Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Elsku hjartans Helga amma mín. Þú þreyttist ekki á því að segja mér að ég væri eitt af barnabörnunum þínum og ég ætti að að kalla þig Helgu ömmu. Ég á ótal fallegar og góðar minningar frá Seyðisfirði þar sem ég bjó fyrstu ár ævi minnar um- vafin kærleiksrjóðri, einnig síðar meir sem fullorðin manneskja. Ég átti mömmu, Palla pabba, Helgu ömmu, Jón afa, Ríkeyju ömmu og að sjálfsögðu allar hinar elskurnar. Fallega yndislega Helga amma, þú varst algjörlega einstök kona. Samkvæm sjálfri þér með stórt hjarta á réttum stað. Áttir svo mikla ást að gefa og æðruleysi þegar þú þurftir á því að halda. Mér fannst þú alltaf eins og klettur sem stóðst með sjálfri þér og þínu fólki, sterk og glöð. Seyðfirðingar báru virðingu fyrir þér og ég veit að margir eiga eftir að sakna þess að sjá þig á rösklegri göngu í firðinum. Kast- andi kveðju á alla sem á vegi þín- um urðu, án þess þó að missa nið- ur tempóið. Þú varst alltaf svo Helga Þorgeirsdóttir ✝ Helga Þor- geirsdóttir fæddist 19. apríl 1935. Hún lést 8. mars 2021. Útförin fór fram 19. mars 2021. dragfín og hafðir svo gaman af því að dubba þig upp, sama hvernig viðraði alltaf eins og drottning. Fyrsta minning mín af okkur tveim- ur er frekar óljós, en er þó þarna samt. Fullt af augum að horfa á mig yfir af- greiðsluborð gamla Kaupfélagsins, því samkvæmt Helgu ömmu átti litla stúlkan að fá gull í eyrun. Ég man að áður en skotið var spurði, að mig minnir Guðrún Andersen, hvort ég væri hrædd? Ég svaraði „Nei, þú varst þarna að passa upp á mig.“ Eins og þú gerðir alltaf við allt þitt fólk. Þetta var svo mikið í þínum anda, vissi svo síðar meir að þú hefðir tekið þessa ákvörðun upp á þitt eigið einsdæmi án þess að spyrja kóng né prest. Þér hefur væntanlega fundist að litli hár- leysinginn þyrfti að fá gullbjöllur í eyrun. Þetta var upphafið að dá- læti mínu á gulli og glysi. Þú varst gull eins og það sem skotið var í eyrun á mér þennan dag. Hreinskilni þín og sannfæring um hvað væri rangt og rétt gerði það að verkum að það var hægt að tala við þig um allt. Þú varst líka svo blátt áfram og mikil tilfinn- ingavera. Mér fannst þú og afi lifandi dæmi um að til væri sönn ást. Virðing og vinátta einkenndi ykk- ur samband og þið voruð alltaf svo samstíga. Ég lít til baka og ylja mér á öll- um fallegu minningunum og síð- ast en ekki síst stóru gjöfinni að fá að eiga hann Palla pabba. Margar myndir læðast upp í hugann: Að horfa á Dallas á Túngötunni í sjónvarpsstofunni undir stigan- um var sérstök stemmning. Að rúnta um á rauða Benzan- um, flottustu drossíu landsins. Ótalmörg kvöldkaffiboðin þar sem spjallað var um allt milli him- ins og jarðar, án þess að spara sykur eða rjóma. Koma til ykkar afa í fallega gróðurhúsið sem ilmaði af rósum og minnti alltaf á framandi slóðir. Nú sit ég hér með einkennilegt tómarúm í hjartanu sem erfitt er að fylla. Vitandi það að með þess- ari stuttu kveðju er kona horfin sem engin kemur í staðinn fyrir. Mikið var yndislegt að þú náðir þó að koma til okkar og upplifa Fjelde, það var ómetanleg heim- sókn. Takk mín kæra fyrir að hafa reynst mér og mínum drengjum svona góð alla tíð. Bestu kveðjur til sumarlandsins þar til næst. Þín Ríkey. Ríkey Kristjánsdóttir Það var sjónarsviptir að Helgu á götum Seyðisfjarðar þegar hún flutti suður um mitt síðasta sumar og veit ég að margir söknuðu hennar. Áratugum saman mátti sjá hana á göngu á götum bæj- arins, prúðbúna, glæsilega og létt- stíga eins og unga stúlku. Áður fyrr var hún jafnan í fylgd með Jóni manni sínum, en eftir fráfall hans oft með vinkonum. Þær kunnu að njóta stundarinnar, fóru reglulega í Skaftfell eða á Ölduna í spjall og hvítvínsglas. Þá var spjallað við gesti og gangandi af gleði og jákvæðni. Helga var einhvern veginn okk- ar allra enda svo elskuleg og opin og tók öllum vel. Hún naut virð- ingar og elsku bæjarbúa og frá henni stafaði vinsemd og elskuleg- heit í garð okkar hinna. En lífið var ekki alltaf dans á rósum; Helga var kornung orðin sex barna móðir, sjómannskona með þá miklu ábyrgð sem því fylgir að vera ein um að gæta ungra barna og annast heimili. Allt gekk það samt vel og öll urðu börnin henni til gleði og sóma. En tvo syni sína missti hún á besta aldri úr hjartveiki. Við hjónin höfum ferðast tölu- vert í hópi með Helgu, átt við hana margt spjallið og með henni margar samverustundir. Eitt sinn lá leiðin til Flórída þar sem hún og Tóta vinkona hennar, elstar í hópnum, voru hrókar alls fagnað- ar og smituðu frá sér kátínu og gleði. Mikið var gaman að vera í þeirra félagsskap. Helga var í hamingjusömu hjónabandi og ég held að hún hafi saknað Jóns síns alla daga, því hann bar oft á góma í samræðum við hana. Þess vegna var auðvelt að samgleðjast henni þegar hún tók þá stóru ákvörðun að flytja suður til að vera nálægt börnum sínum. En á Seyðisfirði hafði hún alið allan sinn aldur. Við Rúnar sendum öllum ást- vinum Helgu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóhanna Gísladóttir. Elsku Adda amma mín kvaddi þetta líf miðviku- daginn 3. mars, orð- in næstum 92 ára. Mig langar að kveðja hana með nokkrum orðum. Ég er mjög þakklát fyrir allar góðu stundirn- ar sem ég átti hjá henni og Jóa afa í Sævó, amma og afi pössuðu mig oft og stundum vorum við líka saman uppi í sumarbústað. Eftir að Jói afi dó og amma flutti á Brúnaveginn þá áttum við amma áfram mjög margar góðar stundir saman. Amma var mjög skipulögð og það var alveg öruggt að hún átti alltaf til djöfla- Ástbjörg Stefanía Gunnarsdóttir ✝ Ástbjörg Stef- anía Gunn- arsdóttir fæddist 22. júní 1929. Hún lést 3. mars 2021. Útförin fór fram 15. mars 2021. tertu og sprautur- jóma með kaffinu handa okkur. Við spiluðum oft lúdó eða fórum í keiluleik í spjaldtölvunni, og spjölluðum líka mik- ið um allt mögulegt. Ég tók upp margt af því sem hún sagði mér, og get núna hlustað á það aftur og aftur. Amma söng líka stundum fyrir mig uppáhaldslögin sín, bæði „Blue- berry Hill“ og „Í apríl fer að vora“. Síðasta árið sem hún lifði var hún mikið á spítala, og vegna þess að hún fékk Covid-19 þá var hún talsverðan tíma í einangrun. Við gátum því ekki hist eins mik- ið og áður, en ég heyrði í henni á hverjum degi og alltaf buðum við hvor annarri góða nótt á kvöldin og hún sagði þá alltaf „góða nótt og Guð geymi þig, besta mín“. Ég veit að amma var alveg tilbúin að fara, og hún er núna á góðum stað hjá afa. Takk fyrir allt elsku besta amma mín, þín verður sárt saknað og ég elska þig mest. Kveðja, besta þín Eyrún. Kær vinkona og samstarfs- maður er fallin frá. Ég kynntist Ástbjörgu fyrst árið 1950 þegar ég var sendur í Íþróttaskóla Jóns Þorsteinsson- ar við Lindargötu þar sem hann rak sjúkraleikfimiskóla. Þar var Ástbjörg kennari og tók á móti unga piltinum sem var slæmur í baki. þarf ekki að orðlengja það, hún snarlagaði það og síðan höf- um við verið vinir. Næst lágu leiðir okkar saman hjá Fimleikasambandi Íslands árið 1970 er við vorum bæði kjör- in í stjórn sambandsins, ég sem formaður og hún varaformaður. Ástbjörg tók síðan við for- mennsku árið 1977. Stjórnin hafði það verkefni m.a. að byggja upp kunnáttu og getu í áhalda- fimleikum, standa fyrir keppnum og sýningum. Ástbjörg var for- maður námskeiðanefndar öll þessi ár og leysti hún það starf af frábærum dugnaði. Fimleikasambandið var aðili að norræna fimleikasambandinu. Árið 1972 á aðalfundi þess var ákveðið að halda norrænt fim- leikamót á Íslandi fyrir alla ald- urshópa árið eftir. Ástbjörg, ásamt fjölmörgu samstarfsfólki, átti stóran þátt í að þetta verk- efni tókst frábærlega. Átti hún m.a. sýningarflokk á mótinu. Ástbjörg var frumkvöðull á sviði kvennaleikfimi á Íslandi, hún stofnaði og kenndi hópum í 56 ár. Hún var frábær og vinsæll kennari að mati þeirra fjölmörgu sem nutu kennslu hennar, þar á meðal konu minnar sem sótti tíma í mörg ár. Á þessum árum tengdumst við Sirrý þeim Ástbjörgu og Jóhanni, manni hennar, vináttuböndum. Áttum við margar góðar stundir með þeim ásamt öðrum góðum vinum. Við Sirrý minnumst yndislegr- ar og glæsilegrar vinkonu með þakklæti og virðingu og sendum fjölskyldu hennar innilegar sam- úðarkveðjur. Ásgeir Guðmundsson. Nýlega var bor- inn til grafar Stefán Þórarinsson, fjöl- skylduvinur frá Húsavík, og viljum við börn Sigrúnar Stefánsdóttur og Hannesar Þórðar Hafstein minnast hans. Fjölskylduvinur er rétta orðið. „Stebbi og Heiða“ voru okkur börnunum í Skeiðar- vogi þekkt og mikilvæg stærð. Þeir Stebbi og faðir okkar voru æskuvinir „heiman frá Húsavík“ Stefán Erlendur Þórarinsson ✝ Stefán Erlend- ur Þórarinsson fæddist 1. ágúst 1926. Hann lést 4. mars 2021. Útförin fór fram 15. mars 2021. og rofnuðu aldrei þau bönd. Ólust þeir upp saman, voru á síld menntaskólaár- in og útskrifuðust frá MA. Síðar varð það eins kona píla- grímsferð úr Skeið- arvoginum að fara heim til Húsavíkur og í Höfðabrekkuna þar sem beið mynd- arlegt heimili með hressum barnaskara sem okkur þótti mikið til um. Heiða, hin mikla húsmóðir, og Stebbi, hinn mikli húmoristi. Kankvíst og ísmeygi- legt bros hans þegar sagðar voru sögur af samferðamönnum á Húsavík sem staðnir höfðu verið að kostulegum uppákomum og til- svörum. Skrítið hve lítill bær elur marga kynjakvisti. Okkur var snemma innrætt að Húsavík væri miðpunktur alheimsins, einmitt þar sem kirkjan stendur skammt frá sýslumannshúsinu, horfir yfir höfnina á Kinnarfjöllin, Skjálfanda – og Þingeyjarsýslur fegurstar á jörð. Sá sannleikur lét að vísu að- eins á sjá þegar Stebbi og Heiða fluttu til Akureyrar til að hægja á í ellinni, en lengi býr að fyrstu gerð. Síðar á lífsleiðinni ferðuðust for- eldrar okkar með þeim víða um lönd. Stefáni Jóni er minnisstætt þegar þau komu til London og hann kenndi þeim að snæða Kína- mat. Þingeyingunum tveimur þótti það góð stund, enda vel krydduð frásögnum af heimamönnum sem komist höfðu í kynni við heims- borgir og fann þar Kínakryddið ofjarl sinn. Þeir bræður, Ingvar bóksali og Stefán, urðu þjóðkunnir með Tó- nakvartettinum frá Húsavík sem enn má hlýða á í vönduðum út- varpsþáttum. Fyrir okkur sem kynntumst fjölskyldunni í Höfða- brekku stendur þó næst hjarta sú glaðlega og næma hlýja sem þar einkenndi fas og viðmót. Þegar Stebbi Þór kveður minnumst við börnin úr Skeiðarvogi langra kvöldstunda þegar pabbi sat við svarta fastlínusímann, átti hljóð- skraf norður, í hálfum hljóðum eða með hækkandi rómi sem átti til að enda í hlátursrokum. Við vissum öll hver var á línunni. Stefán Jón, Þórunn Júníana, Sigrún Soffía, Hildur Björg og Hannes Júlíus. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu okkar, BINNU HLÖÐVERSDÓTTUR. Torfi Haraldsson Ívar Torfason Sirrý Björt Lúðvíksdóttir Ísalind, Ilse, Oktavíus, Ísis Binna, Lúðvík Hafsteinn og Tiberíus Torfi Ester Torfadóttir Jónas Logi Ómarsson Magdalena, Maríanna og Viktoría Brynja Laxfoss Burns Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru UNNAR ÁGÚSTSDÓTTUR, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Katrín Pálsdóttir Gunnar Þorvaldsson Lára Pálsdóttir Sveinn Kjartansson Ingibjörg Pálsdóttir Gunnar Hermannsson Guðrún Pálsdóttir Þórir Baldursson Unnur Pálsdóttir Sigfús Bjarni Sigfússon og afkomendur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ERNU HÁKONARDÓTTUR, Birkiteigi 35, Keflavík. Hákon Örn Matthíasson Hildur Guðrún Hákonardóttir Ingibjörg Samúelsdóttir Guðmundur Óli Jónsson Karl Samúelsson Svanfríður Guðrún Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR ÞORVALDSDÓTTUR, Víðilundi 21, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð fyrir kærleiksríka umönnun. Hilmar Henry Gíslason Þorvaldur Kr. Hilmarsson Alda Ómarsdóttir Ólafur Gísli Hilmarsson Eva Sif Heimisdóttir Kristín Hilmarsdóttir Jóhannes Gunnar Bjarnason barnabörn og barnabarnabarn Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR ÖLDU PÉTURSDÓTTUR, áður Teistunesi 1, Garðabæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Báruhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka alúð og umhyggju í hennar garð. Ómar Kristjánsson Hjördís Ingvadóttir Halldór Benedikt Kristjánsson, Auðbjörg Erlingsdóttir Kjartan Bragi Kristjánsson Hulda Fanný Hafsteinsdóttir Kristján Vignir Kristjánsson Christel Johansen barnabörn og langömmubörn FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 13-16 virka daga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.