Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur F ermingarveislan var haldin heima þann 6. september í fyrra. Veislan var þriðja útgáfan af veislu sem var skipulögð. Upphaflega höfðum við pantað sal með veitingaþjónustu með þriggja ára fyrirvara en hann reyndist svo þríbókaður þegar kom að því að fara að ganga frá þeim málum. Þá feng- um við minni sal, fækkuðum á gestalistanum sökum fjöldatakmarkana og fórum að endur- hugsa allt varðandi veitingar. Það féll svo um sjálft sig þar sem kórónuveiran var í hámarki á fyrirhugðum fermingardegi. Lokaniðurstaðan var svo lítil heimaveisla með okkar nánasta fólki. Við fengum frábæra aðstoð frá fjölskyldu og vinum og var þetta því ósköp einfalt í fram- kvæmd. Vinnufélagar mömmu minnar göldruðu fram gómsætt smáréttahlaðborð, Berglind Hreiðarsdóttir vinkona mín bakaði gullfallega og bragðgóða Oreo-súkkulaðiköku sem var ósk fermingardrengsins ásamt kransaköku sem var algert listaverk. Þórunn vinkona hjá Multi by multi lánaði mér svo þessa fallegu standa á veit- ingaborðið sem gerðu svo sannarlega mikið fyr- ir heildarútlitið á borðinu. Sjálf bakaði ég makkarónur, útbjó ostabakka og sá um að þetta liti allt saman huggulega út.“ Eru ennþá að nota fermingarservétturnar Lukka segir fermingarundirbúninginn hafa verið ánægjulegan. „Við fórum snemma að huga að fermingar- undirbúningi sem er í raun alveg úr takt við mig þar sem ég er vanalega á síðustu mínútu í und- irbúningi. Gunnar hafði miklar skoð- anir á öllu, eins og litaþema og hvað ætti að vera í matinn. Ég hafði pantað blöðrur, servéttur, fermingarkerti og fleira með árs fyrirvara. Það kom ekki að sök þrátt fyrir að veisluplönin hafi breyst að því undanskildu að við áttum 150 fermingarservéttur sem við erum ennþá að nota. Svo þurftu að vísu nokkrir laxar að víkja úr frystikistunni svo að kransakakan fengi sitt pláss. Henni var kirfilega pakkað og stóð af sér heilt ár í frosti með súkkulaði og blómaskreytingum og var algert lost- æti. Eins hafði ég bakað makkarónur sem einnig biðu ár í frysti og hlutu eng- an skaða af. Ég get því fullyrt að þessa hluti er hægt að gera í tíma en mögulega þarf villibráðin að víkja ef kistan er þéttsetin. Svo vorum við ekkert að stressa okkur á rangri dagsetningu á gestabók og fermingarkerti loks þegar rétti dagurinn rann upp. Þetta var bara partur af þessum sérstöku aðstæðum.“ Hvað með fermingarfötin og ljósmyndatök- una? „Það átti að gera allt í tíma og þar á meðal græja fermingarfötin. Gráar buxur og hvít skyrta og strigaskór urðu fyrir valinu. Ferm- ingardrengurinn er enginn „sparifatakall“ en var sáttur við kaupin. Buxurnar fóru í gegnum eina síkkun en svo óx hann að vísu upp úr þeim fyrir rest áður en dagurinn rann upp. Skónum fengum við að skipta sem var flott því hann hafði stækkað um eitt númer þegar loks kom að þessu. Á endanum valdi hann að vera í skyrtu, gallabuxum og jakka sem hann átti fyrir en fá sér nýja skó. Ljósmyndatakan var eins og allt annað, nokkrum sinnum plönuð og nokkrum sinnum hætt við en þetta hafðist á endanum og við fengum frábæran dag og dásamlegar mynd- ir.“ Lukka segir Gunnar einstaklega rólegan að eðlisfari og að hann hafi ekki verið að kippa sér upp við biðina og breytingarnar. „Ég held að ég hafi kannski mest fundið fyrir því. Hann var ótrúlega ánægður með daginn þegar hann loks rann upp og hefði í raun ekki viljað breyta neinu. En auðvitað voru margir sem við hefðum viljað hafa með okkur þennan dag en gátum það ekki vegna þessara sérstöku aðstæðna.“ Höfðu spritt á hverju borði Gunnar er í Varmárskóla og fermdist í Lága- fellskirkju. „Það var yndisleg lítil athöfn en færri komust að en vildu. Við fengum úthlutaðan einn bekk og nýttum hann vel. Við sátum þétt saman og stöfl- uðum okkur upp.“ Lukka segir að sóttvarnir hafi verið þeim of- arlega í huga í veislunni. „Við reyndum að útfæra það snyrtilega en gæta ýtrasta hreinlætis. Við höfðum spritt á öll- um borðum og salernum og keyptum gler- „sápupumpur“ í Rúmfatalagernum til að hafa þetta huggulegt fyrir augað. Ég festi á þær lít- inn miða sem á stóð spritt og batt hann á með fallegum borða. Sprittflöskurnar stóðu svo á borðum ásamt lítilli blómaskreytingu í glasi og litlu kerti. Gunnar langaði til að hafa poppbar. Við keyptum fjórar mismunandi tegundir af poppi hjá Ástríki sem við settum í glærar krukkur og settum gullskóflu til að skammta sér. Við vorum svo með lítil muffinsform undir poppið og var Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Fermingarbarnið óx upp úr ferm- ingarfötunum Lukka Berglind Brynjarsdóttir, þroskaþjálfi í Krikaskóla í Mosfellsbæ, segir fermingu sonarins, Gunnars Maack, hafa verið ævintýralega í fyrra. Það þurfti að fresta fermingunni ítrekað og breyta henni í takt við reglugerðir stjórnvalda. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmyndir/Berglind Hreiðarsdóttir Gunnar hafði miklar skoðanir á hvaða litir og hvernig veitingar væru í boði í fermingunni sinni. Nammibarinn var poppbar sem sló í gegn í fermingunni. Sörur slá í gegn hjá gestum á öllum aldri. Fallegar myndir af Gunnari á fermingardaginn. „Það kom ekki að sök þrátt fyrir að veislu- plönin hafi breyst að því undanskildu að við áttum 150 fermingarser- véttur sem við erum ennþá að nota.“ 5 SJÁ SÍÐU 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.