Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 10

Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 10
Fólk sem kann að meta vörurnar frá Smash- box og hefur varla farið út úr húsi nema nota Photo Finish Primerinn í mörg ár mun dýrka Halo Healthy Glow Tin- ted Moisturizer SPF25. Um er að ræða létt og leikandi litað rakakrem sem gefur húðinni fallega áferð. Rakakremið inniheldur hýal- úrónsýrur, níasínamíð (niacinam- ide), rósareyði (rose extract) sem ró- ar og nærir húðina, gojiber og peptíð. Formúlan er vegan og olíu- laus sem nærir, verndar og gefur húðinni góðan raka. Allt í einni vöru. Best er að hrista kremið fyrir notk- un og ágætt að nota vel sprittaða fingur til þess að bera það á og fá létta þekju. Ef þú vilt meiri þekju get- ur þú notað bursta eða svamp. Fólk sem vill vera glóandi í fermingum gæti prófað að bera það á sig. Viltu fallegan ljóma? Smashbox Halo Healthy Glow Tinted Moistur- izer SPF25 Hér sést hvernig Smash- box Halo Healthy Glow Tinted Moisturizer SPF25 virkar fyrir og eftir. 10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 morthens Í dúnmjúku brauði með beikoni, hvítlauks grilluðum sveppum og bernaise sósu . Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 25 borgarar á hverjum bakka! 7 gómsætar tegundir í boði! fer sla WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR - Ferköntuð mingarvei R ut Marín er í 9. bekk Naustaskóla á Akureyri. Hún hefur áhuga á íþróttum og æfir fótbolta með Þór/ KA. Hún fermdist hinn 29. ágúst í fyrra í Akureyr- arkirkju. „Mér fannst mjög gaman að fermast, en aðeins ólíkt því sem ég hafði ímyndað mér þótt í heild hafi allt verið mjög skemmtilegt. Það var gaman að vera í kirkjunni með vinum mínum, að fá alla athyglina og eiga kósídag með fjölskyldunni.“ Hver var besta fermingargjöfin? „Ég var heppin að fá gjafir og fullt af peningum þrátt fyrir að halda bara litla veislu.“ Hvernig var að fræðast um kristna trú? „Mér fannst það al- veg áhugavert en misskemmtilegt.“ Muntu nota þær hugmyndir sem voru kenndar í fermingar- fræðslunni í lífinu? „Já alveg mögulega einhverjar, en út af kór- ónuveirunni fórum við mjög lítið í fermingarfræðslu.“ Hvar keyptirðu fermingarfötin? „Ég keypti kjól og bol í Gall- erí 17 og Nike-skó í Útilífi.“ Áttu eitt gott ráð fyrir fermingarbörnin á þessu ári? „Að njóta dagsins og byrja snemma að undirbúa svo maður sé ekki í neinu stressi.“ Heppin að fá fullt af gjöfum þrátt fyrir litla veislu Rut Marín Róbertsdóttir segir mikil- vægt að njóta fermingardagsins og byrja snemma að undirbúa hann. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Agnes H. Skúladóttir Rut Marín fermdist á Akureyri í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.