Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.03.2021, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® 94% 96% 94% 99% BESTA MYNDIN sýnd með íslensKu og ensKu talı Anna Þóra Karlsdóttir opnar sýn- inguna Dagsverkin í Mjólkurbúð- inni á Akureyri í dag kl. 14. Verkin vann Anna Þóra á liðnu ári í ein- angrun vegna heimsfaraldursins. „Verkin eru úr íslenskri ull sem Anna Þóra hefur kembt og skilið togið frá þelinu. Hún nýtir aðeins dúnmjúkt létt þelið sem hún litar í fjölbreytta tóna og leggur í þunnar slæður sem lagðar eru hver yfir aðra og þæfðar í ferninga. Þegar vel er að gáð má greina litina sem undir liggja í gegnum efstu slæð- urnar. Útkoman leiðir hugann að náttúrunni, t.d. himninum í öllum sínum margbreytileika,“ segir m.a. í kynningu á sýningunni. Hún stendur til 30. mars. Textíllistakona Anna Þóra Karlsdóttir. Dagsverkin opnuð í Mjólkurbúðinni Opið hús og lista- smiðja verður hjá Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ, í Gróskusalnum við Garðatorg 1 á morgun kl. 13-15. Öllum er velkom- ið að koma og fylgjast með lif- andi sköpun og taka þátt í listasmiðjunni. Gætt er að sóttvörnum og fjarlægðarmörkum þannig að gleðjast má hóflega sam- an. Félagsmenn í Grósku eru um 70 og nýjum félögum er tekið fagnandi. Fólk sem býr eða vinnur í Garðabæ og fæst við myndlist, hvort sem er í tvívíðu eða þrívíðu formi, er hvatt til að sækja um inngöngu í félagið með því að senda póst á groskamynd- list@gmail.com. Einnig er hægt að sækja um á facebook-síðu Grósku. Listasmiðja og op- ið hús hjá Grósku Verk eftir Þurí Ósk Axelsdóttur. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fyrsta plata Sunnu, Enclose,kom út í janúar 2018 ogslapp einhverra hluta vegna í gegnum net þeirra sem helst fylgj- ast með útgáfu hér á landi. Góðu heilli „uppgötvaðist“ platan. Næm og natin nútímatónlist, dansandi á mörgum kammerlistar og dægur- tónlistar. Síðklassík („post-class- ical“) þar sem fólk er lítt upptekið af mærum og mörkum en þess þá heldur að knýja fram hrífandi and- rúm – sama hvernig það er svo flokkað. Þegar ég ræddi við Sunnu fyrir u.þ.b. tveimur árum sagði hún mér að hún hefði verið að taka skref inn í heim laga- og tónsmíða, ferli sem hún lýsti sem nokkuð snúnu. „Já sú breyting og ákvörðun var að sjálf- sögðu erfið,“ sagði hún mér í grein sem ég vann upp úr spjallinu. „Að byrja að elta draum sem maður hef- ur alltaf verið hræddur við – sem- sagt hræddur við að mistakast eða vera ekki nóg – var mjög ógnvekj- andi en svo spennandi á sama tíma.“ Þá var hún þegar byrjuð að vinna að annarri plötu, þessari hér. Og það varð ljós Ljósberi Sunna Friðjóns hefur nú gefið út sína aðra plötu. Á henni vinnur hún úr sarpi að ein- hverju leyti á meðan aðrar smíðar eru nýrri. Fjöldi fólks kemur að spilamennsku en Sunna (píanó og söngur) vinnur náið með þeim Ingva Björgvinssyni (bassar) og Ísidór Jökli Bjarnasyni (slagverk) en saman mynda þau Hljómsveit Sunnu Friðjóns. Aðrir sem koma við sögu eru þær Yara Polana, Agnes Eyja Gunnarsdóttir, Katrín Arndísardóttir, Heiður Lára Bjarnadóttir og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir sem sjá um strengi, brass og fleira. Albert Finnbogason hljóðblandaði, Sigurdór Guðmunds- son hljómjafnaði og Úlfur Alexand- er Einarsson upptökustýrði. Enclose er hrífandi verk og sigldi í farvatni klassíkur að mestu leyti þó að krappar og vel til fundn- ar beygjur væru teknar. Let The Light In er um margt fjölskrúð- ugari en Sunna sagði í samtali við albumm.is að hana hafi langað í meiri hávaða, meiri kraft og meiri epík. „Minn bakgrunnur er mjög klassískur og eftir að ég gaf út Enclose fór mig virkilega að langa að dýfa tánum út í meira „plug-in“, meira rokk. Á Let the Light in má því heyra trommusett, rafbassa, rafmagnsgítar og syntha sem fylla upp í þetta nýja rými.“ Þetta heyrist t.a.m. afar vel í laginu „Inni í skugganum“ hvar lagt er í hart rokk, nánast þunga- rokk, í bland við klingjandi töfra- píanó. Minnir dálítið á Eivöru þeg- ar hún hækkar upp í ellefu, t.d. á plötunni Larva og því sem hún hef- ur verið að gera að undanförnu. Lag þetta er ansi haganlega samið. Kaflar eru margir og mismunandi en jafnvægið er gott. En svo er hér dimma og djúp, t.d. í „Momentum I“ og „Momentum II“, ógnandi stilla sem er áhrifarík en Sunnu er leikið að búa til vissa stemningu og andblæ. Það er eitthvað norrænt við þetta líka, því er ekki að neita. Sá andi leikur t.d. um umslagið en einnig á milli hljóðrásanna. Titil- lagið er einslags ballaða, drama- tískt og „stórt“ og sama má segja um lokalagið, „Melt“, hvar særing- arþula umbreytist smátt og smátt í áhrifaríka smíð af rokkkyni. Eig- indi plötunnar allrar kjarnast eig- inlega í þessum lokahnykk. Ég hef virkilega notið þess að hlusta á þessar tvær plötur Sunnu. Hún býr yfir hæfileikum sem hún ræktar vonandi áfram á næstu ár- um. Það borgar sig að elta drauma sína ... » Þetta heyrist til að mynda afar vel í lag- inu „Inni í skugganum“ hvar lagt er í hart rokk, nánast þungarokk, í bland við klingjandi töfrapíanó. Á Let The Light In fylgir tónskáldið Sunna Friðjóns nokkurn veginn tónspori fyrstu plötu sinnar en breiðir um leið úr sér. Fyrri platan vísaði í eitthvað afgirt og jafnvel erfitt en nú flæða ljósgeisl- arnir inn...

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.