Morgunblaðið - 30.03.2021, Page 27

Morgunblaðið - 30.03.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Tveir leikir, ekkert stig og ekk- ert mark. Byrjunin á undankeppni heimsmeistaramóts karla í fót- bolta er eins slæm og hún gat mögulega orðið fyrir íslenska landsliðið sem nú freistar þess að ná í sín fyrstu stig í Liechtenstein annað kvöld. Til viðbótar hefur 21 árs landsliðið átt við ofurefli að etja í úrslitakeppni EM í Ungverjalandi þótt það hafi vissulega átt ágæt- isspretti gegn Dönum á sunnu- daginn. Eftir velgengni í hartnær áratug, þátttöku á tveimur stór- mótum og verið nokkrum mín- útum frá því að komast á það þriðja, er karlalandsliðið á ákveðnum tímamótum. Að þeim hlaut að koma. Við eigum eftir að sjá tiltölulega hraða endurnýjun á liðinu á næstu tveimur árum og kannski á skemmri tíma. Liðið sem spilar leikina sjö í undankeppninni í haust gæti orðið talsvert breytt frá því liði sem leikur fyrstu þrjá leikina um þessar mundir. Leikmenn eins og Gylfi, Jó- hann, Aron og Birkir Bjarnason ættu þó að geta haldið áfram í nokkur misseri enn. Liðið þarf á þeirra reynslu halda á meðan það gengur í gegnum endurnýjunina. Við sáum það sérstaklega í leiknum við Armeníu að án Gylfa er liðið einfaldlega helmingi ólík- legra til að skora og sigra en með hann innanborðs. Sá sem í dag er líklegastur til að fylla hans skarð, eða taka á sig stóra ábyrgð í sóknarleik A- landsliðsins, er Jón Dagur Þor- steinsson, miðað við tilþrif hans með 21 árs landsliðinu. Það yrði alla vega áhugavert að sjá hann í byrjunarliðinu í Vaduz annað kvöld. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Stefnt er að því að áhorfendur verði á úrslitaleik ensku bik- arkeppninnar í knattspyrnu í vor, samkvæmt breska þingmanninum Oliver Dowden. Hann sagði við Daily Mail að úrslitaleikur bik- arkeppninnar sem fram fer á Wem- bley í London 15. maí hafi verið val- inn til þess að prófa hvort unnt sé að fara að hleypa áhorfendum á ný á stóra íþróttaviðburði í landinu. Engir áhorfendur hafa verið á leikjum í enska fótboltanum eða á öðrum íþróttaviðburðum vegna út- breiðslu kórónuveirunnar síðan í mars á síðasta ári, að undanskildum nokkrum leikjum þar sem um tvö þúsund manns var hleypt inn á velli á nokkrum stöðum um skeið. Bretum hefur gengið vel að bólu- setja landsmenn á undanförnum vikum og eftir að hafa hafið kennslu í skólum á ný eru íþrótta- viðburðir komnir ofarlega á blað þegar rætt erum að aflétta ströng- um takmörkunum. Dowden sagði við Daily Mail að þar væri m.a. horft til enska bikarúrslitaleiksins og heimsmeistaramótsins í snóker. Fjögur lið eru eftir í ensku bik- arkeppninni en Chelsea mætir Man- chester City á Wembley 17. apríl og Leicester mætir Southampton degi síðar. Sigurliðin leika síðan til úr- slita 15. maí. Áhorfendur á úrslitaleik á Wembley? LANDSLIÐIÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Það hefur gustað nokkuð hressilega um íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu undanfarna daga en liðið hóf leik í undankeppni HM 2022 á fimmtudaginn í síðustu viku. Þá tekur U21-árs landslið karla þátt í lokakeppni EM 2021 sem fram fer í Ungverjalandi og Slóveníu á sama tíma. Hvorugt lið hefur riðið feitum hesti frá viðureignum sínum í lands- leikjaglugganum en A-landsliðið hef- ur tapað báðum leikjum sínum í und- ankeppninni, gegn Þýskalandi í Duisburg og Armeníu í Jerevan. U21 árs landsliðið hefur svo tapað gegn bæði Rússlandi og Danmörku í Györ í Ungverjalandi. Þá hafa ýmis mál, ótengd fótbolta, verið í umræðunni undanfarna daga. „Við stýrum ekki umfjölluninni í kringum landsliðin en auðvitað myndi maður vilja að umfjöllunin snerist fyrst og fremst um fótbolta,“ sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, í samtali við Morgunblaðið. „Þetta gerist stundum þegar úr- slitin eru ekki eins og menn óska og vilja og þá er ýmislegt tekið til eins og menn þekkja. Að sama skapi er- um við bara að hugsa um leikinn gegn Liechtenstein og öll okkar orka fer í að einblína á hann. Ég efast um að leikmenn liðsins séu að velta sér mikið upp úr þeirri umfjöllun sem hefur verið í gangi undanfarinn sólarhring, hvort sem það er í hlaðvörpum eða fjölmiðlum. Það eru engar reglur sem banna þeim að skoða veraldarvefinn og það er misjafnt hversu mikið menn fylgj- ast með. Það mikilvægasta fyrir okkur er að halda fókus, reyna að bæta leik okkar og vinna fótboltaleiki,“ sagði Guðni. Getur ýmislegt komið upp á Birkir Már Sævarsson var ekki í leikmannahópi Íslands í tapinu gegn Þýskalandi en KSÍ fékk skilaboð frá UEFA, degi fyrir leik, um að Birkir væri í leikbanni í leiknum. „Menn vildu bara fá endanlega staðfest frá UEFA hvort Birkir mætti spila leikinn gegn Þýskalandi en þetta truflaði aldrei neinn und- irbúning fyrir leikinn sjálfan. Það voru ákveðin taktísk atriði æfð fyrir þennan leik og það að Birkir hafi ekki mátt spila kom ekki að sök. Menn halda bara sínu striki enda kemur oft eitthvað upp á í svona verkefnum sem þarf að takast á við. Þegar allt kemur til alls snýst þetta um að vera tilbúinn í leikinn þegar á hólminn er komið en auðvitað hafa úrslitin ekki verið okkur í hag og við erum ekki ánægð, sérstaklega ekki með síðasta leik hjá A-liðinu gegn Armeníu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að takast á við saman og menn eru á fullu að rýna og leikgreina það sem fór úrskeiðis þar. Við ætlum okkur að sjálfsögðu að gera betur í næsta leik gegn Liechtenstein.“ Ummælin dæma sig sjálf Viðar Örn Kjartansson var ekki valinn í hópinn fyrir leikina þrjá í þessum landsleikjaglugga en Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari greindi frá því að hann hefði ekki fengið leyfi frá félagsliði sínu Våle- renga til þess að mæta í verkefnið. Þá bárust fréttir af því um helgina að Gylfi Þór Sigurðsson væri ekki í leikmannahóp Íslands vegna ósættis milli hans og Eiðs Smára Guðjohn- sen, aðstoðarþjálfara liðsins, en Guð- jón Þórðarsson, fyrrverandi lands- liðsþjálfari, greindi frá þessu í hlaðvarpsþættinum The Mike Show. „Arnar Þór [Viðarsson] hefur sagt sína hlið á þessu Viðarsmáli og ég sé ekki ástæðu til að tjá mig neitt meira um það mál á þessu stigi. Það er hins vegar greinilegt að fólk hefur sínar skoðanir á þessu eins og öðru. Varðandi þessi ummæli Guðjóns Þórðarsonar um ósætti Eiðs og Gylfa þá dæma þau sig í raun bara sjálf en þetta er aðeins í takt við þá umræðu sem hefur verið í gangi. Það er eins með fjölmiðla sem taka þetta upp en svona eru fjölmiðlar bara í dag. Menn henda fram sögum eða vangaveltum sem þeir heyra og það er allt í einu orðið að fyrirsögnum. Ég er ekki viss um að það sé góð þróun en á sama tíma er þetta bara eitthvað sem menn þurfa að takast á við í dag eins og annað sem menn þurfa að takast á við í fótboltanum.“ Eru íslenskir fjölmiðlar á rangri leið? „Það er ekki mitt að dæma um það en ég held óneitanlega að þessi hlað- varpsumræða hafi breytt landslaginu mikið. Þetta eru vinsælir þættir sem maður skilur enda fótboltinn mjög vinsæll. Maður spyr sig hins vegar hvort einhverjar sögusagnir eigi fullt erindi á vefmiðla í dag en þetta er bara eitthvað sem við þurfum að eiga við og er hluti af þessu fjölmiðlaum- hverfi í dag. Maður vonar samt sem áður að miðlarnir sýni ábyrgð eins og allir þegar kemur að því að birta fréttir úr hlaðvörpum en þetta virðist alla vega vera þróunin í dag.“ Þurfum að sækja fram Þrátt fyrir fjögur töp á stuttum tíma, tvö hjá A-landsliðinu og tvö hjá U21-árs landsliðinu, er formaðurinn brattur. „Að sjálfsögðu erum við ekki sátt við þessi fjögur töp enda förum við í alla leiki til þess að vinna þá. Auðvit- að eru andstæðingarnir í lokakeppni EM mjög sterkir en við ætluðum okkur að krækja í einhver stig í þess- um fyrstu leikjum. Á sama tíma ætluðum við okkur stærri hluti með A-landsliðið en við vorum líka að mæta sterkum og særðum anstæðingum gegn Þjóð- verjum í fyrsta leik undankeppn- innar. Við ætluðum okkur samt sem áður að bæta upp fyrir það í Arme- níu en það tókst ekki. Við erum á ákveðinni vegferð þar sem við viljum bæta leik okkar og standa okkur betur. Fyrsta verkefnið í þeirri vegferð er að sjálfsögðu að vinna Liechtenstein og eins að U21 árs landsliðið nái í einhver stig gegn mjög sterku liði Frakka. Stundum gefur á bátinn í fótbolt- anum og undanfarna daga hefur að- eins gefið á hann. Við þurfum bara að stíga upp núna, þétta raðirnar og sækja fram.“ Engan bilbug að finna Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór skrifaði undir tveggja ára samning við KSÍ og starf hans er ekki í hættu eftir slæma byrjun. „Við erum bara að hugsa um leik- inn gegn Liechtenstein eins og stað- an er í dag. Við töldum okkur eiga vinna Armeníu en þeir voru sann- arlega sýnd veiði en ekki gefin. Við náðum ekki að spila eins vel og við vildum í Jerevan en þessi riðill er bara rétt að byrja. Það tekur tíma fyrir nýjan þjálfara að móta sína stefnu og líka fyrir liðið að ná sínum vopnum. Við erum bara á þeim stað í dag og við erum öll saman í þessu. Það er enginn bilbug- ur á okkur þrátt fyrir þessa byrjun og það þýðir ekkert að lyppast niður eftir tvo leiki. Við þurfum fyrst og fremst að berjast fyrir hver annan og bæta okkar leik sem lið,“ bætti Guðni við í samtali við Morgunblaðið. Þýðir ekki að lyppast niður - Ummæli fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands um meint ósætti dæma sig sjálf - Ekki góð þróun þegar sögur og vangaveltur breytast í einhverjar fyrirsagnir Morgunblaðið/Eggert Umtal Guðni Bergsson hefur haft í nægu að snúast undanfarna daga ásamt landsliðsþjálfaranum Arnari Þór. göngu með frjálsri aðferð og þá náði hann bestum árangri Íslend- inga í heimsbikarkeppni í Meråker í Noregi 2020 þegar hann hafnaði í 18. sæti í 34 km göngu með frjálsri aðferð. „Ólympíuleikarnir 2022 í Peking í Kína eru hálfgerð endastöð hjá mér því ég get ekki ímyndað mér að keppa áfram á skíðum án þess að vera að æfa af fullum krafti,“ sagði Snorri meðal annars í þættinum. Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn á mbl.is/ mogginn/dagmal/ithrottir/. „Ég er 35 ára gamall og ég veit að það er farið að síga á seinni hluta ferilsins,“ sagði Snorri Einarsson, fremsti skíðagöngumaður Íslands, í Dagmálum, nýjum frétta- og menn- ingarlífsþætti Morgunblaðsins. Snorri er fæddur í Noregi og á ís- lenskan föður og norska móður en hann var 18 ára gamall þegar hann valdi gönguskíðin fram yfir fót- bolta. Hann ólst upp í Noregi og bjó þar á uppvaxtarárum sínum, að und- anskyldu einu ári á Íslandi þegar hann var sjö ára gamall, en árið 2016 ákvað hann að byrja keppa fyrir íslenska landsliðið í stað þess norska. Árið 2019 náði hann besta ár- angri sem Íslendingur hefur náð á HM í Seefeld í Austurríki þegar hann hafnaði í 18. sæti í 50 km Ætlar að ljúka ferlinum í Peking Ljósmynd/Ski.is Bestur Snorri Einarsson er fremsti skíðagöngumaður þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.