Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 14

Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 14
„Ég skil ekkert í mömmu að sleppamér út svona“ Eva Ruza skemmti- kraftur segir að ferm- ingarmyndataka hennar hafi verið ævintýraleg eins og sjá má á mynd- inni. farinn veg á þessum árum fæ ég beinverki yfir útlitinu. Ég man að mér fannst hrika- lega fullorðins að fermast og dag- urinn leið áfram í rosalegu gelgju- kasti.“ Grét úr hlátri í kirkjunni Eva Ruza segist muna vel eftir því að besta vinkona hennar hafi ekki fermst sama dag og hún. „Vinkonan mætti að sjálfsögðu í kirkjuna og veisluna. Hún eyddi bróðurpartinum af kirkjuathöfn- inni í að geifla sig framan í mig þannig að ég grét af hlátri. Bestu hlátursköstin eru náttúrlega alltaf þegar maður má ekki hlæja og ég man að mamma sendi mér morð- svip í kirkjunni þegar ég hristist öll og skalf af hlátri. Pabbi var hins vegar ekkert að spá í þetta, enda öllu vanur með okkur vin- konurnar. Kannski var hann sof- andi. Gæti hafa gerst. Ég man mjög lítið eftir fermingargjöfum frá öðrum en mömmu og pabba, en ég man samt að ég fékk 50 þúsund kall og fannst ég synda i seðlum. Frá mömmu og pabba fékk ég geggjað rúm sem mér þótti mjög fullorð- ins, eins og allt annað við þennan dag.“ Eva Ruza mælir með að henda í einhverja einstaka upplifun með fermingarbarninu. „Ég er sem dæmi búin að semja við börnin mín að þegar þau ferm- ast, sem er reyndar ekki að ger- ast alveg strax, munum við bjóða bestu vinunum og nánustu fjöl- skyldu í skemmtilegt partí og svo færum við fjölskyldan í smá ferða- lag.“ Hún segist vera guðslifandi feg- in að hún er ekki ein þeirra sem eru að ferma börnin sín í miðjum kórónuveirufaraldri. „Það sem skiptir samt mestu máli er að þeir sem maður elskar og er í daglegum samskiptum við séu á staðnum. Þá verður alltaf gaman.“ É g skil ekkert hvað var að eiga sér stað þarna, en mér fannst ég samt rosaflott. Ég tók öllum leiðbeiningum ljós- myndarans rosa vel og hugsaði að John Casa- blanca myndi pottþétt hafa samband við mig þegar myndirnar væru klárar. Ég hef velt því fyrir mér hvort Raggi Bjarna hafi verið á hugmyndaborðinu hjá hon- um, því þessi lafandi hönd á stóln- um er algjör tryllingur. Ég man að ljósmyndarinn var rosa mikið að stilla henni sérstaklega upp og ég var orðin grjótstíf í lok mynda- tökunnar.“ Setti saman fötin eins og hún væri Versace Eva Ruza er mjög fegin að ljós- myndarar eru að taka hipp og kúl myndir af krökkunum í dag. „Ég er samt að vona að þær verði smávegis hallærislegar hjá þeim líka eftir fimmtán ára. Það væri skárra fyrir okkur sem þjáumst þegar við sjáum mynd- irnar af okkur.“ Eva Ruza getur ekki sagt að hún hafi verið mikill tískufröm- uður þegar hún horfir til baka. „Hins vegar leið mér þannig öll unglingsárin að ég væri mesta skvís fyrr og síðar. Sem ég held reyndar að sé ágætis kostur. Það var bullandi sjálfstraust í gangi og ég setti saman þetta ferming- ardress eins og ég væri Versace. Það versta er að þetta „look“ er svo langt frá því að vera smart og ég skil ekkert í mömmu að sleppa mér svona lausri út. Mamma má samt eiga það, hún leyfði mér allt- af að blómstra og fikra mig áfram. Ég var mikið í því að sauma kjóla og að taka þátt í öllu félagslífi. Ég saumaði þá iðulega bún- ingana á mig og fannst það geð- veikt. Þegar ég horfi hins vegar yfir Eva Ruza Miljevic skemmtikraftur er mjög ánægð með þá staðreynd að í dag eru ljósmyndarar að taka hipp og kúl ljósmyndir af fermingarbörnum. Ef það hefði verið veruleikinn þegar hún fermdist ætti hún kannski öðruvísi ljósmyndir af sér á fermingardaginn. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 fabrikku- borgarinn Í dúnmjúku brauði með bræddum osti og Fabrikkusósu. Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 25 borgarar á hverjum bakka! 7 gómsætar tegundir í boði! WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 Ferköntuð fermingarveisla ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR Fátt gleður jafnmikið og að eiga fallegar ljós- myndir frá fermingardeginum af öllum gestunum. Nú er hægt að leigja alls konar sjálfvirkar myndavélar og prentara í veisluna svo að gest- irnir geti tekið ljósmyndir af sér til minningar. Ljósmyndir á fermingardaginn eru gulls ígildi. Ljósmyndaveggurinn Andrea Magnúsdóttir fatahönn- uður gerði töff ljósmyndavegg í fermingu dóttur sinnar. Allt er vænt sem vel er grænt. Photobooth.is Retró-kassinn er búinn DSLR- myndavél og snertiskjá. Nú er einnig hægt að panta prentara með kassanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.