Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021
Lengjubikar karla
8-liða úrslit:
Víkingur R. – Keflavík ............................. 3:3
_ Keflavík áfram eftir vítakeppni, 7:6.
A-deild, riðill 4:
Þróttur R. – ÍBV....................................... 0:1
Lengjubikar kvenna
A-deild, riðill 2:
Stjarnan – FH........................................... 3:1
England
Fulham – Leeds........................................ 1:2
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Hoffenheim – Bayern München............. 1:2
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ónot-
aður varamaður hjá Bayern München.
Rúmenía
FCSB – CFR Cluj ..................................... 3:0
- Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á sem
varamaður hjá CFR á 53. mínútu.
Holland
De Graafschap – Excelsior..................... 1:1
- Elías Már Ómarsson kom inn á sem
varamaður hjá Excelsior á 74. mínútu.
Jong PSV – Jong AZ ............................... 3:0
- Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður hjá Jong PSV á 58. mínútu
og skoraði eitt mark.
Danmörk
Esbjerg – Hobro....................................... 1:0
- Andri Rúnar Bjarnason lék fyrstu 60.
mínúturnar með Esbjerg en Kjartan
Henry Finnbogason er meiddur. Ólafur H.
Kristjánsson þjálfar liðið.
Silkeborg – Fremad Amager ................. 2:0
- Patrik Gunnarsson varði mark Silkeborg
og Stefán Teitur Þórðarson lék allan leik-
inn með liðinu.
Liepaja – Riga .......................................... 0:2
- Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn
með Riga.
50$99(/:+0$
Grill 66 deild karla
Selfoss U – Víkingur ............................ 24:31
HK – Vængir Júpíters ......................... 36:25
Haukar U – Kría................................... 28:26
Svíþjóð
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Sävehof – Guif...................................... 32:21
- Daníel Freyr Ágústsson varði 8 skot í
marki Guif.
Undankeppni HM kvenna
2. riðill í Skopje:
Norður-Makedónía – Ísland................ 24:17
Litháen – Grikkland............................. 27:26
Frakkland
B-deild:
Nancy – Sarrebourg ........................... 35:23
- Elvar Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir
Nancy.
Undankeppni ÓL kvenna
Noregur – Svartfjallaland.................. 23:28
- Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Kasakstan – Ungverjaland.................. 19:46
Rússland – Serbía................................. 29:24
Spánn – Svíþjóð .................................... 28:28
.$0-!)49,
Dominos-deild karla
Þór Ak. – ÍR ........................................ 107:84
Keflavík – Njarðvík.............................. 89:57
Staðan:
Keflavík 15 13 2 1378:1176 26
Þór Þ. 15 10 5 1472:1347 20
KR 15 10 5 1366:1373 20
Stjarnan 15 10 5 1403:1327 20
Grindavík 15 8 7 1344:1370 16
Þór Ak. 15 7 8 1344:1383 14
Valur 15 7 8 1255:1272 14
ÍR 15 7 8 1324:1334 14
Tindastóll 15 6 9 1339:1383 12
Njarðvík 15 5 10 1231:1292 10
Höttur 15 4 11 1316:1404 8
Haukar 15 3 12 1244:1355 6
1. deild karla
Vestri – Fjölnir ..................................... 81:77
Álftanes – Hrunamenn ...................... 117:64
Breiðablik – Hamar.............................. 98:95
Skallagrímur – Sindri .......................... 82:73
Staðan:
Breiðablik 11 8 3 1078:960 16
Hamar 11 8 3 1083:986 16
Sindri 12 8 4 1078:1054 16
Álftanes 12 7 5 1106:1034 14
Skallagrímur 12 7 5 1015:983 14
Vestri 12 5 7 1018:1115 10
Fjölnir 11 3 8 959:1017 6
Hrunamenn 11 3 8 918:1055 6
Selfoss 12 3 9 924:975 6
Evrópudeildin
Khimki Moskva – Valencia................. 68:77
- Martin Hermannsson skoraði 5 stig fyrir
Valencia, tók tvö fráköst og gaf átta stoð-
sendingar á nítján mínútum.
57+36!)49,
velli, Gillette Stadium, og ruðnings-
liðið New England Patriots.
„Ég hef einu sinni komið til Bost-
on og þekki marga sem hafa búið
þar. Bæði foreldrar mínir og tengda-
foreldrar hafa oft komið þangað og
svo tekur bara fjóra og hálfan tíma
að fljúga til Boston frá Keflavík
þannig að ferðalagið er einfalt. Ætli
við reynum ekki að finna okkur
samastað einhvers staðar á milli
Foxborough og Boston til þess að
það verði bæði stutt að fara á æfing-
ar og í borgina,“ sagði Arnór sem er
alfarinn frá Malmö og hefur dvalið á
Íslandi undanfarna daga.
Sterkari en margir halda
Í MLS-deildinni, sem hefur nýtt
tímabil 17. apríl, hafa á undan hon-
um leikið þeir Guðlaugur Victor
Pálsson með New York Red Bulls og
Kristinn Steindórsson með Col-
umbus Crew, og síðan er Guð-
mundur Þórarinsson leikmaður með
New York City. Arnór segir deildina
sterkari en margir haldi.
„Ég hef aðeins fylgst með henni
að undanförnu og margir halda að
fótboltamenn fari bara þangað til að
ljúka sínum ferli. En það er alls ekki
þannig. Mjög margir koma þangað á
mínum aldri og ég fer til New Eng-
land til að ná árangri og vera partur
af liði sem ætlar að gera hlutina al-
mennilega og ná langt. Í þessari
deild er mikið af suðuramerískum
strákum sem lita deildina með sínum
fótbolta. Ég tel að deildin henti mér
og mínum leikstíl og er mjög spennt-
ur fyrir því að prófa þetta, ásamt því
að koma með mína reynslu og mína
sýn á fótboltann inn í þetta lið,“
sagði Arnór sem er 27 ára gamall og
hefur leikið 37 landsleiki, spilað bæði
á EM og HM, og verið atvinnumað-
ur í Svíþjóð, Grikklandi og Aust-
urríki frá 2014. Hann hefur orðið
tvisvar sænskur meistari, með Norr-
köping 2015 og með Malmö 2020.
Veist ekki hvar þú býrð næst
Hann kveður ekki Svíþjóð með
sérstakri eftirsjá. „Nei, ekki þannig.
Mér líður alltaf vel í Svíþjóð og hef
eignast vini á þremur árum í Malmö.
Svona er bara að vera fótboltamað-
ur, þú veist ekki hvar þú býrð á
næsta ári. Ég hefði verið til í að
vinna fleiri titla með Malmö, við
glutruðum niður titlinum 2019 og
töpuðum tveimur bikar-
úrslitaleikjum sem var smá svek-
kelsi en bættum fyrir það í fyrra.“
Arnór fer bjartsýnn og spenntur í
leikina þrjá gegn Þýskalandi, Arme-
níu og Liechtenstein.
„Þetta eru ólíkir mótherjar en
samt eru þetta bara þrír fótbolta-
leikir og við nálgumst þá alla á sama
hátt. Við ætlum okkur að eiga góða
leiki og ná í sem flest stig. Eftir
svekkelsið í Ungverjalandi í nóv-
ember held ég að allir séu vel pepp-
aðir fyrir því að fara alla leið á HM.
Við munum nýta alla þá reynslu sem
býr í hópnum og við vitum hvað
Fer til New
England til
að ná árangri
- Arnór Ingvi spenntur fyrir nýja liðinu
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Arnór Ingvi Traustason í leik gegn Dönum í haust en hann er á
förum í landsleikjatörnina áður en hann heldur til Bandaríkjanna.
BANDARÍKIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Arnór Ingvi Traustason verður
fjórði íslenski knattspyrnumaðurinn
til að spila í bandarísku MLS-
deildinni en hann skrifaði í vikunni
undir tveggja ára samning við New
England Revolution.
Arnór sagði við Morgunblaðið að
hann væri afar spenntur fyrir sínu
nýja félagi en hann fer vestur um
haf strax og landsliðstörninni lýkur.
„Ég kem úr mjög metnaðarfullu
umhverfi í Malmö þar sem fyrir er
lagt að vinna alla leiki, og er að fara í
lið sem ætlar sér að fara alla leið eft-
ir að hafa komist í undanúrslitin um
bandaríska meistaratitilinn á síðasta
ári,“ sagði Arnór sem fer á morgun
til Þýskalands vegna landsleikjanna.
Stutt frá Keflavík
Hann fer eftir það til Massachu-
setts á austurströnd Bandaríkjanna.
New England Revolution hefur að-
setur í Foxborough, skammt suð-
vestan við stórborgina Boston, og
leikur þar á sama 70 þúsund manna
Joey Gibbs fór á kostum fyrir
Keflavík þegar liðið heimsótti Vík-
ing úr Reykjavík í átta liða úrslitum
deildabikars karla í knattspyrnu,
Lengjubikarsins, á Víkingsvöll í
Fossvogi í gær.
Gibbs gerði sér lítið fyrir og
skoraði þrennu í leiknum en hann
jafnaði metin fyrir Keflavík þegar
tvær mínútur voru eftir af venju-
legum leiktíma. Leiknum lauk með
3:3-jafntefli og því var gripið til
vítaspyrnukeppni þar sem Keflavík
hafði betur í bráðabana.
Keflavík er fyrsta liðið til þess að
tryggja sér sæti í undanúrslitum
Lengjubikarsins en í dag mætast
Valur og KR á Hlíðarenda, Stjarn-
an og Fylkir í Garðabæ og Breiða-
blik og KA í Kópavoginum í hinum
viðureignum átta liða úrslitanna.
bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Þrenna Joey Gibbs sækir að Júlíusi Magnússyni á Víkingsvelli í gær.
Markaveisla í Fossvogi
Skautafélag Akureyrar, SA, er
deildarmeistari karla 2021 í íshokkí
en liðið vann 8:3-stórsigur gegn SR
í Skautahöllinni á Akureyri í gær,
Jóhann Leifsson skoraði tvívegis
fyrir SA í leiknum og þá skoruðu
þeir Unnar Rúnarsson, Baltasar
Hjálmarsson, Orri Blöndal, Halldór
Skúlason, Heiðar Jóhannsson og
Róbert Hafberg sitt markið hver
fyrir SA. Kári Guðlaugsson, Steinar
Veigarsson og Kári Arnarsson
skoruðu mörk SR en SA hefur unn-
ið átta af níu leikjum sínum í Hertz-
deildinni í vetur og er nú komið
með heimaleikjarétt í úrslitunum.
Akureyringar deildarmeistarar
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Meistarar Orri Blöndal, fyrirliði SA, hefur bikarinn á loft á Akureyri.
_ Bayern München gæti mætt Man-
chester City og Liverpool gæti mætt
Chelsea í undanúrslitum Meistara-
deildar karla í fótbolta, takist þessum
liðum að vinna leiki sína í átta liða úr-
slitunum. Dregið var til þeirra í gær og
þar mætast Bayern – París SG, Man-
chester City – Dortmund, Real Madrid
– Liverpool og Porto – Chelsea. Leikið
verður 6. og 7. apríl og aftur 13. og 14.
apríl í átta liða úrslitum en undan-
úrslitin fara fram frá 27. apríl til 5.
maí.
aðalmarkvarðar Örebro í úrvalsdeild-
inni þar sem aðalmarkvörður liðsins,
Moa Öhman, verður frá keppni allt
tímabilið.
_ Sjö leikmenn frá Evrópumeist-
urum Bayern München eru í þýska
landsliðinu í knattspyrnu sem mætir
því íslenska í Duisburg 25. mars en
Joachim Löw landsliðsþjálfari til-
kynnti 26 manna hóp í gær. Leik-
menn Bayern eru þeir Manuel Neuer,
Niklas Süle, Serge Gnabry, Leon Go-
retzka, Joshua Kimmich, Leroy Sané
og hinn 18 ára gamli nýliði Jamal Mu-
siala. Toni Kroos frá Real Madrid er
leikjahæstur með 101 landsleik. Hóp-
inn í heild sinni má sjá á mbl.is/
sport/fotbolti.
_ Í Evrópudeildinni er mögulegt að
ensku liðin Manchester United og Ars-
enal mætist í úrslitaleik í vor því þau
geta ekki lent saman fram að því. Í 8-
liða úrslit í drógust í gær saman Gra-
nada – Manchester United, Arsenal –
Slavia Prag, Ajax – Roma og Dinamo
Zagreb – Villarreal. Leikið er 8. og 15.
apríl í átta liða úrslitum og 29. apríl og
6. maí í undanúrslitum. Í undan-
úrslitum leikur Arsenal eða Slavia við
Dinamo eða Villarreal og sigurvegar-
inn hjá Manchester United og Granada
mætir Ajax eða Roma.
_ Áfrýjunardómstóll HSÍ hefur úr-
skurðað að leika þurfi að nýju leik
Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild
kvenna í handknattleik sem fram fór í
Eitt
ogannað
_ Yfirmaður knattspyrnumála hjá
Örebro í Svíþjóð segir að með því að
semja við Cecilíu Rán Rúnarsdóttur
sem er komin til félagsins frá Fylki
hafi Örebro krækt í einn af efnilegustu
markvörðum Evrópu. Cecilía, sem er
17 ára gömul, á að fara beint í stöðu