Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 30

Morgunblaðið - 20.03.2021, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Í mars fyrir þremur árum birtust 755 tíst undir myllumerkinu #karlmennskan og þar af 365 frásagnir frá drengjum og körlum. „Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn fór ég inn á klósett og felldi tár (grét) í einrúmi því ég lærði það snemma að karlmenn sýndu ekki þannig tilfinningar #karlmennskan“ er ein frásögnin sem birtist undir myllumerkinu. Töluvert var fjallað um tístin í fjölmiðlum enda ekki algengt að karlar tjái sig opinberlega með þeim hætti sem þeir gerðu þar. Megnið af tístunum innihélt frásagnir frá körlum eða drengjum sem lýstu því hvernig ráðandi karlmennskuhugmyndir höfðu haft neikvæð áhrif á líf þeirra. Frásagnirnar voru skýrt andóf gegn ráðandi karlmennsku og gáfu vísbend- ingu um að frjór jarðvegur væri til staðar á Íslandi fyrir jákvæða karl- mennsku. Bældar tilfinningar, skömm og feluleikur „Felldi tár í sumarbústaðaferð með vinahópnum, fimm mánuðum eftir að við misstum son okkar. Sá mig samt knúinn til að segja „sorry með þetta væl í gær“, morguninn eftir,“ skrifaði einn og lýsti átakanlegum afleiðingum menningarbundinna hugmynda um karla sem veita ekki svigrúm fyrir ber- skjaldaðar og fullkomlega eðlilegar til- finningar. Stærstur hluti frásagna karla innihélt lýsingar á því hvernig þeir hefðu bælt tilfinningar sínar, falið fyrir öðrum eða skammast sín fyrir að upplifa sorg, kvíða eða vanlíðan. Kraf- an um að vera „sterkur“, harka af sér og tjá sig ekki um líðan sína var áber- andi, sem er í takt við ráðandi karl- mennskuhugmyndir. „Fór langleiðina með að taka mitt eigið líf um tví- tugt, keypti reipið og reyndi að gera hnút, kunni það ekki. Botn- inum náð og leitaði hjálpar hjá sálfræðingi, hjálpaði mér mikið og fékk aðra sýn á lífið. Hef ekki sagt fjölskyldu/ vinum frá þessu því #karlmennskan – fer í það núna.“ Ráðandi karlmennskuhugmyndir gera mönnum í þessari stöðu ekki auð- veldara fyrir með að opna á vanlíðan sína, viðurkenna vanmátt og leita sér hjálpar. Þótt flestar frásagnir fjölluðu um tilfinningar þá snertu þær einnig á fleiri sviðum. „Ekki nógu karlmannlegur“ Karlar lýstu viðhorfum sem þeir höfðu mætt á sinni lífsleið eða hug- myndum sem þeir höfðu inngrónar um sjálfa sig sem drengi eða karlmenn. Vörpuðu frásagnirnar ljósi á hversu ríkjandi, stýrandi og rótgrónar hug- myndir eru um útlit, hegðun, starfs- vettvang, áhugamál eða námsval karla og drengja. „Jújú, ég mátti alveg fara í saum í 8. bekk, en smíðakennarinn spurði hvort ég væri kjelling.“ Það er tæplega hægt að tala um jafnrétti og frjálst val á meðan ráðandi karl- mennskuhugmyndum er troðið á börn, sem viðhalda síðar kynbundnu sam- félagi sem fullorðnir einstaklingar með inngrónum hugmyndum um sjálfa sig. Ráðandi karlmennska Ráðandi karlmennska gerir ráð fyr- ir að karlar og konur séu náttúrulegt andstæðupar þar sem karlar beri að viðhafa hegðun, útlit og viðhorf á skjön við konur og kvenleika. Ráðandi karl- mennska er sú tegund sem flestir þurfa að miða sig við eða taka afstöðu til, en fæstir ná að lifa upp í ímyndina sem sú tegund karlmennsku skapar. Flestir geta þó notið samsektar við ráðandi karlmennsku, einfaldlega með því að hafna henni ekki og tilheyra ákveðnum flokki fólks. Gjaldið sem greiða þarf fyrir að njóta samsektar við slíka karlmennsku getur samt fal- ist í fyrrnefndri bælingu tilfinninga, skömm, sektarkennd og vanlíðan. Þeir sem ekki njóta samsektar eiga erfitt með að innheimta út á völdin sem ráð- andi karlmennska veitir öðrum og eru eða geta upplifað sig jaðarsetta. Þetta flækist oft fyrir sumum körlum, sér- staklega þeim sem upplifa gagnrýni á karlmennsku og karllægni sem per- sónulega árás. Jákvætt andóf gegn ráðandi karlmennsku Gagnrýni á ráðandi karlmennsku og karllægni samfélagsins er ekki árás á karla heldur akkúrat þvert á móti til þess fallin að skapa drengjum og körl- um aukið frelsi, fleiri tækifæri og meiri lífsgæði sem á sama tíma stuðlar að jafnrétti og mannréttindum. Frásagn- irnar á Twitter voru klárlega skref í átt að jákvæðri karlmennsku og andóf gegn ráðandi karlmennsku. Við þurf- um ekki á íhaldssömum karlmennsku- hugmyndum að halda heldur getum við skapað frekari sess jákvæðari karl- mennskuhugmyndum sem byggjast á samkennd og jafnrétti. „Fór langleiðina með að taka mitt eigið líf um tvítugt“ Eftir Þorstein V. Einarsson »Frjór jarðvegur er fyrir jákvæða karl- mennsku á Íslandi sé tek- ið mið af frásögnum karla undir myllumerkinu #karlmennskan á Twit- ter fyrir þremur árum. Þorsteinn V. Einarsson Höfundur er kynjafræðingur. @karlmennskan á Instagram Í dag, 21. mars, er alþjóðlegur dagur út- rýmingar rasisma og alls kyns kynþátta- fordóma. Dagurinn er haldinn hátíðlegur hjá Sameinuðu þjóðunum til að minnast 21. mars 1960, þegar 69 manns var slátrað fyr- ir að mótmæla að- skilnaðarstefnunni Apartheid í Sharpeville í Suður- Afríku. Rasismi er nokkuð innbyggður í fólk á Íslandi og ber að minnast á viðhorf fólks til svörtu fjallkon- unnar. Menn þurfa bara að skoða eigin fordóma og líta í eigin barm. Fullyrðingar eins og „svartir eru latir“ og „gyðingar eru nískir“ flokkast því sem fordómar þar sem einstaklingurinn sem lætur slíkt út úr sér notar þar vanþekkingu sína til að búa sér til fullyrðingu um heil- an hóp manna sem telur margar milljónir. Fordómarnir hafa í gegn- um tíðina oft náð að tvístra heilu samfélögunum og verið valdir að ýmiss konar óhugnaði sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir hefðu hinir ólíku hópar haft skilning hver á öðrum og sest niður rólega og rætt málin. Rasismi hefur fyr- irfundist á Íslandi lengi og var þel- dökkum m.a. meinað að starfa á herstöð NATO í Keflavík allt fram til ársins 1971 og landið ekki opnað fólki af öðrum litarhætti fyrr en seint á áttunda áratug síðustu aldar. Rasistahreyfingar hafa verið starf- ræktar á Íslandi með einhverju millibili allt frá tímum nasista og hér á landi fyrirfinnast nokkrar slík- ar hreyfingar enn þann dag í dag. Rasismi er versta þjóðfélagsmein sem til er á Íslandi í dag og hefur leitt til aðsúgs og árása á fólk vegna litarháttar þess sem og ýmiss konar útskúfunar vegna dulinna fordóma. Rasisminn á sér einnig nokkra und- irflokka, svo sem útlendingaandúð, menningarhatur og trúarhatur, og eru þessi fyrirbrigði oft mun meira áberandi en hinn hreinræktaði ras- ismi hér á landi. Fordómar eru ekki bara augljóst hatur; við verðum að átta okkur á því að við erum uppfull af fordómum þegar við segjum setn- ingar eins og: „Ég er ekki haldin/n kynþáttafordómum en ég myndi ekki vilja að dóttir mín giftist svört- um manni.“ Við erum hrædd við að upplifa áður óþekktar tilfinningar, við erum hrædd við viðbrögð okkar gagnvart því sem er framandi. Við óttumst að hið óþekkta raski jafn- vægi okkar eða umhverfi. Vissulega er kynþáttahatur á Íslandi og kannski er það leyndara en okkur grunar. Kynþáttahatur hér er meira og minna tengt litarhætti og fólki finnst hörundsdökkt fólk eitthvað óæðra og skör lægra en þeir sem rekja ættir aftur til Ingólfs. Jafnrétti snýst að sjálfsögðu ekki eingöngu um kynin. Björt Samuel- sen, alþingiskona frá Færeyjum, sagði á sínum tíma að ráðamenn og stjórnvöld á Norðurlöndum þyrftu að hætta að hugsa um jafnrétti sem eitthvað sem snerist eingöngu um kynin því allir sem fæddust í þenn- an heim ættu jafnan rétt á virðingu og ákveðnum rétt- indum sem ekki mætti taka frá þeim. Þetta er undirstaða frelsis, réttlætis og mannréttinda í heim- inum. Samkvæmt könnun sem Evrópu- sambandið gerði er það staðreynd að 62% Evr- ópubúa í dag telja að mismunun á grundvelli hörundslitar og upp- runa sé mjög algeng víða í álfunni. Íslend- ingar eru með útlendingaandúð gagnvart ástarsambandi milli þeirra og til dæmis svarts fólks, eins og kóngafjölskyldan á Bretlandseyjum er sökuð um. Donald nokkur Trump skapaði óþarfa ótta og andúð í garð annarra sem hann þoldi ekki, en þekkti í raun ekkert og vissi ekkert um. Andúð í garð þeirra sem við þekkj- um ekki byggist oft á vanþekkingu sem getur skapað fordóma, beina eða óbeina kynþáttamismunun eða í verstu tilfellum jafnvel hatur, því að þetta er svo sannarlega rótgróið og fast eins og plága í mönnum. Kynþáttafordómar eru alls staðar í samfélaginu og fela í sér alls konar mannréttindabrot, mismunun, mis- rétti, ójafnræði, óréttlæti o.s.frv. Í Bandaríkjunum alast sumir upp við að þeim er sagt að forðast og jafnvel hata ákveðið fólk. Þar af leiðandi hefur ekkert breyst í þessum kyn- þáttahatursmálum frá upphafi. Og mun aldrei breytast. Þjóðarsálin fer aldrei í sjálfsrann- sókn hvað þetta mál og önnur varð- ar og menn loka augum og eyrum og halda áfram með lífið eins og ekkert sé. Gargandi kynþátta- fordómar fara vaxandi í þessum löndum sem og í öðrum heimsálfum. Fordómar sem fyrirbæri hafa því miður fylgt mannkyninu frá upphafi en það er ekki einungis bundið við Evrópu. Þar hefur nýnasismi, með hjálp netsins, sprungið út alls stað- ar. Við berum öll sem eitt ábyrgð hvað þetta mál varðar. Atvinnurek- endur, ráðherrar, sveitarfélög, stjórnmálamenn, stjórnendur, starfsmenn, nemendur og kennarar hafa vald og tækifæri til að breyta viðhorfi til góðs. Að líta niður á aðra vegna litarháttar eða útlits er ljótt, ómannúðlegt, óviðunandi og alls- herjarskömm gegn mannkyninu. Kynþáttafordómar, kynþátta- mismunun, kynþáttahyggja, kyn- þáttamisrétti og kynþáttahatur er nokkuð sem við megum og skulum aldrei láta viðgangast. Það er ekki nóg að mæta í alls konar viðburði til að taka þátt í „Black lives matter“. Erum við saklaus þjóð? Eftir Akeem Cujo Oppong Akeem Cujo Oppong » Það ber að minnast á viðhorf fólks til svörtu fjallkonunnar fyrir nokkrum árum. „Myndi ekki vilja að dóttir mín væri með svörtum manni“ er oft hugsað líka. Höfundur er framkvæmdastjóri Ísland Panorama Center. Jóhann Páll Símonar- son ryðst fram á ritvöll- inn í Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. mars 2021, af mikilli heift í garð þriggja áhuga- manna um mannvænt og skilvirkt borg- arskipulag. Skotspænir Jóhanns Páls eru ég undirrit- aður, höfundur þessarar greinar, og Einar Eiríksson og Örn Sigurðsson félagar mínir. Einar ritaði faglega og vel rökstudda grein um borgarskipulag í þetta blað þann 1. mars sl. Sú grein virðist orsakavaldur bræðiskasts Jóhanns Páls. Einar Eiríksson og Örn Sigurðsson telja réttilega að ekkert í grein Jó- hanns Páls sé svara vert. Ég undirrit- aður kýs þó að sitja ekki þegjandi und- ir grófum rógburði. Jóhann Páll telur að viðstaddir hafi brosað af sælu þegar þáverandi for- sætisráðherra Ólafur Thors tók við herflugvellinum í Vatnsmýri úr hendi Breta þann 6. júlí 1946. Líklegt er þó að a.m.k. einum hafi ekki verið hlátur í huga, Bjarna Benediktssyni, þáver- andi borgarstjóra í Reykjavík og flokksbróður Ólafs Thors, alnafna og afabróður núverandi formanns Sjálf- stæðisflokksins, flokks Jóhanns Páls. Ekki þarf mikla mannvitsbrekku til að skilja að herflugvöllurinn rataði í rangar hendur. Málið var þó útkljáð á Alþingi þar sem fjórföldu misvægi at- kvæða var beitt af mikilli hörku. Við það tilefni lagði Jónas Jónsson frá Hriflu fram þingsályktunartillögu þess efnis að flugvöllurinn skyldi rifinn og landinu skilað aftur til réttmætra eigenda. Reykjavík fékk jú jarðirnar Þóroddsstaði, Nauthól og Skildinganes úr Sel- tjarnarneshreppi þann 1. janúar 1932 vegna fyr- irsjáanlegs og yfirvof- andi skorts á heppilegu byggingarlandi í ört vax- andi höfuðborg. Yfirtaka ríkisins á Vatnsmýrarsvæðinu 1946 var fjandsamleg og án nokkurrar réttar- farslegrar stoðar. Hún braut í bága við stjórn- arskrá, skipulagslög, sveitarstjórnarlög og öll önnur lög og þekktar reglur og venjur um mann- réttindi, eignarrétt og samskipti lög- aðila. Engin þekkt fordæmi eru um það í nútímasögu Norður-Evrópu að átt hafi sér stað ámóta landtaka án blóðsúthellinga. Víst er að Ólafi Thors og félögum hans var lögleysan 1946 að fullu ljós. En hins vegar getur verið að hvorki honum né ýmsum öðrum hafi þá verið meðvitaðar þær skelfilegu afleiðingar, sem af hlytust og stigmögnuðust ára- tug eftir áratug í 75 ár allt til dagsins í dag við það að setja niður flugvöll þar sem átti að koma ný miðborg. Ekkert lát er á eyðingarmætti þessarar vítis- vélar. Landtöku ríkisins fylgdi yfirtaka á allri lofthelgi (í 45 + 14 = 59 m hæð yf- ir sjávarmáli) yfir Nesinu vestan Ell- iðaáa og raunverulegt forræði yfir helsta skipulagi og þróun Reykjavíkur og síðar höfuðborgarsvæðisins (HBS). Samhliða landtökunni í Vatnsmýri afhenti ríkið Flugfélagi Akureyrar herflugvöllinn til frírra afnota án lóðar- leigu, stærstu lóð á Íslandi og þótt víð- ar væri leitað. Þannig öðluðust Akur- eyringar mikið áhrifavald yfir borgarskipulaginu í höfuðborginni. Afleiðingar Vatnsmýrarflugvallar eru að sönnu skelfilegar. Byggð á höfuðborgarsvæðinu er óskilvirk flat- neskja, a.m.k. fjórfalt víðáttumeiri en hún hefði ella orðið án flugvallar í Vatnsmýri. Öll erindi borgarbúa eru að meðaltali a.m.k. tvöfalt lengri en ella sem og fjarlægðir frá A til B, lagn- ir, veitur, götur og stígar og leiðir neyðarþjónustu. Grunnur nærþjónustu og strætó er löngu brostinn. Hér er eitt mesta bíla- samfélag veraldar. Kostnaður allra er gríðarlegur, mengun og útblástur CO2 eru verulegt vandamál. Líklega má tengja mikinn og viðvarandi landflótta um 600 Íslendinga á ári áratugum saman beint eða óbeint við afleiðingar af flugstarfsemi í Vatnsmýri. Það eru góðar fréttir fyrir Reykvík- inga af flugvallarmálinu. Ríkið hefur ekkert formlegt vald yfir Vatnsmýrar- flugvelli. Vilji Reykvíkinga sjálfra er allt sem þarf og samkvæmt gildandi samkomulagi Reykjavíkurborgar og ríkisins á flugið að vera farið úr Vatns- mýri fyrir miðnætti 31. desember 2022. Óskandi væri að Jóhann Páll og hans félagar gerðu sér í framtíðinni far um að skoða betur heildarmyndir og samhengi hluta. Vindhögg flugvallarvinar Eftir Gunnar Hjört Gunnarsson »Vilji Reykvíkinga er allt sem þarf og sam- kvæmt samkomulagi borgar og ríkisins á flug- ið að vera farið úr Vatns- mýri fyrir miðnætti 31. desember 2022. Gunnar H. Gunnarsson Höfundur er verkfræðingur. Hann situr í framkvæmdastjórn Samtaka um betri byggð (BB) gunnarhjortur@outlook.com Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.