Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 17
aldar í þátt til sín og hún lyti þar Oprah-skilyrðum og -kröfum. „Fyrr munu hávar hlaupa á land“ en að slíkt gerðist. En ef slíkt gerðist þó þá væri í fyrsta sinn komin í sófann kona sem væri bæði frægari og ríkari og hefði enst lengur í sviðsljósinu en drottning yfir- borðsspjallsins Oprah getur nokkru sinni vonað. En hún er þó sannarlega sigurvegari á sínu sviði, þessi blökkukona, sem ekkert var mulið undir og er nú í hópi sjö blökkumanna sem eru bandarískir milljarðamær- ingar í dollurum talið og hafa þau öll hafist þangað af eigin afli. Biden varnarlítill án kjallarans Joe Biden var nefndur í framhjáhlaupi í upphafi bréfs- ins. Í gær birtist í Daily Telegraph sérlega sláandi grein eftir Dominic Green, sagnfræðing, gagnrýnanda og tónlistarmann. Hann er jafnframt aðstoðarritstjóri bandarísku útgáfunar af Spectator. Greinin fjallar um Biden á nýjan hátt en sem er líklegt að verði almenn áður en langt líður. Hún hefst með þessum orðum: „Hnignun Joe Biden er orðin svo sársaukafull og vandræðaleg á að horfa að það jaðrar við að vera grimmdarlegt að hafa orð á því! En það sýnir þó jafnvel enn meiri grimmd að liðið í kringum Biden lætur eins og ekkert sérstakt sé að gerast og hitt að lunginn af bandarískum fjölmiðlum líti undan og þykist ekki taka eftir einu eða neinu.“ Dæmin lofa ekki góðu Og Green bætir við: „Síðastliðið fimmtudagskvöld minntist Biden með sjónvarpsávarpi ársafmælis lok- ana vegna Covid-19 og þess að hann hefði nú verið 50 daga sem forseti í Hvíta húsinu. Þetta var fyrsta sjón- varpsávarp í forsetatíð hans og almenningur hafði þá ekki séð til hans í þrjá daga. Frá þeirri stundu sem hann kom másandi í púltið og pírði augun í átt til upptökuvélarinnar mátti þér vera ljóst að hann væri í toppformi: Kvakandi tilfinn- ingasemi, slitrótt æsingatal í bland við þau augnablik sem hann virtist undarlega fjarlægur og vankaður. En hann komst í gegnum 20 mínútur og skjögraði burt án þess að gefa færi á spurningum. Þetta endurspeglaði hversu lágt markið er sett nú orðið fyrir Biden. Og um leið blasir við hversu mikið Biden hefur þó fyrir þessu og hversu langan aðdraganda hann verður að fá til að geta komist í gegnum það! Við horfum upp á hve erfitt hann á með að fylgja einföldum línum á myndavél- arskerminum og hversu honum vefst tunga um tönn við að mæla örfá orð af munni fram. Og hver maður sér vaxandi vandræðagang umsjónarmanna hans við að koma í veg fyrir að nokkur maður komi að honum spurningum er hann gengur að og frá upptökuvél- unum. En það sem er mest sláandi er það sem við sjáum í augum hans! „Hvað er ég að gera hér?“ spurði Biden eftir að hafa fálmað eftir stikkorðum fyrir fáein orð í Texas seint í febrúar. Hann teygði sig i minn- isspjöldin sem aldrei eru langt undan. „Ég held að ég sé að missa þráðinn hérna.“ Og fer hratt versnandi Hjálparlið Bidens bendir á að hann hafi áratugum saman átt til að láta skrítna hluti út úr sér [e. gaffe- prone]. Og það má til sanns vegar færa að hann hafi löngum hugsað með opnum munni,“ segir Green og bætir við „en þetta eru ekki hik eða mismæli af því tagi. Horfið á til samanburðar hvernig hann hreyfir sig eða hljómaði fyrir einu ári svo ekki sé horft til fimm ára. Hann er veikburða hvort sem horft er á hann eða hlustað. Hann virðist varla treysta sér að uppfylla ein- földustu kröfur embættisins og á þeim tíma þegar kröfurnar eru minni en oftast endranær. Þegar að Biden hljóp frá fjölmiðlum í kosningabaráttunni sögðu hjálparmennirnir að það væri gætni vegna kórónuveir- unnar. Nú þegar að veiran er nær komin að endimörk- um eru afsökunarefnin gegn ferðalögum einnig horf- in.“ Og Green bendir á að fátt bendi til að hann geti setið fundi æðstu manna: „Fyrr í vikunni gleymdi Bi- den, æðsti yfirmaður alls bandaríska heraflans, hvað stærsta ráðuneyti ríkisins heitir, varnarmálaráðu- neytið, og hann mundi ekki heldur hvað varnarmála- ráðherrann hét, sem hann hafði nýskipað í embætti (Lloyd Austin): „Thank you to the Sec… the former general… I keep calling him general… my… my… the guy who runs that outfit over there,“ bögglaðist út úr honum.“ Bent er á í greininni að Biden sé fyrsti forseti Banda- ríkjanna í áratugi sem ekki hefur haldið neinn blaða- mannafund eftir 50 daga í embætti. Ekki ávarpað þingið sem sé hefðbundið. Umsjónarmennirnir neita að nefna dagsetningu um þessa atburði. „Hann mun gera þetta í náinni framtíð,“ er það lengsta sem þeir ganga. Og það vefst ekki fyrir Green að á þessari stöðu sé aðeins ein skýring. Sú að nánustu aðstoðarmenn forsetans treysta honum ekki til að höndla einföldustu kröfur sem nútímaembætti í stjórnskipuninni gerir. En þeir geta heldur ekki beygt sig fyrir þeirri stað- reynd! Green endar sína athyglisverðu grein í Daily Tele- graph þannig: „Bandaríska forsetaembættið er að breytast í leikhús grimmdarinnar. Það getur aðeins endað á einn veg. Fyrr eða síðar verður Biden gripinn í kastljósi (þjóðarinnar). Demókratar sem blésu upp al- gjörlega ófæran frambjóðanda til að gegna valdamesta embætti Bandaríkjanna og fjölmiðlarnir sem þögguðu það allt niður, munu standa afhjúpaðir sem svikarar við eigin ábyrgð gagnvart bandarískri þjóð. Traust fólksins á grundvallarstofnunum lýðræðisins mun veikjast enn frekar en orðið er. Og við munum öll verða vitni að opinberri niðurlæg- ingu Bidens.“ Bréfritari horfði á ávarp Bidens frá minning- arathöfninni í Hvíta húsinu. Honum var hugsað þá: Hvernig voga þeir sér að gera þjóð sinni þetta? Og hvernig leyfa þeir sér að gera þessum blessaða manni þessa niðurlægingu? Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Bent er á í greininni að Biden sé fyrsti forseti Bandaríkjanna í áratugi sem ekki hefur haldið neinn blaðamannafund eftir 50 daga í embætti. Ekki ávarpað þingið sem sé hefðbundið. Umsjónarmennirnir neita að nefna dagsetningu um þessa atburði. 14.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.