Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 78

Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Fermingarmöppur og gestabækur Við bjóðum upp á áletrun á nafni og dagsetningu við Reykjalund | 270 Mosfellsbæ Sími 562 8500 | www.mulalundur.is S irrý Klemenzdóttir hefur rekið ljósmyndastofuna Þetta stúdíó ásamt manni sínum James Hudson síð- an árið 2008. „Ég lærði ljósmyndun á Íslandi og bjó úti í Englandi í tvö ár og vann sem portrettljósmyndari í eitt og hálft ár. Fermingarmyndatökur eru stór hluti af slíkum ljósmyndum á Ís- landi. Ég hef verið að taka ferming- armyndir frá því áður en ég lauk sveinsprófinu og alveg frá því ég opnaði árið 2008.“ Fermingarmyndatökur eru eitt upáhaldsmyndefni Sirrýjar. „Einstaklingar á þessum aldri eru svo skemmtilegir, hressir og opnir fyrir alls konar skemmtilegum hug- myndum. Það sem mér finnst mestu máli skipta þegar krakkar koma í ferm- ingarmyndatöku er að þau komi með hluti sem tilheyra áhugamálum þeirra. Sem dæmi fótboltabúninginn sinn, fiðluna eða jafnvel gæludýrið.“ Fermingarkyrtillinn á undanhaldi Sirrý segir góða hugmynd að hafa föt til skiptanna í fermingarmynda- tökunni. „Sem dæmi uppáhaldsgallabux- urnar, hettupeysuna og fleira. Þá fær maður fallegar myndir sem gefa góðan þverskurð af lífi barnsins árið sem það fermist.“ Sirrý segir ljósmyndatökur í fermingarkyrtli á undanhaldi. „Fæstir vilja gera eitthvað við þær myndir, eins og til dæmis stækka eða gefa í jólagjöf, þótt oft- ast fylgi ein kyrtilmynd með í al- búminu sé óskað eftir því. Þær eru þó orðnar aðeins frjálslegri og ýmis- legt skemmtilegt og fallegt hægt að gera í kyrtlinum. Annars hafa borg- aralegar fermingar aukist síðustu ár og þar á kyrtillinn ekki við. Hægt er að taka mjög fallegar myndir við slík tilefni.“ Hún segir mikilvægt að hlusta á hugmyndir fermingarbarnanna. „Ég fæ oft alls konar beiðnir um ýmislegt sem við útfærum svo í sam- einingu og þannig fáum við fallegar myndir. Portrettmyndataka snýst um samvinnu á milli mín og ferming- arbarnsins. Ég er opin fyrir öllu og hef meðal annars verið kölluð upp í hesthús til þess að ná myndum af fermingarbarninu með uppáhalds- hestinum sínum. Fermingar- myndatakan er upplifun fermingar- barnsins sem þau hafa mjög gaman af svo mér þykir mikilvægt að þau komi í slíka myndatöku. Svo er til- valið að skella í góðar fjölskyldu- myndir eða systkinamyndir í leið- inni. Það er víst ekki á hverjum degi sem fólk fer í myndatöku. Þá mæli ég frekar með að fólk sé í venjuleg- um fatnaði því þá er andrúmsloftið afslappaðra. Þannig myndir eldast vel. Að sjálfsögðu er samt alltaf gaman að fá ljósmyndir af sér í spariklæðnaði.“ Vinsælt að hafa gæludýr Sirrý segir mikilvægt að fólki líði vel í myndatökum. „Til að fólki líði vel gef ég mér góðan tíma til þess að kynnast því ef þess þarf. Ég kem fram við fólk eins og ég vil að það komi fram við mig. Svo er ég frekar opin og með húmor sem ég nota í ljósmyndatökunni. Margar bestu myndirnar eru teknar þegar fólk á síst von á því, þar sem persónuleikinn fær að njóta sín með hlátrasköllum eða skondn- um augnablikum.“ Sirrý segir ljósmyndirnar í ár verða svipaðar því sem nú þegar er orðið vinsælt. Börnin séu með það sem einkennir áhugasvið þeirra. Hún hefur myndað fyrir Dýra- hjálp Íslands í meira en áratug. „Allir gæludýraeigendur vita að gæludýrin eru mikilvægur hluti af fjölskyldunni og lífi barnsins. Ég hef myndað fermingarbörn með kis- urnar sínar, hundinn sinn, hestinn, naggrís og kanínur. Ég bíð spennt eftir gullfisknum í kúlunni.“ Ljósmyndir/Sirrý Klemenzdóttir Leyfir unglingunum að ráða Sirrý Klemenzdóttir segir fermingarbörn góð í að koma með hugmyndir að myndatökum á fermingardaginn. Gæludýr eru vinsæl á ljósmyndum í dag sem og áhugamálin. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Sirrý Klemenzdóttir Sirrý Klemenzdóttir ljósmyndari. Sirrý segir mikilvægt að leyfa fermingar- barninu að koma með hugmyndir í ljós- myndatökunni. Elísabet Unnur Hrólfs- dóttir ljósmynduð af Sirrý fyrir ferminguna. Sirrý Klemenzdóttir tekur fallegar ferm- ingarljósmyndir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.