Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sveitin mín er í sérflokki,“ segir
Guðmundur Viðarsson, bóndi í
Skálakoti undir Vestur-Eyjafjöllum.
„Hvergi á landinu vorar jafn
snemma og einmitt hér. Háir hamra-
garðarnir veita skjól fyrir norðanátt
og nú þegar hlý sunnanátt berst á
landinu njótum við hennar ein-
staklega vel. Eyjafjallabændur eru
því margir byrjaðir í jarðvinnu og
alls ekki einsdæmi að hún fari af
stað strax í marsmánuði. Hér eru
nokkur stór bú en líka ýmis önnur
atvinnustarfsemi sem er gæfa þess-
arar sveitar. Fuglar mannlífsins hér
hafa orpið eggjum sínum í mörg
hreiður.“
Vel borgandi Bandaríkjamenn
Ferðaþjónusta hefur verið mikil-
væg atvinnugrein undir Eyjafjöllum
og á nokkrum bæjum hefur boðist
gisting, veitingar eða afþreying.
Margt áhugavert er að sjá í sveit-
inni, sem svo margir ferðamenn fara
í svokölluðum suðurstrandarferðum.
Í Skálakoti er starfrækt hótel með
14 herbergjum; sem eru í burstahúsi
sem vakið hefur athygli fyrir stíl-
hreinan arkitektúr. Rólegt hefur
verið á hótelinu að undanförnu, en
nú er allt að glæðast.
„Hótelstjórinn minn fór til síns
heima suður til Ítalíu í haust, en um
daginn sendi ég henni skilaboð um
að snúa hið snarasta aftur. Kokk-
urinn er kominn til starfa og ferða-
menn farnir að sjást aftur,“ segir
Guðmundur. „Gestir hjá mér hafa
gjarnan verið vel borgandi fólk, til
dæmis frá Bandaríkjunum. Ég kalla
þessa gesti stundum Trumpara, fólk
sem er kannski í fjórar nætur og
gerir héðan út; fer austur að Jökuls-
árlóni, til Vestmannaeyja, í Land-
mannalaugar og Þórsmörk. Þeir
allra flottustu jafnvel leigja þyrlu í
þessar ferðir. Efnafólk í útlöndum
kemur ágætlega undan kórónu-
kreppunni og leggst í ferðalög um
leið og bólusetningu er lokið. Opnun
landsins fyrir bólusettum er raunar
strax farin að telja í fyrirspurnum og
bókunum hjá okkur. Ríkisstjórnin á
lof skilið fyrir að taka úr lás,“ segir
Guðmundur og heldur áfram:
„Ég held annars að mjög verðugt
sé núna að velta fyrir sér hvaða fólk
muni helst koma til Íslands á allra
næstu árum. Allar kannanir sýna að
þrengingar af völdum Covid hafa
leikið millistéttina illa – svo fólk í
þeim hópi hefur minni peninga
handa á milli. Því segir sig sjálft að
fólk sem á ekki fyrir mat á mánudegi
fer ekki í ferðalag á þriðjudegi. Að
minnsta kosti held ég að einhverjir
mánuðir líði þar til millistéttarfólkið
byrjar aftur að ferðast að einhverju
ráði.“
Heildin hafi slagkraft
Eins og algengt er með lands-
byggðafólk er Guðmundur í Skála-
koti með mörg járn í eldinum. Hefur
sterkar skoðanir á málefnum í nær-
samfélagi sínu og hefur látið til sín
taka í sveitarstjórn Rangárþings
eystra. Þar talar hann eindregið
fyrir sameiningu sveitarfélaga á
austanverðu Suðurlandi, það er frá
Þjórsá austur að Skeiðarársandi.
Sameinaðir verði Ásahreppur,
Rangárþing ytra, Rangárþing
eystra, Mýrdalshreppur og Skaftár-
hreppur sterk heild sem hafi slag-
kraft til mikilvægra verkefna. Að
framhaldsskóli á þessu svæði verði
settur á laggirnar sé aðkallandi mál.
Einnig þurfi að heimila fleirum að
nýta Landeyjahöfn en bara útgerð
Herjólfs. Fjárfestingin í höfninni sé
mikil en nýtist ekki sem skyldi. Úr
því eigi að vera auðvelt að bæta.
Undir Eyjafjöllum vorar snemma
- Fuglar mannlífsins verpa í mörgum hreiðrum í sveitinni - Hlýindi úr suðri og skjól undir hamra-
görðunum - Kokkurinn er mættur og Trumparar gista í Skálakoti - Ríkisstjórnin tekur úr lás
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyfellingur Gæfa sveitar, segir Guðmundur í Skálakoti, hér framan við reisulega byggingu; hótel og íbúðarhús.
„Rangárþing eystra er rótgróið
samfélag þar sem landbúnaður,
iðnaður og ferðaþjónusta eru
undirstöðurnar. Hér undir Eyja-
fjöllum hefur okkur almennt
farnast vel og byggðin stendur
á traustum grunni,“ segir Guð-
mundur Viðarsson.
„Ungt fólk hefur í nokkrum
mæli snúið aftur heim í sveitina
sína og tekið við búskap hér
sem er gott. Við hér í Skálakoti,
ég og Jóhanna Sólveig Þórhalls-
dóttir konan mín, erum utan
ferðaþjónustunnar hér með
hross og um 300 fjár. Afurðir af
því hef ég að stórum hluta tekið
heim og þær verið matreiddar á
hótelinu hér. Framlegðin verður
mest þannig og að búa vel að
sínu með sjálfbærni er dyggð. Í
sveitinni bjóðast nefnilega
tækifæri til þess að gera svo
ótrúlega marga spennandi hluti
sér til viðurværis. Verkefni sem
telja og skila sér til samfélags-
ins,“ segir Guðmundur.
Sjálfbærni
SPENNANDI TÆKIFÆRI
Hestaferð Ferðamenn á góðum
degi við Írafoss við Skálakot.
Atvinnu- og nýsköpunarsetrið Skóp,
sem er fyrir frumkvöðla í Kópavogi,
var opnað formlega í gær. Frum-
kvæði að verkefninu hafði Markaðs-
stofa Kópavogs sem nýtur til þessa
dyggs stuðnings frá Kópavogsbæ og
ýmsum fyrirtækjum í bæjarfélaginu.
Markmiðið með starfsemi Skóp er
að efla enn frekar fjölbreytt at-
vinnulíf í bænum með því að efla alla
vaxtarsprota. Hugmyndin er að
veita Kópavogsbúum aðstoð við að
fullmóta viðskiptahugmyndir sínar
og verður sérstaklega horft til fólks
í atvinnuleit og þeirra sem vilja
skapa sér sín eigin tækifæri. Helstu
skilyrði fyrir þáttöku eru að við-
komandi sé lögráða og eigi lög-
heimili í Kópavogi
Í Skóp, sem er að Hlíðarsmára 9,
verður rýnt í viðskiptahugmyndir
með fólki, greindir þeir þættir sem
skipta mestu máli til að hrinda
henni í framkvæmd, svo sem með
heildstæðri viðskiptaáætlun. Reikn-
að er með að ferlið frá hugmynd að
viðskiptaáætlun geti tekið þrjá til
sex mánuði. sbs@mbl.is
Efla Kópavog með
nýsköpunarstarfi
Frumkvöðlasetur F.v. Guðmundur Sigurbergsson, forstöðumaður SKÓP, Helga Hauksdóttir, formaður stjórnar
Markaðsstofu Kópavogs, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir nýsköpunarráðherra og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.