Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 16

Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Fermingar- myndatökur Einstök minning Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Við förum eftir öllum sóttvarnartilmælum Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur tekið jákvætt í ósk eiganda hússins Skipholt 1 um að innrétta þar 36 íbúðir. Fyrir liggur leyfi til að innrétta hótel í húsinu en nú hefur verið fallið frá þeim áform- um. Myndlista- og handíðaskólinn var áður til húsa í Skipholti 1 og seinna Listaháskóli Íslands. Kvikmynda- skóli Íslands var þar um tíma. Skipholt 1 samanstendur af tveimur húsum, samtals 2.938,2 fer- metrar. Eldri hlutinn er frá árinu 1960, alls 1.867,2 fermetrar og nýrri hlutinn frá 1975, alls 1.070,8 fermetrar. Aðstæður hafa breyst Fram kemur í fyrirspurn Aðal- steins Snorrasonar arkitekts til skipulagsnefndar, fyrir hönd eig- anda, að árið 2017 samþykkti Reykjavíkurborg leyfi til að stækka húsið og innrétta það fyrir hótel- starfsemi. Gert var ráð fyrir 84 herbergjum fyrir 170 gesti. Nú hafi aðstæður breyst og ekki þyki skynsamlegt annað en breyta húsinu í íbúðir. Meðfylgjandi til- lögur samkvæmt frumdrögum Ark- ís arkitekta auki ekki það bygg- ingamagn sem samþykkt var í tengslum við hóteláformin og húsið verði eftir stækkun 3.538,9 fer- metrar. Eftir stækkun yrði horn- húsið fimm hæðir en aðrir hlutar fjórar hæðir. Svalir verða settar á húsið og gefa því svip. Atvinnu- starfsemi yrði á jarðhæð þess hluta hússins sem snýr að Skipholti en íbúðir í þeim hluta sem snýr að Stórholti. Íbúðir verða alls 36, þar af 17 þriggja/fjögurra herbeggja, 16 tveggja herbergja íbúðir og þrjár stúdíóíbúðir. Sameiginlegur garður verður á innra rými lóð- arinnar. Verkefnastjóri skipulagsfulltrúa segir í umsögn sinni að vel þyki fara á því að nýta húsið fyrir íbúð- ir. Húsið sé áberandi kennileiti á svæðinu og því þurfi að vanda vel til verka þegar húsið sé uppgert og stækkað. Eigi það ekki síst við hvað varð- ar útlit þess, svo sem yfirborðsfrá- gang útveggja, glugga og gerð nýrra svala. Farið verði sérstak- lega yfir þetta sem og annað tengt byggingaleyfisumsókn. Verkefnastjórinn bendir einnig á að við frekari vinnslu tillögunnar þurfi að skoða samsetningu íbúða- gerða í húsinu með tilliti til þess að auka hlutfall stærri íbúða. Þá þurfi að vinna betur útfærslu lóðar. Ekki kemur fram í fyrirspurn Aðalsteins Snorrasonar hver er eigandi hússins. Þegar fréttir voru fluttar af fyrirhugaðri hót- elstarfsemi árið 2016 kom fram að félagið Fjórir GAP ehf. væri eig- andi húsnæðisins, en eini eigandi þess er Kjartan Gunnarsson, fjár- festir og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Íbúðir koma í staðinn fyrir hótel - Eigandi Skipholts 1 hættir við hóteláformin - Í staðinn verða innréttaðar 36 íbúðir í húsinu Morgunblaðið/sisi Fyrir Svona lítur húsið Skipholt 1 út í dag. Engin starfsemi hefur verið í húsinu að undanförnu. Teikning/Arkís Eftir Svona mun húsið líta út eftir stækkun og breytingar. Svalirnar munu setja svip á húsið. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Aparólan langa (Zip-línan) í Öskju- hlíð verður sett upp eftir allt saman. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hafði hafnað beiðni Perlu norðursins um verkefnið en nú hefur borgarráð fall- ist á að línan verði sett upp sem til- raunaverkefni í eitt ár. Jafnframt samþykkti borgarráð að veita fyrir- tækinu afnot af 65 fermetra svæði í Öskjuhlíð undir neðri stöð Zip- línunnar. Eins og fram hefur komið í frétt- um hyggst Perla norðursins ehf. setja upp tvær 235-250 metra langar Zip-línur sem liggja frá pöllum Perl- unnar í suðurátt niður í skógarlund þar fyrir neðan. Tvær stálburðar- grindur munu halda línunum uppi. Efri burðargrindin verður tengd við Perluna til að tryggja stöðugleika. Verði umhverfinu til sóma Neðri burðargrindin, sem verður á afnotasvæðinu sem borgin leigir út, verður byggð ofan á tvo gáma. Gámarnir og burðargrindin verða hífð á staðinn svo allt rask verði í al- gjöru lágmarki. Framkvæmdin öll skal miðast við að þegar gámarnir verða teknir í burtu verði umhverfis- áhrif lítil sem engin, segir í samningi borgarinnar og leigutakans. Grafa þarf fjórar holur og koma fyrir steyptum stöplum sem leigu- taki skal fjarlægja við lok leigu. Leigutaki skal greiða fyrir þær framkvæmdir sem ráðist verður í á svæðinu. Allur frágangur og klæðn- ing á gámum verði umhverfi til sóma. Fyrir afnot af lundinum í Öskjuhlíð greiðir Perla norðursins 100 þúsund krónur á ári. Zip-línur, öðru nafni aparólur, er að finna víða um land, en þær sem settar verða upp í Öskjuhlíð verða með þeim allra lengstu. Tveir geta rennt sér í einu og er reiknað með allt að 200 gestum á hverjum degi. Þegar skiplulagsfulltrúinn fjallaði um ósk Perlu norðursins var henni hafnað með þeim rökum að uppsetn- ing línunnar samræmdist ekki gild- andi deiliskipulagi fyrir Öskjuhlíð- ina, né sé það vilji borgarinnar að breyta skipulaginu til að koma slíkri starfsemi inn á skipulag. Það sé meginstefna í skipulagi Öskjuhlíðar að svæðið þjóni áfram hlutverki sínu sem einn helsti úti- vistarskógurinn innan þétt- býlissvæðis borgarinnar. Fulltrúar í borgarráði hafa aðra skoðun á málinu og þar sem um til- raunaverkefni er að ræða verður ekki ráðist í vinnu við deiliskipulag. Aparóla í Öskjuhlíð tilraunaverkefni - Liggur úr Perlunni og verður allt að 250 metra löng Öskjuhlíðin Aparólan mun liggja frá útsýnispalli Perlunnar, fara yfir hver- inn Strók og enda í skógarlundi neðar í hlíðinni. Þetta er tilraunaverkefni. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver- andi forstjóri Kaupþings, og Magn- ús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxem- borg, voru í gær sakfelldir í CLN- málinu svokallaða, en það hefur einnig verið kallað Chesterfield- málið. Áður höfðu þeir verið sýkn- aðir í héraði við endurupptöku máls- ins, en Sigurður Einarsson, fyrrver- andi stjórnarformaður bankans, var sýknaður á báðum dómstigum. Hreiðari og Magnúsi var ekki gerð refsing, þar sem þeir höfðu áð- ur hlotið hámarksrefsingu fyrir efnahagsbrot í fyrri málum sem tengdust fjármálahruninu árið 2008. Dómurinn, sem nú hefur verið birtur á vef Landsréttar, er ítarlegur, eða upp á 80 blaðsíður. Í dómi Landsréttar segir að þegar lánveitingar, sem ákært er fyrir í þremur liðum ákærunnar, hafi átt sér stað hafi ekki legið fyrir láns- beiðnir eða samþykki lánanefnda bankans. Þá hafi félögin sem lánað var ekki verið metin til lánshæfis og engar tryggingar settar fyrir endur- greiðslu lánanna. „Lánveitingarnar hefðu því stangast á við reglur bank- ans og verið með öllu óheimilar,“ segir í útdrætti dómsins. Þeim Hreiðari og Magnúsi var jafnframt gert að greiða málsvarn- arlaun verjenda sinna, alls 9,6 millj- ónir. Nánari umfjöllun á mbl.is. Hreiðar Már og Magnús sakfelldir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.