 916 milljónir króna. Einnig verður unnið við hefð- bundnar malbiksviðgerðir og er kostnaður við þær áætlaður um 201 milljón. Heildarupphæð malbik- unarframkvæmda árið 2021 er því áætluð 1.117 milljónir. Að auki verður endurnýjað malbik á götum þar sem framkvæmdir verða við endurnýjun gatnanna. Þær götur innan borgarmark- anna, þar sem umferð er mest, telj- ast til þjóðvega í þéttbýli og eru á forsjá Vegagerðarinnar. Framkvæmdir ársins 2021 eru í samræmi við átak um endurnýjun á malbiki á götum Reykjavíkur. Á ár- unum 2018-2022 er gert ráð fyrir að varið verði um 6.200 milljónum til endurnýjunar á malbiks- yfirlögum auk hefðbundinna mal- biksviðgerða. sisi@mbl.is Malbikað fyrir meira en milljarð Morgunblaðið/Ómar Malbikun Verkin verða boðin út. „Bækur, garn og kaffi eru góð blanda. Hér í versluninnni, sem er við Hrannarstíginn miðsvæðis í bænum, ætlum við að skapa þægi- legt andrúmsloft og veita fólki góða þjónustu,“ segir Signý Gunnars- dóttir sem ásamt Lilju Magnús- dóttur og Karitas Eiðsdóttur stend- ur að rekstri Græna kompanísins sem opnað verður formlega í Grundarfirði í dag. Staðnum lýsir Signý sem blöndu af bókabúð og hannyrðaverslun sem að auki er kaffihús með léttum veitingum á góðu verði. „Lilju langaði að opna bókabúð og Karitas, sem er mikið í handa- vinnunni, átti sér draum um versl- un með vörum til slíks. Fékk garnlager úr verslun úti í Ólafsvík sem lagði upp laupana og auðvitað var mörgu öðru bætt við svo vöru- úrvalið er fjölbreytt. Lilja er bóka- kona og í búðina núna eru komnar allar nýjustu bækurnar frá for- lögum landsins,“ segir Signý. Samstarfskonurnar þrjár munu skipta með sér vöktum í búðinni. Munu meðal annars bjóða upp á kaffi, bakkelsi og fleira gott. Stöllurnar þrjár í Grundarfirði fengu húsnæðið við Hrannarstíg af- hent 1. mars síðastliðinn. Síðan þá hafa þær verið af krafti að koma öllu í stand; breyta, mála, velja hús- gögn og svo framvegis. Byrjað verður svo að taka á móti viðskipavinum í dag í Græna komp- aníinu sem verður opið frá miðviku- degi til og með sunnudegi milli kl. 12 og 18. Ef vel tekst til og viðtökur eru góðar verður einnig opið á mánudögum og þriðjudögum þegar líður lengra fram á vorið, að sögn Signýjar. sbs@mbl.is Garn, bækur og gott kaffi Samstarfskonur Í Græna kompaníinu í Grundarfirði. Frá vinstri talið, Signý Gunnarsdóttir, Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Karitas Eiðsdóttir. - Ný verslun í Grundarfirði - Lestur, prjón og 10 dropar Sif Gunnarsdóttir hefur verið skip- uð í embætti for- setaritara. Sif er með BA- próf í danskri tungu og bók- menntum frá Há- skóla Íslands og meistarapróf í menningarmiðlun frá Háskólanum í Óðinsvéum auk þess sem hún lauk diplómanámi í rekstrarhagfræði við Háskóla Íslands árið 2006. Hún var forstöðumaður Höfuðborgarstofu á árunum 2007-2013 og forstöðumaður Norræna hússins í Færeyjum á ár- unum 2013-2018. Sif starfar nú sem skrifstofustjóri menningarmála á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Sextíu sóttu um starfið sem var auglýst í nóvember. sl. Sif skipuð í embætti forsetaritara Sif Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.