Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 L istakonan Tinna Magnúsdóttir stundaði arkitektanám við Listahá- skóla Íslands og fór seinna í meist- aranám til New York í sýning- arhönnun, þar sem mikið var lagt upp með að vinna með hugmyndir eins og sést á listaverkunum sem hún gerir um þessar mundir. Dóttir Tinnu, Kamilla Guðrún Lowen, fermdist í Hafnarfjarðarkirkju á síðasta ári og segir Tinna að fermingin hafi verið eins og lítið afmæli. „Það var ekki eins hátíðlegt og maður hefði viljað og því fannst mér fermingardagurinn ekki virka eins stór dagur. Hins vegar kann maður að meta stundina í kirkjunni betur en ef maður hefði verið að stressast út af veislunni. Kannski er samt þegar upp er staðið betra að gera þetta svona því fermingin á jú að snúast um trúna en ekki veisluna.“ Tinna hefur tekið einstaklega fallegar ljós- myndir af dóttur sinni. Ljósmyndir sem eru mjög stílhreinar og listrænar; í raun eins og listaverk frekar en eitthvað annað. „Ég vinn aðallega með tvo stíla; fyrri stíllinn er fágaðar svarthvítar myndir. Í þeim er inn- blástur fenginn frá Valtý Péturssyni myndlistarmanni og Grace Jones þar sem upp- stillingin fær að njóta sín. Hinn stíllinn er í anda Hannah Lemholt, Patricija Dacic og Vee Speers. Það eru mýkri myndir, þar sem unnið er meira með dulúð og ljóðrænni útfærslur.“ Hún segir myndirnar sínar í stöðugri þróun og finnst ótrúlega gaman að vinna að nýjum hugmyndum. Dóttirin kom henni af stað Tinna segir að ferming dótturinnar hafi gengið vel og að hún hafi farið í förðun og síðan hafi hún aðstoðað með hár fermingarbarnsins. „Fermingin gekk vel, en veislunni var aflýst út af ástandinu en afi og amma komu í kaffi. Svo var ákveðið að hún fengi andvirði þess sem kostar að halda fermingarveislu og hún var mjög sátt við það og foreldrarnir líka.“ Það var dóttir Tinnu sem kom myndaverk- efnum hennar af stað í upphafi. „Ég var mikið í myndlistarpælingum þegar dóttir mín minntist á að það væru engar fjöl- skyldumyndir uppi á vegg hjá okkur. Tinna Magnúsdóttir listakona tekur fallegar myndir af fermingar- börnum sem minna á listaverk. Hún segir skort á fjölskyldumyndum hafa verið það sem kom verkunum hennar af stað á sínum tíma. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmyndir/Tinna Magg Tinna tekur listrænar ljósmyndir af ferming- arbörnum. Kamilla Guðrún Lowen fermingarstúlka. Tinna Magnúsdóttir listakona. Þetta eru þá svo- lítið öðruvísi myndir en fólk á að venjast, þar sem sést mögu- lega bara í annað augað eða hálft andlitið, þar sem módelið er hluti af verkinu. Kamilla Guðrún Lowen dóttir Tinnu fermdist í fyrra. Dóttirin fallegasta listaverkið Þá fékk ég hugmynd að fyrstu „consept“- mynduninni minni. Myndin var innblásin af málverkapælingunum hjá mér. Það eru svart- hvítu myndirnar sem ég hef verið að þróa áfram. Í kjölfar þess byrjaði ég að taka myndir af börnum og óléttum konum.“ Það var svo Ágústa hjá Íslenskum heimilum sem hvatti Tinnu áfram með ljósmyndaverk- efnið. „Ágústa hvatti mig til að taka fleiri myndir, sem hægt væri að selja sem plaköt. Ég gerði það og upp frá því hafa orðið ansi mörg verk til og nú er ég að selja kort og mismunandi plaköt í nokkrum verslunum.“ Er mjög hrifin af þessum gamla stíl Tinna segir að allt frá því að hún var í grunnskóla hafi hún verið viðloðandi hönnun og myndlist. „Ég hugsa mikið í tvívíðri formfræði, það er að segja hvernig formin raðast upp á mynd- flötinn og skila sér í ljósmynduninni. Ég er mjög hrifin af þessum gamla stíl og þessari dulúð sem honum fylgir.“ Hvað ertu að fást við núna? „Ég er að selja plaköt og kort í verslunum ásamt því að hanna „consept“ fyrir næstu myndir. Ég er að mála og taka myndir af fólki. Svo er ég einnig að taka vörumyndir fyrir fyrirtæki.“ Hvernig lýsir þú listaverkunum þínum sjálf? „Verkin mín hugsa ég sem listrænt mynd- verk sem hægt er að hafa uppi á vegg. Þetta eru þá svolítið öðruvísi myndir en fólk á að venjast, þar sem sést mögulega bara í annað augað eða hálft andlitið, þar sem módelið er hluti af verkinu. Þú getur verið að fanga eitt- hvert ákveðið tímabil í þínu lífi eins og með- göngunum eða ferminguna. Mig langar að bjóða upp á myndir í þessu listræna formi. Sem virkar þá þannig að fólk velur sér hugmynd af síðunni minni Tinna- magg.com – ég sérhanna svo það listræna form fyrir hvern og einn. Þannig verður myndin listaverk og einstaklingur hluti af verkinu.“ Tinna tekur áhuga- verðar ljósmyndir í svarthvítum stíl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.