Morgunblaðið - 30.03.2021, Page 1
_ Pantanir streymdu inn á áður
ókunnum hraða í Snjallverslun
Krónunnar nánast á meðan á
sjónvarpsútsendingu ríkisstjórn-
arinnar stóð, þar sem tilkynnt
var um hertar samkomutakmark-
anir í samfélaginu síðasta mið-
vikudag. Þetta segir Ásta Sigríð-
ur Fjeldsted, framkvæmdastjóri
Krónunnar, í samtali við Morg-
unblaðið og svipaða sögu er að
segja af öðrum netverslunum.
„Körfurnar eru að stækka, fólk
er að kaupa meira inn í einu í
gegnum netið.“
Mikill kippur kom einnig í net-
verslun Nettó „Nú förum við í
rússibanareið sem mun svo finna
sér nýtt jafnvægi þegar smitum
fer að fækka aftur og tilslakanir
verða,“ segir Gunnar Egill Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa, sem rekur
Nettó. » 12
Netverslunin tók
strax aftur við sér
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. M A R S 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 75. tölublað . 109. árgangur .
EKKI ÁSTÆÐA TIL
AÐ ÖRVÆNTA
EFTIR TVO LEIKI LÍFGA UPP Á TORGIÐ
LÖG ODDGEIRS
LIFA MEÐ ALLRI
ÞJÓÐINNI
NÝJAR TILLÖGUR 11 NÝR DISKUR 28LANDSLIÐIÐ 27
Listaverkið Saltfiskstöflun eftir
Sigurjón Ólafsson, sem stendur við
Sjómannaskólann, hefur látið veru-
lega á sjá, og hefur Birgitta Spur,
handhafi höfundar- og sæmd-
arréttar listaverka Sigurjóns, lýst
yfir áhyggjum sínum við borgaryf-
irvöld vegna þeirra skemmda sem
lágmyndin gæti orðið fyrir vegna
viðamikilla framkvæmda, sem fyr-
irhugaðar eru á svæðinu.
Í aðsendri grein, sem Birgitta
skrifar í Morgunblaðið í dag, segir
hún að verkið hafi látið verulega á
sjá frá því að það var sett upp 1.
desember 1953, enda þurfi það
stöðugt eftirlit og mikið viðhald.
Vísar hún jafnframt í álit listfræð-
ingsins Jens Peter Munk, sem segir
verkið hafa þýðingu fyrir bæði ís-
lenska og danska listasögu. Þá sé
það álit sérfræðinga að tímabært sé
að huga að forvörnum þess, en sá
möguleiki hefur verið nefndur að
steypa myndina í brons.
Í grein Birgittu kemur fram að
verkið hafi verið í umsjá Reykjavík-
urborgar frá uppsetningu þess árið
1953. Hins vegar hafi ekki fengist
svör frá borginni um hvernig hún
hyggist verja verkið, og að nú í
mars hafi skipulagsfulltrúi ein-
ungis sagt það ekki í eigu Reykja-
víkur. »18
Ástand Salt-
fiskstöflunar
áhyggjuefni
Sjómannaskólinn Lágmynd Sig-
urjóns hefur látið verulega á sjá.
- Ekki fengist skýr
svör frá borginni
_ Áslaug Magnúsdóttir,
frumkvöðull og kaup-
sýslukona í San Franc-
isco, er ásamt austur-
rískum unnusta sínum,
Sacha Tueni, að taka
við Svefneyjum í
Breiðafirði. Sacha
Tueni keypti nýverið
eyjarnar af afkom-
endum Dagbjarts Ein-
arssonar, útgerð-
armanns í Grindavík, og Birnu
Óladóttur, konu hans, sem keyptu eyj-
arnar fyrir um 28 árum ásamt fleirum.
Fjölskyldan átti 75% hlut og Olís seldi
einnig sín 25%. »2
Keyptu nýverið Svefn-
eyjar í Breiðafirði
Áslaug
Magnúsdóttir
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari varð
fyrir því óhappi við gosstöðvarnar í Geld-
ingadölum í gær að missa samband við
drónann sinn með þeim afleiðingum að
hann skemmdist. Hann var með tvo dróna
á flugi og skemmdust þeir báðir, annar
þeirra endaði í hrauninu og skilaði sér
því ekki en Ragnar náði hinum til baka,
þeim sem sést á myndinni hér til vinstri.
Ragnar er ekki sá eini enda segist hann
vita um tugi ef ekki hundruð eins tilfella.
Ragnar hefur helst brenglun á segulsviði
undir grun, vegna heitra málma sem
spýtast út úr gosstróknum
Morgunblaðið ræddi við Jón H. Arn-
arson drónaverkfræðing, en hann segir
að tvennt komi til greina.
„Það sem er að gerast er að seg-
ulsviðið er að hafa áhrif á drónann, svo
sannarlega. Það sem gerist er að komp-
ásinn í drónanum ruglast og þá dettur
dróninn úr GPS-sambandi. Þá fer dróninn
í svokallaða ATTI-flugstillingu, þá hættir
flugtölvan að aðstoða flugmanninn og
dróninn byrjar að fjúka í burtu.“
Jón segir að þegar þetta gerist fljúgi
dróninn þar til rafhlaðan klárast og þá
fari dróninn í lendingarham og svífi niður
til jarðar, þar sem hann er. Þetta er raun-
in með þá dróna sem síðan finnast á víð
og dreif, hvort sem það er við gosstöðv-
arnar í Geldingadölum eða ekki.
Í þeim tilfellum þar sem drónar
lenda í hrauninu við gosstöðvarnar er lík-
legast að plasthýsing, sem mótor drónans
er fest á, bráðni vegna hitans frá gosinu.
Jón segir að best sé að fljúga drónum upp
í vind en ekki undan vindi, ef ske kynni
að sambandið við drónann rofni. Þá fýkur
dróninn til manns en ekki í burtu frá
manni.
- Auðvelt að missa
stjórn við gossvæðið
Eldgosið í Geldingadölum á Reykjanesskaga fangar athygli ljósmyndara og drónaflugmanna
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Tjón Ragnar ljósmyndari með annan drónanna sem skemmdust í gær, hinn endaði ofan í hrauninu. MEldgosið í Fagradalsfjalli »4
Hundruð
dróna í
valnum
Tíu kórónuveirusmit greindust í
skimunum innanlands um helgina,
þar af voru þrjú sem voru utan
sóttkvíar. Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir segir í samtali við
Morgunblaðið að uppruni smit-
anna þriggja sem greindust utan
sóttkvíar væri óþekktur, sem aft-
ur væri vísbending um að veiran
sé úti í samfélaginu.
Þórólfur telur ástæðu til að
halda áfram með núgildandi sótt-
Hafa nú nærri því allir Íslending-
ar 80 ára eða eldri hafið bólusetn-
ingu, en 96,54% þeirra sem eru yf-
ir níræðu teljast fullbólusettir.
Til stendur að bólusetja um
þrjú þúsund manns í Laugardals-
höllinni í dag, og klárast þar með
það bóluefni sem til er í landinu,
en næsta sending á að koma á
þriðjudaginn eftir páska. Kemur
þá bóluefni frá AstraZeneca, Pfi-
zer og Moderna. »6
varnaaðgerðir, sem renna eiga út
eftir tvær vikur, frekar en að létta
á þeim, því það taki um tvær til
þrjár vikur að sjá árangur af
þeim.
16% hafið bólusetningu
Í gær höfðu 45.422 fengið einn
eða tvo skammta af bóluefni gegn
kórónuveirunni, en það nemur um
16% af heildarfjölda þeirra sem til
stendur að bjóða bólusetningu.
Tíu smit um helgina
- Ekki hægt að tengja smitin við önnur smit - Veiran
úti í samfélaginu - Bólusetningar í hlé fram yfir páska