Morgunblaðið - 20.03.2021, Page 33

Morgunblaðið - 20.03.2021, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 ✝ Guðný Helga Björnsdóttir fæddist 7. desem- ber 1929 á Suður- eyri í Súg- andafirði. Hún lést 7. mars 2021 á Sjúkrahúsinu á Hólmavík. For- eldrar hennar voru Karólína Hrefna Jónsdóttir, f. 13. september 1894, d. 27. febrúar 1970, og Björn Vigfússon, f. 4. sept- ember 1864, d. 23. júní 1931. Átti hún þrjú hálfsystkini, Magnús, Bjarna og Sigríði, öll látin. Guðný giftist 31. desember 1953 Gústafi Adolf Guðmunds- syni, f. 19. ágúst 1925 á Hólmavík en hann lést 6. jan- úar 2013 á hjartadeild Land- spítalans í Reykjavík. Guðný og Gústaf hófu búskap sinn á Hólmavík og bjuggu þar til ársins 1966 er þau fluttust til Reykjavíkur og bjuggu þar alla tíð síðan. Síðastliðin tvö ár dvaldi Guðný á Sjúkrahúsinu á Hólmavík. Börn Guðnýjar og Gústafs eru: 1) Guðmundur Viktor, f. 7. október 1952, maki hans er Birna S. Rich- ardsdóttir, f. 17 ágúst 1951. Börn þeirra eru: a) Guð- mundur Richard, f. 1977, maki Sus- anne Borgen- stierna, eiga þau tvö börn. b) Hrefna, f. 1979, maki Gauti Þórð- arson, eiga þau þrjú börn. c) Guðný, f. 1986, maki Hall- varður Jónsson. 2) Guðbjörg, f. 2 desember 1953, sonur hennar er Andri Valur Sigurðsson, f. 1975, á hann eina dóttur. Maki hennar Jakob Smári, f. 11. jan- úar 1950, d. 19. júlí 2010. 3) Magnús, f. 3. maí 1959, sonur hans er Júlíus Brynjar, f. 1988, maki Magnúsar er Röfn Frið- riksdóttir sem áður átti tvo syni, Veigar Arthúr, f. 1982, maki Hafdís Jóna Stefánsdóttir og eiga þau þrjár dætur, Atla Arnar, f. 1985, á hann þrjú börn, en saman eiga þau Magn- ús og Röfn Gústaf Hrannar, f. 1994, Guðmund Ara, f. 1997, og Róbert Fannar, f. 1998. Útför Guðnýjar fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 20. mars 2021, klukkan 14. Elsku amma. Nú skilur leið- ir. Margar minningar koma upp í hugann, þær fyrstu frá því að ég heimsótti ykkur afa í Árbæinn, stundum ein en á unglingsárum oft í fylgd Mæju vinkonu. Þá var margt brallað og brasað, með tilheyrandi strætó- ferðum, sund- og bæjarferðum. Amma var nú alltaf rösk til verka og ekkert að hukla við hlutina, eins og Dúddi hefði sagt. Eitt vorið hafði ég misst af árlegu sundnámskeiði í Laug- arhól í Bjarnarfirði vegna veik- inda (það er eins og maður sé 100 ára). Amma reddaði því nú snar- lega og skráði mig til leiks á sundnámskeið í Árbæjarskóla það sumarið. Á framhaldsskólaárunum bjó ég um tíma hjá ömmu og afa. Við amma töluðum stundum „hátt“ saman á þeim tíma en alltaf vorum við samt góðar vinkonur og hlógum oft saman. Seinna var alltaf gott að koma í Fiskakvíslina þar sem þau bjuggu, svona til að fleygja sér í sófann, lesa blöðin, fá sér aðeins í gogginn, eða biðja ömmu að passa langömmu- drenginn. Það entist þar til amma var sótt með sjúkrabíl í eitt skiptið, hafði farið úr mjaðmarlið. Það var gott að eiga ömmu að en síðar breyttust hlutverk okkar, og í stað þess að hún leiddi mig leiddi ég hana. Minningarnar eru dýrmætar en seinna hittumst við aftur. Takk fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hrefna Guðmundsdóttir. Guðný Helga Björnsdóttir Björn var minn stóri bróðir, fjórum árum eldri og ráða- góður. Hann var líkur afa, Jóni smið á Akranesi, hagur, hógvær, handsterkur, fáorður en kím- inn. Við rifjuðum oft upp stríðs- árin og gróskuárin í Reykjavík eftir stríð. Ljúfar endurminn- ingar hófust á Hóli en þangað vorum við systkin send í stríðs- byrjun til afa og ömmu, Jóhannesar stórfrænda og Siggu minnar. Ég minnist snjóaveturs, vetrarsólin skein og Björn fór á sleða í gegnum gaddavírsgirðingu. Vélvæðing var engin, tæknin var skilvinda og hestasláttuvél. Þetta breyttist skjótt. Byggt var íbúðarhús, vegur kom upp dalinn, traktor, herjeppi, sími og rafmagn frá vindmyllu með rafgeyma. En menning var í Lundar- reykjadal. Jakob á Varmalæk var smiður hússins, organisti og söngstjóri karlakórs sveitarinn- ar. Farkennari, Ingi Tryggva- son, kom í stað barnaskóla. Smíðakompan í kjallaranum á Ránargötu 21 var sérstakur samkomustaður, allt í senn um- ræðuherbergi, smíða-, efna- og eðlisfræði- og ljósmyndastofa. Björn réð þar ríkjum. Búin voru til kolbogaljós sem Björn Kristinsson ✝ Björn Krist- insson fæddist 2. janúar 1932. Hann lést 22. febr- úar 2021. Björn var jarðsunginn 5. mars 2021. trufluðu útvarps- sendingar í ná- grenninu og margt sem nú er sennilega bannað að búa til. Löngu fyrir áramót var keyptur saltpétur og brennisteinn í Ingólfsapóteki og í sömu ferð, við- arkol hjá Ellings- en. Suma gæti grunað, að væri þetta malað í réttum hlutföllum, gæti það orðið púður. Svo var líka. Kveikjuþráðinn þurfti að fá hjá Vegagerðinni. Pappír í heima- gerða kínverja gátu flestir rúll- að. Bombur í batteríshylkjum vafðar inn í svart einangrunar- band og lakkaðar voru sérgrein Smíðakompunnar. Sennilega var offramleiðsla. Áratug seinna var bombu kastað á rússneska sendiráðið í mót- mælaskyni við innrás Rússa í Ungverjaland. Enn liðu 10 ár, Bjarni Markús, flugmaður á Stýrimannastíg 5, var að hreinsa sitt gamla þakherbergi og fann þar bombu. Í rælni kveikir hann í henni og hendir út á götu. Rúður brotna, lög- reglan finnur út að Bjarna- bomba er af sömu gerð og sendiráðsbomban. Við Björn tefldum skák, hann vann oftast. Allt lék í lyndi. Skilnaður foreldra okkar gjörbreytti lífinu. Ég var óham- ingjusamur, fór einförum og 16 ára til sjós. Við Björn hittumst ekki og töluðumst varla við í fimmtán ár. Að námi loknu urðum við vinir á ný. Áttum sameiginleg, tæknileg áhugamál. Ég fylgdist með því sem Björn fékkst við: mælitæki, neðanjarðarlestir í Reykjavík og flugvöll á Löngu- skerjum. Við sigldum á báti okkar Riet við Noreg og Sví- þjóð og flugum með Birni, hann var góður flugmaður. Björn kom á sabbatsári til TU í Delft. Ég var að þróa nýtt loftræstikerfi, Fresh-r og hafði farið fýluferð um heiminn, 40.000 km, í leit að loft/loft varmaskipti. Björn fann franskt patent frá 1929 hjá Noor van Andel í Almelo, 40 km frá okk- ur. Í sex ár unnum við þrír að endurgerð. Björn bjó til frum- gerð af tveggja loftstrauma dælu með seglum á fjölda af blöðkum og strokki. Hún komst ekki í framleiðslu en er ásamt einkaleyfi á Boerhaave-safninu í Leiden. Fresh-r var á alþjóða „Passiv Haus“ ráðstefnu í München 2018 kosin World Champion Ventilation. Ég er og var alla tíð stoltur af stóra bróður. Jón Kristinsson. Garðar Jónsson ✝ Garðar Jónsson fæddist 21. jan- úar 1966. Hann lést 1. mars 2021. Útförin fór fram 12. mars 2021. Meira á: www.mbl.is/andlat Minningar á mbl.is Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.