Morgunblaðið - 30.03.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
30. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.15
Sterlingspund 175.2
Kanadadalur 101.13
Dönsk króna 20.145
Norsk króna 14.801
Sænsk króna 14.701
Svissn. franki 135.08
Japanskt jen 1.1584
SDR 180.62
Evra 149.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.9388
Hrávöruverð
Gull 1727.85 ($/únsa)
Ál 2260.5 ($/tonn) LME
Hráolía 62.01 ($/fatið) Brent
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Mikill kippur kom í netverslun Nettó
eftir að yfirvöld tilkynntu um hertar
samkomutakmarkanir vegna farald-
ursins á miðvikudaginn í síðustu viku.
Gunnar Egill Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam-
kaupa, sem rekur Nettó, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að það hafi ekki
komið sérstaklega mikið á óvart enda
séu þau orðin tiltölulega vön áhrifun-
um sem bylgjur faraldursins hafa á
verslunina. „Maður sér áhrifin strax
bæði í búðunum og á netinu. Af-
greiðslum fækkar aðeins en körfurn-
ar stækka. Nú höfum við stóran hóp
sem er vanur því að versla matvörur á
netinu.“
Gunnar segir að góður stöðugleiki
hafi verið kominn í netverslunina síð-
ustu mánuði og fram í miðjan mars.
„En nú förum við í rússibanareið sem
mun svo finna sér nýtt jafnvægi þegar
smitum fer að fækka aftur og tilslak-
anir verða á ný.“
Hann segir að veirufaraldurinn hafi
haft mikil áhrif á netverslun Nettó.
„Við byggðum alveg nýja netverslun
Nettó í fyrstu bylgjunni og fjórföld-
uðum afkastagetuna. Við erum í dag
mjög vel í stakk búin að taka við álag-
inu þegar margföldun verður skyndi-
lega í sölu.“
Spurður um hlutdeild Nettó á net-
verslunarmarkaðnum telur Gunnar
að hún sé um 50%. „Eftir því sem
fleiri koma inn á markaðinn þá stækk-
ar bara kakan,“ bætir Gunnar við en
Nettó varð snemma áberandi á net-
verslunarmarkaðnum.
Spurður um hvenær Nettó tók
ákveðna stefnu inn í netverslun segir
Gunnar að það hafi verið sett inn í
stefnu félagsins árið 2015 og raun-
gerst í september 2017. „Þá voru á
markaðnum tiltölulega litlir aðilar og
við vorum fyrsta lágvöruverðsversl-
unin til að opna á netinu. Þó svo það
hafi ekki verið stórt í upphafi þá kom
strax ákveðinn hópur inn sem varð
reglulegir viðskiptavinir. Við höfum
svo vaxið þaðan.“
Orðin 20% af veltu félagsins
Gestur Hjaltason framkvæmda-
stjóri Elko segir í samtali við Morg-
unblaðið að síðustu samkomutak-
markanir hafi ekki haft áberandi áhrif
á netsöluna. „Hún er samt mjög mikil
og netverslunin er orðin næststærsta
búðin okkar. Við gerum ráð fyrir að
netverslunin verði um og yfir 20% af
veltu Elko út árið. Í nóvember, eftir
að samkomubann var sett á, fór net-
verslunin upp í 60% af okkar viðskipt-
um.“
Sátu sem steinrunnin
Ásta Sigríður Fjeldsted fram-
kvæmdastjóri Krónunnar segir að
hún og hennar fólk hafi setið sem
steinrunnið fyrir framan sjónvarps-
skjáinn þegar yfirvöld tilkynntu um
nýjar samkomutakmarkanir þar sem
meðal annars var kveðið á um 50 við-
skiptavina hámark í verslunum eins
og þeim sem Krónan rekur. „Há-
markið var sem betur fer hækkað í
100 manns næsta dag, eftir gott sam-
tal við yfirvöld,“ segir Ásta en í þeim
samræðum var bent á smithættu sem
skapast gæti vegna raðamyndana ut-
an við verslanir.
Annað sem gerðist nánast meðan á
sjónvarpsútsendingu ríkisstjórnar-
innar stóð var að Ásta og starfsfólk
Krónunnar horfðu á pantanir
streyma inn í Snjallverslun Krónunn-
ar á áður ókunnum hraða. „Ég held
við höfum aldrei þjónustað jafn marga
í einu og undanfarna daga,“ segir
Ásta. „Körfurnar eru að stækka, fólk
er að kaupa meira inn í einu í gegnum
netið.“
Ásta segir að aukning sé einnig í
„smella og sækja“ (e. click and collect)
þjónustu Krónunnar. „Það er vöxtur í
þessari þjónustu í hverjum mánuði.
Við erum að breikka þetta val sem
fólk hefur, veita því fleiri leiðir til að
versla. Netverslun er komin til að
vera.“
Ásta bætir við að Krónan sé með
netverslun sína í örri þróun. Við höf-
um kynnt til leiks fjölskyldureikning
eða hópakaup í Snjallverslun Krón-
unnar þar sem margir geti raðað sam-
an ofan í körfu og þannig einfaldað
innkaupin fyrir t.d. heimili með ólíkar
þarfir eða minni fyrirtæki sem vilja
leyfa öllum að hafa áhrif á innkaupin.
Svo er vert að vita að það er lítið mál
að hætta við pöntun ef eitthvað kemur
upp á eða breyta pöntun rétt áður en
hún er tínd til,“ bætir Ásta við og seg-
ir að veirubylgjurnar hafi verkað sem
vítamínsprautur á vöxt netverslunar.
Salan alltaf aukist
Kristófer Júlíus Leifsson, fram-
kvæmdastjóri Eldum rétt, segir að
erfitt sé að greina áhrif samkomb-
annsins á netverslunina akkúrat
núna, enda komi hún ofan í páskahá-
tíðina, þar sem sala dregst að jafnaði
aðeins saman. Þá sé annar taktur og
rútína í lífi viðskiptavinanna. Hann
segir að salan hafi þó alltaf aukist þeg-
ar nýjar samkomutakmarkanir hafi
verið settar á. „Nú er það páskalamb-
ið sem er vinsælast,“ segir Kristófer.
Hann segir að Eldum rétt hafi byrj-
að að bjóða páskalambið í fyrra og þá
hafi líklega um tvö þúsund einstak-
lingar snætt það. „Svo bjóðum við
núna eftirrétt með, sem við gerðum
ekki í fyrra.“
Spurður um þróun í þjónustu Eld-
um rétt segir Kristófer að í vor muni
fyrirtækið bjóða fólki í fyrsta skiptið
upp á áskrift að matarpökkum. „Þá
þarftu ekki að velja í hverri viku. Þú
færð matarpakkann valinn á hverjum
degi eftir þínum smekk.“
Almennt orðið aukning
Thelma Björk Wilson, fram-
kvæmdastjóri þjónustu og notenda-
upplifunar hjá Heimkaupum, segir að
almennt hafi orðið mikil aukning hjá
versluninni í matvörunni, sem þau
reki meðal annars til samkomutak-
markana og þess að Heimkaup hafi
verið oftast með lægsta verðið í verð-
könnun ASÍ um síðustu helgi.
Netverslun er komin til að vera
Ljósmynd/Aðsend
Net Flestir eru sammála um að faraldurinn hafi hraðað þróun netverslunar.
Innkaup
» Nettó með 50% hlutdeild á
netverslunarmarkaðnum
» 20% af veltu Elko komin yfir
á netið og netverslunin orðin
næststærsta búðin.
» Mikil aukning hjá Heim-
kaupum í matvörunni.
» Eftir því sem fleiri koma inn
á netverslunarmarkaðinn
stækkar kakan.
» Krónan býður fjölskyldu-
reikning eða hópakaup í Snjall-
versluninni þar sem margir
geta raðað saman ofan í körfu.
- Veirubylgjurnar hafa verkað sem vítamínsprautur á vöxt netverslunar - Eldum rétt ætlar að bjóða upp
á áskriftarþjónustu í vor - 2.000 borðuðu páskalambið - Körfurnar stækka í kórónuveirufaraldrinum
Heildartekjur í viðskiptahagkerfi Ís-
lands, að fjármálastarfsemi og lyfja-
framleiðslu undanskilinni, námu
tæpum 4.600 milljörðum króna á
árinu 2019, samanborið við 4.500
milljarða árið 2018. Nemur hækkun-
in 2,2% mælt á verðlagi hvors árs.
Þetta kemur fram í nýbirtum tölum
Hagstofunnar.
Eigið féð upp um 3.600 ma.
Eigið fé jókst um 9,2% frá 2018 og
stóð í 3.600 milljörðum í árslok 2019.
Bendir Hagstofan á að þegar horft
sé til hlutfallslegrar hækkunar heild-
artekna sé fiskeldi hástökkvarinn en
þar jukust þær um 50% milli ára, í
heildverslun nam aukningin 9,4% og
í sjávarútvegi um 8%. Tekjur í ein-
kennandi greinum ferðaþjónustu
drógust hins vegar saman um 9,2%
milli áranna 2018 og 2019. Munaði
þar mestu um 20% samdrátt í far-
þegaflutningum með flugi. WOW air
fór á hausinn í mars 2019 og í sama
mánuði voru MAX-vélar Icelandair,
líkt og aðrar vélar sömu gerðar,
kyrrsettar og stóð sú kyrrsetning
allt fram til þessa árs.
Hagnaðurinn upp og niður
Hagnaður í viðskiptahagkerfinu,
nam samkvæmt ársreikningum, 263
milljörðum króna árið 2019 og lækk-
aði um 0,7% milli ára. Hagnaður
lækkaði talsvert í fiskvinnslu, úr 37
milljörðum 2018 í 6 milljarða 3019.
Þá varð mikið tap í framleiðslu
málma. Reyndist það 3 milljarðar ár-
ið 2018 en 30 milljarðar árið 2019.
Hagnaður jókst hins vegar í heild-
verslun um 29% og nam 6 milljörðum
og í smásöluverslun um tvo milljarða
eða 7%. ses@mbl.is
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Fiskeldi Mikill vöxtur hefur verið í
greininni á allra síðustu árum.
Tekjurnar jukust
um 100 milljarða
- Viðskiptahag-
kerfið óx um 2,2%
á árinu 2019