Morgunblaðið - 30.03.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021
„GAMLI GÓÐI REX HEFUR VERIÐ HLUTI
AF FJÖLSKYLDUNNI SVO LANGT SEM ÉG
MAN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að eiga nóg af ást
þótt vasarnir séu tómir.
HÉR SEGIR AÐ KRÖFTUG LÍKAM-
LEG ÁREYNSLA AUKI MATARLYST
ÉG ER GLOR-
SOLTINN
ÞETTA ER EKKI
KRÖFTUG
ÁREYNSLA!
ÁSTIN
ER ÞAÐ SEM
LÍFIÐ SNÝST UM,
SONUR SÆLL!
ÞVÍ GET ÉG TRÚAÐ!
HÚN SNÝR MIG NÆSTUM ÚR HÁLSLIÐ!
„ÉG HREIFST MJÖG AF PRÉDIKUNINNI
ÞINNI. SÉRSTAKLEGA TILVITNUNINNI
ÚR LOGGBÓK KIRK KAPTEINS, ÚR
ÞÁTTARÖÐ ÞRJÚ, SJÖUNDA ÞÆTTI.“
lands sem utan, og undanfarin 10
ár höfum við t.d. eytt nokkrum vik-
um á Tenerife að vetri til. Höfum
gert hlé á ferðalögum til útlanda að
sinni af ástæðum sem öllum eru
kunnar.“
Fjölskylda
Eiginkona Ara er Sigríður
Ágústa Skúladóttir (Sirrý), f. 22.12.
1955, kennari og M.Ed. í stjórnun
menntastofnana. Fyrstu sex hjú-
skaparárin bjuggu þau í Virginíu í
Bandaríkjunum og Stokkhólmi.
Heimkomin hafa þau búið lengst af
í Grafarvogi í Reykjavík. Foreldrar
Sirrýjar voru hjónin Skúli Sveins-
son, f. 28.11. 1905, d. 13.7. 1990, að-
alvarðstjóri og þingvörður, og Sig-
ríður Sigurbjörg Ingibergsdóttir, f.
22.7. 1911, d. 20.1. 1988, húsmóðir.
Þau bjuggu í Reykjavík.
Börn Ara og Sirrýjar eru: 1)
Guðmundur Kristján, f. 6.9. 1979,
tölvu- og upplýsingatæknifræðingur
í Reykjavík. Kona hans er Hulda
Guðrún Bragadóttir, viðskipta- og
öldrunarfræðingur. Börn þeirra eru
Bragi Kristján, f. 3.9. 2008, og Ari
Baldur, f. 13.8. 2010; 2) Guðrún
Sigríður, f. 28.3. 1982, viðskipta-
fræðingur og rithöfundur, býr í
Hafnarfirði. Börn hennar með Ró-
bert Viðarssyni lögfræðinema eru
Ísabella Rún, f. 11.7. 2017, og Hug-
inn Rafn, f. 24.4. 2019; 3) Skúli
Magnús, f. 7.4. 1988, verkfræðingur
í Reykjavík. Sambýliskona hans er
Kolbrún Heiða Kolbeinsdóttir, við-
skiptafræðingur og kennari.
Bræður Ara eru Evald, f. 10.8.
1948, sálfræðingur í Reykjavík, og
Grímur, f. 4.2. 1955, læknir og for-
stjóri í Reykjavík.
Foreldrar Ara voru hjónin Pétur
Sæmundsen, f. 13.2. 1925, d. 5.2.
1982, bankastjóri, og Guðrún Sig-
ríður Guðmundsdóttir Sæmundsen,
f. 1.8. 1926, d. 12.8. 2020, húsmóðir
og ritari. Þau bjuggu í Reykjavík.
Ari Kristján
Sæmundsen
Þórunn Jóhanna Brynjólfsdóttir
húsfreyja á Sléttu
Guðmundur Jónas Dósóþeusson
búfræðingur, bóndi og hreppstjóri
á Sléttu í Jökulfjörðum
Sigurjóna Jónasdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Guðmundur Kristján Guðmundsson
skipstjóri og aflakló á Ísafirði
Guðrún Sigríður
Guðmundsdóttir Sæmundsen
húsmóðir og ritari í Reykjavík
Sigríður Helga Sakaríasdóttir
húsfreyja í Stakkadal
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Stakkadal í Aðalvík
Sigurbjörg Gísladóttir
húsfreyja á Húnsstöðum
Jóhann Sigurður Sigurðsson
bóndi á Húnsstöðum
á Ásum,A-Hún.
Þuríður Guðrún Sæmundsen
kaupmaður, kennari og
húsmóðir á Blönduósi
Evald Eilert Sæmundsen
verslunarstjóri á Blönduósi
Magdalena Margrét Möller
húsfreyja á Blönduósi
Pétur Júlíus Sæmundsen
verslunarstjóri á Blönduósi
Úr frændgarði Ara Kristjáns Sæmundsen
Pétur Sæmundsen
bankastjóri í Reykjavík
Á Boðnarmiði segir Anton HelgiJónsson: „Fátt í boði núna ann-
að en að kveða aftur sömu bjart-
sýnisvísuna“:
Þótt venjuleg rútína víki
en veiran og smithætta ríki,
ég kjark í mig tel;
nú kemur sér vel
mín króníska frestunarsýki.
Halldór Halldórsson segir við
nýjustu tíðindum: „Nú er aftur
komið að því að fólk ferðast innan-
húss næsta mánuðinn og ég er viss
um að margt kemur á óvart, ef vel
er að gáð!“
Ég skoða vel í krók og kima,
hvorki ætla’ í sút né fúss;
aftur viðra fætur fima
og ferðast bara innanhúss!
Magnús Halldórsson segir „frétt-
ir úr neðra“:
Puðið magnast púkanna
og pressa þeim er á.
Aðrir njóta eldanna,
sem ekki kveiktu þá.
Guðmunur Halldórsson kveður:
Eldflóðin gleðja Íslands lýð
úttroðnar slóðir flaka
Bílalestir í langri röð
löturhægt vegi aka
Í fjölmiðlum heimsins hriktir við
himnarnir undir taka
Þegar hin rámu regindjúp
ræsa hinn nýja Laka
Bjarni Thor Kristinsson spyr:
„Er Groundhog day? Veiran aftur
komin af stað og sóttvarnarlæknir
og besservisser mætast í kastljós-
inu? Nú má bölva“:
Á örfáum dögun hér allt fór í steik
andskotans vesen og þvæla.
Aftur nú veiran er komin á kreik
og Kári er farinn að skæla.
Guðmundur Arnfinnsson talar
um „misjafnan bókmenntasmekk“:
Í Kiljunni að góðu geta
glæpasagna hvert eitt sinn,
en Káin ekki kunna að meta
Kolla og Ljóti hálfvitinn.
Friðrik Steingrímsson kveður:
Ekkert lengur maður má
magnast við það leti,
ég vil spútniksprautu fá
svo sperrtur lifað geti.
Sigurður Geirdal orti:
Það situr á móti mér meyja
og margt væri gaman að segja
en hvað hugurinn geymir
og holdið um dreymir
er þannig að best er að þegja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ferðalög um gosstöðvar
og innanhúss