Morgunblaðið - 22.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 22.03.2021, Page 4
ELDGOS Í FAGRADALSFJALLI4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lokaði í gær svæði næst gossprung- unni í Geldingadölum. Vísindaráð al- mannavarna vakti athygli á því að stóri gígurinn gæti brostið og hraunstreymið breytt um stefnu á skömmum tíma. Þá var einnig talin hætta á að önnur sprunga opnist. Jóhann Helgason jarðfræðingur gekk að gosstöðvunum í gær. Hann taldi þessa lokun réttmæta vegna hættu á að svæðið gæti einangrast. Þá kom vatnsgufa upp úr sprungu þarna sem benti til þess að ekki langt þar undir væri kvika. Hann benti á að efnið í strompinum sem gýs væri óstöðugt og gæti gefið sig. „Það var virkilega mikil lífsreynsla að komast svona nálægt þessu og upplifa þetta,“ sagði Jóhann. Hann gerði skýringarmynd um hraunrennsli í Geldingadölum. Hún er byggð á hæðargögnum frá Land- mælingum Íslands (LMÍ). Hann sagði að mat sitt hefði ekki breyst eftir að hann skoðaði gosstöðvarnar. „Gosstöðin er öll vel innan lægð- arinnar. Það er ekki nema það rifni sprunga langt til suðurs eða norðurs sem þetta getur breyst,“ sagði Jó- hann. Samkvæmt nýju hæðarlíkani er botn lægðarinnar um 180 m.y.s. Ekki fer að flæða út úr lægðinni fyrr en 209 m.y.s. hæð er náð. Fyllist skálin fer hraun að renna um skarð í henni austanverðri. Jóhann telur að rennslið getið far- ið þaðan norðnorðaustur í Merardali en líklegra sé að það fari suð- suðvestur í Nátthaga. Þar er önnur lægð sem þarf að fyllast áður en rennslið getur haldið suðvestur að Ísólfsskála. Sú leið er um tveir kíló- metrar. Í gær gaus aðallega í einum strompi og einum litlum hnúði. „Ég held að um leið og þetta hækkar eitthvað leiti þunnfljótandi helluhraunið í lægri stöðu. Allan tímann sem ég var þarna var rennsl- ið suðaustur úr gígnum svo fór kvik- an til norðausturs. Austan við gíginn var hraun að byggjast upp að vest- anverðu en þó austan við gíginn. Síð- an kom bylgja sem flæddi austur yf- ir. Hraunið fer í lægstu stöðu þegar það er búið að byggja sig upp á ein- um stað,“ sagði Jóhann. 2019 15.-20. des. Jarðskjálfta- hrina við Fagradalsfjall. Meira en 1.700 skjálftar mældust. 30. maí Jarðskjálfta- hrina hófst í nágrenni Grindavíkur. Vísbendingar um landris við Þorbjörn. 2020 janúar-mars Skjálftahrina og landris vestan við fjallið Þor- björn og skjálftahrina við Reykjanestá 15. febrúar sem færðist aftur í auk- ana 4.mars. Skjálfti af stærð 5,2 norður af Grindavík 12.mars. apríl Landris við Þorbjörn orðið um 10 cm og yfir 8.000 skjálftar höfðu mælst á og við Reykjanesskaga frá lokum janúar. Þetta var mesta jarðskjálftahrina sem mælst hafði á skaganum frá upphafi. 18. júlí Jarðskjálftahrina hófst við Fagradalsfjall. Yfir 1.700 skjálftar á þrem- ur dögum þeir stærstu 5,1 og 5,0. Skýr merki um yfirborðsbreytingar um sprungu rétt við Fagradalsfjall. október Skjálftahrina í Núpshlíðarhálsi og Fagradalsfjalli. Jarð- skjálfti af stærð 5,6 við Núpshlíðarháls á milli Fagradalsfjalls og Kleifarvatns þann 20. október, sá stærsti á Reykjanes- skaga í 17 ár. 2021 24. febrúar Jarðskjálfti af stærð 5,7 nálægt Keili. Mikil jarðskjálftahrina með upptök milli Kleifarvatns og Grindavíkur- vegar. Mikil virkni við Fagradals- fjall. mars Jarðskjálftahrinan einkum í nágrenni við Keili og Trölladyngju. Vísbendingar um lóðrétt kvikuinnskot milli Keilis og Fagradalsfjalls. Bylgjuvíxlmyndir gervi- tungla og GPS-mælingar sýndu mikla tilfærslu á yfirborðinu. 19. mars Lítið hraun- gos hófst í Geldingadölum í Fagradalsfjalli klukkan 20.45. Gossprungan var 500-700 metra löng. Lítil gos- strókavirkni. Aðdragandi eldgossins í Fagradalsfjalli Skjálftavirkni á Reykjanesi frá 24. febrúar Skjálftar stærð 5 og yfir frá 24. febrúar KEFLAVÍK KEFLAVÍK NJARÐVÍK VOGAR HAFNAR- FJÖRÐUR GRINDAVÍK GRINDAVÍK REYKJAVÍK Keflavíkur- flugvöllur Kleifar- vatn Krýsuvík Krýsuvíkurvegur Suðurstrandarvegur Keilir Þorbjörn Hvassahraun Vatn sley sus trön d Djúpavatn Merardalir Kistufell Fa gr ad al sf ja ll Stórihrútur Borgar- fjall Ná tth ag i Ísólfsskáli Fagradalsfjall Fagradalsfjall Gossprungan Stærð hraunsins í gær um kl. 14 Hraun getur fyrst flætt úr Geldingadölum ef það nær 209 m hæð yfir sjávarmáli Heimild: Jóhann Helgason/ Landmælingar Íslands Kortagrunnur: map.is Heimild: Veðurstofa Íslands Kort: skjalftalisa.vedur.is Geldingadalir Gos hófst á föstu- dag kl. 20.45 Svæði sem er lokað fyrir umferð Suðu rstrandarvegur x x 5 4 3 2 1 0 24. feb. 21.mars Geldingadalir Kort: skjalftalisa. vedur.is S T Æ R Ð 24. feb. 21.mars 14.mars 5,5 10.mars 5,1 27.feb. 5,2 24.feb. 5,7 1. mars 5,0 Stærð eldgosa síðan árið 2000 Eldstöð Ár Stærð Hekla 2000 Lítið Grímsvötn 2004 Lítið Fimmvörðuháls 2010 Lítið Eyjafjallajökull 2010 Meðal Grímsvötn 2011 Meðal/stórt Holuhraun 2014-2015 Stórt Fagradalsfjall 2021 Mjög lítið Stærstu eldgos á sögulegum tíma Hraun/eldstöð Ár Hraun (km²) Eldgjá 934 800 Skaftáreldahraun 1783-1784 589 Hallmundarhraun 10. öld 205 Fjallsendahraun 13. öld 191 Holuhraun 2014-2015 85 Stækkað svæði Geldingadalir Líklega safnast hraunið í lægðina - Jarðfræðingur gerði skýringarmynd um hraunrennslið - Svæðinu næst gossprungunni lokað Margir hafa velt því fyrir sér um helgina hvað gosið í Fagra- dalsfjalli eigi nú að heita. Hafa þá komið uppá- stungur að nöfn- unum Litla- Hraun og Ræfill sökum smæðar gossins. Auk þess hefur verið rætt hvort það falli í hlut Grindvíkinga að gefa hrauninu nafn. Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að samkvæmt lög- um sé það sveitarfélagið sem geri tillögu að nafninu sem sé svo kynnt fyrir minjanefnd. Einnig er áætlað að fara yfir með vísindamönnum hver nafnavenjan sé. Þá er fyrirhugað að farið verði í einhvers konar atkvæðagreiðslu eða könnun á meðal bæjarbúa. Sú hugmyndavinna er að sögn Fann- ars enn í gangi og er eitt af því sem rætt verður á fundi bæjarráðs Grindavíkur. Litla-Hraun, Ræfill eða Geldingur? Fannar Jónasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.