Morgunblaðið - 30.03.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Svefneyjum og Olís seldi 25% hlut.
Dagbjartur Einarsson, útgerðar-
maður í Grindavík, og kona hans,
Birna Óladóttir, keyptu Svefneyjar
í félagi við Þorstein Jónsson og
Gissur Tryggvason, á árinu 1993
eða þar um bil, af Kristni Nikulás-
syni.
Kristinn telur að eyjarnar séu 63
en tekur fram að alltaf sé spurning
hvernig er talið. Miðar hann við
eyjar og hólma sem gras vex á.
Auk þess sé fjöldi skerja við eyj-
arnar. Dúntekja er á um helmingi
eyjanna og segir Eiríkur að ávallt
sé leitað tvisvar í Svefneyjum.
eyjum á upphafsárum Þörunga-
verksmiðjunnar. Var þá reist hús
fyrir starfsfólkið sem verbúð og
mötuneyti. Í eyjunni er stórt íbúð-
arhús byggt árið 1929.
Stórfjölskyldan kom saman
„Við sjáum mikið eftir Svefn-
eyjum. Við erum fimm systkinin og
afkomendur pabba og mömmu
orðnir yfir tuttugu. Þetta er mikil
paradís og stórfjölskyldan hefur
komið þar saman, sérstaklega í
tengslum við dúnleit á vorin,“ segir
Eiríkur Dagbjartsson en hann og
systkini hans seldu sinn 75% hlut í
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýir eigendur eru komnir að
Svefneyjum í Breiðafirði. Kaupand-
inn er Sacha Tueni, austurrískur
unnusti Áslaugar Magnúsdóttur,
frumkvöðuls og kaupsýslukonu, en
þau eru búsett rétt utan við San
Francisco í Bandaríkjunum. Sacha
hefur starfað mikið í tæknigeiran-
um í Bandaríkjunum, meðal annars
hjá Facebook.
Áslaug Magnúsdóttir segir að
þau muni nota Svefneyjar sem
sumarheimili og þau muni jafnvel
dvelja þar og vinna lengur. Mikil
hlunnindi fylgja jörðinni, ekki síst
æðarvarp, en einnig hefur Þör-
ungaverksmiðjan á Reykhólum sótt
þangað þara. Áslaug segir að er-
lendis sé farið að nota þörunga í
efni. Hún stefnir að því að nota ís-
lenska þörunga í nýjustu fatalínuna
sem heitir Katla.
Hlunnindin nýtt
Heilsársbúskapur var í Svefn-
eyjum fram til haustsins 1979 að
Nikulás Jensson bóndi flutti til Sví-
þjóðar. Kristinn sonur hans er
fæddur og alinn upp í Svefneyjum.
Hann segir að eftir að þau fluttu til
Svíþjóðar hafi hlunnindin verið nýtt
á sumrin. Byrjað á grásleppu á
vorin og æðarvarpinu sinnt. Þá hafi
verið mikil þangsláttur í Svefn-
Ljósmynd/Mats Wibe Lund, mats.is
Svefneyjar Taldar eru 63 eyjar í klasanum auk ótalinna skerja. Þar eru mikil hlunnindi sem hafa verið nýtt.
Hyggst nota íslenska
þörunga í tískulínu
- Sacha Tueni og Áslaug Magnúsdóttir taka við Svefneyjum
Lögreglan á Vestfjörðum var köll-
uð út í gærkvöldi vegna snjóflóðs
sem féll úr Traðargili við Búð-
arhyrnu í Hnífsdal. Sáu sjón-
arvottar manneskju á ferð í gilinu
og hreif snjóflóðið viðkomandi nið-
ur hlíðina. Var hjálparlið ræst út á
hæsta forgangi.
Vel gekk að finna viðkomandi í
flóðinu þar sem hann hafði verið
með réttan útbúnað og náði að
sprengja út snjóflóðabakpoka sem
hann hafði á sér og flaut því efst á
flóðinu. „Aðilinn slapp vel frá þess-
um atburði en var fluttur á sjúkra-
húsið á Ísafirði til læknisskoðunar
með litla áverka,“ segir í tilkynn-
ingu lögreglunnar, sem ítrekar þá
hættu sem ferðafólki getur stafað
af ferðum í fjalllendi.
Slapp vel úr snjó-
flóði í Traðargili
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samherji hf. gerir miklar athuga-
semdir við yfirlýsingu stjórnenda
Ríkisútvarpsins (Rúv.) vegna úr-
skurðar siðanefndar Rúv. um um-
mæli Helga Seljans um félagið og
málefni þess á félagsmiðlum. Þar
sagði að úrskurðurinn myndi engin
áhrif hafa á störf Helga, enda hefði
þar ekki komið fram að hann hefði
gerst brotlegur í starfi í skilningi
laga. Samherji telur það ekki stand-
ast og krefst þess
að Helgi komi
ekki að frekari
umfjöllun um
málefni félagsins.
Þetta kemur
fram í bréfi, sem
lögmaður Sam-
herja sendi
stjórn Ríkisút-
varpsins ohf. Þar
er bent á að samkvæmt úrskurð-
inum hafi Helgi gerst hlutdrægur
og „gengið lengra en sem nam því
svigrúmi sem hann hafði til að deila
fréttum og fylgja þeim eftir með
gagnrýnum spurningum eða um-
mælum, sambærilegum þeim sem
hann myndi viðhafa sem fréttamað-
ur, jafnvel þó slíkt væri gert í eigin
nafni“. Brotin væru alvarleg og
ítrekuð.
Hafi niðurstaðan engin áhrif á
störf Helga sé stofnunin að segja að
siðareglurnar megi brjóta að vild án
afleiðinga.
Samherji krefst þess því, að
stjórn Ríkisútvarpsins ohf. taki siða-
nefndarúrskurðinn til sérstakrar at-
hugunar, svo slík slys hendi ekki
aftur. Eins að athugað verði hvort
starfsmannaréttarleg viðurlög, svo
sem áminning, komi til greina.
Sérstaklega er þess þó krafist „að
Helgi Seljan fjalli ekki um málefni
er tengjast samstæðu Samherja hf. í
starfi sínu hjá Ríkisútvarpinu, né
komi á nokkurn hátt að vinnslu efnis
tengdu félaginu, enda hefur verið
kveðið skýrlega á um hlutdrægni og
neikvæða persónulega afstöðu hans
til félagsins í úrskurði siðanefndar“.
Úrskurður hafi afleiðingar
- Samherji hf. krefst að Helgi Seljan fjalli ekki frekar um félagið - Siðanefnd hafi
úrskurðað um hlutdrægni - Siðareglur til einskis hafi úrskurður ekki afleiðingar
Helgi Seljan
Ekki hafa menn verið samstíga í afstöðu til þess hvernig nafn Svefneyja
kemur til. Í Landnámabók er sagt frá því að Hallsteinn Þórólfsson sem
nam Hallsteinsnes og Breiðafjörð hafi sent þræla sína til saltgerðar í
Svefneyjum. Framhald sögunnar hefur varðveist í munnmælum. Eggert
Ólafsson, Svefneyingur, skáld og náttúrufræðingur, segir frá því í einu
rita sinna að eyjarnar dragi nafn sitt af því að Hallsteinn hafi fundið
þræla sína sofandi og drepið þá fyrir sviksemi þeirra. Alla vega er vitað
um Þrælalág í Svefneyjum. Annars staðar kemur fram að Hallsteinn hafi
farið með þrælana út í eyjarnar Sviðnur og hengt þar í klettum og dysjað
líkin. Þórhallur Vilmundarson prófessor telur líklegra að Svefneyjar
merki „eyjar, þar sem hafaldan sofnar; eyjar sem svæfa allan sæ“. Það
getur passað við að Svefneyjar eru ystar svokallaðra inneyja og skýla
hinum eyjunum. Hliðstæð örnefni mun vera að finna í Noregi.
Þrælarnir sofnuðu við saltgerð
FLEIRI EN EIN KENNING UM TILURÐ NAFNS EYJANNA
Hálfgert hrúgald hefur myndast fyrir
framan gíginn á gossvæðinu í Geld-
ingadölum austur í Fagradalsfjalli.
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræð-
ingur segir að um sé að ræða bæði
hraun og gígvegg sem hefur hrunið
og færst fram.
„Það sem er að gerast í augnablik-
inu er að hraunið er að hlaðast upp á
bak við þetta hrúgald. Þetta er ákveð-
inn varnarveggur til vesturs og
hraunið virðist ekki eiga neina greiða
leið norður fyrir og austur fyrir gíg-
inn svo það er farið að safnast aðeins
saman og hækka. Það verður athygl-
isvert að fylgjast með þróuninni, það
gæti myndast skemmtileg tjörn ef
þetta heldur áfram,“ segir Þorvaldur.
„Það er mjög athyglisvert að fylgjast
með þessu, þetta er orðið næstum því
jafn hátt gígnum,“ bætir Þorvaldur
við.
Þorvaldur segir að almennt virðist
gosið vera nokkuð stöðugt.
„Ég hef ekki séð neinar stórar
breytingar á framleiðni í gosinu, en
hvernig það hagar sér breytist alltaf
eitthvað. Núna virðist eins og strók-
arnir séu aðeins hærri en þeir hafa
verið síðustu daga, og ég velti fyrir
mér hvort það sé vegna þess að gíg-
opið allra efst sé farið að þrengjast,“
segir Þorvaldur. „Þá er sama magnið
að þvinga sér upp í gegnum smærra
op og þá frussast aðeins kvikan
hærra.“ liljahrund@mbl.is
Varnarveggur
hafi myndast
Morgunblaðið/Freyr Hákonarson
Eldgosið Svona var umhorfs í Geldingadölum í gær. Brot úr gígunum hefur
safnast upp fyrir framan sjálfar eldstöðvarnar, umlukið hrauni.