Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 18

Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 Fermist þú ham-borgaralega? PANTAÐU ÞÍNA VEISLU ÁWWW.FABRIKKAN.IS 25 borgarar á hverjum bakka! 7 gómsætar tegundir í boði! Ef það væri nóg til af peningum Spurður að því hvernig hann myndi skipuleggja veisluna sína ef hann hefði tíu milljónir til ráðstöf- unar og allt væri hægt þá stendur ekki á svörum hjá Dreka. „Ég myndi í fyrsta lagi halda hana á stórri snekkju og á snekkj- unni yrði stór og flottur fáni í stefni með mynd af mér á. Svo væri líka fullt af kök- um með myndum af mér á og að sjálfsögðu svona fermingarterta með A ðspurður hvers vegna hann hafi valið borgaralegu ferminguna fram yfir þá kristnu segir Dreki það fyrst og fremst stafa af því að hann trúi ekki á guð samkvæmt skilningi kristinnar trúar. „Svo nennti ég heldur ekki að lesa Biblíuna og hvað þá að fara í messu til að hlusta á gamalmenni tala í klukkutíma. Messa hjálpar manni ekkert í líf- inu en það gerir námskeiðið hjá Siðmennt hins vegar. Þar lærðum við til dæmis um mannréttindi og dýraréttindi og við fengum einn kynfræðslutíma sem mér fannst mjög mikilvægt og gagnlegt því það er engin al- mennileg kynfræðsla í skólum. Hjá Siðmennt fengum við að vita það sem skipti máli og það var líka farið vel í þetta hvað það þýðir að vera unglingur. Hvað maður er að ganga í gegnum og svona.“ Mamma verður í gömlu fermingarfötunum sínum Dreki segir að veislan sem nú er fram- undan verði glæsileg en um leið frekar hefð- bundin fermingarveisla. „Það kemur mat- artrukkur svo allir fá eitthvað borða, pabbi mun segja eitthvað, mamma mun segja eitt- hvað, það verða sýndar myndir af mér þegar ég var minni og svo hitti ég einhverjar frænk- ur og frændur sem ég hef ekki séð í meira en tíu ár. Bara beisik,“ útskýrir Dreki og bætir um leið við að mamma hans, Sæunn Þórðar- dóttir hönnuður, ætli að vera í fermingarföt- unum sem hún sjálf var í fyrir mörgum, mörgum árum. „Hún passar alveg ennþá í þau“. Dreka dreymir um að fá Geo Basket-skó eða skellinöðru/vespu frá Tampco. „Þetta eru mjög góðar og flottar vespur og hámarkshrað- inn er svipaður og á þessum hlaupahjólum held ég. Það væri frábært að geta skotist um á vespu ef ég þyrfti að fara í Hagkaup eða eitt- hvað. Svo eru þær töff líka.“ styttu af mér ofan á. Svo myndi ég fá Pál Óskar í spandexgalla til að skemmta og uppi- standarann Pete Dav- idsen og auðvitað myndi ég hafa rosa- lega flugeldasýningu í lokin. Gestirnir yrðu bara þeir sömu og koma í veisluna mína,“ segir hann glúrinn og bætir við að hann gæti líka notað reykvél til að auka á stemninguna. „Ég myndi þá forrita hana þannig að það kæmi reykur í hvert sinn sem ég gengi um dyrnar í salinn.“ Fermingarfötin verða giftingarfötin af pabba Eins og segir í inngangi er Dreki mikill áhugamaður um tísku og hönnun og er því búinn að hugsa vel út í ferming- arfötin. Hann ætlar að vera í Nike-skóm sem heita Off White og jakkafötum frá merk- inu Purple Label en svo skemmti- lega vill til að pabbi hans, Steinar Valdimar Pálsson grafíker, var í fötunum þegar hann gifti sig. „En ef ég gæti valið dressið sjálfur, og það væri nóg til af peningum, þá myndi ég velja mér snákaskinns- stígvél frá Alyx, Rick Owens „fall- winter 2012 embroidered“-jakkafötum og Prada flame-skyrtu. Svo væri ég með Melted-úrið frá Cartier. Og hár- greiðslan? Hmmm … ætli ég yrði ekki bara krúnurakaður,“ segir tilvonandi fata- hönnuðurinn, og núverandi fermingar- drengurinn, Dreki Steinarsson, að lokum. Væri til í veislu á snekkju, reyk- vél, Pál Óskar og flugeldasýningu Dreki Steinarsson er fjórtán ára Kársnesbúi og tísku- áhugamaður sem ætlar að fermast borgaralega í næsta mánuði. Hann dreymir um að fá skellinöðru eða skó í fermingargjöf og innra með honum blunda blandaðar til- finningar af tilhlökkun og því að spá lítið í þetta. Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com Dreka dreymir um þessa skó. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dreki Steinarsson trúir ekki á Guð og valdi því að ferm- ast hjá Siðmennt. Dreki væri til í að fermast í þessari skyrtu ef pen- ingastreymið væri látlaust. Dreka dreymir um Geo Bask- et-skó í ferm- ingargjöf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.