Morgunblaðið - 22.03.2021, Page 18

Morgunblaðið - 22.03.2021, Page 18
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021 ✝ Anna María El- ísabet fæddist á Stóra-Hrauni í Kolbeins- staðahreppi 10. júní 1927. Hún lést 10. mars 2021 á Hjúkrunarheim- ilinu Eir. Elsa, eins og hún var alltaf kölluð, var dóttir Rósu Lárusdóttur frá Breiðabólsstað á Skógarströnd, f. 3. febrúar 1904, d. 17. mars 1987, og Þórarins Árnasonar frá Stóra-Hrauni, f. 8. ágúst 1898, d. 8.ágúst 1990. Systur Elsu eru: Kristín Guð- ríður, f. 1922, látin, Lára Arn- björg, f. 1924, látin, Anna María Elísabet, f. 1926, dó ung, Elín, f. 4.11. 1929, dó ung, Inga Erna, f. 31.10. 1930, dó ung, Elín, f. 2.2. 1932 látin, Inga Erna, f. 8.11. 1933, og Gyða f. 28.4. 1935. Þann 28. október 1949 giftist Elsa Stefáni Ólafi Gíslasyni, f. 9. júní 1927, d. 23. október 2019. Foreldrar Stefáns voru f. 1980, þau eiga þrjár dætur. Stefán Örn, f. 1987, maki Erna Arnardóttir, f. 1989, þau eiga eina dóttur. 4) Erna viðskipta- fræðingur, f. 30.3. 1962, gift Axel Skúlasyni, f. 1960. Dætur þeirra eru Anna María, f. 1988, gift Atla Steini Valgarðssyni, f. 1988, og eiga þau tvö börn, Karen, f. 1990, gift Margeiri Stefánssyni, f. 1986, og eiga þau tvö börn. Hlín, f. 1997, maki Þórarinn Leví Trausta- son, f. 1997. Elsa ólst upp á Stóra-Hrauni til 18 ára aldurs en þá flutti hún með foreldrum sínum og yngri systrum á Drangsnes. Þar ráku foreldrar hennar matsölu í tvö ár og starfaði Elsa þar. Hún var tvítug þegar hún flutti suður með foreldrum sínum og fékk vinnu á Prjónastofu Ólafs. Eftir að börnin fæddust var hún heimavinnandi. Elsa tók virkan þátt í störfum eiginmanns síns, eins og rekstri Bílaleigunnar Fals hf. og byggingarfram- kvæmdum. Elsa var mikil handavinnukona og eru ófá út- saumsstykkin sem liggja eftir hana. Útför Elísabetar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 22. mars 2021. Sökum aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Guðborg Ingi- mundardóttir frá Staðarhóli í Saurbæ í Dala- sýslu, húsmóðir, f. 20. desember 1896, d. 21. ágúst 1931, og Gísli Jónsson frá Galtavík, bóndi, f. 3. mars 1895, d. 27. nóvember 1929. Börn Stefáns og Elsu eru: 1) Þór- arinn Örn, f. 14.2. 1950, fv. bankastarfmaður, giftur Piyu Damalee, f. 1972. Börn þeirra eru Árni, f. 1993, Stefán, f. 1999, og Sonja, f. 2002. 2) Gísli, f. 10.1. 1952, dagskrárstjóri, kvæntur Huldu Arndísi Jóhann- esdóttur, f. 1959. Börn þeirra eru Guðrún, f. 1980, gift Dennis Erixon, f. 1982, og Elísabet, f. 1984. 3) Rósa, fv. skrifststm., f. 31.7. 1953, gift Óskari Svein- birni Jóhannessyni, f. 1954. Börn þeirra eru Elsa, f. 1976, gift Birgi Jónssyni, f. 1970, eiga þau tvö börn. Eva Sigrún, f. 1981, maki Einar Kristjánsson, Elsku amma Elsa, það er margt sem fer í gegnum hugann þegar ég hugsa til þín. Þegar ég hugsa til þín og afa. Þið voruð eitt í mínum huga og þannig leyfi ég því að vera, huggun harmi gegn að þið séuð nú saman aftur. Minningarnar eru svo góðar og svo margar. Ég rifjaði upp margar af mínum bestu minningum með þér síðustu vikurnar og það sem mátti hlæja að sumum þeirra. Ein sú sem okkur fannst alltaf jafn fyndin var þegar þú vildir ekki að ég og Guðrún færum niður að hliði fyrir vestan svo þú sagðir okkur að það væri krókódíll í ánni og þegar við heyrðum svo í kind jarma uppi í hlíð þá vorum við nokkuð vissar um að það væri krókódíllinn svo við hlupum eins og fætur toguðu aftur heim. Þar beiðst þú og veltist um af hlátri. Ekki hlóstu minna þegar þú lést mig skræla kartöflur fyrir vestan í fyrsta skipti 12 ára. Þar bakaðir þú líka bestu flatkök- ur í heimi, bestu kleinurnar og vín- arbrauðið góða. Fyrir vestan kenndir þú mér líka að spila og leggja kapal og þú varst alltaf til í að spila við mann. Lengi fórum við á hverjum laugardegi ýmist í Húnabúð eða Breiðfirðingabúð að spila félagsvist og aðra staði ef það var í boði. Þar til um síðustu áramót bjuggum við fjölskyldan á Soga- veginum þar sem þið afi áttuð lengi heima. Það var alltaf eitthvað svo notalegt að búa í húsinu ykkar enda minningarnar margar. Þar gafstu okkur suðusúkkulaði og kaffi með til að dýfa í, og áttir allt- af PK-tyggjó og súkkulaðirúsínur. Ég fékk líka oft að gista hjá þér þegar afi var að fljúga og maður fékk aldrei nóg af því að skoða alla skartgripina þína. Það er fyndið að hugsa til þess að mér fannst alltaf svo leiðinlegt þegar þú fékkst gesti því þá fann ég að ég hafði ekki óskipta athygli þína á meðan. Það er ekki hægt að tala um minningar nema minnast á Flór- ída. Fyrir utan allar fjölskyldu- ferðirnar okkar þangað yfir jól og áramót erum við öll orðin ansi heimavön í Dunedin þar sem þið afi dvölduð löngum stundum á meðan heilsan leyfði. Ég fór líka í eitt skiptið ein með ykkur afa og þegar þér var hætt að lítast á alla bolina sem ég keypti mér var ég farin að fela þá undir dýnunni minni. Ég held að ég hafi samt ekki átt þessi innkaupagen langt að sækja amma, þér fannst skemmtilegast að kaupa fínar snyrtivörur næstum til þess eins að fá gjöfina sem fylgdi með í kaupbæti. Þú varst líka svo glæsi- leg, alltaf vel til höfð, með nýlagt hár, lakkaðar neglur og varalit. Líklega í nýrri blússu líka. Ekki furða að þú hafir verið kölluð drottning til síðasta dags. Amma, þú varst líka góð og ég sagði þér að mér þótti svo vænt um hvað þú varst dugleg að hafa samband við mig þegar við misst- um Helenu Ósk, til að athuga hvernig við hefðum það. Síðasta ár var erfitt, það var erfitt að fá ekki að hitta þig eins og vanalega, sérstaklega þar sem afi, kletturinn þinn, var þá nýlega far- inn. Þá kom iPadinn sér vel. Elsku amma, söknuðurinn er mikill en ég brosi vitandi af þér hjá afa. Kysstu hann frá okkur. Við sjáumst seinna amma mín. Þín Eva Elsku mamma mín er látin. Fyrirmyndin mín og höfuð ættar- innar. Það verður skrýtið að geta ekki hringt í hana til að fá ráð eða fréttir. Mamma las Moggann á morgnana og pabbi hlustaði á allar fréttir. Ég gat alveg reitt mig á að ef eitthvað mikilvægt væri að ger- ast þá hringdi mamma um leið, t.d. ef það var vont veður í vændum þá mátti ég ekki fara út fyrir dyr og stelpurnar alls ekki í skólann. Það var stundum vandræðalegt því veðurspáin gekk ekki alltaf eftir. Það er eiginlega ekki hægt að tala um mömmu án þess að tala um pabba því svo náin voru þau. Samband þeirra einkenndist af ást, væntumþykju og virðingu. Þau voru ekki bara foreldrar mínir heldur einnig mínir bestu vinir. Mamma var hörkudugleg, há- vaxin, glæsileg og alltaf vel til höfð. Á vorin voru allir veggir gerðir hreinir með Handy Andy, gardínur þvegnar og helst hús- gögnum raðað upp á nýtt. Á haust- in tók hún slátur, úrbeinaði, saltaði í tunnu og setti í súr. Pabbi keypti risa bakarofn í Ameríku þegar þau fluttu í Hátúnið svo hún gæti bak- að nógu mikið í einu. Hjá henni voru matar- og kaffitímar á rétt- um tíma og ekki má gleyma kvöld- kaffinu. Þegar árin færðust yfir var baksturinn samstarfverkefni hjá mömmu og pabba. Aldrei var sparað við okkur systkinin í mat og berum við þess öll merki- .Mamma var hins vegar alltaf grönn og mikil skvísa. Mamma hafði mjög gaman af að spila, ólst upp við það í gamla daga. Hún kenndi öllum barna- börnunum, líka vinum þeirra, að spila á spil. Hún spilaði bridge með vinkonum í mörg ár og eru margar góðar minningar tengdar spilaklúbbunum. Hún var með sérstakt spilaborð, spiladúk og spilaservéttur allt í stíl. Seinni árin stunduðum við mæðgur félagsvist út um allan bæ. Mamma var oft mjög heppin í spilum. Mér er sér- staklega minnisstætt eitt skiptið þegar við vorum að spila í Kópa- vogi. Mamma vann nánast öll 24 spilin og endaði með 197 slagi. Mamma var mikil handavinnu- kona. Nú yljar manni að horfa á gersemarnar sem eftir hana liggja. Ef öllu væri raðað á einn stað gæti maður ekki ímyndað sér að nokkur manneskja hefði áorkað öllum þessum listaverkum. Mamma gerði mikið af krossgát- um í gegnum tíðina og sagði að það héldi minninu við. Hún virðist hafa haft á réttu að standa, nema það séu líka Stóra-Hrauns-genin. Alla vega var hún með allt á hreinu fram til hinstu stundar. 86 ára fékk hún sér iPad. Hún opnaði Facebook svo hún gæti fylgst með og talað við fjölskyld- una, notaði Youtube og lagði kap- al. Hún var alveg óhrædd við að fikta. Pabba fannst oft nóg um og spurði hvort hún ætlaði ekki að reyna að klára frekar teppið sem hún væri að sauma, frekar en að hanga í þessari tölvu. Mamma kvartaði aldrei og var lagin við að gera gott úr öllu. Þetta síðasta ár reyndi virkilega á. Ég hafði miklar áhyggjur af henni því hún var mikil félagsvera. Hún gaf alltaf sama svarið, „ég hef það svellandi fínt“ og bað mig að hafa ekki áhyggjur af sér. Henni tókst alltaf að hugga mig og hughreysta. Nú eru mamma og pabbi saman á ný og hafa það „svellandi fínt“ í sumarlandinu. Þín dóttir Erna. Amma var einstök kona sem hefur alltaf verið stór hluti af mínu lífi. Hún var afburðadugleg, um- hyggjusöm og hjartahlý. Það var alltaf svo gaman að vera í kringum hana þar sem húmorinn hennar fékk alla til að hlæja. Hjartað mitt er uppfullt af þakklæti og ást til ömmu. Ég hugga mig við allar þær dýrmætu minningar um ynd- islegu ömmu mína sem mér þótti svo einstaklega vænt um. Fyrstu minningar mínar um ömmu eru af Sléttuveginum en þar bjuggu amma og afi frá því ég var þriggja ára gömul. Á heimili ömmu og afa var alltaf svo gott að vera, bæði hlýtt og notalegt. Þegar ég lít til baka er ilmurinn af nýbök- uðu bakkelsi ömmu mér einstak- lega minnisstæður. Allt sem hún hafði fram að færa var svo ómót- stæðilega gott, hvort sem það var nýbakaðar flatkökur, vínabrauð eða appelsínukakan hennar fræga. Amma sat oft í stólnum sínum við gluggann og var að sauma í en eft- ir að hún fékk sér iPad eyddi hún miklum tíma í honum. Það er mér svo minnisstætt þegar við amma horfðum saman á þættina með Hemma Gunn og börnunum. Það sem við gátum hlegið saman yfir þessu, aftur og aftur. Amma var svo mikil drottning í alla staði. Amma dvaldi gjarnan í Flórída og á unglingsárum mínum fór hún oft fyrir mig í Forever 21 þar sem hún vissi alveg hvað væri í nýjustu tísku. Þegar við amma fórum saman í búðir vissi ég alltaf hvar ég ætti að finna hana, þar sem veskin voru. Þar gat hún sko eytt tímanum. Þótt amma væri komin í hjólastól stoppaði það hana ekki frá því að fara í búðir. Hún notaði rafskutlu og keyrði um á fleygiferð milli rekka, það má nánast segja að hún hafi verið stórhættuleg á henni. Vesturferðirnar okkar ein- kenndust af mikilli spilamennsku. Amma kenndi mér að spila þegar ég var lítil og gaf sú gamla yfirleitt ekkert eftir. Amma vildi helst spila allan daginn og varð hún yf- irleitt móðguð ef ég vildi frekar fara út eða horfa á sjónvarpið. Skemmtilegast var að fara upp í rúm til ömmu og hlusta á sögurn- ar hennar á kvöldin, ég mun varð- veita allar þessar sögur sem mér þykir svo óskaplega vænt um. Amma hafði alltaf mikinn áhuga á því sem ég var að gera og það var alltaf svo gaman að spjalla við hana um daginn og veginn. Alltaf nennti hún að hlusta á mínar vangaveltur varð- andi lífið og tilveruna og veita mér ráðleggingar. Amma hafði mikinn áhuga á náminu mínu í hjúkrun- arfræði og hefur veitt mér mikinn stuðning síðustu ár. Hún var allt- af reiðubúin að aðstoða mig, hvort sem það var að taka viðtal við hana fyrir verkefni, undirbúning- ur fyrir verklegt próf þar sem ég skoðaði hana bak og fyrir eða hugsa til mín þegar ég var í próf- um. Við amma hlökkuðum mikið til útskriftarinnar í vor og því ætl- uðum við sko aldeilis að fagna og skála saman með vodka í Sprite! Þótt amma verði ekki í þeirri mynd sem ég hefði viljað á þeim degi veit ég að hún verður með mér í anda og skálar við mig að of- an. Elsku amma mín, takk fyrir umhyggjuna, stuðninginn, húm- orinn og allar yndislegu og ógleymanlegu stundirnar okkar saman. Ég mun sakna þín þangað til við hittumst á ný. Þín vinkona Hlín. Elsku besta amma mín, þín verður sárt saknað. Þegar ég kom og kvaddi þig í desember vissum við báðar að það yrði í síðasta skipti sem við myndum sjá hvor aðra í þessu lífi. Ég tók Emmu Karen með mér því mig langaði svo að þið mynduð hittast. Við átt- um dýrmæta stund saman, þú tókst í hendurnar á mér og horfð- ir svo fallega í augun á mér og sagðir „bless elsku hjartans gullið mitt“ og brostir. Það var blik í augunum á þér sem ég mun aldrei gleyma. Þú varst einstök kona, hrein- skilin og með húmorinn í lagi. Þú varst alltaf glæsileg. Þér fannst gaman að hafa þig til og hafðir mikinn áhuga á fötum og skarti. Þú varst aldeilis ánægð þegar ég fór í Snyrtiskólann og notaði þig sem tilraunadýr fyrir ýmsar snyrtimeðferðir. Þegar ég nudd- aði á þér fæturna þá lygndirðu aftur augunum og sagðist vera komin í himnaríki. Þú varst dugleg að baka og alltaf nóg til með kaffinu, enda kaffitímarnir mjög heilagir hjá ykkur afa. Það var alltaf notalegt hjá ykkur afa inni á Sléttuvegi. Það var gaman að koma í heim- sókn og spjalla um daginn og veg- inn. Þið rifjuðuð gjarnan upp gamla tíma og sögðuð mér frá æv- intýrum sem þið lentuð í á ferð ykkar og flugi. Samband ykkar afa var einstaklega fallegt. Þið voruð svo samstillt að þið voruð eins og eitt. Ég er heppin að hafa átt marg- ar dýrmætar stundir með þér í gegnum árin. Allar Flórídaferð- irnar þar sem við versluðum eins og brjálæðingar. Þegar fæturnir á þér voru farnir að gefa sig léstu það sko aldeilis ekki stoppa þig í búðunum. Þú náðir þér í raf- magnshjólastól og „knúsaðir“ um allt. Það tók smá tíma að venjast rafmagnshjólastólnum og ég man að þú bakkaðir niður nokkrar manneskjur meðan þú vast að ná tökum á þessu. Þú lést það samt ekki stoppa þig og hlóst að þessu öllu saman. Ég á margar góðar minningar af þér og afa í Gerði. Eitt skiptið á leiðinni vestur keyptir þú heilan kassa af happaþrennum sem tók okkur heilan dag að skafa með litlum sem engum gróða. Þegar vestur var komið var uppáhalds- drykknum þínum, vodka og Sprite, hellt í fínu kristalsglösin og ABBA sett á fóninn þannig að hljómaði um alla sveit. Eftir kvöld- matinn var spilað enda varst þú sannkölluð spiladrottning. Ég lærði fljótt að það voru engir séns- ar gefnir hjá þér þegar kom að spilum. Á morgnana var svo gam- an að skríða upp í rúm til þín og þú sagðir mér sögur frá því þegar þú varst lítil. Sumar sögurnar voru svo lygilegar að ég vissi oft ekki hvað var satt og hvað var logið. Allar sögunar áttu það samt sam- eiginlegt að vera bráðfyndnar, þú varst bæði fyndinn og góður sögu- maður. Elsku amma, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar og skemmti- legu sögurnar þínar sem ég mun halda áfram að segja alla ævi. Ég veit að nú eruð þið afi sameinuð á ný á betri stað. Ég veit að þið afi munuð áfram passa upp á okkur og fólkið ykkar eins og þið gerðuð alla tíð. Í kvöld mun ég setja ABBA á fóninn og fá mér vodka og Sprite þér til heiðurs. Skál fyrir þér, elsku amma mín, þú varst ein- stök kona sem ég mun aldrei gleyma. Ég elska þig amma mín. Þín ömmustelpa, Anna María Axelsdóttir. Anna María Elísa- bet Þórarinsdóttir ✝ Þorgeir Guð- mundsson verk- fræðingur fæddist í Hafnarfirði 29. júní árið 1944. Hann lést 23. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Guðmundur Þorláksson loft- skeytamaður og Vil- borg Guðjónsdóttir bókavörður. Þor- geir var annar í röð fjögurra systkina. Eldri hon- um er Guðjón Torfi, yngri honum eru Valgerður og Dýri. Þorgeir kvæntist 1966 1988. Sambýliskona hans er Aima Skinnebach. 2) Úlfar, fæddur 1972. Eig- inkona hans er Ásdís Valsdóttir og eiga þau þrjú börn, Rögnu Sif, Sögu og Egil Orra. 3) Þóra Hrönn fædd árið 1978. Börn hennar eru fjögur: Arnór Ýmir, Kristófer Víkingur, Nanna Katrín Lukka og Úlfur. Helga og Þorgeir skildu. Þorgeir hóf sambúð með Katr- ínu Selju Gunnarsdóttur, eign- uðust þau tvær dætur: 1) Borgný, fædd árið 1980. Eiginmaður hennar er Snæbjörn Árnason og eiga þau einn son, Árna. Fyrir átti Snæbjörn Rögnu Björk. 2) Signý, fædd árið 1982. Hún varð bráðkvödd 1999. Þorgeir og Katrín slitu sam- vistir. Þorgeir sem af sínum nánustu var alltaf kallaður Bói ólst upp hjá fjölskyldu sinni í Hafnarfirði, gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar og síðan í Flensborg. Leiðin lá síðan í Mennta- skólann á Laugarvatni og þaðan lauk hann stúdentsprófi árið 1964. Fyrrihlutaprófi í verkfræði lauk hann frá HÍ 1969 og prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi 1971. Þorgeir starfaði hjá Verk- fræðiþjónustu Guðmundar Ósk- arssonar 1972-1975. Árið 1975 stofnaði hann ásamt Torfa bróður sínum verk- fræðistofuna Ráðgjöf og starfaði þar alla tíð eftir það. Þorgeir bjó lengst af í Mos- fellsbæ, eða þar til hann flutti á Eir í Grafarvogi þegar heilsu hans fór að hraka. Hann lést síð- an þar 23. febrúar 2021. Þorgeir var jarðsettur 3. febr- úar og fór útförin fram í kyrrþey. Helgu Þórisdóttur og eignuðust þau þrjú börn: 1) Þröstur, fæddur 1966. Hann er kvæntur Sigrúnu Pálm- arsdóttur og eiga þau tvo syni, Nóa og Sindra. Fyrir átti Þröstur Töru Sif sem er fædd 1986. Hún er gift Hjörvari Frey Eiðssyni og eiga þau Snædísi Emmu og Sóldísi Aþenu. Stjúpsonur Þrastar er Sig- urvin Andri Sigurðsson fæddur Kær vinur minn Bói, sem var kallaður svo af vinum sínum, er fallinn frá alltof fljótt, hann var að berjast við erfið veikindi síð- asta rúma árið. Ég man okkar fyrstu kynni eins og þau hefðu gerst í gær; ég hitti Bóa fyrir rúmum 20 árum á dansnám- skeiði og þar með var tening- unum kastað og þó að örlögin hafi ekki ætlað okkur að vera saman ævina út þá hélst vinátta okkar alla tíð. Ég heillaðist af þessum stóra sterka manni með úfna skeggið. Þessi elska var ekki með mikla tískuvitund og hafði ekki mikla áhyggjur af útliti sínu, hann vann alltaf of mikið og kom oft seint í dansinn og þá var hann að bíða eftir að þvottavélin kláraði að þvo skyrtuna og síðan var hún sett á ofn og ofninn vel kyntur til að þurrka skyrtuna og síðan var farið í hana hálfblauta því að ekki mátti missa af dans- inum. Hann sagði mér eitt sinn að það hefði verið haft á orði við hann að sokkarnir væru ekki samstæðir sem hann var í og hann var fljótur til svars og sagði: „Ég á annað svona par heima!“ Bói var mjög hagmæltur og hafði gaman af að senda mér vís- ur sem hann samdi til mín, hann sagði: „Það er svo gaman að senda þér vísur því að þú hefur svo gaman af þeim.“ Fyrir um ári heyrði ég síðast í Bóa þegar hann hringdi í mig og hann varð svo glaður og sagði: „Ég vissi að ég myndi muna númerið þitt en ég man engin númer lengur.“ Við spjölluðum smá en þetta var ekki sá Bói sem ég þekkti. Bói var góður maður en ekki fullkominn frekar en við hin, hann var lokaður og viðkvæmur einstaklingur sem elskaði börn sín og barnabörn og var svo stoltur af þeim, ég votta börnum hans og fjölskyldum samúð. Ég kveð vin minn og góðan mann með söknuði. Hugrún. Þorgeir Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.