Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 50
M
arkús Páll spilar
fótbolta og hand-
bolta með
íþróttafélaginu
Fram.
Hann fermdist í Guðríðar-
kirkju hinn 5. júlí á síðasta ári
og segir það hafa verið mjög
skemmtilegt.
Fermingardagurinn gekk vel
og hann fór í flotta ljós-
myndatöku hjá ljósmynd-
aranum Írisi Stefánsdóttur.
Markús Páll segir að þótt
veitingarnar og veislan hafi ver-
ið í höndum móður hans, Krist-
ínar Egilsdóttur, hafi hann haft
hönd í bagga með að velja
þemalitinn í veislunni.
Eins voru uppáhalds-
veitingarnar hans í fermingarveislunni. Mark-
ús Páll var búsettur úti á Ítalíu og hafði ákveð-
ið að velja sér fermingarföt þar.
„Ég komst ekki út til Ítalíu aftur vegna kór-
ónuveirunnar, svo við enduðum á að þræða all-
ar verslanir í Smáralind og í Kringlunni. Því
miður var ekki mikið úrval, en ég endaði á að
„Ætlaði að
kaupa ferming-
arföt á Ítalíu“
Markús Páll Ellertsson, nemandi í Sæmundarskóla,
er mikill íþróttamaður. Hann hélt flotta veislu en
gat ekki keypt fermingarfötin sín á Ítalíu vegna
kórónuveirunnar líkt og hann hafði ákveðið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Markús Páll skemmti sér vel í ljósmyndatökunni. Markús Páll fermdist þann 5. júlí í fyrra.
finna skyrtu og jakka í Zöru. Mamma pantaði
síðan skóna á netinu og svo fundum við bux-
urnar í Hanz.“
Hann hélt stutta ræðu í fermingarveislunni
sinni og hvetur alla þá sem eiga að fermast á
þessu ári til að reyna að njóta dagsins eins vel
og þeir geta. Ljósmynd/Íris Stefánsdóttir
Markús Páll segir mikilvægt að njóta fermingardagsins.
50 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
F
ermingin var einmitt þegar kórónu-
veiran var að byrja þannig að við
ákváðum að fresta henni þar til 5.
júlí. Þá voru faðir drengjanna minna
og elsti sonur minn á Íslandi; en þeir
búa á Ítalíu þar sem elsti sonur minn spilar
fótbolta. Ég var smávegis stressuð að reyna að
halda ferminguna á meðan þeir voru hér heima
en við rétt sluppum með að halda 100 manna
veislu á heimavelli í Fram-salnum sem mér
þykir mjög skemmtilegur og bjartur salur.“
Kristín segist hafa ákveðið að kaupa nóg af
spritti, sem hún hafði á öllum borðum og pass-
aði upp á sóttvarnir þannig að gestirnir væru
ekki mikið að snertast.
„Já, það var enginn að knúsa og kyssa, sem
ég held að hafi hentað fermingarbarninu vel.
Við vorum með stóran sal með svölum og vor-
um mjög heppin með veður á fermingardag-
inn. Það var sól og blíða og fólk gat dreift úr
sér. Ég passaði upp á að vera með pinnamat og
veitingar sem ekki þurfti að snerta. Ég var
með gos í dósum og heppnaðist veislan vel í
alla staði.“
Kann að meta að klæða sig upp á
Eldri sonur Kristínar er nítján ára og
hefur hún því fermt áður.
Kristín var í einstaklega fallegum
kjól á fermingardaginn og mælir hún
með að fermingarmömmur fjárfesti í
flík fyrir sig.
„Já mér finnst við fermingar-
mömmur verða að vera fínar líka. Ég
elska að klæða mig upp á. Ég fann fal-
lega kjólinn minn í Nínu á Akranesi.“
Er eitthvað sem þú mælir sérstaklega
með á fermingardaginn?
„Ég mæli hiklaust með að fara í ljós-
myndatöku. Að eiga fallegar myndir frá ferm-
ingunni er dýrmætt og að geta skoðað þær eft-
ir nokkur ár er verðmætt.
Ég hef unnið aðeins með Írisi Stefánsdóttur
ljósmyndara og ákvað því að senda á hana
nokkrar línur og athuga hvort hún væri ekki til
í skemmtilega fermingarmyndatöku með
Markúsi Páli úti. Við erum í skýjunum með út-
komuna og þessar fallegu ljósmyndir.“
„Erum í skýjunum
með útkomuna“
Kristín Egilsdóttir hárgreiðslumeistari, eigandi hárgreiðslu-
stofunnar Marmik í Seljahverfinu, segir fallegt hár og flottar
ljósmyndir skipta máli á fermingardaginn.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Kristín ásamt
fermingarbarninu
sínu og Ellert, föður hans.
Markús Páll
er mikill
íþróttamaður.