Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 73
FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 MORGUNBLAÐIÐ 73 Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is Falleg og vönduð fermingarúr frá Pierre Lannier • Mikið úrval Sími 551 8588 • skartgripirogur.is Bankastræti 12, sími 551 4007 skartgripirogur.is ERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA ég bara upp valkosti og þau voru bæði alveg sammála um niðurstöðuna – sem er ekkert allt- af niðurstaðan hjá þeim systkinum. Veislan yrði heima, með allra nánustu ættingjum og örfáum fjölskylduvinum, það yrði opið hús og við mynd- um dreifa þannig fjölda gesta og rúmt yrði um alla. Og þegar ég spurði hvaða liti eða skraut eða blóm eða servíettur þau vildu þá horfðu þau bara á mig og spurðu: sjáið þið Heida bara ekki um það? Við treystum ykkur til að velja! Það var bara ein ósk frá þeim sem kom undir lokin; að hafa nammibar. Þá var það afgreitt. Heida Hrönn Björnsdóttir, ein af mínum allra bestu vinkonum, leikur hér nefnilega lykilhlutverk. Hún er með Heida HB Photography. Í plani A ætlaði hún að skreyta með mér salinn og taka myndir. Og það breyttist ekkert þótt veislan yrði pínulítil og heima. Hún hjálpaði mér að skreyta heimilið og útbjó nammibar, tók mynd- ir í kirkjunni og hjálpaði til í eldhúsinu. Hún tók líka fermingarmyndir, bæði í stúdíóinu sínu og í fjörunni hérna á Álftanesi. Það er orðatiltæki sem við vinkonur Heidu eigum: það þurfa allar fjölskyldur að eiga eina svona Heidu að.“ Soffía Eydís segir að það hafi komið yfir hana önnur tilfinning á þessu stigi í undirbúningi. „Ég gerði mér upp algjört geðleysi gagnvart veirunni og tók einhverja tvo daga í að græja allt upp á nýtt alveg á síðustu stundu í vikunni fyrir ferminguna. Pantaði kökur, keypti ný föt á drenginn, sem hafði vaxið tæplega 15 cm frá því við keyptum þau fyrst, græjaði myndatökuna og prufugreiðsluna og fór í innkaupaleiðangur á kertum og servíettum og öðru punti. Kokk- urinn, hann Garðar Hall, sá í raun um allt sem tengdist matnum og ég var ekkert að stressa mig á þeim hluta undirbúningsins og lét Begga um að spá í það sem upp á vantaði með matinn. Heida bætti um betur og hjálpaði okkur Begga að koma öllu í stand heima fyrir daginn sjálfan, gerði skreytingar og stillti öllu upp á meðan við vorum að færa til húsgögn og þrífa allt hátt og lágt.“ Mikilvægt að missa ekki sjónar á aðalatriðinu Fermingardagurinn rann svo upp og allt gekk að óskum. „Sóldís Marja fór í greiðslu og þau voru af- skaplega sæt og fín í fermingarfötunum sínum og athöfnin í kirkjunni var yndisleg og falleg. Garðar kom svo með matinn eftir athöfnina og Beggi tók við honum og kom öllu á borð. Gest- irnir virtust allir ánægðir. Og það mikilvægasta af öllu – börnin voru alsæl eftir daginn, áttu fal- lega stund í kirkjunni, leið vel með sínum nán- ustu heima í veislunni og voru mjög ánægð með matinn. Þau nefndu það sérstaklega hversu glöð þau voru með að veislan skyldi á endanum vera heima.“ Soffía Eydís er reynslunni ríkari eftir veislu- höldin. „Ég áttaði mig á því að það er ekki alltaf sem það er hægt að standa í öllu frá a til ö ef maður ætlar að halda andlegri heilsu. Ég er ekki sú sem stend með svuntuna og töfra fram veislu- rétti og skreytingar, langt í frá. Ég kann hins vegar að stýra verkefnum og útdeila þeim! Þegar ég lít til baka er það gleði barnanna með daginn og stundin í kirkjunni sem stendur upp úr og dagurinn í heild. Heida og Garðar eiga alveg hrós og heiður skilið fyrir sinn þátt í að dagurinn heppnaðist vel. Ég held að það hafi verið afrek hjá foreldrum fermingarbarna á því herrans ári 2020 að hafa náð að láta ferma og halda veislu í einhverri mynd. Eiginlega hálf- gert kraftaverk. Mér líður eins og ég hafi sigrað einhverja mjög krefjandi þraut!“ Árið í fyrra kenndi Soffíu Eydísi að missa ekki sjónar á því sem mestu máli skiptir. „Fermingin sjálf er það sem skiptir mestu máli. Veislan getur verið með ýmsu móti og samt eru allir sáttir. Ættingjar sýna því skiln- ing að ekki hentar alltaf að vera með stóra veislu og bjóða öllum. Og það er svo kannski ekki það sem börnin sjálf vilja. Margir spurðu hvort börnin hefðu ekki verið svekkt yfir því að fá færri gesti og þar af leið- andi minna af gjöfum. En við í raun leystum það með því að gefa þeim þann pening sem sparaðist með því að halda minni veislu. Þau fengu því veglegri fermingargjöf frá okkur en til stóð í upphafi.“ Ljósmyndir/ Heida HB Soffía Eydís og Bergþór ásamt tvíburunum á fermingardaginn. Stemningin á Bessastöðum var mikil. Björgvin var í sínu fínasta pússi á ferm- ingardaginn. Listrænar ljósmyndir af fermingarbörnum eru vinsælar um þessar mundir. Sóldís fermdist sunnudaginn 30. ágúst í Bessa- staðakirkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.