Morgunblaðið - 22.03.2021, Blaðsíða 28
sigurliðið. Rhein-Neckar Löwen vann
þá 33:26-sigur á Leipzig á útivelli en
Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað
hjá Löwen.
Þá skoraði Oddur Ingi Gretarsson eitt
mark fyrir Balingen þegar liðið tapaði
á heimavelli fyrir Erlangen, 29:24, og
Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt
mark Göppingen sem vann 31:24-sigur
gegn HannoverBurgdorf en Janus
Daði Smárason lék ekki með Göpp-
ingan vegna meiðsla.
_ Elvar Már Friðriksson var í aðal-
hlutverki hjá Siauliai sem vann gríð-
arlega mikilvægan 99:68-sigur á Nept-
unas í litháísku A-deildinni í körfu-
knattleik í gær en bæði lið eru í
fallbaráttunni. Njarðvíkingurinn heldur
áfram að leika á als oddi með botnlið-
inu en hann var stigahæstur í kvöld
með 18 stig á þeim 27 mínútum sem
hann spilaði. Þá gaf hann sjö stoð-
sendingar og tók tvö fráköst.
Siauliai er í 10. og neðsta sæti deild-
arinnar með sjö sigra í 25 leikjum en
Neptunas er í 8. sæti með átta vinn-
inga. Neðsta liðið fellur úr deildinni og
það næstneðsta fer í umspil.
_ Körfuknattleiksmaðurinn Martin
Hermannsson fór meiddur af velli í
leik Valencia og Barcelona í spænsku
efstu deildinni í gær.
Martin spilaði ekki í nema þrjár mín-
útur í 80:64-tapi Valencia á heimavelli
áður en hann þurfti að fara meiddur út
af en Valencia greinir frá þessu á sam-
félagsmiðlum sínum. Segir þar að
Martin hafi meiðst á hægri fæti og
hann gat því ekki klárað leikinn. Ekki
liggur fyrir hvort meiðslin verði til
þess að hann missi af fleiri leikjum.
Valencia er í 5. sæti spænsku deild-
arinnar en Martin hefur spilað 26 leiki
í vetur, skorað að meðaltali 7,3 stig,
tekið 1,2 fráköst og gefið 2,7 stoð-
sendingar í leik.
_ Leicester City tryggði sér sæti í
undanúrslitum ensku bikarkeppninnar
í knattspyrnu eftir 3:1-sigur gegn Man-
chester United á King Power-vellinum
í Leicester í gær. Þá vann Chelsea 2:0-
sigur gegn Sheffield United á Stam-
ford Bridge í London. Á Laugardaginn
vann Manchester City 2:0-sigur gegn
Everton á Etihad-vellinum í Manchest-
er og Southampton vann 3:0-sigur
gegn B-deildarliði Bournemouth í Bor-
unemouth. Chelsea og Manchester
City mætast í undanúrslitum og Leic-
ester mætir Southampton. Báðir leik-
irnir fara fram 17. apríl á Wembley-
leikvanginum í London.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA – Stjarnan ..................... 18
Austurberg: ÍR – Fram ....................... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertz-hellir: ÍR – Þór Þ....................... 18.15
HS Orkuhöll: Grindavík – Keflavík .... 20.15
Í KVÖLD!
Dominos-deild karla
Stjarnan – Haukar ............................... 88:76
Tindastóll – Höttur............................... 90:82
KR – Þór Ak.......................................... 86:90
Njarðvík – Valur................................... 78:80
Staðan:
Keflavík 15 13 2 1378:1176 26
Stjarnan 16 11 5 1491:1403 22
Þór Þ. 15 10 5 1472:1347 20
KR 16 10 6 1452:1463 20
Grindavík 15 8 7 1344:1370 16
Þór Ak. 16 8 8 1434:1469 16
Valur 16 8 8 1335:1350 16
ÍR 15 7 8 1324:1333 14
Tindastóll 16 7 9 1429:1465 14
Njarðvík 16 5 11 1308:1372 10
Höttur 16 4 12 1398:1494 8
Haukar 16 3 13 1320:1443 6
Dominos-deild kvenna
Haukar – Snæfell.................................. 98:68
KR – Valur ............................................ 67:87
Keflavík – Skallagrímur ...................... 74:51
Fjölnir – Breiðablik.............................. 80:77
Staðan:
Valur 15 12 3 1130:935 24
Keflavík 15 12 3 1208:1078 24
Haukar 15 11 4 1101:993 22
Fjölnir 15 10 5 1153:1091 20
Skallagrímur 15 6 9 1024:1078 12
Breiðablik 15 5 10 952:1000 10
Snæfell 15 2 13 1070:1204 4
KR 15 2 13 1014:1273 4
1. deild kvenna
Hamar/Þór – Ármann.......................... 87:86
Grindavík – Fjölnir b ........................... 71:57
ÍR – Vestri............................................. 91:40
Njarðvík – Tindastóll ........................... 94:42
Spánn
Andorra – Manresa ............................. 92:86
- Haukur Helgi Pálsson skoraði 9 stig fyr-
ir Andorra og tók eitt frákast á 31. mínútu.
Þýskaland
Fraport – Alba Berlín ......................... 60:94
- Jón Axel Guðmundsson skoraði 8 stig
fyrir Frport, tók fjögur fráköst og gaf átta
stoðsendingar á 29 mínútum.
>73G,&:=/D
Olísdeild karla
ÍBV – Þór .............................................. 35:27
Afturelding – Grótta ............................ 30:27
Valur – Haukar..................................... 28:32
FH – Selfoss.......................................... 28:27
Staðan:
Haukar 15 12 1 2 426:362 25
FH 15 9 3 3 441:405 21
Afturelding 15 9 1 5 392:389 19
ÍBV 15 8 1 6 435:413 17
Valur 15 8 1 6 437:410 17
Selfoss 15 7 2 6 386:375 16
KA 13 5 5 3 336:319 15
Stjarnan 14 6 2 6 381:375 14
Fram 13 6 2 5 328:326 14
Grótta 15 3 4 8 369:384 10
Þór Ak. 15 3 0 12 343:412 6
ÍR 14 0 0 14 326:430 0
Grill 66-deild karla
Valur U – Hörður ................................. 35:36
Þýskaland
Bergischer – Nordhorn ...................... 25:25
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 2 mörk
fyrir Bergischer.
Essen – Stuttgart................................. 27:20
- Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir
Stuttgart.
B-deild:
Kirchhof – Sachsen Zwickau............. 22:30
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 4 mörk
fyrir Sachsen Zwickau.
Spánn
Barcelona – Sinfin............................... 44:24
- Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Barcelona.
Danmörk
GOG – Fredericia ................................ 37:30
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 19 skot í
marki GOG og skoraði eitt mark.
Pólland
Tarnów – Kielce .................................. 20:31
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5
mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er
frá keppni vegna meiðsla.
Svíþjóð
8-liða úrslit, annar leikur:
Kristianstad – Malmö.......................... 31:28
- Ólafur Guðmundsson skoraði 6 mörk
fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson eitt.
%$.62)0-#
HM 2021
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Ég er ánægður með það hvernig
stelpurnar komu inn í leikinn og
kláruðu verkefnið með miklum
sóma,“ sagði Arnar Pétursson, þjálf-
ari íslenska kvennalandsliðsins í
handknattleik, í samtali við Morg-
unblaðið eftir 33:23-sigur íslenska
liðsins gegn Litháen í lokaleik sínum
í 2. riðli undankeppni HM í Skopje í
Norður-Makedóníu í gær.
Ísland er komið áfram í umspil um
laust sæti á HM 2021 sem fram fer á
Spáni í desember en íslenska liðið
hafnaði í öðru sæti riðilsins með 4
stig, tveimur stigum minna en topp-
lið Norður-Makedóníu.
„Það komu kaflar hér og þar sem
voru ekkert sérstakir hjá okkur en á
sama tíma var þetta þriðji leikur liðs-
ins á þremur dögum og ég er sáttur,“
bætti landsliðsþjálfarinn við.
Íslenska liðið tapaði með sjö
marka mun í fyrsta leik und-
ankeppninnar en vann svo tvo mjög
góða sigra gegn Grikklandi, 31:19, og
Litháen, 33:23, í lokaleikjum sínum í
undankeppninni.
„Ég er fyrst og fremst ánægður
með það hvernig stelpurnar mæta í
þessa tvo leiki og klára þetta mjög
sannfærandi. Leikurinn gegn Norð-
ur-Makedóníu var erfiður og það var
mikið áfall fyrir okkur að missa
Steinunni sem er ekki bara leiðtogi
liðsins inn á vellinum heldur líka ut-
an hans.
Við misstum svo Sunnu líka sem er
einnig leiðtogi í þessu liði en sem bet-
ur fer er fullt af öðrum leiðtogum í
þessu liði sem stigu upp þegar mest á
reyndi. Ég er ánægður með þessa
tvo leiki gegn Grikklandi og Litháen
og hvernig við fórum áfram í um-
spilið.“
Frammistaðan til fyrirmyndar
Þrátt fyrir áföllin í Skopje stigu
aðrir leikmenn liðsins upp og þá voru
margir leikmenn að stíga sín fyrstu
skref með landsliðinu.
„Það var fullt af jákvæðum punkt-
um í okkar leik, bæði í sókn og vörn.
Við missum báða miðverðina okkar
út en þeir leikmenn sem komu inn í
þetta, Helena Rut [Örvarsdóttir] og
Eva Björk [Davíðsdóttir] komu báð-
ar frábærlega inn í vörnina.
Ég fékk mörg góð svör eftir eitt og
hálft ár án keppnisleikja og eins er
ég gríðarlega sáttur við ungu stelp-
urnar sem komu inn í þetta. Þær
voru að stíga sín fyrstu skref með lið-
inu og karakterinn og frammistaðan
var til fyrirmyndar,“ bætti Arnar við
í samtali við Morgunblaðið.
Umspilsleikirnir fara fram 16. eða
17. apríl og 20. eða 21. apríl en leikið
verður heima og að heiman.
Dregið verður í umspilið í dag en
Ísland verður í neðri styrkleikaflokki
þegar drátturinn fer fram og getur
mætt Tékklandi, Þýskalandi, Ung-
verjalandi, Svartfjallalandi, Póllandi,
Rúmeníu, Rússlandi, Serbíu, Slóven-
íu eða Svíþjóð.
Mörk Íslands gegn Litháen:
Lovísa Thompson 6, Birna Berg
Haraldsdóttir 4, Rut Jónsdóttir 4/1,
Tinna Sól Björgvinsdóttir 4, Sigríður
Hauksdóttir 4, Ásdís Guðmunds-
dóttir 4, Harpa Valey Gylfadóttir 3,
Ragnheiður Júlíusdóttir 2, Eva
Björk Davíðsdóttir 1.
Markmiðinu náð í Skopje
- Íslenska kvennalandsliðið er komið
áfram í umspil fyrir HM 2021 á Spáni
Ljósmynd/Robert Spasovski
Sigurvíma Íslenska liðið fagnaði vel og innilega í Skopje í gærkvöldi.
Þóra Kristín Jónsdóttir átti stór-
leik fyrir Hauka þegar liðið brú-
aði bilið milli toppliðs úrvals-
deildar kvenna í körfuknattleik,
Dominos-deildarinnar, með stór-
sigri gegn Snæfelli í Ólafssal í
Hafnarfirði á laugardaginn. Þóra
Kristín skoraði 25 stig, þar af sjö
þriggja stiga körfur úr ellefu
skotum, og þá tók hún einnig átta
fráköst og gaf ellefu stoðsend-
ingar en leiknum lauk með 98:68-
sigri Hafnfirðinga.
_ Þá er Keflavík komin á beinu
brautina í deildinni á nýjan leik
eftir 74:51-sigur gegn Skallagrími
í Blue-höllinni í Keflavík. Leik-
urinn var í járnum allt þangað til í
fjórða leikhluta en þá skoruðu
Keflvíkingar 19 stig gegn 5 stig-
um Skallagríms. Daniela Wallen
átti stórleik fyrir Keflavík, skor-
aði 34 stig og tók nítján fráköst.
_ Ásta Júlía Grímsdóttir var
stigahæst Valskvenna þegar liðið
heimsótti KR í DHL-höllina í Vest-
urbæ en hún skoraði 20 stig í
87:67-sigri Vals. Valskonur leiddu
47:31 í hálfleik og var eftirleik-
urinn auðveldur eftir það.
Annika Holopainen var at-
kvæðamest í liði KR með 21 stig.
_ Þá átti Ariel Hearn stórleik
fyrir Fjölni þegar liðið fékk
Breiðablik í heimsókn í Dalhús í
Grafarvog.
Hearn skoraði 37 stig og tók
fjórtán fráköst en leiknum lauk
með þriggja stiga sigri Fjölnis,
80:77.
Mikið jafnfræði var með lið-
unum allan leikinn en Breiðablik
leiddi með fimm stigum fyrir
fjórða leikhluta, 63:58.
Iva Georgieva var stigahæst í
liði Breiðabliks með 20 stig.
Ljósmynd/Árni Torfason
Einvígi Alyesha Lovett, t.v, og Den-
ise Palmer, t.h, eigast við í Ólafssal.
Hafnfirðingar brú-
uðu bilið á toppliðin
Gylfi Þór Sig-
urðsson leikur
ekki með ís-
lenska landslið-
inu í fótbolta
gegn Þýskalandi,
Armeníu og
Liechtenstein í
lok mánaðar þar
sem hann hefur
dregið sig úr
landsliðshópn-
um. Knattspyrnusamband Íslands
greindi frá þessu í gær og segir að
Gylfi verði ekki með af persónu-
legum ástæðum en hann og eig-
inkona hans eiga von á sínu fyrsta
barni á næstunni. Áður hafði fram-
herjinn Björn Bergmann Sigurð-
arson dregið sig úr hópnum en ekki
er fyrirhugað að bæta leikmönnum
við hann fyrir Þýskalandsleikinn
þrátt fyrir þessi tvenn forföll. Ísland
leikur gegn Þýskalandi 25. mars í
Duisburg, gegn Armeníu þremur
dögum síðar í Yerevan og loks gegn
Liechtenstein 31. mars í Vaduz.
Leikirnir þrír eru fyrstu leikir ís-
lenska liðsins undir stjórn þjálfarans
Arnars Þórs Viðarssonar.
Mikið áfall fyrir karla-
landsliðið í knattspyrnu
Gylfi Þór
Sigurðsson
Frjálsíþróttamaðurinn Hlynur Andrésson bætti í gær-
morgun Íslandsmetið í maraþoni þegar hann hljóp á tím-
anum 2:13:37 í Dresden í Þýskalandi. Þrátt fyrir frábært
hlaup tókst Hlyn ekki að ná lágmarki fyrir Ólympíu-
leikana sem er 2:11:30. Um var að ræða fyrsta maraþon
Hlyns á ferlinum og stórbætti hann Íslandsmet Kára
Steins Karlssonar frá árinu 2011 sem hann setti í Berl-
ínarmaraþoninu í september árið 2011 en hann kom þá í
mark á tímanum 2:17:12.
Hlynur er margfaldur Íslandsmeistari í hlaupagrein-
um og á nú sjö Íslandsmet utanhúss á öllum vegalengd-
um frá 3.000 metrum og upp í 42 kílómetra. Þá á hann
þrjú Íslandsmet innanhúss, í 1.500, 3.000 og 5.000 metra hlaupum en tveim-
ur þeirra deilir hann með Jóni Diðrikssyni annars vegar og Kára Steini
hins vegar vegna mismunandi aðstæðna.
Stórbætti Íslandsmetið
Hlynur
Andrésson