Morgunblaðið - 20.03.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 20.03.2021, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Það var vorið 1980 sem ég minn- ist þess að hafa séð Pétur Björn (PB) mág minn fyrst. Þá skokkaði ég í hádeginu á Melavellinum gamla. Samtímis var sveit vaskra manna, sem nefndi hóp sinn Lunch United, að spila fótbolta. Í hópnum var hávaxinn, herða- breiður, myndarlegur, skeggvax- inn maður sem augljóslega var hrókur alls fagnaðar. Þar var Pétur Björn mættur. Ekki minn- ist ég þess að við höfum talað mikið saman á þessum tíma. Það gerðist síðar, nánar til tekið á árinu 1982, þegar ég fór á fjörur við konuna mína, Bobbu systur hans. Tókst þá strax með okkur einstakur og traustur vinskapur. Þessa áratugi höfum við vin- irnir brallað margt minnisstætt saman. Árið 1984 þegar hann bjó í Svíþjóð heimsóttum við Bobba fjölskylduna. Á öðrum degi, þeg- ar mikil veisla var undirbúin, fór- um við PB saman í sænska ríkið sem bauð upp á úrval vína. Smekkur okkar var einfaldur á þessum árum. Helst bárum við okkur eftir góðum lagerbjór og léttum rauðvínum. Það var um það bil að breytast. Minnist ég vel augnabliks þegar við vorum komnir með bjór og nokkrar vín- flöskur í innkaupakerruna. Þá er PB litið á vínflöskur í glerskáp sem stóð í miðri búðinni. Hann horfir um stund á flöskurnar sem allar voru dýrar, mjög dýrar að mati manns með einfaldan vín- smekk, og segir svo: „Óli, hvað fær menn til að greiða svona pen- ing fyrir flösku af víni?“ Við horfðum um stund þöglir hvor á annan. Þarna vaknaði vínáhugi okkar vinanna. Flaskan var keypt og um kvöldið öðluðumst við skilning á því hvers vegna öll vín eru ekki ódýr. Ævintýri var hafið. Nokkrum mánuðum síðar stofnuðum við fyrsta sameigin- lega rekstur okkar, Vín- og mat- arklúbbinn, smökkunarklúbb þar sem smökkuð voru eðalvín og góður matur. Rákum við klúbb- inn í nokkur ár og smökkuðum þar mikið af athyglisverðum vín- um í góðra vina hópi. PB ritaði samhliða afar athyglisvert rit um eðalvín og smökkun. PB var um margt einstakur maður. Auk ljúfmennskunnar var tvennt áberandi þeim sem kynntust honum, það var hve hugmyndaauðugur og lausna- miðaður hann var í nálgun vandasamra verkefna. Á þetta tvennt reyndi mjög í fjölmörgu Pétur B. Pétursson ✝ Pétur Björn Pétursson fæddist 31. janúar 1946. Hann lést 7. mars 2021. Útför hans fór fram 19. mars 2021. sem við brölluðum í löngum vinskap. Ár- ið 1993 stofnuðum við Sumarskólann ehf. Uppbygging skólans var eftir frá- bærri hugmynd sem PB hafði fengið. Skólann rákum við saman í 14 ár. Þegar litið er um öxl leita á hugann minningar um margt skemmtilegt, ekki síst öll ferðalögin sem við fórum saman. Á sumrin voru það langar innan- landsferðir með fjölskyldunni, á veturna fórum við í borgaferðir þar sem borgirnar sjálfar voru ekki einasta skoðaðar heldur einnig og ekki síst veitingastaðir með einstakan mat og vín. Einn- ig var það lengi nánast regla hjá okkur að hittast um helgar, borða saman og spjalla. PB gekk í Frímúrararegluna árið 1996. Hann tók þátt í stofn- un frímúrarastúkunnar Njarðar árið 1999. Frímúrarastarfið átti hug hans síðustu ár. Starfaði hann þar mikið, m.a. sem yfir- maður stúkunnar. Sorg fjölskyldu og vina er mikil sem nú horfa á eftir ein- stökum dreng með eftirsjá. Gangi þér vel í síðustu ferðinni kæri vinur. Ólafur Haukur Johnson. Rauðvín, nautalundir, humar og annað góðgæti kemur upp í hugann þegar hugsað er til Pét- urs Björns. Auðvitað er þetta hé- gómi miðað við mannkosti þá sem Pétri Birni voru gefnir. Vel- vildin og glettnin voru hans að- alsmerki í bland við dugnað, gestrisni og hjálpsemi sem hann sýndi vinum sínum. Hann var mikil félagsvera og hafði yndi af því að vera veitandi. Við hjónin nutum gestrisni þeirra Kristínar oftar en tölu verður á komið. Eftir að við eignuðumst okkar annað heimili í Breiðdal hjálpuðu þau Pétur Björn og Kristín okk- ur iðulega, fyrst á sauðfjárbúi okkar bæði vor og haust og enn meira þegar við hófum rekstur á litlu hóteli. Þá var leitað til þeirra hjóna um allt sem sneri að veit- ingum. Pétur tók að sér mat- reiðslu á hótelinu í nokkrar vikur á ári í mörg ár. Gestir, sem flestir voru erlendir, báru mikið lof á matreiðslu hans. Þá þurfti hag- fræðingurinn Pétur Björn oft að veita upplýsingar um efnahags- ástand landsins og horfurnar fram undan. Fyrir störf þeirra hjóna verður ekki fullþakkað. Pétur Björn hafði mikla ánægju af því að ferðast á nýjar slóðir og kynnast menningunni þar, ekki síst matarmenningunni. Hann átti auðvelt með að eignast vini hvar sem hann fór og frædd- ist af þeim. Hann starfaði sem leiðsögumaður hér innanlands á síðari árum og naut þess að sýna erlendum ferðamönnum náttúru Íslands og kynna þeim menningu landsins ásamt sögu lands og þjóðar. Við fórum með þeim Kristínu og Pétri Birni í nokkrar ferðir út fyrir landsteinana og nutum mjög þeirrar samveru. Síðastlið- ið haust fórum við saman í hring- ferð um landið með viðkomu í Breiðdalnum. Var gaman að kynnast því hve hótel- og veit- ingaþjónustunni hefur fleygt fram hér á landi á síðustu árum með aukinni ferðamennsku og kröfum sem til hennar eru gerð- ar. Pétur Björn var hreykinn af þessum framförum enda málið honum skylt þar sem hann starf- aði í mörg ár við Hótel- og veit- ingaskólann við MK. Við kveðjum Pétur Björn með þakklæti í huga. Fjölskyldu Péturs Björns og ástvinum öllum sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Péturs Björns. Guðrún Sveinsdóttir, Jón B. Stefánsson. Látinn er gamall vinur okkar, Pétur Björn Pétursson. Þó að leiðir Péturs og okkar hafi ekki legið saman í allmörg ár, er vert að minnast góðs drengs, sem við störfuðum með og gerðum okkur oft glaðan dag saman. Á árunum 1980-2000 var fjöldi ungra kenn- ara starfandi í FB, sem bundust miklum vinaböndum. Einn af þeim sem var í forystu fyrir þess- um vinahóp var P.B.P. og var hann ódrepandi í að finna upp á einhverju sem héldi hópnum saman. Matarboð, vínsmökkun, veiðiferðir, innanhússfótbolti svo eitthvað sé nefnt sem hann stóð fyrir. Þess má geta að hann var frábær kokkur og kynnti okkur oft fyrir framandi réttum, sem hann útbjó handa okkur af mikilli snilld. Á þessum árum var stofn- að Hið íslenska tipparafélag í FB að hans undirlagi og er þetta fé- lag enn þá starfandi undir nafn- inu HÍT. Við unnum einu sinni þann stóra og sá Pétur um að skipuleggja ógleymanlega ferð fyrir okkur til Lundúna á fót- boltaleik. Þeir sem fóru í þessa ferð minnast hennar enn þá með bros á vör. Pétur var þægilegur í umgengni, vinamargur og frá- bær kennari. Pétri lá ekki hátt rómur, en það sem hann sagði náði eyrum nemenda og annarra. Þó að gamli vinhópurinn sé ekki lengur til staðar, leitar hug- urinn til baka þegar við fréttum um andlát Péturs Björns. Nú er Pétur genginn á vit forfeðra sinna, en við gömlu samstarfs- félagar hans úr FB minnumst góðs drengs. Við vottum fjölskyldu Péturs innilega samúð. Fyrir hönd gamalla samstarfs- manna úr FB. Stefán Benediktsson. Það dimmdi yfir þegar ljóst var í hvað stefndi með Pétur Björn. Eftir að hafa fengið ein- hverja slæmsku í lungu, sem virtist í sjálfu sér ekki hættuleg, leið ekki nema mánuður þar til hann var allur. Þetta gerðist allt svo hratt og óvænt. Erfiðar og sárar tilfinningar hellast yfir okkur eftir því sem við áttum okkur betur á þeirri staðreynd að Pétur Björn sé far- inn. Við áttum ógleymanlegar og ómetanlegar stundir með Pétri Birni og Kristínu í gegnum árin. Minningarnar ylja og gleðja og munu þær alltaf fylgja okkur. Þeirri tilhugsun fylgir mikil sorg og söknuður að samverustund- irnar með honum verði ekki fleiri. Á þeim rúmlega aldarfjórð- ungi sem leiðir okkar hafa legið saman styrktist vináttan með hverju árinu. Við höfum notið „ferðalagsins“ með Pétri Birni og Kristínu í eiginlegum og óeig- inlegum skilningi. Ófáar eru end- urminningarnar: Ferðalögin þar sem Pétur Björn lék stórt hlut- verk, enda var hann oftar en ekki helsti hugmyndasmiður, skipu- leggjari og höfuðpaur í því sem tekist var á hendur. Heimsókn- irnar á Smáraflötina þar sem nostrað var við bæði gesti og veitingar af sérstakri alúð, og ánægjan yfir vel heppnaðri kvöldstund fór ekki fram hjá neinum. Þau Kristín voru alger- lega samtaka í þessu sem öðru. Allt var notalegt og áreynslu- laust. Pétur Björn hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekkert á þeim. Hann gat verið hvass og afdráttarlaus þeg- ar honum mislíkaði eitthvað. En hann var sannarlega vinur vina sinna og naut þess með hverri taug að gleðja þá sem honum þótti vænt um. Þá var ekkert til sparað; rausn og höfðingsskapur á öllum sviðum, eins og honum var eiginlegt. Hann var hlýr og traustur vinur og samferðamað- ur. Þakklæti fyrir að hafa fengið að fylgjast að í þennan tíma er okkur efst í huga þegar við minn- umst hans. Hafðu þökk fyrir öll þín spor. Það besta, sem fellur öðrum í arf, er endurminning um göfugt starf. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Það tók þau Kristínu og Pétur Björn dálítinn tíma að finnast á lífsleiðinni, en þegar þar að kom var strax ljóst, að þau voru ætluð hvort öðru. Þau bættu hvort annað upp, mynduðu sterka einingu og voru sannarlegir sálufélagar. Nú er þessi sterka eining brotin upp; nýr veruleiki blasir við og nýjar brautir þarf að feta. Elsku Kristín, megi ljósið lýsa leiðina þína og allar góðar vættir styðja þig og styrkja. Við vottum aðstandendum Péturs Björns okkar dýpstu samúð. Björg og Bjarni Snæbjörn. Hann er skrítinn þessi tími, stundum er rétt eins og hann standi í stað en stundum flýgur hann áfram og maður heldur ekki í við hann. Það er svo ótrúlega stutt síðan Þórður var fastur lið- ur í okkar hversdagslífi og nú er hann horfinn á braut. Hann kom inn í líf okkar þegar Magnús fór að vinna í byggingarvinnu hjá Ás- Þórður Magnússon ✝ Þórður Magn- ússon fæddist 17. apríl 1933. Hann lést 9. mars 2021. Útförin fór fram 18. mars 2021. hamri rétt rúmlega tvítugur og þó að aldursmunurinn væri eilítill, upplifð- um við hann aldrei í okkar samskiptum. Þegar Magnús var kominn í eigin rekstur voru þeir ófáir tímarnir sem þeir eyddu saman við að rífa í sundur nú eða setja saman það sem bilað var, bera saman bækur og leita eftir aðstoð hvor hjá öðrum ef þurfti. Nokkrir voru þeir kaffiboll- arnir sem drukknir voru við eld- húsborðið heima að ræða hinar ýmsu framkvæmdir sem í gangi voru og hvort rétt væri nú staðið að málum. Þórður var af gamla skólanum, sjálfum sér nógur, gerði við það sem bilaði, gafst ekki upp þótt það gengi ekki í fyrstu tilraun heldur hélt áfram þar til það virk- aði. Allt nýtt og engu hent sem gat verið notagildi í því maður vissi aldrei nema það kæmi að gagni síðar. Við gætum margt lært af þessari kynslóð sem er nú að kveðja okkur hvert af öðru. Þórður minn, við þökkum þér fyrir þær stundir sem við áttum saman þær eru okkur mikils virði og hlýja okkur nú þegar þú hefur hvatt. Gangi þér vel á nýjum stað, þú heldur áfram að fylgjast með þínu fólki og hver veit, kannski þarf að dytta að einhverju þar líka og þá liggur þú ekki á liði þínu. Hrönn, systrunum og þeirra fjölskyldum sendum við samúðarkveðjur og hlýhug. Magnús og Sigurlína. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu VALGERÐAR GÍSLADÓTTUR, Sólmundarhöfða 7, Akranesi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sjúkrahúss HVE á Akranesi og starfsfólk heimahjúkrunar fyrir hlýhug og góða umönnun. Þorvaldur Valgarðsson Anna Ósk Lúðvíksdóttir Reynir Kristjánsson Hjörtur Lúðvíksson Kristín Sigurey Sigurðardóttir Bjarki Lúðvíksson Rannveig Björk Guðjónsdóttir Rósa Björk Lúðvíksdóttir Hrafn Einarsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐFINNU SVEINSDÓTTUR, Eyrarbakka. Þakkir til starfsfólks Sólvalla fyrir hlýju við umönnun og Karlakórs Selfoss og stjórnanda fyrir frábæran tónlistarflutning. Trausti Sigurðsson Sigríður Sæmundsdóttir Viðar Sigurðsson Guðbjörg Bjarnadóttir Soffía Jóhannsdóttir Dísa Sigurðardóttir Eygló Alda Sigurðardóttir Sigvard Sigurðsson Hammer og fjölskyldur Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, FANNEY ÓFEIGSDÓTTIR, áður til heimilis á Nesvegi 68, lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Seltjarnarnesi þriðjudaginn 16. mars. Útförin fer fram fimmtudaginn 25. mars klukkan 13 í Seltjarnarneskirkju. Vegna aðstæðna eru jarðarfarargestir beðnir að vera með nafn, kennitölu og símanúmer á miða. Fjöldatakmarkanir miðast við 200 manns. Fyrir hönd aðstandenda, Ófeigur Geirmundsson Anna M. Ögmundsdóttir Baldur Geirmundsson Anne Biehl Hansen Birna Geirmundsdóttir Ólafur Þór Bjarnason Sigurður Geirmundarson Sverrir Geirmundsson Arndís Jósefsdóttir Geirmundur Geirmundsson Jóna Stefánsdóttir Haukur Geirmundsson Guðrún B. Vilhjálmsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, Álftamýri 26, lést mánudaginn 15. mars á Landspítala Fossvogi. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 24. mars klukkan 15. Í ljósi aðstæðna eru gestir beðnir um að hafa með sér á blaði nafn, kennitölu og símanúmer. Aðalheiður Benediktsdóttir Hörður Árnason Jón Ágúst Benediktsson Jónína Sigurðardóttir Guðrún Þóra Benediktsd. Hjörtur Erlendsson Þórður Benediktsson Kristín Unnur Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.