Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 11

Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tvö verkefni fengu 1,7 milljóna króna styrk úr Samfélagssjóði Fljótsdals við úthlutun fyrir árið 2021. Skógarafurðir fengu styrk af þeirri fjárhæð fyrir framleiðslulínu fyrir flettingu á trjábolum og Sveinn Ingimarsson fékk sömu fjárhæð í til- raun til útfærslu Coanda-inntaks fyrir litlar virkj- anir. Þrjátíu umsóknir bárust um styrki að fjárhæð 35 milljónir kr. í heild en stjórn sjóðsins úthlutaði 18 styrkjum samtals að fjárhæð 12,8 milljónir kr. Verksmiðja geymd í gámi „Samfélagssjóðurinn vill greinilega ekki styrkja okkur. Þessi fjárhæð er verri en ekkert, við munum ekki þiggja hana. Það yrði bara til að binda mann í einhverja vitleysu,“ segir Jósef Val- garð Þorvaldsson, bóndi á Víðivöllum fremri í Fljótsdal. Hann og Hörður Guðmundsson, ná- granni hans, keyptu tæki og búnað til sútunar eftir gjaldþrot félagsins sem rak sútunarverk- smiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Verksmiðjan er geymd í gámum og geymslum þar sem ekki hefur fundist hentugt verksmiðjuhúsnæði. Jósef Val- garð segir að þeir félagarnir hafi ráðist í þessa fjárfestingu vegna ábendingar sem þeir fengu frá fólki sem undirbjó Samfélagssjóð Fljótsdals. Þeir hafi orðið að ákveða sig á tveimur til þremur dög- um. Fengu þeir stuðning úr Samfélagssjóðnum á síðasta ári, aðallega til að gera viðskiptaáætlun, og sóttu nú um stuðning til að afla viðskipta- tengsla og hefja vöruþróun, og fengu vilyrði fyrir um 300 þúsund króna styrk. Jósef Valgarð segir að það dugi skammt, þótt jafn háu mótframlagi þeirra sé bætt við. Jósef Valgarð segir að verksmiðjan sé ekki samkeppnishæf við erlendar stórverksmiðjur. Þeir hugsi sér sérvinnslu á ýmsum gærum og er meðal annars horft til leðursútunar á hreindýra- skinnum. Þeir eru með ýmsar hugmyndir um vörur sem þeir gætu framleitt. Segir hann að þeir muni fara hægt af stað. Telur Jósef Valgarð lík- legt að eitt til tvö heilsársstörf verði í byrjun og síðan ráðið í tímabundin störf þegar dauður tími er í öðrum atvinnugreinum í hreppnum. Fjölbreytt verkefni Samfélagssjóður Fljótsdals var formlega stofn- aður fyrir ári með framlagi frá Fljótsdalshreppi og var fyrsta úthlutun á síðasta ári. Markmið hans er að styrkja verkefni á sviði atvinnu, ný- sköpunar, umhverfis, velferðar og menningar sem stuðli að jákvæðri samfélagsþróun og eflingu atvinnulífs í sveitarfélaginu. Fjárhæðin „verri en ekkert“ - Úthlutað úr Samfélagssjóði Fljótsdals í vikunni - Eigendur óuppsettrar sút- unarverksmiðju komast ekki af stað með rekstur - Segja styrk duga skammt Ljósmynd/Samfélagssjóður – Friðrik Indriðason Fljótsdalur Tilkynnt var um úthlutun styrkja úr Samfélagssjóði Fljótsdals við athöfn í Óbyggðasetrinu í Norðurdal í Fljótsdal í fyrradag. Alls fengu átján umsækjendur úthlutun úr sjóðnum. Styrkir voru á bilinu 200 þúsund til 1.700 þúsund krónur, samtals 12,8 milljónir króna. Alls bárust þrjátíu umsóknir. Ljósmynd/Gunnþórunn Bóndi Jósef Valgarð Þorvaldsson ræktar hross frá æskuslóðum sínum, Sveinatungu í Borgar- firði. Hann situr Braut frá Víðivöllum. Skipholti 29b • S. 551 4422 VORYFIR- HAFNIRNAR KOMNAR Skoðið laxdal.is Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is NÝ SENDING Aðalfundur Aðalfundur Vörubílstjórafélagsins Þróttar verður haldinn í húsi félagsins að Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 8. apríl nk. og hefst kl. 19:00. Dagskrá aðalfundar skv. 27. gr. laga Vörubílstjórafélagsins Þróttar. Stjórnin. Skagfirskir bændur, sem gert var að skera fé sitt vegna riðu sem kom upp á svæðinu, hafa ekki fengið lög- bundnar bætur frá ríkinu. Sam- kvæmt upplýsingum frá landbúnað- arráðuneytinu eru viðræður við bændur langt komnar. Atvinnuvegaráðuneytið og Mat- vælastofnun hafa undanfarið unnið að úrlausn þessara mála í samráði við bændur, meðal annars kallað eft- ir athugasemdum og ábendingum varðandi drög að samningum. Í skriflegu svari frá ráðuneytinu segir að rík áhersla sé lögð á að ljúka þess- um viðræðum sem allra fyrst og er gert ráð fyrir að þeim verði flestum lokið í næstu viku. Riða greindist fyrr í vetur í sýnum úr fé frá fimm bæjum austan vatna í Skagafirði. Bæirnir tilheyra svoköll- uðu Tröllaskagahólfi. Stjórnvöld fyrirskipuðu að öllu fé á þessum bæj- um, ríflega þrjú þúsund fjár, yrði fargað þegar í stað og stóð héraðs- dýralæknir fyrir því að það var gert. Vilja ljúka samningum um bætur fyrir lok viku - Bændur á riðubæjum ekki fengið bætur Atvinna Nemendum Fossvogsskóla verður kennt í húsnæði Korpuskóla frá og með þriðjudeginum. Húsnæðið hefur ekki verið notað undir kennslu frá því að skólar í Grafarvogi voru samein- aðir. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Hann segir húsnæðið hafa verið langbesta kostinn í stöðunni meðal annars vegna þess að í húsnæði Korpuskóla verður hægt að koma fyr- ir öllum nemendum Fossvogsskóla. Það séu að mati skólastjórnenda ómetanleg gæði. Um 350 nemendur eru í Fossvogsskóla. Frístundastarf á mánudag Skipulagsdagur verður á mánu- daginn til að undirbúa skólastarfið sem hefst daginn eftir. Börnum verð- ur ekið á hverjum morgni frá Foss- vogsskóla upp í Grafarvog og til baka. Á mánudaginn verður frístunda- starf fyrir 1. og 2. bekk í Neðstalandi frá kl. 8.30 og fram eftir degi eins og venja er. Nemendum í 3. og 4. bekk, sem eru skráðir í frístund, stendur til boða að koma á sínum venjulega tíma frá kl. 13.40. Foreldrar barna í skólanum eiga von á bréfi með ítarlegri upplýsing- um. Morgunblaðið/sisi Skóli Ekki hefur verið kennt í húsinu frá sameiningu skóla í Grafarvogi. Nemendur fari úr Fossvogi í Grafarvog - Korpuskóli talinn besti kosturinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.