Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 52
H
elena Björk Jónasdóttir íþrótta-
fræðingur, móðir hans, segir
margt hafa gerst á síðasta ári
hjá fjölskyldunni, en árið hafi
farið betur en margir hefðu
þorað að vona.
Aðspurð hvaðan sonur hennar hafi hæfi-
leikana segist hún óviss um það.
„Logi æfir í Listdansskóla Íslands og er
að taka sjöunda stig í dansinum um þessar
mundir.
Hann hefur æft ballett frá níu ára aldri og
alltaf haft mikinn metnað þegar kemur að
dansinum. Logi æfir mikið bæði hér heima
og á æfingum og virðist hafa einstakan hæfi-
leika á þessu sviði. Honum var boðið að
koma í Parísaróperuna og að keppa á heims-
meistaramótinu á Ítalíu í kjölfarið síðasta
sumar, en vegna veirunnar varð það ekki að
veruleika.“
Fjölskyldufaðirinn lenti í slysi
,,Við Guðmundur Sævarsson eigum þrjú
börn saman, þau Emblu sautján ára, Loga
fjórtán ára og Brynju tíu ára.
Fjölskyldan upplifði meiri áskorun en
margir aðrir í fyrra þegar Guðmundur lenti
í alvar-
legu bíl-
slysi.
,,Bílslysið
var í febrúar
í fyrra þegar
Guðmundur
lenti í því að fá
vörubíl inn í hliðina
á sínum bíl.
Hann fékk höf-
uðáverka og brotnaði á
mörgum stöðum á lík-
amanum. Ég held að bæði
hafi Guðmundur verið hepp-
inn að lifa slysið af
og svo
hafi það
líka haft
sitt að segja að við erum mikil íþrótta-
fjölskylda, svo eftir nokkurra mánaða
endurhæfingu þá var hann orðinn mun betri
fyrir fermingu Loga en við þorðum að
vona.“
Gestirnir sátu þar til veitingarnar kláruðust
Helena segir ferminguna í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði hafa verið einstaklega skemmti-
lega á sjómannadaginn í fyrra.
„Fermingin var akkúrat á þeim tíma þeg-
ar létt var á fjöldatakmörkum og fólk fékk
að bjóða allt að 200 manns í veisluna.
Það var allt svo gleðilegt á fermingardag-
inn. Fólkið okkar mætti, allir sem einn. Það
voru sex börn sem fermdust þennan dag svo
hvert og eitt þeirra fékk að njóta sín vel í
kirkjunni.
Það var eitthvað svo jákvætt og fallegt við
athöfnina. Kannski var það presturinn,
kannski við, mannfólkið, því það var að losna
um kórónuveiruhöftin á þessum tíma. En
hvert og eitt barnanna fékk svo mikla at-
hygli og presturinn talaði alveg á einstakan
hátt til þeirra.“
Helena segir að presturinn hafi talað um
að stundum væri lífið eins og brekka og að
fólkið í kirkjunni sem mætti með
fermingarbörnunum væri fólkið
sem færi upp brekkuna með
barninu.
„Við héldum veisluna í safn-
aðarheimilinu í Víðistaðakirkju og
fannst mér salurinn alveg ein-
staklega fallegur. Verkin hans
Balta voru uppi á veggjum, kök-
urnar og íslensku fánarnir gerðu
daginn einstakan. Það mættu 120
manns í veisluna; í raun og veru allir
á boðslistanum okkar.
Gestirnir sátu lengi í veislunni og
spjölluðu. Í raun og veru þangað til að
allar veitingarnar kláruðust.“
Dansinn gefur mikinn aga
Helena segir Loga stundum kallaðan
Fred Astaire, hann hafi verið mjög fjör-
ugur þegar hann var lítill strákur en
það hafi elst vel af honum.
„Dansinn gefur svo mikinn aga. Logi
er sjálfstæður og tekur
strætó á æfingar
sem hann mætir á
og gerir sitt besta.
Við gáfum hon-
um risastórt
ballettverk
sem blasti
við gest-
unum þeg-
ar þeir
komu í veisl-
una.“
Helena er á
því að ferm-
ingin sé einstök
og að allir þeir
sem eru að ferma á
þessu ári ættu að
reyna að njóta
þess.
„Ég mæli
með því að
veislunnar sé
notið líka og að
gefinn sé tími til
að tala við fólkið í
veislunni. Ekki að tapa
sér í smáatriðunum held-
ur njóta þess að taka þátt.
Við fjölskyldan erum
mjög samrýmd og að-
stoðum hvert annað
þegar eitthvað mikil-
vægt er að gerast í líf-
inu. Þannig að allir
leggja hönd á plóg-
inn fyrir stóra við-
burði.
Síðan elskum við
að vera fimm sam-
an, litla fjöl-
skyldan, þar sem
við förum upp á
fjöll og í alls
konar ferða-
lög. Það
gefur líf-
inu
gildi.“
Logi Sævarsson fermdist á sjómannadaginn í fyrra.
Helena Björk, móðir hans, segir ferminguna hafa
verið einstaka, sér í lagi þar sem öll fjölskyldan var
saman komin að fagna með syninum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Dansinn er stóra
áhugamál Loga.
Helena Björk og Guðmundur ásamt
börnunum Loga, Emblu og Brynju.
Myndin var tekin þegar Logi fermdist.
Ljósmyndir/Sirrý Klemenzdóttir
Fer dansandi í
gegnum lífið
Logi og fjölskylda
náðu að halda stóra
veislu á fermingardag-
inn hans.
52 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021