Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Fermingarmöppur
og gestabækur
Við bjóðum upp á áletrun á
nafni og dagsetningu
við Reykjalund | 270 Mosfellsbæ
Sími 562 8500 | www.mulalundur.is
S
irrý Klemenzdóttir hefur
rekið ljósmyndastofuna
Þetta stúdíó ásamt manni
sínum James Hudson síð-
an árið 2008.
„Ég lærði ljósmyndun á Íslandi og
bjó úti í Englandi í tvö ár og vann
sem portrettljósmyndari í eitt og
hálft ár.
Fermingarmyndatökur eru stór
hluti af slíkum ljósmyndum á Ís-
landi. Ég hef verið að taka ferming-
armyndir frá því áður en ég lauk
sveinsprófinu og alveg frá því ég
opnaði árið 2008.“
Fermingarmyndatökur eru eitt
upáhaldsmyndefni Sirrýjar.
„Einstaklingar á þessum aldri eru
svo skemmtilegir, hressir og opnir
fyrir alls konar skemmtilegum hug-
myndum.
Það sem mér finnst mestu máli
skipta þegar krakkar koma í ferm-
ingarmyndatöku er að þau komi með
hluti sem tilheyra áhugamálum
þeirra. Sem dæmi fótboltabúninginn
sinn, fiðluna eða jafnvel gæludýrið.“
Fermingarkyrtillinn á undanhaldi
Sirrý segir góða hugmynd að hafa
föt til skiptanna í fermingarmynda-
tökunni.
„Sem dæmi uppáhaldsgallabux-
urnar, hettupeysuna og fleira. Þá
fær maður fallegar myndir sem gefa
góðan þverskurð af lífi barnsins árið
sem það fermist.“
Sirrý segir ljósmyndatökur í
fermingarkyrtli á undanhaldi.
„Fæstir vilja gera eitthvað við
þær myndir, eins og til dæmis
stækka eða gefa í jólagjöf, þótt oft-
ast fylgi ein kyrtilmynd með í al-
búminu sé óskað eftir því. Þær eru
þó orðnar aðeins frjálslegri og ýmis-
legt skemmtilegt og fallegt hægt að
gera í kyrtlinum. Annars hafa borg-
aralegar fermingar aukist síðustu ár
og þar á kyrtillinn ekki við. Hægt er
að taka mjög fallegar myndir við slík
tilefni.“
Hún segir mikilvægt að hlusta á
hugmyndir fermingarbarnanna.
„Ég fæ oft alls konar beiðnir um
ýmislegt sem við útfærum svo í sam-
einingu og þannig fáum við fallegar
myndir. Portrettmyndataka snýst
um samvinnu á milli mín og ferming-
arbarnsins. Ég er opin fyrir öllu og
hef meðal annars verið kölluð upp í
hesthús til þess að ná myndum af
fermingarbarninu með uppáhalds-
hestinum sínum. Fermingar-
myndatakan er upplifun fermingar-
barnsins sem þau hafa mjög gaman
af svo mér þykir mikilvægt að þau
komi í slíka myndatöku. Svo er til-
valið að skella í góðar fjölskyldu-
myndir eða systkinamyndir í leið-
inni. Það er víst ekki á hverjum degi
sem fólk fer í myndatöku. Þá mæli
ég frekar með að fólk sé í venjuleg-
um fatnaði því þá er andrúmsloftið
afslappaðra. Þannig myndir eldast
vel. Að sjálfsögðu er samt alltaf
gaman að fá ljósmyndir af sér í
spariklæðnaði.“
Vinsælt að hafa gæludýr
Sirrý segir mikilvægt að fólki líði
vel í myndatökum.
„Til að fólki líði vel gef ég mér
góðan tíma til þess að kynnast því ef
þess þarf. Ég kem fram við fólk eins
og ég vil að það komi fram við mig.
Svo er ég frekar opin og með húmor
sem ég nota í ljósmyndatökunni.
Margar bestu myndirnar eru
teknar þegar fólk á síst von á því,
þar sem persónuleikinn fær að njóta
sín með hlátrasköllum eða skondn-
um augnablikum.“
Sirrý segir ljósmyndirnar í ár
verða svipaðar því sem nú þegar er
orðið vinsælt. Börnin séu með það
sem einkennir áhugasvið þeirra.
Hún hefur myndað fyrir Dýra-
hjálp Íslands í meira en áratug.
„Allir gæludýraeigendur vita að
gæludýrin eru mikilvægur hluti af
fjölskyldunni og lífi barnsins. Ég hef
myndað fermingarbörn með kis-
urnar sínar, hundinn sinn, hestinn,
naggrís og kanínur. Ég bíð spennt
eftir gullfisknum í kúlunni.“
Ljósmyndir/Sirrý Klemenzdóttir
Leyfir unglingunum að ráða
Sirrý Klemenzdóttir segir fermingarbörn góð
í að koma með hugmyndir að myndatökum
á fermingardaginn. Gæludýr eru vinsæl á
ljósmyndum í dag sem og áhugamálin.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Sirrý Klemenzdóttir
Sirrý Klemenzdóttir
ljósmyndari.
Sirrý segir mikilvægt
að leyfa fermingar-
barninu að koma með
hugmyndir í ljós-
myndatökunni.
Elísabet Unnur Hrólfs-
dóttir ljósmynduð af
Sirrý fyrir ferminguna.
Sirrý Klemenzdóttir
tekur fallegar ferm-
ingarljósmyndir.