Morgunblaðið - 30.03.2021, Side 8

Morgunblaðið - 30.03.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Hreinsum allar yfirhafnir, trefla, húfur og fylgihluti STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 Evrópusambandið býr svo vel aðeiga þingmenn í nokkrum þingflokkum á Alþingi, einkum í systurflokkunum Samfylkingu og Viðreisn. Þingmenn Viðreisnar reyna stundum að sanna fyrir emb- ættismönnum í Brussel að þeir séu gengnir enn lengra inn í sambandið en félagar þeirra í Samfylkingu og verður sú viðleitni stundum átakanleg. - - - Í umræðum umstörf þingsins í liðinni viku runnu Jón Steindór Valdi- marsson og Hanna Katrín Friðriksson í ræðustól þingsins og mærðu afrek Evrópusambandsins í bóluefnamálum og lofuðu gæfu Ís- lendinga að njóta samvista við sam- bandið í þeim efnum. - - - Jón Steindór gerði fullveldi aðumtalsefni og hafði greinilega ekki mikið álit á því fyrirbæri. Þá sneri hann út úr orðum gagnrýn- enda Evrópusambandsins í bólu- efnamálum, en virtist gleyma því að í þeim röðum er fjöldi harðra stuðn- ingsmanna sambandsins í ríkjum þess, þó að þeim fari eðli máls fækkandi eftir klúður sambandsins. - - - Hanna Katrín taldi að viðbrögðhér á landi við nýrri reglu- gerð ESB hefðu verið „stormur í vatnsglasi íslenskra stjórnvalda“ og að þessi reglugerð myndi von- andi skila Íslendingum auknu bólu- efni! - - - Það er vissulega fengur að þvífyrir Evrópusambandið að eiga slíka þingmenn hér á landi sem verja það sama hvað á gengur. En hvers eiga Íslendingar að gjalda að búa við þetta? Jón Steindór Valdimarsson Þingmenn ESB STAKSTEINAR Hanna Katrín Friðriksson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samkvæmt upplýsingum frá Alþingi gáfu fjórir kost á sér í embætti um- boðsmanns Alþingis, en Tryggvi Gunnarsson lætur senn af því starfi. Þetta eru þau Áslaug Björgvins- dóttir lögmaður, Ástráður Haralds- son, dómari við Héraðsdóm Reykja- víkur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og settur umboðsmaður, og Skúli Magnússon, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, sem nýlega var kjörinn þar dómsstjóri í stað Símonar Sig- valdasonar. Ráðgjafanefnd verður undirnefnd forsætisnefndar til aðstoðar við að gera tillögu um næsta umboðsmann, sem verður svo kjörinn á þingfundi. Í ráðgjafanefndinni eru Helgi I. Jónsson, fv. hæstaréttardómari, for- maður, Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmda- og mannauðsstjóri hjá Deloitte, og Kristín Benedikts- dóttir, dósent við lagadeild HÍ. Fjögur vilja verða umboðsmaður Áslaug Björgvinsdóttir Ástráður Haraldsson Kjartan Bjarni Björgvinsson Skúli Magnússon - Þrír dómarar og einn lögmaður sækja um embætti umboðsmanns Alþingis Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Tveir flugmenn og yfirflugvirki Landhelgisgæslunnar héldu til Staf- angurs í Noregi í gær í þeim tilgangi að gera TF-GNA tilbúna til heim- ferðar til Íslands. Vélin var keyrð upp í dag og í vikunni fara fram fleiri prófanir og flug. Gert er ráð fyrir að þyrlunni verði flogið til Íslands öðru hvoru megin við páska. Hún verður svo tekin í notkun skömmu eftir það. Ásgeir Erlendsson, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir við Morgunblaðið að þyrlan verði mikil búbót enda hafi aðeins tvær þyrlur verið nothæfar að undan- förnu, leiguþyrlurnar TF-GRÓ og TF-EIR en þær hafa reynst afar vel að sögn Ásgeirs. Flotinn aldrei öflugri Hann segir að óhætt sé að fullyrða að flugfloti Landhelgisgæslunni hafi aldrei verið öflugri, nú þegar TF- GNA er væntanleg til landsins. Allar þrjár þyrlur Landhelgis- gæslunnar verða því af sömu gerð- inni, Airbus Super Puma H225. Ný þyrla til Íslands innan örfárra daga - Mikil búbót fyrir LHG að fá þriðju þyrluna Landhelgisgæslan TF-GNÁ verður þriðja þyrla Landhelgisgæslunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.