Morgunblaðið - 22.03.2021, Blaðsíða 9
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Innleiðing Orkupakka 3 frá ESBvar fjarri því til fyrirmyndar
hér á landi. Í raun óskiljanleg og
enn óútskýrð svo vit
sé í. En þetta var
ekki síðasti orku-
pakkinn. Bjarni
Jónsson rafmagns-
verkfræðingur
skrifar á blog.is:
„Nú er Orkupakki 4
(OP#4) frá Evrópusambandinu
(ESB) til rýni og mats innan EFTA í
því augnamiði að móta sameig-
inlega stefnu Íslands, Noregs og
Liechtensteins til þeirrar málaleit-
unar framkvæmdastjórnar ESB, að
þessi EES-ríki innleiði í lagasafn
sitt þá viðamiklu orkulöggjöf, sem
stundum er kölluð Vetrarpakkinn,
en er í raun OP#4, af því að hún
leysir af hólmi OP#3.
- - -
Gagnvart innri orkumarkaðiESB eru þessi þrjú ríki mjög
ólík og eiga þess vegna ólíkra hags-
muna að gæta. Þar að auki eru
skoðanir mjög skiptar og tilfinn-
ingar blendnar á Íslandi og í Nor-
egi til þeirrar tilhneigingar ESB að
sveigja orkumál aðildarríkjanna í
sífellt auknum mæli undir vaxandi
miðstjórnarvald Sambandsins.
Fyrir utan vafasamar tæknilegar
afleiðingar af slíku tiltæki og einsk-
is sýnilegs ávinnings af slíku leikur
mjög mikill vafi á því, bæði á Ís-
landi og í Noregi, hvort stjórn-
arskrár landanna leyfi slíkt framsal
ríkisvalds til erlendrar stofnunar,
þar sem ríkin eiga ekki aðild, eins
og felst í innleiðingu OP#4.“
- - -
Bjarni nefnir einnig að hafaverði fleiri tilskipanir og
reglugerðir til hliðsjónar við mat á
Orkupakka 4 því að þær „vinna
saman að því að styrkja enn mið-
stjórnarvaldið, sem felst í öðrum
gerðum, t.d. OP#4.“
- - -
Í ljósi reynslunnar er vissara aðhafa varann á.
Bjarni Jónsson
Pakkar sem engin
þörf er á að þiggja
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bráðabirgðaniðurstöður rann-
sóknarborana í Reynisfjalli til
undirbúnings gerðar vegganga
virðast gefa tilefni til frekari
rannsókna á svæðinu og að dýpra
sé niður á bergklöpp en áður var
talið.
Vegagerðin hefur hafið und-
irbúning að færslu Hringvegarins
um Vík í Mýrdal. Vegurinn mun
fara um jarðgöng í gegnum Reyn-
isfjall og liggja sunnan við þorpið
í stað þess að fara um Gatnabrún
og í gegnum Vík. Unnið er að for-
hönnun og mati á umhverfisáhrif-
um. Til undirbúnings jarðgöngum
hafa tvær holur verið boraðar
austan megin í Reynisfjalli og
þrjár vestan megin og unnið er að
borun fjórðu holunnar.
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar breyta ofangreindar
frumniðurstöður engu varðandi
það að jarðgöng eru raunhæfur
kostur en líklegt að vegskáli vest-
an megin í Reynisfjalli þyrfti að
vera lengri en reiknað hefur ver-
ið með. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Reynisfjall Borað er í væntanlegu gangastæði til þess að athuga jarðlög.
Dýpra er niður á klöpp
en reiknað var með
Taurus Confidence, súrálsskip með
19 manna áhöfn, kom til Reyðar-
fjarðar í gær frá Sao Luis í Brasilíu.
Skipið lagði að Mjóeyrarhöfn við ál-
ver Fjarðaáls og hafa tíu manns úr
áhöfninni greinst með Covid-19 smit.
Ákveðið var að taka sýni úr allri
áhöfninni eftir að skipstjórinn til-
kynnti veikindi um borð.
Aðgerðastjórn og umdæmislæknir
sóttvarna í samvinnu við umboðs-
mann útgerðarinnar og skipstjórann
hafa gefið leiðbeiningar um sótt-
varnaráðstafanir um borð. Læknis-
fræðilegt eftirlit með skipverjunum
verður unnið samkvæmt fyrirliggj-
andi vinnureglum þar um af Covid-
deild Landspítala og Heilbrigðis-
stofnun Austurlands.
Aðgerðastjórn telur ekki hættu á
að smitið dreifi sér.Hinir smituðu
eru allir í einangrun um borð.
Smit greindist hjá 10 skipverjum
Súrálsskip Skipstjórinn á Taurus Confidence tilkynnti um veikindi.
- Ekki talin hætta á að smit dreifist