Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 1
1 7 6 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 8 . S E P T E M B E R 2 0 2 1
Nýir fletir
í Hafnarborg
Sigga Guðna
fagnar frelsinu
Menning ➤ 18 Lífið ➤ 26
Sjáðu verðið strax á tm.is
Hugsum í framtíð
Þú færð okkar besta verð og getur tryggt
þig og þína á örfáum mínútum á tm.is
SKANNAÐU
KÓÐANN
SKOÐAÐU ÖLL
AFMÆLISTILBOÐIN
Starfsmannamál forsetaskrif-
stofunnar eru aftur í eldlín-
unni. Örlagarík skemmtiferð
er orðin að lögreglumáli.
bth@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Fyrrverandi starfs-
maður forsetaembættisins hefur
kært til lögreglu kynferðislega
áreitni af hálfu samstarfsmanns
hjá embættinu. Maðurinn kýs nafn-
leynd en segir að samstarfsmaður
hans fyrrverandi hafi hegðað sér
með óviðeigandi hætti allt frá 2015.
Í starfsmannaferð til Parísar árið
2018 hafi hann brotið alvarlega af
sér.
Gerandinn, karlmaður, fékk í
kjölfar Parísarferðarinnar skrif-
lega áminningu frá forsetaembætt-
inu. Hann baðst afsökunar og var
sendur í tímabundið leyfi. Að hann
skyldi fá að snúa aftur til starfa
kom þolandanum í opna skjöldu.
Hann telur sig ekki hafa fengið við-
eigandi málsmeðferð eða úrlausn
innan forsetaembættisins. Í sumar
sagði hann upp starfi sínu, leitaði til
Stígamóta og kærði síðar málið til
lögreglu. Honum hefur verið skip-
aður réttargæslumaður. „Þessi mál
hafa tekið gríðarlegan toll,“ segir
maðurinn.
Sif Gunnarsdóttir forsetaritari
sem hóf störf fyrr á árinu segir að
þegar embættið tók á málum í kjöl-
far Parísarferðarinnar hafi brotlega
starfsmanninum verið heimilað að
snúa aftur til starfa, að uppfylltum
tilteknum skilyrðum. Málinu hafi
þar með lokið hjá embættinu en
unnið hafi verið áfram með fagað-
ilum og starfsmenn fengið ráðgjöf
og stuðning.
Sif segir að nú standi yfir víð-
tækar skipulagsbreytingar á Bessa-
stöðum. Markmið þeirra sé að laga
starfsmannahald og skipulag vinnu
í átt að breyttum aðstæðum og for-
sendum, sem mótast hafi á undan-
förnum árum.
„Þessar breytingar munu meðal
annars hafa í för með sér að lögð
verða niður störf þeirra tveggja
starfsmanna sem hafa haft búsetu
á Bessastöðum,“ segir Sif. SJÁ SÍÐU 6
Starfsmaður forseta kærir til lögreglu
Þessi mál hafa tekið
gríðarlegan toll.
Þolandi.
„Þessar tölur sýna svart á hvítu að
nýsköpun á Íslandi hefur stóraukist
og hefur hún aldrei verið meiri en
nú,“ segir Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Endurgreiðslur vegna rannsókna-
og þróunarkostnaðar fyrirtækja
munu aukast úr 5,2 milljörðum
króna árið 2019 í um tíu milljarða
fyrir árið 2020, samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Rannís. Árið áður
var aukningin 46 prósent. SJÁ SÍÐU 8
Met í nýsköpun
Sigurður Hannes-
son, framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins.
Yfirstandandi Skaftárhlaup hefur ekki valdið umtalsverðu tjóni á mannvirkjum og þá hefur þjóðvegur 1 ekki orðið fyrir barðinu á hlaupinu enn sem komið er. SJÁ SÍÐU 2 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI