Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 20
Fáir Íslendingar hafa ferðast til útlanda síðasta árið vegna kórónuveiru- faraldursins. Sunnudagsblaðið getur þó fullvissað lesendur um að allt er meira og minna á sínum stað og bíður ykkar með eftirvæntingu þegar um losnar. Komið bara með í stutt ferðalag á nokkra vinsæla ferðamannastaði, því til staðfestingar! Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Staðirnir verða ekkert mikið róm- antískari en Trevi-gosbrunnurinn í Róm og elskendur og aðrar endur koma þar saman í massavís, ekki síst í húminu á kvöldin. Það er svo sem ekki vel séð en einhverjir láta sig samt hafa að henda sér út í vatnið, líkt og sænska kynbomban Anita Ekberg gerði forð- um daga í kvikmynd Fellinis, La Dolce Vita. Rómverjar hafa hins vegar á löngum köflum sætt útgöngubanni á síðkvöldum undanfarna mánuði og enga hræðu þar að sjá nema lögregl- una. Eða „polizia merda,“ eins og snót- in á stúdentagörðum kallaði það ágæta lið á sinni tíð. Frelsarinn sjálfur hefur staðið af sér pestina og býður fólk eftir sem áður velkomið til sín, þar sem hann stendur keikur með útbreiddan faðm- inn á stalli sínum á Corcovado-fjalli í Á venjulegum degi er ekki þver-fótað fyrir ferðamönnum viðEiffelturninn. Vegna heims- faraldursins hefur verið heldur tóm- legt um að litast í grennd við þetta helsta tákn Parísarborgar síðasta árið. Einhverjir eru þó á ferli, eins og þessir félagar í Snípklíkunni (f. Gang du Clito) sem roguðust í byrjun vikunnar með risavaxinn uppblásinn sníp á Mannréttindatorginu andspænis turn- inum fræga. Tilgangurinn með uppá- tækinu var að fordæma kynferðislegt ólæsi í tilefni af alþjóðadegi kvenna. Enda þótt snípurinn virki hærri en Eiffelturninn á myndinni skuluð þið ekki láta það blekkja ykkur, hann er aðeins fimm metrar á hæð, turninn 324 metrar. Eða eins og máltækið seg- ir: Fjarlægðin gerir fjöllin blá og Eif- felturninn lítinn! Rio de Janeiro. Til öryggis er þó betra að gestir sem leita ásjár hjá honum beri grímu. Eðlileg krafa enda vill enginn hafa á samviskunni að hafa smitað Jesú Krist. Almannavarnir á rússnesku? Mars er ef til vill ekki besti mánuður- inn til að heimsækja Pútín og þegna hans til Kremlar enda kalt í Moskvu á þessum árstíma. Þegar ljósmyndari AFP-fréttastofunnar stakk við stafni í vikunni voru fáir á ferli en lögreglan stóð þó sína plikt í snjókomunni með grímu. Nema hvað? Gott fordæmi er gulli betra enda erum við öll al- mannavarnir. Hver kann annars að segja „almannavarnir“ á rússnesku? Alla vega ekki skáldið sem námsmað- urinn rakst á í miðborg Reykjavíkur um árið og kvaðst vera mellufær í því ágæta tungumáli. „Hvernig segir maður þá mella á rússnesku?“ spurði námsmaðurinn. „Það veit ég ekki,“ svaraði skáldið snúðugt. Vestur í Washington var líka frek- ar hráslagalegt um að litast í vikunni. Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá nokkrum manni að húsbóndaskipti urðu í frægasta húsi heims, Hvíta húsinu, fyrr á árinu. Nýi forsetinn, Joe Biden, snýr hér heim í spor- öskjuskrifstofuna sína eftir að hafa heimsótt lítið fyrirtæki úti í bæ, W.S. Jenks & Son. Biden lét ekki grímuna eftir liggja enda mun ötulli talsmaður slíks öryggisbúnaðar en forveri hans. Kína varð fyrst fyrir barðinu á veirunni, eins og við þekkjum, en lífið er smám saman að komast í eðlilegt horf þar. Nokkurn fjölda var að finna við innganginn að Forboðnu borginni í Peking á dögunum og þótti ein- hverjum við hæfi að koma í sínu fín- asta pússi. Aðrir voru alþýðlegri og afslappaðri í fasi. En eitt sameinaði alla, eins og víðar – gamla góða grím- an. Enda vitum við öll að pestin er ekkert grím! AFP AFP AFP AFP AFP AFP Umhverfis jörðina á einni blaðsíðu 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.3. 2021 FERÐALÖG Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.