Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 FASTEIGNIR Fasteignablað Morgunblaðsins Efnistökin er t.d þessi: • Viðtal við konu sem breytti íbúð sinni með málningu. • Góð ráð fyrir kaup- endur og seljendur. • Hvernig undirbýrðu íbúð fyrir sölu? • Viðtöl við fasteigna- sala • Og margt fleira Pöntun auglýsinga til 23. mars hjá: Sigrún Sigurðardóttir 569 1378 sigruns@mbl.is Bylgja Sigþórsdóttir 569 1148 bylgja@mbl.is KEMUR ÚT 27. mars Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það virðist eitthvað standa í vegi fyrir þér í dag sama hvað þú leggur hart að þér. Njóttu þess að vera með vinum þínum og fjölskyldu. Taktu vel á móti góðum gest- um. 20. apríl - 20. maí + Naut Mundu að þú gegnir mikilvægu hlut- verki og átt að láta finna fyrir þér í veröld- inni. Leyfðu þeim sem eru í kringum þig að greiða sjálfir úr flækjum í lífi sínu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Spennandi dagur er í vændum. Gefðu þér tíma til að sinna sjálfum þér þótt aðrir kalli á athygli þína. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það er dásamlegt að finnast maður tilheyra. Mundu að hvatning fær mun meiru áorkað en gagnrýni. Samskipti við systkini skipta miklu máli á næstunni. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þegar andlegur þroski er annars veg- ar, er þjónusta ofarlega í metorðastiganum. Allt virðist þrungið merkingu og mikilvægi. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það þýðir ekkert að halda áfram að hugsa eins og hugmyndasnauður sápu- óperuhöfundur. Hin fullkomna valdbeiting er nefnilega sú að þurfa ekki að beita vald- inu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Láttu það ekki slá þig út af laginu, þótt verkefni dagsins séu einhæf og tilþrifalítil. Sinntu sjálfum þér. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Orka umbreytinga er í kring- um þig. Seinna geturðu dæmt um hvort kynni dagsins séu æði eða alveg hryllingur. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Dagurinn hentar vel til að íhuga gamlar hugmyndir um atvinnumöguleika. Námskeið og bækur eru greið leið að öðr- um heimum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Allt hefur sinn stað og stund og nú þarftu ekki annað en grípa tækifærið þegar það gefst. Er það ekki umhugsunar- efni? Á meðan þú hugsar um það finnurðu lausn á máli sem tengist peningum. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þér verður nokkuð ágengt með því að ræða sameiginlega ábyrgð eða eigur. Velgengni annarra gæti komið sér vel fyrir þig um þessar mundir. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur áhuga á stjórnmálum, er- lendum málefnum og trúmálum í dag. Fyrstu kynni geta haft afgerandi áhrif. og Hildigunnur ferðuðust mikið til útlanda og var París í sérstöku uppá- haldi hjá þeim. Hildigunnur var stundum farar- stjóri í dagsferðum á Íslandi og einu sinni voru hjónin fararstjórar ís- lensks hóps sem ferðaðist um Þýska- land og Holland. Stundum höfðu ferðaskrifstofur einnig samband við hana og spurðu hvort hún gæti boðið ferðamönnum upp á gistingu og morgunmat. Hún kynntist einnig mörgum erlendum fræðimönnum er hingað komu og margir þeirra urðu stórvinir þeirra Agnars. Hildigunnur hefur alla tíð verið mikill listunnandi. Hún las mikið og fylgdist grannt með alþjóðamálum, og þýddi stundum greinar um mál- Úlfi í ferð með þýska skemmti- ferðaskipinu Milwaukee. Leiðin lá lengst norður í haf og síðan niður með strönd Noregs og svo til Ham- borgar. Þaðan flaug hún til Kaup- mannahafnar en Gunnar bjó þá ásamt fjölskyldu í Fredsholm, rétt utan við borgina. Ferðin var ógleym- anleg og með henni var áhugi Hildi- gunnar á umheiminum vakinn fyrir alvöru. Ferðalög urðu þó að bíða á meðan seinna stríð stóð yfir en sumarið 1948 hélt hún til Englands þar sem eig- inmaður hennar, Agnar Þórðarson, hafði verið við nám í Oxford-háskóla. Næsta árið dvöldu þau að mestu í París og Suður-Frakklandi, en einnig á Ítalíu, Írlandi og Englandi. Agnar H ildigunnur Hjálmars- dóttir er fædd 20. mars 1920 í Stykkis- hólmi þar sem faðir hennar, Hjálmar Sig- urðsson, var kaupmaður. Hann and- aðist eftir aðgerð á sjúkrahúsi í Reykjavík í desember 1919 og fékk því aldrei að sjá dóttur sína sem ólst upp hjá móður sinni, Soffíu Emilíu Gunnarsdóttur. Soffía hafði nokkurra ára gömul verið send til Stykkishólms í fóstur hjá föðurbróður sínum, séra Sigurði Gunnarssyni, og eiginkonu hans, Soffíu Emilíu Einarsdóttur, hattara í Reykjavík. Hjálmar hafði flust til Stykkishólms aldamótaárið 1900 þar sem hann vann fyrst við Tangs versl- un en stofnaði síðan eigið fyrirtæki og rak einnig útgerð til dánardags. Þau Soffía bjuggu í Norska húsinu og þar ólst Hildigunnur upp fyrstu ár ævinnar. Úr Norska húsinu í Fjalaköttinn Árið 1928 fluttust mæðgurnar suð- ur til Reykjavíkur og fengu fyrst íbúð í Fjalakettinum við Aðalstræti. Hildi- gunnur er mikil miðbæjarmanneskja, hún bjó í miðborginni fram á miðjan áttunda áratuginn, gekk þar í skóla, vinkonur hennar bjuggu skammt undan og vinnustaður hennar var í göngufæri frá Kvosinni. Hún stundaði nám í Miðbæjarskól- anum, Gagnfræðaskóla Reykvíkinga og lauk stúdentsprófi frá MR árið 1939. Hana langaði að halda áfram námi og jafnvel nema við erlenda há- skóla en aðstæður leyfðu það ekki. Fimmta bekk í MR las hún utanskóla en vann þá og fyrst eftir stúdentspróf á Landsímanum við Austurvöll. Síð- an vann hún um hríð á trygging- arskrifstofu Carls D. Tulinius en fékk síðan vinnu hjá Skrifstofu Ríkisspít- ala og starfaði þar allt þangað til hún fór á eftirlaun, lengst af sem gjald- keri. Þá lét hún gamlan draum ræt- ast, innritaði sig í Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í frönsku og dönsku ár- ið 1987. Dag einn sumarið 1936 bankaði móðurbróður hennar, Gunnar Gunn- arsson rithöfundur, óvænt upp á og bauð henni með sér og syni hennar efni liðandi stundar er birtust oftast í Lesbók Morgunblaðsins. Árið 2007 gaf hún út bókina Danska frúin á Kleppi sem fjallar um tengdaforeldra hennar, Ellen Kaaber og Þórð Sveinsson. Þakklát fyrir gott líf „Mér er efst í huga þakklæti fyrir hvað ég hef átt gott líf,“ segir Hildi- gunnur. „Ég hef kynnst góðu og áhugaverðu fólk frá ýmsum löndum. Ég hef lesið mikið og séð mörg af fallegustu listaverkum heims. Ég var einmitt að hugsa um eitt af þessum verkum í gær, en hafði gleymt nafn- inu. Það byrjar á Le Dejeuner og er eftir Manet,“ og svo byrjar Hildi- gunnur að lýsa málverkinu en um er að ræða hið fræga Le Déjeuner sur ĺherbe eftir Édouard Manet. „Ég hef líka haft gaman af íslenskum mál- urum eins og Nínu Tryggvadóttur, Lovísu Matthíasdóttur og vinum okk- ar hjóna, Gunnlaugi Scheving, Kjart- ani Guðjónssyni og Valtý Péturs- syni.“ Hildigunnur minnist líka vin- kvenna sinna, sem héldu saumaklúbb Hildigunnur Hjálmarsdóttir, fyrrverandi gjaldkeri – 101 árs Með sonum sínum Uggi, Hildigunnur, Úlfar og Sveinn á 95 ára afmælinu. Mikil miðbæjarmanneskja Mæðgurnar Soffía og Hildigunnur við Norska húsið. Í París Agnar og Hildigunnur. Til hamingju með daginn Selfoss Thelma Björk Andradóttir fæddist 1. júní 2020 kl. 18.39. Hún vó 2.885 g og var 48 cm löng. For- eldrar hennar eru Andri Viðar Oddsson og Tinna Dögg Guð- laugsdóttir. Nýr borgari 30 ára Andri Viðar verður þrítugur á morgun. Hann er Reykvíkingur en býr á Selfossi. Hann er með sveinspróf í rafvirkjun frá FB og stundar nám í rafiðnfræði við HR. Andri starfar sem rafvirki hjá Gjörva. Maki: Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, f. 1983, lögfræðingur en er í fæðingar- orlofi. Dætur: Thelma Björk, f. 2020, og Stella, f. 2021, d. 2021. Stjúpdætur eru Sara Lind, f. 2005, og Bryndís Ýr, f. 2007. Foreldrar: Oddur Hannes Magnússon, f. 1962, bifvélavirki og Guðrún Þuríður Hallgrímsdóttir, f. 1969, aðstoðarmaður tannlæknis. Þau eru búsett í Reykjavík. Andri Viðar Oddsson 70 ára Elínborg er Hafnfirðingur og hefur alltaf búið í Hafn- arfirði. Hún er sjúkra- liði og vann í 39 ár hjá Hrafnistu í Hafnarfirði en er nýhætt störfum. Elínborg er í Odd- fellow, Golfklúbbnum Keili og göngu- hópi. Maki: Oddur Helgi Oddsson, f. 1950, húsasmíðameistari. Börn: Davíð Freyr, f. 1974, Friðbjörn, f. 1978, og Oddrún Helga, f. 1981. Barna- börnin eru átta. Foreldrar: Jóhann Lárusson, f. 1920, d. 2005, múrarameistari, og Steinþóra Guðmundsdóttir, f. 1924, d. 2016, hús- freyja. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Elínborg Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.