Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is VANDAÐIR STÓLAR fyrir ráðstefnu-, veislu- og fundarsali Fastus býður upp á mikið úrval af húsgögnum og innréttingum fyrir hótel, mötuneyti, veitingastaði, ráðstefnur, fundi o.fl. Komdu og kynntu þér úrvalið. Við sérpöntum eftir þínum óskum! H jörvar Steinn Grétarsson var hinn öruggi sig- urvegari „Íslandsbikars- ins“ sem lauk í aðal- útibúi Landsbankans um síðustu helgi. Hann vann Hannes Hlífar Stefánsson tvisvar og hlaut 7 vinn- inga í átta skákum. Er þetta senni- lega besti sigur Hjörvars á innlendu móti. Enn vantar hann titil Skák- meistara Íslands en getur fljótlega bætt úr því; um næstu helgi hefst í Kópavogi keppni í landsliðsflokki. Fyrir úrslitaeinvígið hafði Hjörv- ar unnið Vigni Vatnar 2:0 og Guð- mund Kjartansson 3:1 en Hannes þá Braga Þorfinnsson og Helga Áss Grétarsson með sömu tölum. Það mátti því búast við harðri rimmu en niðurstaðan varð allt önnur því Hjörvar vann tiltölulega auðveldan sigur, 2:0. Hannes var furðuilla að sér í byrjunum beggja viðureigna. Í seinni skákinni leitaði Hjörvar í smiðju til vinar síns Magnúsar Carl- sen og í þeirri fyrri sem hér fer á eft- ir gerðist þetta: Íslandsbikarinn 2021 úr- slitaeinvígi – Fyrri skák: Hannes Hlífar Stefánsson – Hjörvar Steinn Grétarsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 h6 8. Bh4 Rbd7 8. … g5!? er byrjunin á hinu svo- kallaða og vafasama „Gautaborgar- afbrigði“. Þessi leið var aldrei vinsæl hjá helstu sérfræðingum Najdorf- afbrigðisins – og það var líka ástæða fyrir því! 9. Be2 Rólega af stað farið. 9. Df3 á að tryggja betri stöðu á hvítt og 9. Bc4 er einnig góður leikur. 9. … Be7 10. O-O Alls ekki nægilega beittur leikur. Hví ekki 10. Bg3 sem hótar 11. e5? 10. … Db6! Seilist eftir „eitraða peðinu„ á b2 og hótar einnig 11. … e5. 11. Bf2 Dxb2 12. Dd3 Rc5 13. Df3 e5 14. Rf5 Bxf5 15. exf5 Hc8 Frá c8 setur hrókurinn pressu á stöðu hvíts. Það er furðu erfitt að finna góðan leik fyrir hvítan. 16. Bc4?! Þessi eykur aðeins á vandræði hvíts. 16. … b5! 17. Hab1 Dxc2 18. fxe5 dxe5 19. Hfc1 Dd2 20. Rxb5 Hvítur er tveim peðum undir og verður að grípa til einhverra að- gerða. En staðan er töpuð og þessi leikur kann að hafa verið byggður á yfirsjón. 20. … axb5 21. Bxb5+ Kf8 22. Ba6 Kannski ætlaði hann að leika 22. Hxc5 en eftir 22. … Bxc5 23. Bxc5+ Hxc5 24. Da8+ Ke7 25. Da7+ vinn- ur svartur með 25. … Rd7. 22. … e4! 23. Dg3 Hd8 24. Bxc5 Bxc5 25. Hxc5 Dd4+ - og hvítur gafst upp. 26. Df2 er svarað með 26. … e3! 27. Dc2 e2+ 28. Kh1 Dd1+! o.s.frv. Það verður gaman að fylgjast með Hjörvari á heimsbikarmóti FIDE sem ef að líkum lætur fer fram á Mön í október/nóvember nk. Æski- legt er að hann fari þangað í sem bestri æfingu. Skáksamband Íslands ætti snarlega að koma sér upp plani B varðandi Reykjavíkurskákmótið. Ef hið samhangandi og ódagsetta Evrópumót – sjá heimasíðu FIDE https://www.fide.com/calendar – verður slegið af vegna Covid- faraldursins ber SÍ bókastaflega skylda til að halda lokað Reykjavík- urskákmót í haust. Það ætti ekki að vera erfitt að fá hingað til lands nokkra vel valda erlenda keppendur. Þessi keppni, Íslandsbikarinn, var góð skemmtun fyrir áhorfendur, jafnteflisprósentan í öllum skák- unum var nákvæmlega 0%. Margir snjallir leikir sáust og jafnvel afleik- irnir fengu vængi t.d. þegar Helgi Áss missti af máti í tveimur leikjum. Nafni gat þó gengið sáttur frá borði því hann tefldi margar skemmti- legar skákir og eina þá bestu gegn Jóhanni Hjartarsyni. Hjörvar Steinn tók „Íslandsbikarinn“ Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Öruggur Hjörvar Steinn Grétarsson vann verðskuldaðan sigur. Í vikunni spurði ég menntamálaráðherra á Alþingi um þá ný- legu ákvörðun hennar að flytja starfsmennt- anám í garðyrkju undan Landbún- aðarháskólanum. Framtíð garðyrkju- námsins er í mikilli óvissu á meðan ekki liggur fyrir hvernig tilhögun þess verður. Spurningar mínar sneru að því hvernig hún hygðist tryggja framtíð starfs- menntanáms í garðyrkju á Reykj- um í Ölfusi. Í því sambandi er mikilvægt að Garðyrkjuskólanum sé falin umsjón og staðarhald á Reykjum í virkri samvinnu og samráði við forsvarsmenn samtaka á vettvangi garðyrkjunnar og starfsfólk og kennara á staðnum. Mikill vöxtur í garðyrkju Mikill einhugur er um að stór- efla innlenda framleiðslu í garð- yrkju og landbúnaði, ekki síst í því ástandi sem við höfum gengið í gegnum að undanförnu. Á sama tíma berast ánægjulegar fréttir af því að garðyrkja í landinu sé í miklum uppgangi, sannur vaxt- arbroddur atvinnulífs og sjálf- bærni. Tryggja þarf betur fæðu- öryggi þjóðarinnar með aukinni matvælaframleiðslu, sem styður jafnframt við aðgerðir okkar í loftslagsmálum. Mikilvægi iðn- og starfsmenntanáms Tyllidagar eru iðulega notaðir til að tala um að hefja iðn- og starfs- menntanám til meiri virðingar. Í því sambandi er grundvallaratriði að fótunum verði ekki kippt undan starfsmenntanáminu á Reykjum. Tryggja þarf forgang að því hús- næði og landrými sem því er nauð- synlegt. Garðyrkjunámið þjónar nú sex atvinnugreinum og nem- endur hafa verið á breiðu aldurs- bili, ólíkt því sem gerist með annað nám á framhaldsskólastigi. Mikið og gott samstarf hefur verið við atvinnu- greinarnar sjálfar og það leitt af sér skjóta aðlögun námsins að breytingum sem eiga sér stað. Nauðsynlegt er að halda í þá sér- stöðu sem skólinn hef- ur haft að þessu leyti. Garðyrkjan stolt Suðurlands Garðyrkjuskólinn hefur í áratugi verið sannkallað stolt Ölfuss, Hveragerðis og alls Suðurlands. Brýnt er að styðja við öflugt skólastarf úti á landi og ekki síst þar sem það hefur vaxið og dafnað hingað til. Það er ekki að ástæðulausu sem fólk á Suðurlandi hefur áhyggjur af framtíð garð- yrkjunámsins á Reykjum. Við þekkjum afdrif Íþróttakennara- skólans á Laugarvatni. Garðyrkju- námið á ekki skilið að lenda á hrakhólum. Slíkt er mikilvægi námsins, saga skólans og starfið á Reykjum. Fjöreggið Afar mikilvægt er að hér takist vel til svo garðyrkjunáminu verði sköpuð örugg framtíð í nánum tengslum við atvinnugreinar garð- yrkjunnar og áfram verði boðið upp á metnaðarfullt garðyrkjunám á framhaldsskólastigi. Þá má það ekki gerast að þrengt verði svo að at- hafnasvæði skólans að hann eigi ekki möguleika á að þróast áfram. Það er vísasta leiðin til að námið lið- ist í sundur. Ráðherra heldur sann- arlega um fjöregg garðyrkjunnar. Fjöregg garðyrkj- unnar á Reykjum Eftir Karl Gauta Hjaltason » Tryggja þarf starfs- menntanáminu á Reykjum forgang að því húsnæði og landrými sem því er nauðsynlegt til vaxtar. Karl Gauti Hjaltason Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi kgauti@althingi.is Valgarður Egilsson fæddist 20. mars 1940 á Grenivík og ólst upp í Hléskógum í Höfða- hverfi. Foreldrar hans voru hjónin Egill Áskelsson, f. 1907, d. 1975, bóndi þar, og Sigur- björg Guðmundsdóttir, f. 1905, d. 1973, húsfreyja. Valgarður keppti í hlaupi og sundi á yngri árum og setti Ís- landsmet í 500 metra bringu- sundi 1958. Hann lauk prófi í læknis- fræði frá HÍ árið 1968 og dokt- orsgráðu frá Lundúnaháskóla tíu árum síðar. Hann starfaði sem sérfræðingur í frumu- meinafræði við Rannsókna- stofu Háskóla Íslands frá árinu 1979 og var yfirlæknir 1997- 2010 er hann lét af störfum. Hann var klínískur prófessor við læknadeild HÍ frá 2004. Valgarður var virkur í fé- lagsmálum á ýmsum áhuga- sviðum, meðal annars formað- ur Listahátíðar í Reykjavík og varaforseti Ferðafélags Ís- lands. Hann sinnti leiðsögn ferðamanna og skrifaði í Ár- bækur FÍ. Eftir Valgarð liggur fjöldi vísindagreina, leikrit, ljóðabækur, endurminninga- bækur og smásögur. Eiginkona Valgarðs er Katrín Fjeldsted, f. 1946, lækn- ir og fyrrverandi alþingis- maður. Þau eignuðust fjögur börn, en fyrir átti Valgarður eina dóttur. Valgarður lést 17.12. 2018. Merkir Íslendingar Valgarður Egilsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.