Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR
SKYRKAKA VEGAN
SÚKKULAÐIKAKA
Fabrikkueftirréttir
FYRIR 16 MANNS
Áttu hinn ljúfasta
fermingardag
Anna Lilja Gunnlaugsdóttir fermdi dóttur sína Rut Marín í fyrra. Hún segir
að árið hafi kennt henni að endurhugsa hlutina og skoða hvar hún setur
athygli og orkuna. Það hafi hún heimfært á fermingu dótturinnar einnig.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
A
nna Lilja Gunnlaugsdóttir, viðskiptafræð-
ingur og skrifstofustjóri hjá Stapa lífeyris-
sjóði, býr á Akureyri með börnum sínum;
Rut Marín og Gunnlaugi Orra.
Fermingin gekk vel þó fermingadagurinn
hafi verið öðruvísi en áætlað var.
„Þar sem ég hef ekki fermt áður hef ég ekki beint
samanburð en get þó sagt að það hafi verið eins og svo
ótal margt annað á síðasta ári, öðruvísi og sannarlega
annað en maður hafði ímyndað sér. En öðruvísi er alls
ekki alslæmt og á endanum áttum við hinn ljúfasta
fermingardag.“
Héldu fámenna en góðmenna veislu
Hvernig var veislan?
„Að íhuguðu máli var niðurstaðan að hafa litla veislu
heima með okkar allra nánasta fólki á fermingardaginn
þann 29. ágúst. Við mæðgur vorum búnar að bjóða til
fjölmennrar veislu í byrjun júní, sem engan veginn
gekk upp á þeim tíma. Í okkar nánasta hring eru líka
alvarleg veikindi og við ákváðum því að njóta seinni
fermingardagsins í fámennum en afskaplega góðmenn-
um hópi.“
Anna Lilja segir að árið 2020 hafi kennt henni
hversu mikilvægt er að endurstilla sig og huga að því
hvert best er að beina athyglinni.
„Mér finnst árið hafa kennt okkur að endurhugsa
hlutina. Í hvað við erum að eyða orku okkar og tíma,
af hverju og fyrir hvern? Það var og er mjög auðvelt
að heimfæra þetta yfir á ferminguna. Við mægður er-
um ekki endanlega búnar að gefa upp á bátinn að
halda veislu. Einfaldlega af því að okkur langar svo
innilega mikið til þess. Við erum þakklátar fyrir hversu
margt frábært fólk við þekkjum, hversu dýrmætir vinir
okkar allir eru og stórfjölskyldan einnig. Okkur langar
að fagna með okkar góða hópi, en útfærslan hefur ver-
ið flókin, út af þið vitið hverju. Þetta snýst ekki endi-
lega um hvað þú þarft að gera heldur meira hvað þig
langar að gera.“
Undirbúningur býður upp á
skemmtilegar samverustundir
Hvað var skemmtilegast að gera í undirbúningi fyrir
ferminguna?
„Af mörgum ástæðum náðum við undirbúningnum
ekki almennilega á flug. En þetta er dýrmætur tími og
býður upp á skemmtilegar samverustundir með elsku-
legum unglingnum sem stækkar og þroskast á ógnar-
hraða. Það er gaman að spá og spekúlera hvað
fermingarbarnið langar að gera og vinna saman að því
að útfæra það. Finna föndrarann í sér og leyfa skipu-
lagsdólginum að blómstra - ef hann til staðar.“
Hvað var erfiðast?
„Í árferðinu í fyrra fannst mér yfirhangandi óvissan
erfiðust og hún litaði auðvitað undirbúninginn. Meiri-
hlutann af tímanum vissi maður vart hvort maður var
að koma eða fara. Fjölskylduaðstæður eru auðvitað alls
konar en persónulega fannst mér líka snúið að falla
ekki beint í hefðbundna kassa, litaða af samfélags-
miðlaalsælunni. Það er ekki allt hvítt og svart og að-
stæður ólíkar en mikilvægast að fylgja því sem ferm-
ingarbarnið vill.“
Anna Lilja segir að ef hún gæti gefið foreldrum
fermingarbarna ráð á þessu ári þá sé það eftirfarandi:
„Kynngimögnuð klisja sem er gott að muna er
hversu mikilvægt er að njóta. Þó svo stundum sé það
snúið og maður sé ögn nasablaktandi.“
Ljósmyndir/Agnes H. Skúladóttir
Rut Marín var ánægð
með ferminguna.
Gunnlaugur Orri, Rut Marín
og Anna Lilja.
5 SJÁ SÍÐU 10