Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 14
Ljósmynd/Willum Andersen Í Vigo á Spáni Brúin var hífð á nýjan Baldvin Njálsson GK 400 í vikunni og er áformað að skipið verði tilbúið eftir átta mánuði. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Unnið er af fullum krafti við Baldvin Njálsson GK, nýjan flakafrystitog- ara Nesfisks ehf. í Garði, í Armon- skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni. Útlit er fyrir að áform um að skipið verði afhent fyrir árslok standist og hefur kórónufaraldurinn ekki enn sem komið er tafið smíðina. Búnaði „sópað“ um borð Samið var um smíði skipsins haustið 2019 og var skipið sjósett hjá Armon fyrir viku og í vikunni var brúin hífð á skipið og spilin um borð. Fyrirtækið Skipasýn í Reykjavík hannar skipið og segir Sævar Birg- isson framkvæmdastjóri að síðustu daga hafi búnaði á millidekk verið „sópað“ um borð og síðan taki hvert verkefnið við af öðru um borð í skip- inu næstu mánuði. Mikil reynsla sé hjá Armon og stöðin afhendi nokkur skip árlega. Vöruhótel og sjálfvirkni Skipið verður allt hið fullkomn- asta, rúmlega 66 metrar að lengd og 16 metrar á breidd. Aðgerðar- og flökunarbúnaður og færibönd er meðal þess sem kemur frá fyrir- tækinu Klaka í Kópavogi, sjálfvirkur búnaður til frystingar, pökkunar og flutnings niður í lest og vöruhótel kemur frá norska fyrirtækinu Op- timar og frystivélar frá spænsku fyrirtæki. Þjarkur í svokölluðu vöruhóteli sér um að tegundagreina og flokka fiskinn eftir pökkun. Þaðan fer fisk- urinn í lestina, sem er á tveimur hæðum, alls um 1.600 rúmmetrar. Staflari sér um að stafla og raða pökkuðum afurðum á bretti þar sem hann verður tilbúinn til löndunar og raunar fyrir kaupendur. Mikil áhersla er lögð á sjálfvirkni og að fækka erfiðum störfum. Skipið verður með 3.000 kW Wärtsilä-aðalvél og skrúfan verður fimm metrar í ummál. Áhersla er lögð á sparneytni. Fá nýjan Baldvin í Garðinn í árslok - Fullkominn flaka- frystitogari Nesfisks Ljósmynd/Armon Sparneytni Skrúfan verður fimm metrar í ummál. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Örráðstefna í Mottumars Nýjar áskoranir – nýjar leiðir menn á lífi sem greinst hafa með krabbamein 7.110 Dagskrá: 17:00-17:05 Setning Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands 17:05-17:20 Helstu áskoranir, bjargráð og endurhæfing í kjölfar krabbameins ogmeðferða Rannveig Gylfadóttir, sérfræðingur í krabbameinshjúkrun, teymisstjóri í endurhæfingarteymi fyrir krabbameinsgreinda, Landspítala 17:20-17:30 Algeng viðbrögð karla Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu 17:30-17:45 Karlmennska og krabbamein Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur 17:45-17:55 Ermikilvægt að rannsaka aðdraganda greiningar og reynslu af krabbameinsmeðferð? Frumniðurstöður úr Áttavitanum – vísindarannsókn Krabbameinsfélagsins Jóhanna Eyrún Torfadóttir, PhD, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu Ásgeir Helgason, dósent í sálfræði, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu 17:55-18:15 Reynslusögur Högni Jóhann Sigurjónsson Bragi Guðmundsson 18:15-18:25 Umræður 18:25-18:30 Samantekt ogmálþingi slitið Fundarstjóri: Helgi Björnsson, fjármálastjóri Krabbameinsfélagsins Örráðstefna um karlmenn og krabbamein miðvikudaginn 24. mars 2021 kl. 17:00-18:30 í streymisveitu Krabbameins- félagsins (krabb.is). Vinsamlega athugið að örráðstefnunni verður einungis streymt og ekki gert ráð fyrir gestum í sal. Nánari upplýsingar á krabb.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.