Morgunblaðið - 20.03.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 20.03.2021, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 ✝ Ingibjörg Guð- ríður Matthías- dóttir fæddist í Vík í Mýrdal 27. febr- úar 1938. Hún lést á heimili sínu að Strandvegi 20 í Vík þann 3. mars 2021. Hún var dóttir hjónanna Jónínu Þórðardóttur hús- móður frá Hryggj- um í Mýrdal, f. 3.6. 1911, d. 24.7. 1999, og Matthías- ar Einarssonar, húsasmíða- meistara frá Þórisholti í Mýrdal, f. 24.5. 1904, d. 3.1. 1999. Systkini Ingibjargar eru: 1) Einar Matthíasson, f. 12.5. 1944, maki Halldóra Svan- björnsdóttir, f. 14.6. 1940. Börn þeirra eru: 1) Guðný Jóna, maki Magnús Baldursson. 2) Svanbjörn, maki Bryndís Ósk Jónsdóttir. 3) Matthías, maki Mia Redding. 4) Einar Freyr, maki Ingigerður Karlsdóttir. Barnabörn eru 11 og barna- barnabörn fjögur. 2) Kolbrún Matthíasdóttir, f. 8.11. 1948, maki Björn Vignir Sæmundsson frá Múla, f. 18.3. 1944, d. 14.11. 2005. Börn þeirra Barn þeirra er drengur, f. 3.2. 2021. b) Birgitta Rós, f. 17.8. 2002, c) Björn Vignir, f. 20.9. 2007. Ingibjörg ólst upp í Vík í Mýr- dal, hún gekk í Skógaskóla árin 1951 – 1953 og í Samvinnuskól- ann á Bifröst 1957 – 1958. Sem unglingur fór hún á Kirkjubæj- arklaustur í vinnu á símstöðinni þar og átti góðar minningar þaðan. Einnig vann hún á Tuma- stöðum sumarstarf. Á árunum 1958 – 1962 starfaði hún á skrif- stofu Kaupfélags Skaftfellinga í Vík. Síðan hélt hún til Danmerk- ur og starfaði á skrifstofu hjá dönsku tryggingafélagi 1962 – 1963 og fór þaðan til Englands þar sem hún var au-pair í hálft ár. Árið 1964 gerðist hún flug- freyja hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum og starfaði hún þar fram til ársins 2006, síðasta flugferðin var 30. júlí 2006. Imba giftist þann 29.10. 2000 Matthíasi B. Sveinssyni, f. 1.5. 1931, d. 4.8. 2009, þau hófu hjú- skap 1965. Foreldrar hans voru Guðbjörg Jónsdóttir, f. 20.4. 1901, d. 8.3. 1990, og Sveinn Böðvarsson, f. 20.10. 1895, d. 10.8. 1985. Þau hjónin ráku verslunina Ljósbæ frá 1989 til 2006 og vann hún þar öllum stundum þegar hún var í fríi frá fluginu. Útför Ingibjargar fer fram frá Víkurkirkju 20. mars 2021 kl. 14. eru: 1) Matthías Jón Björnsson, f. 20.8. 1967, maki Hafdís Þorvaldsdóttir. Börn þeirra eru a) Kolbrún Magga, f. 9.6. 1987, maki Bjarki Már Gunn- arsson, barn þeirra er Hafdís Hanna. b) Þorvaldur Björn, f. 26.2. 1991, sam- býliskona Anna Kristjana Þorláksdóttir, börn þeirra eru Daníel Máni og Matt- hías Vignir. c) Ingibjörg, f. 9.12. 1994, maki Grímur Örn Ágústs- son, börn þeirra eru Matthías Örn, f., d., 12.7. 2012, Ólafur Leó og Ragnheiður Alda. d) Sæ- mundur Örn, f. 27.10. 2003. 2) Sæmundur Björnsson, f. 7.5. 1972, d. 27.7. 1994, maki Kristín Guðrún Ólafsdóttir. Barn þeirra er Sædís Birna, f. 21.1. 1995, sambýlismaður Gunnar Bjarki Jóhannsson. Barn þeirra er drengur, f. 24.2. 2021. 3) Ingi Már Björnsson, f. 12.4. 1976, maki Hjördís Rut Jónsdóttir. Börn þeirra eru a) Harpa Rún Jóhannsdóttir, f. 27.9. 1997, maki Brynjar Gísli Stefánsson. Elsku systir. Ég vil þakka þér fyrir þessi sl. 12 ár sem við deildum saman, þá báðar orðnar ekkjur. Þú dvaldir hjá mér hér í Vík eftir að Matti þinn dó, hjálpaðir mér að reka mitt fyrirtæki og passa elskuleg langömmubörn mín sem voru eins og þín. Þú varst mjög elsk að börnum og dýrkaðir þau. Þér fannst ekki leiðinlegt þeg- ar einn Matthíasinn fæddist fyrir rúmu ári en hann heitir Matthías Vignir. Hann færði þér blómvönd á 83 ára afmælinu þínu 27. febrúar sl. Þú og Erlen vinkona þín sem lést á sl. ári fóruð til Danmerkur í eitt ár og síðan fóruð þið til Bretlands í hálft ár sem au-pair. Á leiðinni með Gullfossi kynntust þið Þuru Ísólfs, seinna urðuð þið allar flugfreyjur og þarna skap- aðist ævilöng vinátta ykkar. Það var í rauninni pabbi sem kom ykkur í það starf en hann sendi ykkur umsókn, sjálfsagt séð það í Tímanum, þar sem auglýst var eftir flugfreyjum. Flugfreyju- starfið var þitt aðalstarf í um 42 ár, en einnig varstu liðtæk í búð- inni ykkar Matta á milli þess að fljúga. Þú kynntist manninum þínum Matta Sveins og þið byggðuð ykkur rosalega flott hús á Arn- arnesi. Garðurinn var yndislegur og áttir þú eflaust mörg handtök þar, rósirnar þínar voru svo fal- legar. Þið komuð oft í Víkina og allt- af ef skírn, ferming eða slíkt var fram undan. Matti alltaf að festa á filmu slíka atburði og hefur það glatt mig á síðustu árum að skoða þær myndir. Ég vil þakka fyrir allar góðu stundirnar í sum- arbústaðnum okkar Bjössa í Skaftártungunni, þegar þið og Einar bróðir og fjölskylda kom- uð í veiðiferð í Tungufljótið. Það voru ómetanlegar stundir en því miður of fáar. En Imba mín, mér er efst í huga okkar síðastliðna ár þegar við keyptum okkur íbúð saman. Það var ekkert auðvelt að koma húsbúnaðinum okkar fyrir í 76 fermetrum. Þú áttir svo fallega muni sem þú safnaðir í gegnum tíðina, en ég veit að þú kunnir að meta þá hjálp sem við fengum til að skapa okkur notalegt heimili. Ég hefði óskað að við hefðum getað deilt því lengur saman. Þú varst mjög ánægð þegar ég setti upp gömlu stofugardínurnar úr Mávanesinu, 40 ára gamlar en í lagi, kannski smá upplitaðar. Á síðastliðnu sumri komumst við austur á Höfn í Hornafirði með hjálp góðra vina, sem í mín- um huga var ógleymanlegt. Þegar langömmubörnin mín komu hér eftir að þú kvaddir, hef ég fengið spurningar „hvar er Imba?“ - en ég er ekki mjög trú- uð á guð, en hef þó sagt „hún er hjá Guði“ og þau sætt sig við það. Ég vil þakka skólafélögum hennar frá Bifröst fyrir þeirra vináttu, en þau hafa haldið mjög vel saman, m.a. farið saman í ferðalög, á síðari árum hafa þau einnig boðið mér með. Takk fyrir það. Ég vil einnig geta þess hversu ómetanleg sú þjónusta er, sem krabbameinssjúklingar fá hér á Suðurlandi, að þurfa ekki að fara til Reykjavíkur í lyfjagjöf. Á sjúkrahúsi Suðurlands er frá- bært starfsfólk undir stjórn krabbameinslæknisins Sigurðar Böðvarssonar. Ég vil færa þessu fólki þakkir mínar, ykkar starf er ómetanlegt. Elsku Imba mín, takk fyrir allt. Þín systir, Kolbrún (Kolla). Elsku Imba. Nú ertu fallin frá, stór partur af okkar frábæru fjölskyldu sem stóðst alltaf sem klettur við bak okkar allra. Ég man enn þegar þið Matti komuð reglulega í Víkina er ég var krakki, alltaf var manni fært eitthvað enda ef þið voruð í Vík- inni eða í sumarbústaðnum þá var aldrei að ræða annað en að maður væri með ykkur. Góðu tímarnir þegar maður var í heimsókn hjá ykkur í Máva- nesinu, horft á allar Nonna og Manna-myndirnar, martröðin mín með ísbjörninn sem allir í fjölskyldunni muna eftir. Allar fjöruferðirnar með ykk- ur sem barn, það var aldrei logn í kringum ykkur Matta, því það var alltaf gaman sama hvað var. Svo á fullorðinsárum, ég man enn nákvæmlega hvar ég var, búsettur í Noregi og var að keyra e18 frá Osló til Tønsberg þegar Kolla amma hringdi í mig og sagði mér fréttirnar að þú værir veik, illa haldin af krabba- meini. Ég held að ákvörðunin um að flytja heim aftur hafi svolítið ákvarðast á þessum tíma. En svo er nútíðin, Matthías Vignir kom í heiminn þann 10. janúar 2020 og ekki leið á löngu þar til hann átti orðið bestu vin- konu, uppáhaldsfrænku. Þið amma fluttar á Strandveg- inn og alltaf var það beint í fang- ið til Imbu frænku og nebbak- núsin sem voru aðeins framkvæmd með Imbu frænku, Matthías Vignir er greinilega lík- ur pabba sínum því alltaf sótti hann í að hafa gaman með Imbu frænku. Þín verður sárt saknað og minningarnar verða okkur kær- komnar um alla tíð. Þorvaldur Björn Matthías- son og fjölskylda. Kveðja frá bekkjarfélögum Enn fækkar í hópi okkar skólafélaganna sem útskrifuð- umst frá Samvinnuskólanum á Bifröst árið 1958. Fallin er frá skólasystir okkar Ingibjörg Matthíasdóttir eða Imba Matt eins og hún var gjarnan kölluð í okkar hópi. Eftir inntökupróf í september 1956 mættu í Bifröst ungmenni víðs vegar að af landinu og hugð- ust stunda tveggja ára nám við skólann. Ein í þessum hópi var Imba sem komin var frá Vík í Mýrdal og þar með hafði staðurinn Vík í Mýrdal fengið merkingu í hugum okkar hinna. Það var þroskandi og upplýsandi að kynnast land- inu sínu í gegnum ólíkar æsku- stöðvar nemendanna. Við fengum ágæta fræðslu hjá kennurunum í Bifröst, en ekki var síður menntandi að umgang- ast skólafélagana og tengjast þeim vinaböndum. Samheldni og vinátta hefur einkennt hópinn okkar og frekar aukist nú upp á síðkastið, þegar gamlar minning- ar verða fyrirferðarmeiri og dýr- mætari. Við vorum 14 stelpurnar í bekknum og oft glatt á hjalla í heimavistinni. Imba var söng- fuglinn í hópnum og þannig mið- depill á síðkvöldum í náttfatap- artíum sem gjarnan voru haldin eftir lokun vistanna um leið og hlustað var á lög unga fólksins. Einnig söng Imba með skóla- hljómsveitinni meðan við hin tjúttuðum af miklum móð. Imba var góður félagi, hún var hæglát, tranaði sér ekki fram, en alltaf til í að vera með í uppátækjum og fjöri. En skólaárin voru ekki bara glens og grín, það skiptust á skin og skúrir, námið þurfti að taka alvarlega og stundum gerð- ust sorglegir atburðir. Þessi sameiginlega reynsla myndaði trausta vináttu sem staðið hefur í rúmlega 60 ár. Eftir skólaárin tvístraðist hóp- urinn eðlilega í allar áttir. Fáir urðu víðförulli en Imba sem gerðist flugfreyja hjá Icelandair. Saumaklúbburinn hjá okkur skólasystrunum varð fastur punktur sem byggði brú milli skólaáranna og okkar daglega annríkis. Imba flutti með sér kærkom- inn andblæ frá útlöndum inn í klúbbinn sem á fyrstu árunum var oft undirlagður af umræðum um bleyjuskipti og barnauppeldi. Seinna efldist pólitísk vitund í klúbbnum og fjörugar stjórn- málaumræður stóðu stundum næturlangt. Imba hafði ákveðnar skoðanir, sem hún tjáði af festu. Skoðanir hennar voru stundum íhaldssamar en einkenndust einnig af ríkri tilfinningu fyrir jöfnuði og mannúð. Imba var tengd æskustöðvun- um í Vík sterkum böndum. Eftir að Matthías eiginmaður hennar féll frá árið 2009 dvaldi hún mik- ið hjá Kolbrúnu systur sinni sem búsett var í Vík. Á endanum flutti Imba alfarið heim til Víkur og héldu hún og Kolbrún þar heimili saman. Í sumar sem leið heimsótti saumaklúbburinn Imbu og Kolbrúnu og átti með þeim ánægjulega daga. Sú dvöl í Vík skilur eftir sig dýrmæta minningu. Við kveðjum Imbu með sökn- uði og þakklæti fyrir áratuga vináttu og góðar samverustund- ir. Kolbrúnu og Einari og fjöl- skyldum þeirra sendum við sam- úðarkveðjur. F.h. útskriftarárgangs 1958 frá Samvinnuskólanum á Bifröst, Elsa Sigríður Jónsdóttir, Guðný Björnsdóttir. Ingibjörg Matthíasdóttir Anna Guðrún Sigurðardóttir ✝ Anna Guð- rún Sigurð- ardóttir fæddist 18. september 1975. Hún lést 16. febrúar 2021. Útför Önnu Guðrúnar fór fram 25. febrúar 2021. Meira á: www.mbl.is/andlat Minningar á mbl.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA ÓLAFSDÓTTIR STOLZENWALD, fyrrum til heimilis í Nestúni 10, Hellu, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands mánudaginn 16. mars. Sólveig Stolzenwald Gústav Þór Stolzenwald Ólafur Egill Stolzenwald og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR, Gautlandi 11, Reykjavík, lést þriðjudaginn 16. mars á Vífilsstöðum. Jarðarförin auglýst síðar. Gunnar Magnússon Margrét Halldórsdóttir Magnús Magnússon Sandra Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, TÓMAS GUNNAR SÆMUNDSSON frá Hrútatungu, lést á lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi 18. mars. Sigrún E. Sigurjónsdóttir Sigurjón Tómasson Þorgerður Tómasdóttir Guðmundur E. Jóhannesson Arndís Tómasdóttir Frímann B. Baldursson og barnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGURÁST INDRIÐADÓTTIR, Ásta á Leirá, lést á hjúkrunarheimilinu Höfða laugardaginn 13. mars. Útförin verður auglýst síðar. Hallfríður Kristinsdóttir Björn Jónsson Björg Kristinsdóttir Júlíus Birgir Kristinsson Svanhvít M. Aðalsteinsdóttir Hafdís Kristinsdóttir Þór Ægisson Ásgeir Örn Kristinsson Anna Leif Auðar Elídóttir Ragnheiður Kristinsdóttir Óskar Helgi Guðjónsson Sigrún Magnúsdóttir Jón Helgason Ólafur Indriðason Björk Snorradóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, STEFÁN ÞORLEIFSSON, íþróttakennari og fyrrv. forstöðum. Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, Þiljuvöllum 21, Neskaupstað, lést sunnudaginn 14. mars. Hann verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 26. mars klukkan 14. Streymi frá jarðarförinni má finna á Facebook-síðu Norðfjarðarkirkju. Elínbjörg Stefánsdóttir Þórarinn Smári Sigurjón Stefánsson Þorleifur Stefánsson Helga Magnúsdóttir Vilborg Stefánsdóttir barnabörn, langafabörn og langalangafabarn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og vinur, XUAN THANH BUI, lést þriðjudaginn 16. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. mars klukkan 13. Thi Phuong Nguyen Thu Thi Bui og fjölskylda Thang Minh Bui Tra Huong Thi Bui Thuy Diep Thi Hoang

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.