Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 70
70 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Gítarar
í miklu úrvali
Verð við allra hæ
Kassagítar
ar
á tilboði
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27 - Sími 552 2125
www.gitarinn.is
L
ilja Karitas Pétursdóttir skart-
ar fallegri hárgreiðslu.
„Ég krullaði hana gróflega
með Rod 10-krullujárni frá HH
Simonsen. Þegar ég var búin
að krulla hárið tók ég tvo grófa lokka
hvorn sínum megin við andlitið. Ég
sneri upp á þá og setti litla teygju í hár-
ið til að halda því. Til þess að gera tagl-
ið fallegt tók ég lítinn lokk og vafði utan
um teygjuna,“ segir Fía þegar hún er
spurð út í hárgreiðslu Lilju Karitasar.
Til þess að hárið haldist út daginn
notaði Fía rétt efni í hárið.
„Ég notaði í hana Label.m Heat Mist,
sem er hitasprey. Það er nauðsynlegt til
þess að verja hárið því krullujárnið
verður mjög heitt. Ég notaði líka Dav-
ines More Inside serum sem nærir hár-
ið og að lokum úðaði ég Davines More
Inside Medium Hairspray, svo greiðslan
héldist í marga klukkutíma,“ segir Fía.
Um hárgreiðslu Maríu Íseyjar Jón-
asdóttur segir Fía:
„Ég krullaði hana með Rod 9-krullu-
járni frá HH Simonsen. Ég sneri upp á
hárið hvorum megin að framan og tyllti
því með spennu. Ég notaði í hana
Label.m Heat Protection Mist, Davines
More Inside Medium Hold Hairspray
og Davines More Inside Shimmering
mist.“
Fía tók hárið frá andlitinu og sneri hárinu til að fá fallega línu í greiðsluna.
Fullkomið fermingarhár
sem helst allan daginn
Hárgreiðslumeistarinn Fía Ólafsdóttir sem starfar hjá hárheildsölunni Bpro sýnir hér hvernig
hægt er að framkalla fallega hárgreiðslu heima. Hún fékk Lilju Karitas Pétursdóttur og Maríu
Íseyju Jónasdóttur til að sitja fyrir. Fermingarhárið verður einstaklega fallegt með aðferðum Fíu.
MartaMaría | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lilja Karitas Péturs-
dóttir skartar fallegum
krullum og er hárið
tekið frá andlitinu
með snúningi.
Það skiptir máli að þvo hár-
ið vel og þurrka það með
hitavörn svo krullurnar
haldist betur í hárinu.
Fía notaði Rod
10-krullujárnið frá
HH Simonsen í
hárið á Lilju.