Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
Fermist þú
ham-borgaralega?
PANTAÐU ÞÍNA VEISLU ÁWWW.FABRIKKAN.IS
25 borgarar á hverjum bakka!
7 gómsætar tegundir í boði!
Ef það væri nóg til af peningum
Spurður að því hvernig hann myndi
skipuleggja veisluna sína ef hann
hefði tíu milljónir til ráðstöf-
unar og allt væri hægt þá
stendur ekki á svörum hjá
Dreka.
„Ég myndi í fyrsta
lagi halda hana á stórri
snekkju og á snekkj-
unni yrði stór og
flottur fáni í stefni
með mynd af mér á.
Svo væri líka fullt af kök-
um með myndum af mér
á og að sjálfsögðu svona
fermingarterta með
A
ðspurður hvers vegna hann hafi
valið borgaralegu ferminguna
fram yfir þá kristnu segir Dreki
það fyrst og fremst stafa af því að
hann trúi ekki á guð samkvæmt
skilningi kristinnar trúar. „Svo nennti ég
heldur ekki að lesa Biblíuna og hvað þá að
fara í messu til að hlusta á gamalmenni tala í
klukkutíma. Messa hjálpar manni ekkert í líf-
inu en það gerir námskeiðið hjá Siðmennt
hins vegar. Þar lærðum við til dæmis um
mannréttindi og dýraréttindi og við fengum
einn kynfræðslutíma sem mér fannst mjög
mikilvægt og gagnlegt því það er engin al-
mennileg kynfræðsla í skólum. Hjá Siðmennt
fengum við að vita það sem skipti máli og það
var líka farið vel í þetta hvað það þýðir að
vera unglingur. Hvað maður er að ganga í
gegnum og svona.“
Mamma verður í gömlu
fermingarfötunum sínum
Dreki segir að veislan sem nú er fram-
undan verði glæsileg en um leið frekar hefð-
bundin fermingarveisla. „Það kemur mat-
artrukkur svo allir fá eitthvað borða, pabbi
mun segja eitthvað, mamma mun segja eitt-
hvað, það verða sýndar myndir af mér þegar
ég var minni og svo hitti ég einhverjar frænk-
ur og frændur sem ég hef ekki séð í meira en
tíu ár. Bara beisik,“ útskýrir Dreki og bætir
um leið við að mamma hans, Sæunn Þórðar-
dóttir hönnuður, ætli að vera í fermingarföt-
unum sem hún sjálf var í fyrir mörgum,
mörgum árum. „Hún passar alveg ennþá í
þau“.
Dreka dreymir um að fá Geo Basket-skó
eða skellinöðru/vespu frá Tampco. „Þetta eru
mjög góðar og flottar vespur og hámarkshrað-
inn er svipaður og á þessum hlaupahjólum
held ég. Það væri frábært að geta skotist um á
vespu ef ég þyrfti að fara í Hagkaup eða eitt-
hvað. Svo eru þær töff líka.“
styttu af mér ofan á.
Svo myndi ég fá Pál
Óskar í spandexgalla til
að skemmta og uppi-
standarann Pete Dav-
idsen og auðvitað
myndi ég hafa rosa-
lega flugeldasýningu í
lokin. Gestirnir yrðu
bara þeir sömu og koma
í veisluna mína,“ segir
hann glúrinn og bætir
við að hann gæti líka
notað reykvél til að
auka á stemninguna.
„Ég myndi þá forrita
hana þannig að það
kæmi reykur í hvert sinn sem ég
gengi um dyrnar í salinn.“
Fermingarfötin verða
giftingarfötin af pabba
Eins og segir í inngangi er
Dreki mikill áhugamaður um
tísku og hönnun og er því búinn
að hugsa vel út í ferming-
arfötin. Hann ætlar að vera í
Nike-skóm sem heita Off
White og jakkafötum frá merk-
inu Purple Label en svo skemmti-
lega vill til að pabbi hans, Steinar
Valdimar Pálsson grafíker, var í
fötunum þegar hann gifti sig. „En
ef ég gæti valið dressið sjálfur, og
það væri nóg til af peningum, þá
myndi ég velja mér snákaskinns-
stígvél frá Alyx, Rick Owens „fall-
winter 2012 embroidered“-jakkafötum
og Prada flame-skyrtu. Svo væri ég
með Melted-úrið frá Cartier. Og hár-
greiðslan? Hmmm … ætli ég yrði ekki bara
krúnurakaður,“ segir tilvonandi fata-
hönnuðurinn, og núverandi fermingar-
drengurinn, Dreki Steinarsson, að lokum.
Væri til í veislu á snekkju, reyk-
vél, Pál Óskar og flugeldasýningu
Dreki Steinarsson er fjórtán
ára Kársnesbúi og tísku-
áhugamaður sem ætlar að
fermast borgaralega í næsta
mánuði. Hann dreymir um
að fá skellinöðru eða skó í
fermingargjöf og innra með
honum blunda blandaðar til-
finningar af tilhlökkun og því
að spá lítið í þetta.
Margrét Hugrún |
margret.hugrun@gmail.com
Dreka
dreymir um
þessa
skó.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dreki Steinarsson
trúir ekki á Guð og
valdi því að ferm-
ast hjá Siðmennt.
Dreki væri til í
að fermast í
þessari
skyrtu ef pen-
ingastreymið
væri látlaust.
Dreka dreymir
um Geo Bask-
et-skó í ferm-
ingargjöf.